Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990
Við höfum sumarhús til
sýnis á lóð okkar við
Fífuhvammsveg í
Kópavogi. A staðnum er
tæknideild og fagmenn
sem veita ráðgjöf og gera
verð- og efnisáætlanir.
TVésmiðjan Þinur hf.
v. Fífuhvammsveg í Kópavogi Sími 4 35 21
SUMARHUS
ÍBÚÐARHÚS
Þeir lofiiðu einu dag heim-
Íli á ári - efndimar 23 pláss
eftirBirnu
Friðriksdóttur
Nú á vordögunum var lagt fram
á Alþingi frumvarp um leikskóla.
Frumvarp þetta er unnið á vegum
menntamálaráðuneytisins, undir
forystu Alþýðubandalagsráðherr-
ans Svavars Gestssonar. Ef þetta
verður að lögum, verður sveitarfé-
lögum gert skylt að hafa forystu
um stofnun og rekstur leikskóla
fyrir 80-85% af bömum á aldrinum
6 mánaða til 6 áca og fá til þess
tíu ára frest. Orðið leikskóli er hér
notað sem samheiti fyrir dagvist
bama. Ef Svavari Gestssyni tekst
að fá þetta fmmvarp samþykkt er
augljóst að leita verður leiða til að
fá foreldra og einkaaðila til sam-
starfs. í Kópavogi eru leikskólarnir
nú þegar drjúgur liður í rekstri
bæjarins og samkvæmt nýlega sam-
þykktri fjárhagsáætlun mun kostn-
aður bæjarsjóðs verða um 115 millj-
ónir á þessu ári. Það er rúmlega
6% af áætluðum heildartekjum
bæjarsjóðs. Hér er eingöngu um að
ræða rekstrarkostnað, byggingar-
og fjármagnskostnaður er ekki tal-
inn með.
Það má hins vegar gera ráð fyr-
ir því að kostnaður verði meiri og
tekjur minni, sú er venjan. Þó
hækkuðu dagvistargjöld Kópavogs-
bæjar um 44% á síðasta ári, sem
var margfalt meira en launahækk-
anir almennt.
í fljótu bragði virðist 6% af heild-
artekjum ekki ýkja mikið, en ef
menn hugleiða öll þau verkefni sem
bæjarfélagið á lögum samkvæmt
að sinna og ekki er sinnt, þá munar
um minna. A-flokkarnir hafa ekki
verið til viðræðu um annað en að
bærinn reki þessar stofnanir alfarið
á sinn kostnað og hafa margsinnis
fellt tillögur um að leita annarra
úrræða.
Það er athyglisvert, þegar lög
um verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga, sem gengu í gildi um síðustu
áramót, leggja nú allan byggingar-
kostnað leikskóla á herðar sveitar-
félaganna, þá ætlar alþýðubanda-
lagsráðherrann að segja sveitarfé-
lögunum um land allt fyrir verkum
í þessum efnum. Tekið er fram í
fylgiskjölum frumvarpsins að börn-
in verði ekki skylduð til að sækja
leikskólana! En skyldi þess verða
langt að bíða, þegar búið er að
veija milljörðum króna til þess að
byggja húsin og mennta fóstrur,
að alþýðubandalagsmönnum þyki
sjálfsagt að öll börn verði alin þar
upp, enda segir svo í 1. grein lag-
anna: „Leikskólinn skal annast upp-
eldi barna fram að skólaskyldualdri
undir handleiðslu sérmenntaðs fólks
í uppeldismálum. “
Alþýðubandalag Kópavogs hefur
marglýst því yfir að bygging og
rekstur dagvistarheimila sé eitt
helsta baráttumál þeirra. í nýlega
birtri stefnuskrá þeirra er loforð
um fjölgun dagvistarplássa upp í
1.000 á næsta kjörtímabili. Bærinn
rekur 10 dagvistarheimili (8 bland-
aðir leikskólar og 2 skóladagheim-
ili), samkvæmt upplýsingum dag-
vistarfulltrúa alls 684 pláss. Til
þess að ná 1.000 plássa takmarkinu
þarf 316 pláss til viðbótar.
