Morgunblaðið - 15.05.1990, Side 43

Morgunblaðið - 15.05.1990, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990 43 Minning: Ardís Sigurðardóttir írá Sunnuhvoli Fædd 14. júní 1910 Dáin 5. maí 1990 Ardís Sigurðardóttir fyrrum hús- freyja á Sunnuhvoli í Bárðardal lést 5. maí. Hún varfædd 14. júní 1910. Foreldrar hennar voru Sigurður Tómasson frá Stafni í Reykjadal og kona hans, Herdís Tryggvadótt- ir frá Arndísarstöðum. Sigurður var bóndi og kennari á Halldórsstöðum í Bárðardal en varð skammlífur, dó 1911 þegar Árdís dóttir hans var enn á fyrsta'ari. Hann var bróðir Sigurgeirs í Stafni en Herdís var systir Stefáns á Hallgilsstöðum og Olafs Tryggvasonar huglæknis og Jóns á Einbúa og síðan Möðruvöli- um. Árdís var því frændmörg um dali þá sem hér eru nefndir og má lesa um það í þingeyskum mann- fræðibókum. Árdís ólst upp með móður sinni. Hún brá á það ráð að nema ljósmóð- urfræði 1916 og fól foreldrum sínum dótturina á meðan. Að loknu námi varð hún Ijósmóðir á Sval- barðsströnd og þar átti Árdís heima hjá henni 1917 til 1925. Síðan var Herdís eitt ár ljósmóðir í Bárðardal og eftir það á ýmsum stöðum. Þá var Árdís farin að vinna fyrir sér í vistum og kaupavinnu. Hún var í námi i héraðsskólanum á Laugum 1929-31. Þær mæðgur munu hafa búið við þröngan kost á Svalbarðsströnd- inni. Síðustu stríðsárin 1917 og 1918 voru mörgum þung í skauti, dýrtíð mikil, en Herdís ör í lund og rausnarkona. Árdís vandist heimil- isstörfum hefðarkvenna þegar hún var í vist hjá frú Guðjohnsen á Húsavík. Hún var fljót að tileinka sér verklag og vinnubrögð og sér- lega vel verki farin alla tíð. Hún giftist Gunnlaugi Jónssyni á Sigurðarstöðum. Hann var fædd- ur 19. apríl 1900. Þau hófu búskap á nýbýli í landi Sigurðarstaða 1935 og nefndu heimili sitt Sunnuhvol. Gunnlaugur var smiður og kom það sér vel þar sem nýbýlið þurfti þess með að allt væri byggt frá grunni. Að því var farið með gát og hagsýni. íbúð þeirra var fyrstu árin byggð yfir peningshúsin. í byrjun árs 1939 kom ég fyrst í Bárðardal. Ég átti þá að heim- sækja ungmennafélög sýsiunnar og kom að áliðnum sunnudegi með góðu föruneyti úr Mývatnssveit að Sandvík til að vera þar á fundi um kvöldið. Þá sá ég Árdísi fyrst. Hún hafði verið samtímis systk- inum mínum í Laugaskóla. Oft hef ég notið þess að hitta fyrir fólk sem þekkti einhverja nákomna mér og svo var að þessu sinni. Árdís bauð mér heim til gistingar að fundi lokn- um og ég tók því með þökkum. Seinna um kvöldið fékk ég annað heimboð en þá voru örlög mín ráðin. Menn undu lengi nætur við dans og umræður í Sandvík svo að liðið var að morgni þegar við komum að Sunnuhvoli. Áuk mín tók Árdís heim til sín til gistingar vinkonu sína, Rebekku á Sandhaugum. Mánudaginn sem fór í hönd var ég fijáls en átti að mæta á fundi í Reykjahverfi þriðjudagskvöldið. Ég hélt því kyrru fyrir á Sunnu- hvoli mánudaginn. Virtist mér allt á býli þeirra Gunnlaugs og Árdísar með myndarbrag og féll hið besta að tala við fólkið. Þarna var fólk sem hugsaði og vann samkvæmt þeirri lífsskoðun sem trúað var á. Þarna var heimili sem sómdi sér vel í framsókn fijálsrar þjóðar. Því var það andleg fullnæging að dvelja þar. Þegar við Rebekka giftumst hálfu þriðja ári síðar þótti mér vel eiga við að Árdís var svaramaður minn. Hún hafði verið örlagavaldur á minni ferð. Þrjú eru börn þeirra Árdísar og Gunnlaugs: Sigrún kennari, Jón bóndi á Sunnuhvoli og Herdís bankamaður. Þegar börn Árdísar voru í fram- haldsnámi á Akureyri fylgdi hún þeim þangað, fékk sér þar íbúð og atvinnu og hélt þeim heimili. Seinna þegar Gunnlaug þraut heilsu og þurfti að vera undir læknishendi og á sjúkrahúsi fylgdi hún honum þangað en hann andaðist 1. febrúar 1986 eftir langvinn veikindi. Atvikin