Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990 23 Starfsfólk Grundarkj örsverslananna: Eiga inni laun og orlof hjá þremur eigendum Verslunarmannafélögin kanna réttarstöðu fólksins VERSLUNARMANNAFÉLÖGIN á höfuðborgarsvæðinu eru þessa dagana að kanna réttarstöðu starfsfólks Grundarkjörs hf. Nokkuð á annað hundrað manns vann hjá fyrirtækinu og á föstudagskvöldið komu 70 þeirra á fund sem Verslunarmannafélag Reykjavíkur, Versl- unarmannafélag Hafnarfjarðar og Alþýðusamband íslands efndu til um málið. Tíð eigendaskipti hafa orðið á undanförnum árum að sumum þeirra verslana sem Grundarkjör rak, meðal annars vegna gjaldþrots eigendanna og eiga sumir gtarfsmennirnir inni laun hjá fyrri eigendum og orlofslaun hjá þremur kaupmönnum eða þrotabú- um. Guðmundur B. Ólafsson, lög- fræðingur VR, segir að á fundinn á föstudag hafi komið fólk úr öllum verslunum Grundarkjörs, þó flestir hefðu verið úr versluninni í Garðabæ. Þó þrjár verslanir hafi komist strax aftur í rekstur hefðu ekki allir fengið endurráðningu og óvissa væri um ýmis atriði. Mikli- garður hefur yfirtekið verslunina í Garðabæ og boðið mörgum sem unnu hjá Grundarkjöri þar vinnu áfram. Verslunin opnar á morgun og hluti starfsfólksins var tekið til starfa þar í gær en ekki var búið að ganga frá ráðningarsamningum. Mikligarður hefur lýst því yfir að hann sé ekki bundinn af þeim laun- um sem fólkið hafði hjá Grundar- kjöri, en það gæti þýtt launalækkun hjá einhveijum, þó þeir gætu haldið öðrum réttindum. Guðmundur Ól- afsson sagði að í kjarasamningum væru ákvæði um að við eigenda- skipti breyttust ekki ráðningar- samningar og væru stéttarfélögin nú að fara yfir þessi mál. Hann sagði hugsanlegt að starfsfólkið ætti kröfu á hendur fyrri eigenda vegna launalækkunarinnar. Starfsfólk Grundarkjörs hf. átti almennt ekki inni laun nema frá 25. apríl til 1. maí og síðan samn- Ófrágengin lóð við Byggðarenda Margrét Arnadóttir, Byggðar- enda 22, spyr: „Fyrir neðan lóðina við Byggðarenda er landrými upp að Fákshúsunum. Svæði þetta hefur verið ófrágengið frá því ég flutti hingað fyrir 20 árum. Þarna hafa líka staðið yfir fram- kvæmdir við hitaveitustokk og hefúr af þeim sökum verið þarna mikil umferð stórra bíla. Ég hringdi í fyrra og kvartaði undan þessu en var vísað á milli manna. Það myndi bjarga málinu ef að- eins væri sáð í þetta svæði og gerður göngustígur því illgresið sem þarna vex teygir sig inn á lóðir í næsta nágrenni." Svar: Umræddu svæði hefur verið margbylt að undanförnu vegna lagna jarðsíma, vatns- og hitaveitu. Nú er þeim framkvæmdum lokið og verður svæðið jafnað og sáð í það í sumar. ingsbundinn uppsagnarfrest hafi það ekki fengið vinnu. Þá á það inni orlof. Ekki er vitað hvort Grundarkjör getur gert upp þessi laun og orlof, ef það verður lýst gjaldþrota á fólkið að fá þessa pen- inga út' ríkissjóði vegna ríkis- ábyrgðar á launum og orlofsfé. Guðmundur sagði að sú meðferð gæti hins vegar tekið langað tíma. Guðmundur sagði að staðan hjá starfsfólki Grundarkjörsverslan- anna væri erfið, ekki síst hjá þeim sem ættu inni laun hjá fyrri eigend- um. Bjarni Gunnarsson, sem vann í verslun Grundarkjörs í Garðabæ, sagði að mál starfsfólksins væru í biðstöðu en vonaðist til þau skýrð- ust á næstu dögum. Félögin væru að vinna í málunum. Hann sagði Með framhaldsskóla í Skógum er verið að skapa Rangæingum og V-Skaftfellingum tækifæri til að stunda hluta af framhaldsnámi í heimabyggð, enda verða nemendur af þessu svæði látnir ganga fyrir um skólavist. í Framhaldsskólanum í Skógum verður boðið upp á tveggja ára framhaldsnám eftir áfangakerfi en miðað er við að nemendur haldi síðan áfram námi við F.Su. eða ein- hvern annan fjölbrautaskóla. Meg- ináhersla verður lögð á grunn- áfanga í kjarnagreinunum, áfanga sem allir framhaldsskólanemendur verða að taka án tillits til þess hvaða braut þeir velja. Fjöldi valgreina kemur eðlilega til með að ráðast af aðsókn að skólanum, en ljóst er að áfangar í þjóðháttafræði verða í boði í tengslum við Byggðasafnið í Skógum. í skólanum er rúm fyrir um 60 nemendur á heimavist í eins til að kjarni starfsfólksins í Garðabæ hefði unnið í versluninni frá því Kjötmiðstöðin hf. rak verslunina og hefði unnið hjá tveimur eigendum