Morgunblaðið - 15.05.1990, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990
Almennur fundur um álver við Eyjafjörð:
„Mikið hagsmunamál
þorra Eyfirðinga“
- segir Jón Arnþórsson, fundarstjóri
„ÞAÐ ER ekki ofsögum sagt að álver við EyjaQörð sé mál málanna
á Akureyri og í firðinum um þessar mundir,“ sagði Jón Arnþórsson,
, einn áhugamanna um álver við fjörðinn, í samtali við Morgunblaðið.
Haldinn verður fundur um álversmálið í Sjallanum í kvöld, þar sem
m.a. verða kynntar allra nýjustu upplýsingar um mengunarvarnar
með sérstöku tilliti til Eyjafjarðarsva-ðisins, að sögn Jóns.
„Þetta er mikið hagsmunamál
alls þorra Eyfirðinga og því mikil-
vægt að allar hliðar málsins séu
kannaðar sem best. Við sem að
fundinum stöndum skorum því á
alla Eyfirðinga að skoða hug sinn
grannt hvort við höfum efni á að
sleppa þessu einstæða tækifæri.
Það er því full ástæða til að hvetja
menn til að fjölmenna á fundinn í
Sjallanum," sagði Jón Arnþórsson.
Jón verður fundarstjóri, en ávörp
flytja Andrés Svanbjörnsson, yfir-
verkfræðingur markaðsskrifstofu
Iðnaðarráðuneytis og Landsvirkj-
unar, Þóra Hjaltadóttir, formaður
Alþýðusambands Norðurlands, og
Sigurður P. Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar. Erindi Andrésar nefn-
ist „Umhverfisáhrif álvers", Þóru:
„Atvinnuleg og félagsleg áhrif ál-
vers“ og Sigurðar: „Alver á íslandi
— Möguleikar Eyfirðinga“.
Verk Sigurbjargar Sigur-
jónsdóttur í Islandsbanka
Menningarsamtök Norðlendinga og Islandsbanki kynna listakon-
una Sigurbjörgu Sigurjónsdóttur. Hún er fædd í Reykjavík árið 1937.
Sigurbjörg hefur tekið þátt í
ýmsum námskeiðum í myndlist hjá
Myndlistaskóla Reykjavíkur, mód-
.ídnámskeið í Myndlista- og handíða-
skóla íslands og sótt námskeið í
postúlínsmálun. Hún hefur verið í
Myndlistaklúbbi Hvassaleitis í 10
ár undir leiðsögn ýmissa kennara
og tekið þátt í samsýningum þar.
Á listkynningunni í íslandsbanka
er fyrsta einkasýning hennar, en
þar eru 17 verk unnin í olíu, þurr-
pastel og olíupastel, einnig málað á
keramikflísar. Listkynningin er í
útibúi Islandsbanka við Skipagötu
14 ogeropin áafgreiðslutíma bank-
ans, en kynningunni lýkur 13. júlí
næstkomandi.
Verk Sigurbjargar Sigurjónsdóttur eru nú til sýnis í útibúi íslands-
banka við Skipagötu.
Morgunblaðið/Þorkell
Maður á fimmtugsaldri hefúr játað að hafa stolið sjö tjaldvögnum á Akureyri og í Reykjavík og
síðan selt þá. Þeir sem keyptu tjaldvagnana af manninum sitja nú með sárt ennið, þar sem lög-
regla mun að líkindum leggja hald á þá og koma til fyrri eigenda.
Hefur stolið 71jald-
vögnum síðustu 3 ár
MAÐUR á fimmtugsaldri var á laugardag úrskurðaður í gæslu-
varðhald vegna gruns um umsvifamikinn þjófnað á Ijaldvögnum.
Maðurinn hefur viðurkennt við yfirheyrslur að hafa stolið sjö tjald-
vögnum, ýmist á Akureyri eða í Reykjavík.
Maðurinn hafði við yfirheyrslur
um helgina og í gær viðurkennt
að hafa stolið sjö tjaldvögnum,
að sögn rannsóknarlögreglu.
Ýmist hafði hann tekið vagnana
á Akureyri eða í Reykjavík og
virðist meginreglan vera sú að
þeir vagnar sem teknir voru á
Akureyri voru seldir í Reykjavík
og öfugt.
Tjaldvögnunum sjö hefur mað-
urinn stolið á síðustu þremur
árum, eða frá árinu 1988. Að
sögn rannsóknarlögreglu verður
að líkindum lagt hald á tjaldvagn-
ana og reynt að koma þeim til
fyrri eigenda. í einhverjum tilfell-
um hafa vagnarnir verið tryggðir
og tryggingafélög hafa þegar
bætt eigendunum tjónið.