höguðu því svo að við hjónin dvöldum nokkrum sinnum dögum saman á Akureyri vegna mannfunda og annars hin síðustu ár. Árdís tók okkur þá af sömu gestrisni og vinsemd og áður. Enn var gott við hana að ræða um liðna tíð og um ljóma hins daglega lífs. Hún var sjálfri sér lík og lífsstefnu sinni trú og vinur vina sinna. Gott er hana að muna. H.Kr. í dag, 15. maí 1990, verður bor- in til moldar á Akureyri skörungs- konan Árdís Sigurðardóttir fyrrum húsfreyja á Sunnuhvoli í Bárðardal og síðar á Þórunnarstræti 132 á Akureyri. Hún andaðist af völdum heilablæðingar næstum áttræð á hádegi hinn 5. maí. Um nokkurra ára skeið hafði hún átt við van- heilsu að stríða og hafði dvalið síðustu mánuðina á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri við gott atlæti og nærfærna hjúkrun. Hvíldin var kærkomin þar sem heilsan var bil- uð. Árdís fæddist 14. júní 1910 á Halldórsstöðum í Bárðardal. Faðir hennar var Sigurður Tómasson frá Stafni í Reykjadal búfræðingur og mjög vel látinn barnakennari í Ljósavatnshreppi og Bárðardal. Hann hafði í mörg sumur stjórnað vinnuflokki við jarðabætur og einn- ig unnið við smíðar og húsabygg- ingar, myndarlegur hæfileika- og dugnaðarmaður. Árið næsta á und- an hafði hann gerst bóndi á Hall- dórsstöðum. Sigurður fæddist 30. júlí 1877 en hann lést úr bráðum berklum í apríl 1911 á öðru ári búskapar síns á Halldórsstöðum, langt um aldur fram og var harm- dauði öllum. Árdís var þá enn á fyrsta ári eina barn Sigurðar og konu hans, gift 21. júní 1909, Herdísar Tryggvadóttur frá Arndís- arstöðum í Bárðardal, fædd 28. sept. 1889. Hún var um skeið ljós- móðir í Bárðardal og tók þá meðal annars á móti þeim sem þetta skrif- ar, reisnarkona að allri gerð og myndarleg til munns og handa. Hún var systir Olafs huglæknis á Hamraborg við Akureyri, Stefáns á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal, Jóns á Möðruvöllum fram í Eyjafirði og Elínar sem lengst bjó og starfaði í Reykjavík. Þrjú systkini dóu í æsku. Móðir Herdísar, Jóhanna Stefáns- dóttir, var föðursystir Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar. Árdís var á Héraðskólanum á Laugum í 2 vetur og tók auk þess ýmis námskeið í saumi og vefnaði. Hún var myndvirk og óf talsvert, hún var framkvæmdasöm og hinn mesti dugnaðarforkur að hveiju sem hún gekk hvort sem það var fín vinna við hannyrðir eða erfiðis- vinna. Árdís giftist 21. júní 1932 Gunn- laugi Jónssyni fæddum 19. apríl 1900 á Sigurðarstöðum í Bárðar- dal. Foreldrar hans voru Jón yngri bóndi þar Jónsson, Jónssonar í Baldursheimi, lliugasonar og Jónína Sölvadóttir, Magnússonar frá Nesi í Loðmundarfirði. Systkini Gunnlaugs voru María sem giftist norskum manni og bjó lengst í Ála- sundi, Jón Baldur bóndi á Stóruvöll- um, Sölvi Steinarr bóndi á Sigurðar- stöðum, Sigurður sem dó úr afleið- ingum botnlangabólgu þijátíu ára gamall nýlega farinn að búa á Sig- urðarstöðum á móti Sölva og Anna Steinunn sem dó úr berklum aðeins tæpra 23ja ára gömul nýgift að Lundarbrekku. Árdís og Gunnlaug- ur hófu búskap á Sigurðarstöðum sama ár og þau giftust en fóru brátt að byggja sér fallegt hús og haganlegt, eins konar kastala við bakka Skjálfandafljóts og stofnuðu nýbýlið Sunnuhvol. Þangað fluttu þau í snemmsumars 1935. Langa ævi bjuggu þeir bræður Gunnlaugur og Sölvi og ijölskyldur þeirra í sama túni og góðu nábýli. Gagnkvæm vinátta og hjálpsemi hefur haldist áfram meðal afkomenda þeirra. Gunnlaugur var hagur maður velvirkur og útsjónarsamur og var því eftirsóttur í vinnu við smíðar. Hann var greindur vel og hagmælt- ur, hægur í fasi en íhugull og seinn til svars. í fyrstu sýn virtist sem þau hjón væru mjög ólík þar sem Árdís var skjótráð og fljót til svars og gustaði um hana af