Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LÁUGARDAGUR 3. MARZ 1990 Oddný Ragna Sigurðardóttir, ungfrú Austurland 1989, krýnir Hugrúnu Ester Sigurðardóttur. Hugrún Ester Sigurðardótt- ir kjörin ungfrú Austurland HUGRÚN Ester Sipirðardótt- ir, 21 árs stúlka frá Egilsstöð- um, var kjörin ungfrú Austur- land í Egilsbúð síðastliðið laug- ardagskvöld. Hugrún Ester er stúdent frá Fjölbrautarskólan- um í Garðabæ en starfar nú sem ritari á endurkoðunarskrifstofu Sigurðar Stefánssonar. Ljós- myndafyrirsæta Austurlands var kjörin Lilja Jóhannesdóttir frá Ormstöðum í Norðfírði. Stúlkurnar sex sem þátt tóku í keppninni kusu úr sínum hópi vinsælustu stúlkuna sem varð Elín Hreiðarsdóttir frá Höfn í Homa- firði. Allar fengu stúlkurnar við- urkenningu fyrir þátttökuna og sigurvegarinn hlaut meðal annars vikuferð til sólarlanda frá ferða- skrifstofunni Úrval-Útsýn. Samkoman fór vel fram og meðal skemmtikrafta var stór- sveit Tónskóla Neskaupsstaðar og söngflokkurinn félagi Stalín. Foreldrar Hugrúnar Ester eru Kristbjörg Halldórsdóttir og Sig- urður Jonsson. Það var ungfrú Austurland 1989, Oddný Ragna Sigurðardóttir, sem kiýndi arf- taka sinn. í dómnefndinni sem skipuð var fimm aðilum sátu Guðrún Ólafs- dóttir, Neskaupsstað, Inga Þor- valdsdóttir, Seyðisfirði, Dröfn Bjamadóttir, Reykjavík, Hörður Siguijónsson, Reykjavík, og ungfrú ísland Hugrún Linda Guð- mundsdóttir Fegurðardrottning íslands, Reykjavík. Kvikmyndin „Braddock“ sýnd í Háskólabíói Háskólabíó sýn- ir „Undirheima Brooklyn“ HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga kvikmyndina „Undir- heima Brooklyn“ (Last Exit to Brooklyn). Leikstjóri er Uli Edel og með aðalhlutverk fara Steph- en Lang, Jennifer Jason Leigh, Burt Young, Peter Dobson og Jerry Orbach. Myndin ijallar um átök unglinga- gengis í Brooklyn-hverfinu í New York árið 1952 og hermanna sem eiga bækistöð þar skammt frá út af smámellunni Tralala. Á sama tíma á verkalýðsfélagið í harðvítugu verkfalli og er Harry Black, trúnað- armaður verkfallsmanna, þar í eldlínunni. Þá kemur við sögu ítölsk fjölskylda. Heimasætan er ófrísk og ekki er vitað hver faðirinn er. Fjölskyldufaðirinn má ekki vamm sitt vita og fær ungan mann til að giftast heimasætunni. Vinnuveit- endur láta til skarar skríða gegn verkfallsmönnum og Harry, sem sefur á verðinum, missir trúnaðar- mannsstöðuna. Tralala kynnist her- manni sem hrífst af henni og gefur henni peninga. Hann vill endurnýja kynnin við hana eftir að hann kem- ur úr stríðinu en hún hefur ekki áhuga á því. Þess í stað drekkur hún sig dauðadrukkna, fer á krá og býður öllum blíðu sína sem vilja. (Úr fréttatilkynningu) Jennifer Jason Leigh í hlutverki Tralala í kvikmyndinni „Undir- heimum Brooklyn“ sem sýnd er í Háskólabíói. „Bókin um hamingj- una“ endur- útgefin KOMIN er út hjá bókaforlaginu Iðunni Bókin um hamingjuna eft- ir Pétur Guðjónsson í annarri útgáfu, en bókin kom fyrst út á árinu 1981. I kynningu útgefanda á efni bók- arinnar segir meðal annars að hún eigi að hjálpa fólki að lifa fyllra og hamingjusamara lífí. Bókin sé sam- in á aðgengilegu máli og lýsi því hvemig vinna megi bug á streitu, skorti á sjálfsþekkingu og sjálfs- stjóm og öðm því sem komi í veg fyrir vellíðan og tilgangsríka til- vem. Einnig sé íjallað um ýmsar aðferðir og kenningar sem ríkt hafí í þessum efnum á liðnum öldum og árþúsundum. Þá segir: „Höfundur bókarinnar er landskunnur fyrir afskipti sín af þjóðmálum, svo og stjómunarráð- gjöf fyrir fjölda fyrirtækja hér á landi, en síðastliðin tíu ár hefur hefur hann rekið eigin alþjóðlega stjómunarfræðslu. Hann hefur jafnframt flutt fjölda fyrirlestra og haldið námskeið víða um heim, m.a. í Japan, en þar gaf hann út fyrstu bók sína.“ HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga kvikmyndina „Braddock“. Leikstjóri myndar- innar er Aaron Norris og með aðahlutverk fara Chuck Norris, Aki Aleong, Roland Harrah og Miki Kim. í frétt frá kvikmyndahúsinu seg- ir m.a.: „Myndin hefst um það leyti sem Sægon er að falla í hendur Birgitta Jónsdóttir Birgitta sýn- irí Lista- mannahúsinu BIRGITTA Jónsdóttir opnar myndlistarsýningu í Listamanna- húsinu, Hafiiarstræti 4, klukkan 16 á laugardag. í tilefni af því verður boðið upp á upplestur. Um upplestunnn sjá, meðal ann- arra, Steinunn Ásmundsdóttir, Sig- urgeir Orri, Charles Egill Hirt, Margrét Hugrún, Sigurður Ingólfs- son og Baltasar Samper. Þá verður tónlist flutt af Sigurði Sigurðssyni, Gunnari Grímssyni og Helgu Inga- dóttur. kommúnista í Víetnam. Allsheijar upplausn er ríkjandi og hún verður til þess að Lin Braddock, kona Jam- es Braddock ofursta, kemst ekki til bandaríska sendiráðsins í tæka tíð og verður innlyksa í Víetnam. Nokkru síðar fær James þær frétt til Washington að kona hans og ungur sonur séu á lífí í Víetnam og hann ákveður að þjarga þeim. Hann lendir í höndum Víetnama og sætir pyntingum en tekst samt að flýja og bjarga syni sínum. James lendir síðan í miklum mannraunum en að lokum tekst honum að bjarga syni sínum og fleiri börnum úr klóm Víetnama og koma þeim yfír landa- mærin til Tælands." Chuck Norris í hlutverki sínu sem James Braddock. GENGISSKRÁNING Nr. 43 2. mars 1990 Kr. Kr. Toll- Bn.KI. 09.15 Kaup Sala Gengi Dollari 61,07000 61,23000 60,62000 Sterlp. 101,52900 101,79500 102,19000 Kan. dollari 51,23700 51.42100 50,89600 Dönsk kr. 9,26220 9,28640 9,31900 Norsk kr. 9,27130 9,29560 9,30040 Sænsk kr. 9,89470 9,92060 9,91170 Fi. mark 15,18210 15,22190 15,25030 Fr. Irankí 10,52520 10,56528 10,58220 Belg. franki 1,71040 1,71490 1,71900 Sv. franki 40,51620 40,62230 40,76660 Holl. gyllini 31,56810 31,65080 31,77570 V-þ. mark 35,53370 35,62680 35,80730 fl. líra 0,04820 0,04833 0,04844 Austurr. sch. 5,04610 5,05930 5,08340 Porl. escudo 0,40550 0,40660 0,40740 Sp. peseti 0,55470 0,55610 0,55700 Jap. yen 0,40781 0,40888 0,40802 írskt pund 94,84500 95,09300 95,18900 SDR (Sérst.) 79,75310 79,96210 79,81840 ECU, evr.m. 72,82290 73,01370 73,25930 Tollgengi fyrir mars er sölugengi 28. febrúar Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70. Jiúf éMMd. - ... . Basar í sjómanna- heimilinu BASAR verður haldin í sjó- mannaheimilinu í Brautarholti 29 á morgun, sunnudag. í fréttatilkynningu segir að á boðstólum verði skyndihappdrætti, heimabakaðar kökur, margt fal- legra muna og fleira. Borkjarnar hafa verið teknir áður I frétt í Morgunblaðinu í gær, þar sem skýrt var frá leiðangri sænskra og íslenskra vísinda- manna, var sagt að ekki hefðu verið teknir borkjarnar af vatna- seti áður á íslandi. Þetta er ekki rétt. Bæði íslenskir og erlendir vísindamenn hafa tekið bor- kjarna af vatnaseti hér á landi. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk hjá Háskóla ís- lands, hafa meðal annars verið tek- in slík sýni í Þingvallavatni og Mývatni. Kristín Guðmundsdóttir í eigandi Stúdíóbrauðs i Austurveri. ■ STÚDÍÓBRAUÐ í Austurveri hefur nú hafið starfsemi á ný eftir bruna þar 5. janúar. ■ SLYSAVARNADEILD kvenna í Reylqavík verður með sína árlegu merkjasölu helgina 3.