Morgunblaðið - 03.03.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ, 1990 ,,
41
Um kristilegt sjónvarpsefiii
Til Velvakanda.
íslendingar hafa notið sendinga
íslensks sjónvarps um árabil. Margt
Dýrt ævintýri
Til Velvakanda.
Hvað er einn milljarður milli vina
/ datt mér í hug, þegar ég las og
' heyrði, að handboltamenn vantaði
nokkur hundruð milljónir til að
byggja nýja handboltahöll. Svo fór
ég að heyra ýmsa kunningja mína
vera að hneykslast á þessu, m.a.s.
nefndu sumir, að hér væri engin
tónlistarhöll, því að við hefðum ekki
efni á að byggja hana, þó margir
hafi gaman af músík. Margir verða
að sætta sig við, að fé skortir í
heilbrigðiskerfið, jafnvel var kirkja
auglýst til sölu vegna fjárskorts.
En þá er á það að líta hvort hand-
boltaleikur getur bjargað okkur.
Ég er ekki viss um það, en ég hef
ekki orðið var við að neinn hafi
opinberlega látið í ljós efa um það.
Davíð borgarstjóra þykir ævintýrið
dýrt. Ég er á sama máli. Mér fínnst,
í alvöru, að þetta séu öfgar að ætla
að byggja þetta hús núna. Sérstak-
lega vegna þess að við eigum all-
mörg glæsileg hús, sem hægt er
að nota fyrir keppni í handbolta.
Er ekki best að hugsa málið betur?
Er þetta slík þjóðamauðsyn að við
getum ekki beðið betri tíma? Er
líklegt að útlendingar flykkist hing-
að í svo stórum stíl til að sjá eitt
handboltamót, að þetta borgi sig?
E.t.v. er hægt að fjölga sætum í
Laugardalshöll, og svo sjáum við
mikið af handboltakeppni í sjón-
varpi.
Eg vil samt taka undir með Davíð
borgarstjóra, og óska Kópavogs-
kaupstað og ríkinu til hamingju, ef
þeir hafa svona mikið fé aflögu.
Sig. H. Jóhannsson
mætti segja um það, en undarlegt
þykir mér, hve stjórnendur þess
hafa gætt þess vel, að hafa ekki
of mikið af kristilegu sjónvarps-
efni. Það hefur stundum hvarflað
að mér, hvort stjómendur telji það
hættulegt landslýð. Þess er gætt
vandlega, að ekki sé sjónvarpað
nema 6-7 mínútna hugleiðingu á
viku. Þetta er undarlegt, þegar það
er haft í huga, að við íslendingar
teljum okkur vera kristna þjóð og
menning okkar byggir á kristnum
grunni.
Það virðist hins vegar ekki valda
stjómendum þess neinu hugarangri
þótt þeir flytji landsmönnum óend-
anlegt magn af ofbeldi og öðru, sem
slævir og skemmir siðferðisvitund
okkar. Ég er ekki svo bjartsýnn að
halda, að þessar línur mínar verði
til þess, að virðulegir stjórnendur
sjónvarpsstöðvar íslensku þjóðar-
innar, Ríkissjónvarpið, hætti að
sýna ofbeldismyndir, en vil hins
vegar benda á að öll íslenska þjóðin
á þessa sjónvarpsstöð. Ég fer því
fram á, að hugsað verði fyrir þörf-
um kristinna manna og að óskir
þeirra um kristilegt sjónvarpsefni
verði teknar alvarlega. Undirritaður
hefur talað við marga, sem lýst
hafa hryggð sinni yfir stöðu mála.
Það eru margir íslendingar, sem
vilja fá mikið kristilegt efni inn í
stofur sínar. Það er enginn skortur
á slíku efni úti í hinum stóra heimi,
ef leitað er að því.
Það ber að þakka það, sem vel
er gert. Ég vil þakka fyrir þættina
um Narniu, en útskýra hefði mátt
myndmál þeirra. Ég vil einnig fyrir
höiid margra foreldra koma sér-
stöku þakklæti til Stöðvar 2 fyrir
þættina „Besta bókin“, sem eru
góðir. Ég bið um, að sambærilegir
taki við, þegar þeim lýkur.
Skora ég á stjórnendur sjón-
varpsstöðvanna beggja að láta af
þeirri dæmalausu þröngsýni, hlut-
drægni og þjónkun við ákveðinn hóp
þjóðarinnar, sem hefur viðgengist
hingað til. Við búum í fijálsu landi.
Ef einhver skyldi fá ofbirtu í sálina
af að horfa á kristilega sjónvarps-
þætti, þá má gefa þeim það gamla
ráð, að slökkva á sjónvarpstækinu.
Það ráð hefur uppalendum löngum
verið gefíð, þegar þeim hefur þótt
vera farið yfír strikið.
Með von um að stór hluti eigenda
íslensks sjónvarps verði teknir al-
varlega.
Kjartan Jónsson
Pizza-bónus
1 2“ pizza á aðeins
kr. 700,- til kl. 20.00
Skipholti 37, sími 685670.
Vinum mínum og vandamönnum, sem gerðu
mér afmœlisdaginn ógleymanlegan með heim-
sóknum, gjöfum og kveðjum, þakka ég af alhug.
Magrtús Steingrímsson,
Álftamýri 18.
Ég sendi kœrar þakkir til þeirra, er glöddu
mig með gjöfum, blómum og kveðjum á 80
ára afmœli mínu 12. febrúar sl. Einnig sendi
ég Hermanni Ragnari Stefánssyni, fru Unni og
öllu því ágœta, fólki er var á Hótel Örk 19.-22.
febrúar sl., minar bestu kveðjur og þakkir fyrir
skemmtilegar samverustundir.
Alice Fossádal,
Víkurbraut 54, Grindavík.
Bridsáhugaf ólk
Opið tvímenningsmót í brids verður haldið á
Hótel Höfn, Hornafirði, dagana 9. og 10. mars.
Spilaður verður barómeter.
Þátttökugjald kr. 5.000,- pr. par.
Peningaverðlaun verða veitt:
Fyrir 1. sæti kr. 70.000,-
Fyrir 2. sæti kr. 50.000,-
Fyrir 3. sæti kr. 30.000,-
Fyrir 4. sæti kr. 10.000,-
Hámark para er ákveðið 36.
Þátttaka tilkynnist á Hótel Höfn, sími 97-81240
fyrir 5. mars.
Á Hótel Höfn liggja einnig fyrir upplýsingar um
gistiverð.
Bridsfélag Hornafjarðar.
i
___]
~ i
Samkorti
Ja^aí-,a^es1
. w 250,-
990,-
Zr tA90,-
& W AA90,-
w AA90,-
Zr A890,-
^Xr 990,-
w 150"
W- a490,-
Gas^°
J í Kr1gÍuhJS!|pIWI) SUHHUDAG 4.WARS Kl.14
l IIÖLDI GÓÐRA VINNINGA
LIONS KLUBBURINN iö TYR
J