tilþrifamikl- um dugnaði og myndarskap. Sam- band þeirra var þó alla tíð þrungið gagnkvæmri hlýju og virðingu. Áldrei bar þar skugga á. Börn þeirra eru þrjú öll mann- taksfólk: Sigrún barnakennari fyrst á Akranesi, svo í Reykjavík, f. 16. apríl 1933 á Sigurðarstöðum, fyrr- verandi maki: Hjálmar Þorsteins- son. Börn þeirra eru Erlingur Hjálmarsson, f. 4. ágúst 1953 bú- settur í Kópavogi, rnaki: Guðrún Þorgeirsdóttir. Hann á eina dóttur Helgu Sigurlaugu, f. 2. sept. 1976 og Gunnhildur Hjálmarsdóttir, f. 26. okt. 1962 búsett í Kaupmanna- höfn, maki: Klaus Metzler. Þau eiga einn son, Daníel Þorstein, f. 25. apríl 1989. Jón Aðalsteinn sonur Árdísar og Gunnlaugs, f. 20. júní 1936, maki: Sigríður Ólafsdóttir. Hann tók við föðurleifð sinni og býr á Sunnu- hvoli. Herdís dóttir þeirra, f. 1. maí 1942 býr á Akureyri og er útibús- stjóri Brekkuútibús_ Landsbankans þar, maki: Friðrjk Ágústsson. Þau eiga einn son, Gunnlaug Friðrik, f. 16. mars 1972. Árdís var ævinlega stór í sniðum og gestrisni þeirra Gunnlaugs var við brugðið. Þegar þau höfðu búið á Sunnuhvoli í 20 ár hófu þau bygg- ingu á myndarlegu steinhúsi við hlið þess eldra. Var það fullbúið á aðfangadag 1956. Sumarið eftir héldu þau veglegt silfurbrúðkaup í nýja húsinu og buðu allri sveitinni og mörgum öðruih vinum og vanda- mönnum. Þá orti Gunnlaugur: „Sækja heim að Sunnuhvoli seggir fróðir, lítil börn og baugaslóðir, bjóðast öllum réttir góðir.“ Það má með sanni segja, að rétt- irnir sem Árdís bar fyrir gesti sína voru góðir og vel útlátnir. Lengstum var hópur af börnum í kringum Árdísi. Farskóli fyrir börn var um árabil á Sunnuhvoli hluta úr vetri. Á hveiju sumri var hópur af börnum á Sunnuhvoli. Nærri lætur að þar hafi að öllum töldum verið í umsjá Árdísar og Gunniaugs allt að 100 börn í eftir- minnilegri og uppbyggjandi sumar- dvöl. Bæði voru hjónin barngóð og umhyggjusöm. Gunnlaugur varð fyrir því slysi á besta aldri að falla af húsþaki við smíðar og við það laskaðist hann svo í mjöðm að hann varð aldrei jafngóður og fatlaður er leið á ævina en hann var samt sístarf- andi. Þetta varð vitanlega til þess að bústörfin lögðust með auknum þunga á Árdísi, en hún reis undir því með sóma. Upp úr 1940 lagðist mæðiveiki á fjárstofninn. Það olli margra ára erfiðleikum og fjárhagstjóni. Á þessu tímabili og lengi síðan stund- aði Gunnlaugur húsasmíðar utan heimilis. Fyrr á ævinni hafði hann unnið við uppsetningu heimaraf- stöðva í sveitinni og er frá leið sá- hann um viðliald þeirra, sem þýddi margar fjai-vistir frá heimilinu. Meðal margra áliugamála hans var stórvirkjun Skjálfandafljóts með uppistöðulóni í íshólsvatni. Skrifaði hann greinar í blöð til skýr- ingar á hugmyndum sínum. - Um það bil sem sonur þeirra tók við búinu réð Árdís sig í vinnu til Akureyrar að vetrinum fyrst í saumastofu fyrirtækisins Amaro en síðan í mötuneyti Menntaskólans og var heima á Sunnuhvoli á sumr- um. Síðar kom að því að þau Gunn- laugur fluttu heimili sitt að Þórunn- arstræti og bjuggu þar síðan. Gunn- laugur var iengi mjög veikur og hjúkraði Árdís honum af nærfærnÞ meðan hann var heima en síðasta tímann var hann á Dvalarheimilinu Hlíð. Hann dó 1. febrúar 1986 og var jarðsettur á fallegum stað í kirkjugarðinum á Akureyri þar sem Árdís verður nú lögð til hinstu hvílu við hlið bónda síns. Sigurður Sigurðarson frá Sigurðarstöðum. Heimsmeistari HARALD LIESE Einn af f remstu rokkdönsurum heims kemur sem gestakennari á 10 daga námskeið sem hefst 5. júní ROCK, ACROBATIC, MYNSTURDANS bœði fyrir hyrjendur og lengra komna. Athugið! Aöeins takmarkaður fjöldi kemst og því betra að skrá sig tímanlega. INNRITUN í síma 74444 kl. 1400-1600 DnnssHiii STVRIDSS0BRR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.