Morgunblaðið - 15.05.1990, Page 4

Morgunblaðið - 15.05.1990, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990 Jón og Aðalsteinn í öðru sæti á einu sterkasta bridsmóti heims Cavendish-bndsmótið: Aðalsteinn Jörgensen og Jón Baldursson urðu í 2. sæti í Cavendish-bridsmótinu sem lauk í New York aðfaranótt mánu- dags. Flestir þekktustu bridsspilarar heims tóku þátt í mótinu, en þar eru greidd ein hæstu peningaverðlaun sem þekkjast á bridsmótum. Sigurvegar urðu Gawrys og Shofel frá Póllandi og ísrael með 2766 stig en Jón og Aðalsteinn hlutu 2130 stig. í 3. sæti urðu Andersen og Berkowitch frá Bandaríkjunum með 1780 stig. í 4. sæti urði Lair og Michaud frá Bandaríkjunum með 1442 stig og í 5. sæti urðu Rosner og Sandborn, einnig frá Banda- ríkjunum, með 1307 stig. Jón Baldursson sagði við Morgunblaðið að þeir Aðalsteinn hefðu spilað jafnt og vel. í fimm lotum af sex fengu þeir yfir meðalskor og fóru jafnt og þétt upp töfluna. Fyrir mótið fór fram uppboð á pörunum, þar sem lágmarks- boð var 3.500 dalir. Verðlaunin réðust síðan af því hvað heildar- söluverð paranna var. í þetta skipti var heildarsöluverðið 355 þúsund dalir og af því var 90% greitt í verðlaun en 10% rann til líknarmála. Bandarískur kaupsýslumaður, Fred Nickell, sem spilaði einnig á mótinu með heimsmeistaran- um Bob Hamman, keypti Aðal- stein og Jón á 5.400 dali. Af honum keyptu Jón og Aðalsteinn 40%, til baka, en með í þeim kaupum var hópur Islenskra bridsáhugamanna. Þá keyptu spilararnir kunnu, Steen Möller og Per Olof Sundelin, 10% hlut. Að auki keyptu spilarar frá Norðurlöndunum og Banda- ríkjunum, sem könnuðust við Jón og Aðalstein, sig inn í hlut Bandaríkjamannsins. Fyrir að vera í öðru sæti fengu Aðalsteinn og Jón 54.000 dali eða 3,3 millj- ónir króna. Þessi upphæð skipt- ist síðan á milli hluthafanna, sem fengu tífalda þá upphæð sem þeir lögðu áður fram. Það vakti athygli að ekkert þeirra para, sem seldust fyrir hæstu upphæðimar, lenti I verð- launasæti. Aðalsteinn og Jón taka nú þátt í sveitakeppni á vegum Ca- vendish-klúbbsins. Með þeim eru í sveit Andrew Robson frá Bret- landi, sem í upphafi ársins vann tvö helstu tvímenningsmót Evr- ópu með viku millibili, og Kitty Bethe, núverandi heimsmeistari kvenna. Aðalsteinn Jörgensen og Jón Baldursson. VEÐUR Heimild: Veðurslofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) í DAG kl. 12.00: VEÐURHORFUR í DAG, 15. MAÍ YFIRLIT í GÆR: Fyrir norðan land og vestan er víðáttu mikið há- þrýstisvæði, en við suðurströndina er kyrrstætt lægðardrag. Hiti breytist fremur lítið. SPÁ: Fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt um mestan hluta landsins. Skýjað og lítilsháttar súld við austurströndina og á Strönd- um og þar svalt í veðri en þurrt og skýjað með köflum með 6-10 stiga hita í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Hæg breytileg eða austlæg átt, þokuloft eða súld og svalt við norður- og austurströnd- ina en víða léttskýjað og 6-12 stig í öðrum landshlutum. xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 7 skýjað Reykjavík 9 skýjað Bergen 16 léttskýjað Helsinki 14 skýjað Kaupmannahöfn 12 skúr Narssarssuaq 5 skýjað Nuuk 0.4 slydduél Osló 14 skýjað Stokkhólmur 12 þokumóða Þórshöfn 7 alskýjað Algarve 21 iéttskýjað Amsterdam 13 skýjað Barcelona 20 léttskýjað