Þetta er athyglisvert, því þeir
lofuðu þessu líka fyrir síðustu kosn-
Guðmundur Jónsson
Tónlist
JónÁsgeirsson
Það mun liðið hátt á fímmta tug
ára síðan Guðmundur söng fyrst
opinberlega í Árstíðunum eftir
Haydn. Með fiutningi þessa verks
hefst sú saga íslenskrar tónlistar-
sögu er varðar uppfærslur á stór-
verkum meistaranna. Þar um hefur
fáu einu verið haldið til haga sem
gæti verið vegna þess að fyrir fáum
árurn hafði þá fyrst tekist að frum-
flytja helstu verk tónlistarsögunnar,
við aðstæður sem fróðir menn töldu
koma í veg fyrir að slíkt væri mögu-
legt.
í þeirri óskráðu sögu er framlag
söngsnillingsins Guðmundar Jóns-
sonar stórt og merkilegt og enn
heldur hann áfram að ýta þar við
sem annars væri hætta á stöðnun,
með því að miðla ungum söngvurum
af reynslu sinni, kunnáttu og list-
fengi. Þannig er hann ekki aðeins
mikill af eigin verkum, heldur og
því sem lærisveinar hans gera, því
svo mun mönnum farnast sem til
ferðar eru búnir.
Fáum hefur tekist að koma hæl-
krók á Elli kerlingu, svo að annað
hné hennar næmi við jörð, því hún
kann svör við öllum brögðum en
þegar Guðmundur hefur tekið til
við að syngja á hún engin svar-
brögð á móti. Efnisskrá tónleikanna
var eins konar þverskurður af því
sem hann hefur fengist við á langri
og farsælli ævi, þijú lög eftir Hánd-
el, þijú eftir Schubert, lög eftir
Karl O. Runólfsson, Árna Thor-
steinsson, Jón Þórarinsson og
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, fjögur
bandarísk lög og aríur úr óperum
eftir Mozart, Verdi og Wagner. Það
þarf ekki að fjölyrða um söng Guð-
mundar en þar naut hann yfírburða
kunnáttu sinnar.
Af íslensku lögunum var Útlag-
inn eftir Karl O. Runólfsson, og
Sverrir konungur, eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson sungin af fullum
myndugleik og Rósin, eftir Árna
Thorsteinsson einstaklega fallega.
Þá voru aríurnar úr Töfraflautunni,
Simnon Boccanegra og Tannhauser
vel sungnar en hápunktur tónleik-
anna var eitt af aukalögunum. Guð-
mundur sagðist eiga svo margt að
þakka fyrir og því vildi hann ljúka
þessum tónleikum með Lofsöngnum
eftir Beethoven. Guðmundur á
sannarlega margt að þakka en ekki
síður þeir sem notið hafa söpg hans
og það gerðu áheyrendur í íslensku
óperunni sl. fimmtudag, er þeir
hylltu hinn sjötuga söngsnilling.
ingar. Þá var lofað að byggja eitt
dagheimili á ári á þessu kjörtíma-
bili sem nú er senn að ljúka. Hveij-
ar hafa efndirnar orðið?
Byggingarframkvæmdir frá upp-
hafi þéssa kjörtímabils og fram á
þennan dag eru viðbygging í Furu-
grund (ungbarnadeild) og nú í maí-
byijun er verið að slá upp fyrir timb-
urhúsi við Álfaheiði. Á fjárhags-
áætlun 1990 er veitt 45 milljónum
kr. í þá byggingu og er gert ráð
fyrir að taka hana í notkun í októ-
ber. Kjörtímabilið endar 26. maí.
