Morgunblaðið - 03.03.1990, Page 43

Morgunblaðið - 03.03.1990, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 43 IÞROTTAMAÐUR ARSINS Spænsku blöðin eru öll mjög ánægð með framgöngu sinna manna eftir sigurinn á Islendingum en egja þó að þeir hafi haft heppn- Bggg ina með sér. Mark- Frá Kjartani verðinum, Lorenzo L Pálssyni Rico, og Serrano er á Spáni hrósað sérstaklega og sagt að án þeirra hefðu Spánveijar ekki sigrað. Eitt blaðanna segir að ef Islendingar hefðu leikið eins og þeir gerðu í fyrri hálfleik gegn Kúbu, hefðu Spánveijar ekki átt möguleika. Alfreð Gíslason fær besta dóma af íslendingunum og honum var mikið hrósað í sjónvarpinu. Þá var einnig hamrað á því í sjónvarpinu að Kristján Arason og Geir Sveins- son léku einnig með spænskum lið- um og að Sigurður Gunnarsson og Einar Þorvarðarson hefðu einnig leikið á Spáni. Með þessu gerðu spænskir sjónvarpsþulir því skóna að það væri ástæðan fyrir því hve sterkt íslenska liðið væri. Mikið var gert úr gengi íslenska liðsins miðað við höfðtölu og sagt að liðið væri „sameiningartákn þjóðarinnar" — „el simbola de toda una Nacion“. Mikill áhugi var fyrir leiknum. Hann var sýndur beint í sjónvarpi og lýst á fjórum útvarpsstöðvum en góð byrjun Spánveija hefur kom- ið nokkuð á óvart. íslenska landsliðið „sameiningartákn“ - segir í umfjöllun um íslenska liðið í spænsku blöðunum Hef miklatrúá íslenska liðinu segir Atli Hilmarsson ATLI Hilmarsson horfði á leik íslendinga og Spánverja í beinni útsendingu á Spáni í fyrra kvöld. „Mér fannst leikur- inn góður og sigurinn gat lent hvoru meginn sem var. Það sem varð íslenska liðinu að falli íþessum leik voru hrað- aupphlaupin,11 sagði Atli. Atli horfði á leikinn með félög- um sínum úr Gronollers. „Það var erfítt að vera íslendingur eftir leikinn. Því þá sýndi sjónvarpið auglýsinguna þar sem ég klappa á bakið á Geir Sveinssyni og segi:„ Til að sigra þarf að borða saltfisk.“ Þetta var svolítið broslegt eftir tap- Leikirgegn Júgóslavíu íslenska landsliðið hefur leikið 22 landsleiki gegn Júgóslavíu og hafa úrslit orðið þessi: 1970 - Tiblishi...........15:24 1971 -Reykjavík...........11:20 1971 -Reykjavík...........15:22 1975 - Reykjavík..........20:20 1975 - Reykjavík..........17:19 1975 - Lubljana............20:26 1975 - Reykjavík UÓL......18:24 1975 - Reykjavík..........20:25 1976-NovaNestor UÓL........22:23 1982-Torgir...............17:23 1984 - Fullerton ÓL.......22:22 1985 - Reykjavík..........23:24 1985 - Vestmannaeyjar.....15:20 1985 -Reykjavík...........20:13 1987 - Reykjavík..........19:20 1987 - Reykjavík..........24:20 1987 - Prilep..............18:15 1987 - Hönefoss...........17:24 1987 - Reykjavík...........25:22 1987 - Reykjavík..........27:28 1988-Örebro..„............23:20 1988 - Suwon ÓL...........19:19 1990-Zlin HM...............7? :?? Árangur hefur orðið þessi á heimavehi, útivelli og á hlutlausum völlum: Heima:.........13 3 1 9 254 Úti:........... 4 1 0 3 77 Hlutlaus:...... 5 1 2 2 96 Samtals: .....22 5 3 14 427:473 ■Leikir sem eru merktir U ÓL voru leiknir í undankeppninni fyrir ólympíuleikana í Montreal 1976, en leikir merktir ÓL eru leikir á Ólympíuleikunum í Los Angeies og Seoul. ísland hefur aldrei leikið gegn Júgóslavíu í heimsmeistarakeppni. Island hefur einu sinni leikið gegn R-liði Júgóslaviu. Það var 1982 i Trogir og mátti ísienska liðið þá þola tap, 19:20: óspart ið og félagar mínir gerði grín að þessu,“ sagði Atli. „íslenska liðið lék vel, en spænska liðið sýndi mikinn styrk með sína ungu leikmenn. Það skipti sköpum að Krisján náði sér ekki á strik. Eins voru hornamennimir ekki mikið inní myndinni og hefðu þeir átt að geta nýtt sér hraðaupp- hlaupinn í staðinn. Rico varði vel á mikilvægum augnablikum, sérstak- lega frá Héðni úr tveimur hrað- aupphlaupum. Ég hef mikla trú á íslenska Iiðinu þrátt fyrir þetta tap og það á að vinna Júgóslava á laugardaginn. Okkur hefur alltaf gengið vel gegn þeim. Júgóslavneska liðið er slakt um þessar mundir og byggist allt í kringum Vujovic. Það þarf .að taka hann fast og halda honum niðri,“ sagði Atli. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bjarni íþróttamaður Reykjavfkur 1989 Bjami Friðriksson júdómaður úr Ármanni var í gær útnefndur íþróttamaður Reykjavíkur 1989. Þetta er í annað sinn sem Bjarni hlýtur þetta sæmdarheiti, en hann var einnig valinn 1984, sama ár og hann vann bronsverðlaun í sínum flokki á Ólympíuleikunum í Los Angeles. Bjami hefur borið höfuð og herðar yfir aðra júdómenn hér á landi í mörg ár. Hann náði góðum árangri á Evrópu- og heimsmeistaramótinu í fyrra og hann vann bronsverðlaun á opna skoska meistaramótinu og auk þess gullverðlaun í opnum flokki og -95 kg flokki á Norðurlandamótinu, sem fram fór í Reykjavík. Bjarni er 33 ára gamall og hefur tvíveg- is tekið þátt í ólympíuleikum, 1984 og 1988. Á myndinni er Bjami ásamt eiginkonu sinni, Ónnu Guðnýju Ásgeirsdóttur og sonum sínum, Sveini og Friðgeiri Daða. Níunda sætið gætidugað Atta efstu lið heimsmeistarakeppninnar að þessu sinni tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Barcelona á Spáni 1992 og einnig á heims- meistaramótinu í Svíþjóð 1993. Þau gætu hins vegar orðið fleiri — níunda sætið gæti dugað til að hreppa sæti á báðum mótum, þ.e.a.s. ef Spán- veijar og/eða Svíar verða á meðal átta efstu. UðJúgóslava Sjónvarpsáhorfendum til glöggvunar er hér listi yfir leikmenn Júgóslava, sem ís- lendingar mæta í dag: Nr. 1. Goran Stojanocic Nr. 12. Mirko Basic Nr. 2. Vladimir Jecic Nr. 3. Veselin Vukovic Nr. 4. Zlatan Saracevic Nr. 5. Iztok Puc Nr. 7. Irfan Smailagic Nr. 9. Veselin Vujovic Nr. 10. Nenad Kljaic Nr. 11. Slobodan Kuzmanovski Nr. 14. Djuradj Tomljanovic Nr. 15. Mile Isakovic URSLIT Morgunblaðið/Júlíus íslensku landsliAsmennirnir fengu frí frá handboltanum í gær. Þeir notuðu tækifærið og skoðuðu glerverk- smiðju, sem framleiðir krystalsvörur, í Kvédna sem er um 60 km frá Zlín. Leikmönnunum gafst einnig kostur á að versla í verksmiðjunni. Verðlag þykir mjög lágt í Tékkóslóvakíu og sem dæmi um það má nefna að mjólkurlítinn fæst þar fyrir aðeins þijár krónur íslenskar. Valur — KR .39:24 Iþróttahús Vals, 1. deild kvenna í handknatt- leik, föstudaginn 2. mars 1990. Mörk Vals: Guðrún Krisljánsdóttir 15, Katrin Friðriksen 7, Una Steinsdóttir 4, Ásta Sveins- dóttir 4, Margrét Theódórsdóttir 4/3, Bergiind Ómarsdóttir 3, Kristín Þorbjömsdóttir 1 og Kristín Pétursdóttir 1. Mörk KR: Sigurbjörg Sigþórsdóttir 8/4, Ás- laug Friðriksdóttir 5, Ama Garðarsdóttir 3, Valdís Amórsdóttir 3, Nellý Pálsdóttir 3, Sigríður Pálsdóttir 2 og Sujólaug Beujamíns- dóttir 1. Fram — Haukar....................36:18 Laugardalshöll, 1. deUd kvenna í hand- knattleik, fimmtudaginn 1. mars 1990. Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 14/6, Ama Steinsen 6, Sigrún Blómsterberg 5, Hafdís Guðjónsdóttir 4, Ósk Viðisdóttir 3, Ing- unn Bemódusdóttir 2, Díana Guðjónsdóttir 1 og Maigrét Eliasdóttir 1. Mörk Hauka: Ragnheiður Júlíusdótiir 4, Björk Hauksdóttir 4, Kristin Konráðsdóttir 4, Halld- óra Matthiesen 2, Ása Þórisdóttir 2, Halla Grétarsdóttir 1 ogMargrétGuðmundsdóttir 1. 2. deild karla: Þór - Fram........................Frestað (Fer fram i dag kl. 18.00) Opna meistaramót KFR Sjötta umferð var spiluð í Öskjuhlið á laug- ardaginn: A-flokkur: Don Higson, KBA......................635 Valgeir Guðbjartssson, KFR...........591 ÞorgrimurEinarsson, KFR..............542 B-flokkur: Sigvaldi Friðgeirsson, KFR...........581 Wayne Bliss, KBA.....................571 Jeff Gusky, KBA......................523 HANDKNATTLEIKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.