Berlín 15 skýjað Chicago 17 þokumóða Feneyjar 21 heiðskírt Frankfurt 17 hálfskýjað Glasgow 18 mistur Hamborg 11 léttskýjað Las Palmas vantar London 18 skýjað Los Angeles 20 alskýjað Lúxemborg 15 hálfskýjað Madrid 23 hálfskýjað Malaga 21 skýjað Mailorca 23 léttskýjað Montreal 10 heiðskírt New York 19 heiðskírt Orlando 34 þokumóða París 21 léttskýjað Róm 20 þokumóða Vín 23 skýjað Washington 24 heiðskfrt Winnipeg 14 léttskýjað Oryggisvörður greip pilt við sjötta innbrotið ÖRYGGISVÖRÐUR frá Securitas greip innbrotsþjóf við verslun í Seláshverfi aðfaranótt sunnudags. Pilturinn kvaðst hafa verið að brjótast inn í verslunina í sjötta sinn. Tveir félagar hans komust undan á flótta. Innbrot í verslunina hafa verið tíð að undanförnu. Þjófarnir hafa verið snarir í snúningum, gripið nokkra sígarettupakka og annað smálegt og hlaupið strax á dyr aft- ur. Securitas ákvað því að hafa vakt við búðina. Um klukkan 4 aðfaranótt sunnudagsins sá örygg- isvörður hvar þrír piitar, á aldrinum 18-19 ára, voru að brjótast inn. Hann náði að halda einum þeirra og lenti í ryskingum við hann. Ör- yggisvörðurinn kom piltinum inn I verslunina, en félagar hans tveir reyndu að frelsa hann. Þeir hlupu hins vegar á brott þegar fleiri ör- yggisverðir komu á vettvang. Pilt- urinn sagði við öryggisvörðinn að hann hefði verið að brjótast inn í verslunina í sjötta sinn. Lögreglan kom á staðinn og tók piltinn í sína vörslu. Enn hrella geitungar TVISVAR sinnum var óskað eftir aðstoð lögreglunnar í Reykjavík á fostudag yegna geitunga, sem væru að hrella fólk. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu fyrir nokkrum dögum tók lögreglan að sér að vísa geitungs- flugu á dyr í húsi í austurbænum, en hún hafði gert sig heimakomn- ari en húsráðendur kærðu sig um. Á föstudagskvöld fór lögreglan í íbúð við Austurbrún, þar sem sama var uppi á teningnum. Fiugan hlýddi og fór út, en ekki fylgir sög- unni hvort hún var „góðkunningi" lögreglunnar frá fyrri tíð. Skömmu síðar sama kvöld kvörtuðu íbúar við Efstaland undan geitungsflug- um, en beiðni um aðstoð lögreglu var afturköliuð, svo fólkið hefur líklega sjálft vísað hinum óboðnu gestum á dyr. Truflanir á símasam- bandi við Bretland NOKKUÐ hefúr verið um truflanir á símasambandi við Bretland að undanförnu vegna viðgerða á loftneti í Bretlandi, sem notað er fyr- ir símasamband við ísiand. Að sögn Kristjáns Bjartmarsson- ar yfirverkfræðings hjá deild gervi- tunglafjarskipta hjá Pósti og síma er búnaðurinn sem venjulega er notaður tvöfaldur, þannig að ef eitt- hvað bilar tekur varabúnaður við. Sá sem er notaður á meðan á við- gerðinni stendur er aftur á móti einfaldur og hefur hann verið gjarn á að bila. Viðgerð á honum hefur stundum tekið nokkurn tíma, sér- staklega ef truflanir verða um helg- ar. Gert er ráð fyrir að viðgerð á loftnetinu verði lokið 27. maí n.k. Tveir deildu fyrsta vinningi í Lottói FYRSTI vinningur í Lottóinu féll í skaut tveimur mönnum og hlaut hvor vinnningshafi rúmlega 5.7 milljónir krónur. Vinningsmiðarnir voru seldir á Reykjavíkursvæðinu. Potturinn var að þessu sinni þrefaldur og nam fyrsti vinningur 11.439 þúsund krónum. Margir hlutu bónusvinning og nam hver vinningur 73 þúsund krónum. Fyrir fjórar tölur réttar fengust 4.500 krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.