„Þetta er verulega gremjulegt,
við keyptum þennan tjaldvagn í
mars á 130 þúsund krónur, en frá
þeim tíma höfum við lagt í mikinn
kostnað til að gera hann sem best
úr garði fyrir sumarleyfið. Við
höfum keypt fortjald, látið styrkja
vagninn, ryðverja og einangra,
þannig að ég reikna með að verð-
ið sé komið upp í um 250 þúsund
krónur," sagði Akureyringur sem
keypti einn af stolnu tjaldvögnun-
um. „Fjölskyldan var búin að ráð-
gera að ferðast um Austfirði í
sumar, ég veit ekki hvað verður
úr því, það virðist að minnsta
kosti ljóst að við förum ekki með
tjaldvagninn."
Skoðanakönnun vegna bæj arstj órnarkosninga:
Sjálfstæðismenn fá 4 menn
Sjálfstæðisflokkurinn fengi fjóra fúlltrúa kjörna í bæjarstjórn
Akureyrar ef kosið væri nú, en það er niðurstaða skoðanakönnunar
sem Kjarni á Akureyri hefur gert, en spurt var hvaða stjórnmála-
flokk menn ætluðu að kjósa ef kosið væri til bæjarstjórnar nú.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar fengi Framsóknarflokkur
þrjá fulltrúa, Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag, Kvennalisti og Þjóð-
arflokkur fengju einn fulltrúa hver
flokkur.
Urtakið var valið af handahófi
úr símaskrá og sá er svaraði spurð-
ur, ef hins vegar var um að ræða
aðila sem ekki hafði kosningarétt
var beðið um annan aðila í símann.
Alls svöruðu 314 manns. Óákveðnir
eða þeir sem neituðu að svara
spurningunni voru 35% aðspurðra.
Sjálfstæðisflokkur á nú fjóra full-
trúa í bæjarstjórn, Alþýðuflokkur
þijá og mynda þessir tveir flokkar
meirihluta. Framsóknarflokkur og
Alþýðubandalag eiga tvo fulltrúa
hvor flokkur í bæjarstjórn. Sam-
kvæmt niðurstöðum könnunarinnar
heldur Sjálfstæðisflokkurinn sínum
fulltrúum, Alþýðuflokkur tapar
tveimur mönnum, Alþýðubandalag
tapar einum, en Framsóknarflokkur
bætir við sig einum manni. Þjóðar-
flokkur og Kvennalisti buðu ekki
fram lista í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum.
Alverjeyj FUMDUR í SJALLAHUM UM „Míl MÍLIHNI" í KVÖLD. „Umhverfisáhrif álvers“ „Atvinnuleg Andrés Svanbjörnsson, yfirverkfr. nn fé QQS BC markaðsskrifstofu Iðnaðarráðu- ~ ” neytis og Landsvirkjunar. QIV6ÍS Fundarstjóri: Þóra Hjaltadóttir, forr Jón Arnþórsson. sambands Norðurlanc AFJÖRfl ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ15. MAÍ KL. 20.30 Jlver a íslandi áhrif - Möguleikar Eyfirðinga“ naður Alþýðu- Sigurður P. Sigmundsson, frkvstj. iS. Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. IÐNÞRÓUNARFÉLAG EYJAFJARÐAR HF. ðunefnd sveitarfélaga við Eyjafjörð.
4 Hó Fj kureyringar, Eyfírðingari A fum við efni á að sleppa þessu einstæða tæb’færi? ölmennum á fundinn í Sjallanum. Álviðræ
Dalvík:
Leiksýning og bók-
menntadagskrá
Fyrir páska frumsýndi Leikfélag Dalvíkur sjónleikinn „Um hið
átakanlega og dularfúlla hvarf ungu brúðhjónanna, Indriða og Sigríð-
ar, daginn eftir brúðkaupið og leitina af þeim“, eltir Ingibjörgu
Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur, Unni Guttormsdóttur og
Hjördísi Hjartardóttur. Leikstjóri var Jakob Grétarsson. Leikmynd
og lýsingu hannaði Kristján E. Hjartarson.
Persónur eru um 20 í sýningunni
•og fara 13 leikarar með þau hlut-
verk.
Fyrr í vetur tóku leikfélagar sam-
an og fluttu tvær bókmenntadag-
skrár. Annars vegar var það saman-
tekt úr „Víkursamfélaginu", skáld-
sögu Dalvíkingsins Guðlaugs Ara-
sonar og hins vegar blönduð dag-
skrá úr verkum svarfdælskra al-
þýðuhöfunda, lesin, leikin og sungin
í bundnu og óbundnu máli. Stefnt
er að því að sú dagskrá verði endur-
flutt nú með vorinu.
Formaður Leikfélags Dalvíkur er
Guðlaug Björnsdóttir.