Hver er fjölgunin? Hún er 23 —
tuttugu og þijú — pláss! Nú lofa
þeir 316 plássum á næsta kjörtíma-
bili. Þetta er ekki trúverðugt.
Frumvarp til laga um félagslega
þjónustu sveitarfélaga hefur nú
einnig litið dagsins ljós. Alþýðu-
flokksráðherrann Jóhanna Sigurð-
ardóttir ætlar að gera sveitarfélög-
um skylt að veita umfangsmikla
þjónustu og er athyglisvert að fé-
lagsleg ráðgjöf er þar efst á blaði.
Sjálfsagt hafa flestir allt gott um
þetta að segja, þangað til að því
kemur að skattar verða stórhækk-
aðir. Og það verða þeir ef Alþýðu-
bandalagið og Alþýðuflokkurinn fá
að ráða. Hrædd er ég um að lítið
verði eftir í launaumslaginu.
Þeirri staðhæfingu er haldið fram
af mikilli röggsemi af hálfu
A-flokkanna, að hér í Kópavogi sé
betur sinnt félagslegri þjónustu en
Birna Friðriksdóttir
„Þá var lofað að byggja
eitt dagheimili á ári á
þessu kjörtímabili sem
nú er senn að ljúka.
Hverjar hafa eftidirnar
orðið?“
annars staðar á höfuðborgarsvæð-
inu og að mikil breyting yrði til
hins verra ef sjálfstæðismenn
fengju hér einhveiju að ráða. Þessu
er almennt trúað.
Vissulega er margt vel gert í
þessum efnum og ber að meta það
og þakka. Félagsstarf aldraðra er
hér með miklum blóma og heimilis-
hjálp er hvergi betri á landinu. Á
dagvistarheimilum Kópavogsbæjar
Ásamt Else Miihl í Rigoletto.
011RH 0107H LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
C\ I VV b I 0 / W KRISTINNSIGURJÓNSSOIM, HRL.loggtlturfasteignasali
Til sölu á fasteignamarkaðinn eru að koma:
Endaraðhús á einni hæð
í Fellahverfi 131,4 fm nettó auk sólstofu 21 fm. 4 svefnherb. með
innb. skápum. Nýl. parket o.fl. Bflsk. 23,1 x 2 fm. Ræktuð lóð.
Úrvalsíbúð við Ofanleiti
Ný endaíbúð 4ra herb. 103,7 fm nettó án sameignar. JP-innr. Sér-
þvottahús. Tvennar svalir. Góður bílsk. Húsnæðislán kr. 1,3 millj.
Góð eign í gamla bænum
Einbhús í ágætu standi með 4ra-5 herb. ib. á tveimur hæðum um 120
fm. Verslunar- eða iðnaðarhúsn. um 41 fm fylgir auk kj. um 100 fm. Eign-
arlóð 400 fm með háum trjám. Skipti mögul. á góðri 2ja-3ja herb. (b.
Góðar íbúðir á góðu verði
3ja og 4ra herb. fbúðir m.a. við: Fálkagötu, Blikahóla, Stelkshóla,
Dunhaga, Sporhamra, Gautland. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
Hagkvæm skipti
Til kaups óskast húseign með tveim íbúðum 5-6 herb. og ennfremur
2ja-3ja herb. íbúð. Skipti mögul. á minna einbýli.
Til kaups óskast sérbýli eða sérhæð í Vogum, Sundum eða nágrenni
5-6 herb. Skipti mögul. á mjög góðri 3ja-4ra herb. rishæð.
Sérhæð í borginni
120-150 fm óskast til kaups fyrir fjársterkan kaupanda. Rétt eign verð-
ur borguð út.
Með góðum bílskúr eða vinnuplássi
Góð 2ja-3ja herb. íb. óskast í borginni eða nágrenni.
AIMENNA
gott sumarhús á Hellu um FASTEIGNASAl AN
60 fm, ný endurbyggt. UUGAVEGr^T?MA^Íl5^1370