síðan. Kjötmiðstöðin varð gjald- þrota í nóvember 1988. Síðar rak Friðrik Gíslason verslunina um tíma og loks Grundarkjör. Sagði hann að fólkið ætti inni hjá öllum þessum fyrirtækjum og ætti til dæmis óupp- gert orlof hjá þeim öllum. Bjarka hefur verið boðin vinna hjá Mikla- garði eins og fleiri starfsmönnum verslunarinnar og var hann að vinna þar í gær, en ekki var búið að ganga frá_ ráðningarsamningum. í gær voru verslanir Grundar- kjörs við Reykjavíkurveg í Hafnar- firði og Stakkahlíð í Reykjavík lok- aðar. Viðræður hafa verið um opn- un verslunarinnat' í Hafnarfirði en ekkert útlit fyrir að verslunin í Stakkahlíð yrði opnuð í bráð. Tíð eigendaskipti hafa orðið að verslun- inni við Reykjavíkurveg á undanf- örnum árum, eða frá því Kostakaup hf. varð gjaldþrota haustið 1988. í vetur voru til dæmis þrír rekstra- raðilar í gjaldþrotameðferð af að minnsta kosti sex sem rekið höfðu fyrirtækið frá miðju ári 1988. tveggja" manna herbergjum. Nem- endur greiða ekki húsaleigu, ein- ungis innritunargjald sem verður það sama og í Fjölbrautaskóla Suð- urlands á Selfossi. Kennsluvikan verður 5 dagar eins og í öðrum framhaidsskólum og geta nemend- ur farið heim til sín um hveija helgi. í mötuneyti skólans verður fæði selt á kostnaðarverði. Stjórn Skógaskóla, Fjölbrauta- skóla Suðurlands og Menntamála- ráðuneytið hafa í sameiningu unnið að því að koma á þessari breytingu á skólahaldi í Skógum. Skólinn mun starfa skólaárið 1990-1991 í nánum tengslum við Fjölbrautaskóla Suð- urlands og eftir námsvísi hans, sam- kvæmt samningi sem skólarnir munu gera með sér. Mun Fjöl- brautaskólinn m.a. sjá um val námsefnis, gerð kennsluáætlana og prófa og hafa yfirumsjón með námsmati. - Fréttaritari Framhaldsskóli verður í Skósmm Holti. —* Menntamálaráðuneytið hefúr ákveðið, samkvæmt ósk skólanefnda Skógaskóla og Fjölbrautaskóla Suðuríands, að Héraðsskólanum í Skógum verði breytt í framhaldsskóla sem starfi í mjög nánu sam- starfi við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þetta hefúr verið kynnt nem- endum í 9. bekkjum grunnskóla í Vestur-Skaflafellssýslu og Rangár- vallasýslu og eins hafa kennarastöður við hinn nýja skóla verið aug- lýstar. Gangstéttir í Vesturási Jakobína Ingibergsdóttir, Vesturási 19, spyr: „Stendur til að ganga frá opn- um svæðum í Vesturási og Ijúka við gerð gangstétta? Gatan er orðið þó nokkuð gömul þannig að íbúum við götuna þykir tíma- bært að gengið verði frá þessum málum. Ibúar götunnar lögðu fram tillögu í fyrra til borgar- sljórnar um gróðursetningu á trjáplöntum sunnan við raðhúsin í Vesturási". Svar: Búið er að steypa verulegan hluta gangstétta við Vesturás. Gert er ráð fyrir að halda verkinu áfram sam- hliða því sem húseigendur ganga frá lóðum sínum. Frágangur grænu svæðanna fylgir svo á eftir. Baraaball- ett á Lista- hátíð ÍSLENSKI dansflokkurinn frum- sýnir nýjan barna- og fjölskyldu- ballett á Listahátíð í vor sem heitir Palli & Palli. Ballettin er byggður á sögunni „Palli var einn í heiminum". Dans- höfundur er Sylvia von Kospoth, en hún er Hollendingur og hefur sfarfað hér á landi í vetur. Leik- myndina gerir Hlín Gunnarsdóttir og tónlistin _er eftir Tsjajkovskíj. Landsbanki íslands styrkir þessa uppfærslu dansflokksins. Frumsýn- ing er áætluð 14. júní í íslensku óperunni. Sylvia von Kospoth æfir Östu Henriksdóttur í verkinu Palli & Palli. —- Námskeið Innritun hafin á sumarnámskeið í förðun Oll undirstöðuatriði dag- og kvöldförðunar eru kennd á eins kvölds námskeiðum. Aðeins 10 eru saman í hóp og fær hver þátttakandi persónulega tilsögn. Innritun og nánari upplýsingar í síma 1 9660 eftir kl. 1 0.00 Kennari: Kristín Stefánsdóttir, snyrti- og förðunarfræóingur NO NAME COSMETICS —— TILVALINN FYRIR SUMARBÚSTAÐI FYRIRTÆKI SMÆRRIHEIMILI philips Whirlpool KÆLISKAP Hann er 140 lítra, með klakakubbafrysti og hálfsjálfvirkum afþýðingarbúnaði. Hann er með mjög öfluga en hljóðláta kælipressu og segullokun í hurð. Ofan á honum er síð- an vinnuborð með sérstak lega hertu efni. Stærð: h: 45.5, b: 85, d: 60 cm. ÞU GETUR TREYST PHILIPS HeimilistæKi hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI69 15 20 ' SOMCtfUýUJtO (Fréttatilkynning')
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.