Morgunblaðið - 15.05.1990, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990
Abyrgðadeild
fískeldislána:
Stjórnar-
neftid skip-
uð til íjög--
urra ára
STJÓRNARNEFND Ábyrgða-
deildar fískeldislána hefur verið
skipuð í samræmi við nýja reglu-
gerð frá fjármálaráðherra og á
starfsemi deildarinnar að heQ-
ast á næstu dögum. Ábyrgða-
deildin var stofnuð með lögum
á síðasta þingi, sem sérstök deild
við Rikisábyrgðasjóð og er hlut-
verk deildarinnar að tryggja
greiðslu eldislána, sem bankar
og aðrar lánastofiianir veita
fiskeldisfyrirtækjum. Fjármála-
ráðherra undirritaði reglugerð
um Ábyrgðadeildina 3. maí
síðastliðinn.
Stjómamefnd Ábyrgðadeildar
fiskeldislána skipa fímm menn,
sem fjármálaráðherra skipar til
fjögnrra ára, einn samkvæmt tiln-
efningu viðskiptaráðherra, einn
samkvæmt tilnefningu landbúnað-
arráðherra og þijá án tilnefningar.
Fjármálaráðherra skipar síðan
einn þeirra þriggja formann nefnd-
arinnar.
í stjómamefndina hafa verið
skipaðir Jóhann Antonsson við-
skiptafræðingur, sem er jafnframt
formaður nefndarinnar, Árni M.
Mathiesen, dýralæknir físksjúk-
dóma, Sigurgeir Jónsson ráðuneyt-
isstjóri, Eiríkur Briem hagfræðing-
ur, sem skipaður er samkvæmt til-
nefningu viðskiptaráðherra og
Gunnlaugur Júlíusson hagfræðing-
ur, sem skipaður er samkvæmt til-
nefningu landbúnaðarráðherra,
segir í fréttatilkynningu.
Gestir í skoðunarferð Sjálfstæðisflokksins þakka borgarstjóra
sögnina.
Morgunblaðið/KGA
Borgarstjóri slær á létta strengi í skoðunarferðinni.
Metþátttaka í skoðunarferö
sjál&tæðismanna um borgina
METÞÁTTTAKA var í skoðunarferð sjálfstæðismanna um
Reykjavíkurborg. Samtals 13 rútur með um 800 manns óku um
ýmsa hluta borgarinnar, undir leiðsögn írambjóðenda flokksins.
Um 900 manns mættu í kaffi-samsæti að lokinni skoðunarferð-
inni. Meðal leiðsögumanna var Davíð Oddsson borgarstjóri.
Rútur lögðu af stað með gesti
í skoðunarferðinni frá ýmsum
stöðum í borginni. Hringferðin tók
einn og hálfan tíma, en ekið var
um þá staði borgarinnar, þar sem
uppbygging hefur verið hröð. Með-
al annars var ekið fram hjá íbúðar-
byggingum og þjónustubygging-
um aldraðra víðs vegar um bæinn,
dagheimilum og verkamannabú-
stöðum. Sérstök áhersla var lögð
á að skoða ný hverfi sem risið
hafa á skömmum tíma, eins Graf-
arvog og ný hverfi í Breiðholti og
Árbæ. Einnig nýja bygginga-
kjarna í gömlum hverfum.
Þegar ekið var eftir Ægiss-
íðunni og Skúlagötunni, var gerð
sérstök grein fyrir átaki því sem
núna er yfirstandandi við hreinsun
strandlengjunnar. Þegar ekið var
fram hjá flugvellinum í Reykjavík,
greindi Davíð Oddsson borgar-
stjóri frá því að fyrir dyrum stæði
hjá Flugleiðum að endurnýja flug-
vélakost í innanlandsflugi og
myndu nýjar vélar verða mun
hljóðlátari en þær gömlu. Hann
benti og á að langmestur hluti
umferðar um völlinn, kennsluflug-
ið myndi í framtíðinni færast yfir
á annan flugvöll utan byggðar.