-5. mars. Merkjasala hefur um árabil verið aðalfjáröflunarleið deildarinnar og hafa tekjur runnið til björgunar- og slysavarnamála. Undanfarin ár hefur deildin notið aðstoðar Björg- unarsveitar Ingólfs við að verð- launa söluhæstu börnin og hefur til dæmis verið farið í stuttar ferðir út í Viðey eða hringferð um ná- grenni Reykjavíkur á bílum björg- unarsveitarinnar og boðið að skoða farartæki sveitarinnar. Eins mun verða þetta árið og fá þau börn sem selja 20 merki sh'ka ferð. ■ VEGNA fréttar ígær um verð á agúrkum hafði fyrirtækið Ban- anar hf. samband við blaðið og vildi vekja athygli á því að það byði ágúrkur á talsvert lægra verði en fram kom í fréttinni eða á 248 krón- ur kílóið í heildsölu. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA I 2. mars. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 95,00 79,00 82,55 36,352 3.000.694 Þorskur(ósl.) 75,00 60,00 72,29 1,384 100.044 Ýsa 153,00 50,00 143,14 11,228 1.607.131 Ýsa (ósl.) 129,00 102,00 114,07 0,802 91.484 Ufsi 38,00 36,00 36,33 0,452 16.420 Steinbítur (ósl.) 43,00 34,00 37,57 19,204 721.454 Langa 58,00 51,00 56,01 1,337 74.880 Keila (ósl.) Samtals 76,80 78,681 6.042.627 I Á mánudag verða meðal annars seld 60-70 tonn af þorski og 10 tonn af ýsu I I úr Núpi ÞH, Þórunni Sveinsdóttur VE og fleirum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 91,00 30,00 61,63 25,424 1.566.947 Þorskur(óst) 79,00 40,00 72,04 2,417 174.129 Ýsa 94,00 88,00 88,67 2,495 221.240 Ýsa (ósl.) 148,00 73,00 133,14 7,785 1.036.508 Karfi 41,00 35,00 36,32 0,577 20.957 Hlýri+steinb. 38,00 37,00 37,22 2,566 95.511 Rauðmagi 90,00 80,00 83,60. 0,235 19.645 Hrogn 210,00 50,00 182,71 0,457 83.500 Samtals 70,27 52,781 3.708.790 I í dag, laugardag, verða meðal annars seld 25 tonn af ufsa úr Ottó N. Þor- I I lákssyni RE og óákveðið magn af þorski og ýsu úr línubátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 101,00 53,00 80,61 50,826 4.096.835 Þorskur (ósl.) 93,00 52,00 84,13 36,696 3.087.157 Ýsa 122,00 80,00 105,53 6,758 713.158 Ýsa (ósl.) 111,00 92,00 105,09 9,006 945.423 Karfi 52,00 44,00 45,24 3,020 136.620 Ufsi 39,00 15,00 35,44 13,106 464.466 Steinbítur 46,00 37,00 42,92 3,662 157.187 Steinbítur (ósl.) 40,00 18,00 37,42 11,902 445.364 Samtals 73,14 142,729 10.439.192 | í dag, laugardag, verður selt óákveðið magn úr línu - og netabátum. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 26. febrúar til 2. mars. Þorskur 106,92 7,565 808.813 Ýsa 155,18 0,550 85.350 Ufsi 79,85 12,933 1.032.642 Karfi 103,45 507,125 52.460.686 Samtals 98,64 565,015 55.735.289 I Selt var úr Engey RE 26. febrúar, Hauki GK 28. febrúar og Gylli ÍS 1. mars. I I Selt var úr öllum skipunum í Bremerhaven. I SKIPASÖLUR í Bretlandi 26. febrúar til 2. mars. Þorskur 131,30 167,180 21.950.904 Ýsa 159,93 12,275 1.963.184 Ufsi 96,69 1,125 108.772 Karfi 92,16 2,160 199.055 Grálúða 98,41 19,560 1.924.823 Samtals 128,86 205,535 26.485.881 I Selt var úr Gjafari VE í Hull 1. mars og Gullveri NS í Grimsby 1. mars. GÁMASÖLUR í Bretlandi 26. febrúar tii 2. mars. Þorskur 135,41 449,887 60.920.054 Ýsa 151,76 277,009 42.040.179 Ufsi 83,19 22,999 1.913.247 Karfi 90,93 16,956 1.541.856 Koli 158,28 59,953 9.489.429 Grálúða 99,13 42,897 4.252.535 Samtals 132,59 1.016,02 134.710.886

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.