Ekið var að Perlunni, útsýnis-
húsinu við Öskjuhlíð og hinu nýja
ráðhúsi Reykjavíkurborgar við
Tjörnina. Útsýnishúsið verður tek-
ið í notkun á næsta ári, en ráðhú-
sið árið 1992, nánar tiltekið 14.
apríl kl. 15.00.
Borgarstjóra varð tíðrætt um
útivistarsvæði borgarinnar í ferð-
inni; benti hann á að þegar sorp-
böggunarstöð væri komin í gagn-
ið, yrði núverandi öskuhaugum
breytt í gölfvöll, en slíkan völl
vantaði einmitt í lítilli hæð yfir
sjávarmáli. Hann gat þess einnig
þegar ekið var fram hjá útivistar-
svæðinu í Elliðarárdal, að
Reykjavík hefði á síðasta kjörtíma-
bili gróðursett yfir eina milljón
tijáplantna, þannig að nú væri svo
komið að Reykjavíkurborg væri
stærsti skógræktandi landsins.
Að ferðalokum var gestum boð-
ið til kaffisamsætis að Hótel Loft-
leiðum. Um 900 manns mættu þar.
Davíð
Oddsson
borgarstjóri
svarar
spurningum
lesenda
SPURT OG SVARAÐ
UM BORGARMÁL
LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS
Davið Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík og efsti maöur á framboðslista
sjálfstæðisfólks i borgarstjórnarkosningum, sem fram fara 26. maí næstkom-
andi, svarar spurningum i Morgunblaðinu um borgarmál í tilefni kosning-
anna. Lesendur Morgunblaðsins geta hringt til ritstjórnar blaðsins í síma
691187 á milli kl.11 og 12 árdegis, frá mánudegi til föstudags, og lagt
spurningar fyriri borgarstjóra sem blaðið kemur á framfæri við hann. Svörin
birtast síðan í þættinum Spurt og svarað um borgarmál. Einníg má senda
spurningar í bréfi ti! blaðsins. Utan á bréf skal rita: Spurt og svarað um
borgarmál, ritstjórn Morgunblaösins, pósthólf 1555,121 Reykjavik. Nauðsyn-
legt er að nafn og heimilisfang spyrjanda komi fram.
Hljóðmúr við
Kringlumýrarbraut
Heidi Kristiansen, Bólstað-
arhlíð 42, spyr:
„Ég bý nálægt Kringlumýrar-
braut þar sem umferð er afar
mikil með tilheyrandi hljóð- og
loftmengun. Stendur til að gera
hljóðmúr meðfram þeirri götu?“
Svar:
Vestanvert við Kringlumýrar-
braut liggur hitaveitustokkur með-
fram götunni. Hljóðmön með göt-
unni tekur meira pláss en svo að
hægt væri að komast að hitaveitu-
stokknum til viðhalds á honum ef
þörf krefði. Af þeirri ástæðu verður
því ekki við komið að gera jarð-
vegsmön meðfram Kringlumýrar-
braut. Austan götunnar hafa verið
gróðursettir tijálundur og er fyrir-
hugað að gera sams konar tijálundi
vestan hennar. Verður fyrsti áfangi
þess unninn í sumar.
Leiksvæði við Rauðalæk
Magnús Guðmundsson, Rauða-
læk 61, spyr:
„Við Rauðalæk og Kleppsveg
er stórt óbyggt svæði, nokkurs
konar einskismannsland. Með
hliðsjón af ótrúlegri fjölgun
barna í þessu hverfí spyr ég hvert
íbúar eiga að snúa sér með það
erindi að þarna verði gerður leik-
völlur. Ef þetta svæði tilheyrir
Qölbýlishúsi við Kleppsveg, eins
og ég hef heyrt, geta íbúarnir
þá leitað til íbúa þar og fengið
þá í lið með sér til að hrinda
þessu i framkvæmd?
Svar:
1988 var lokið við að gera hverfa-
skipulag að þessum borgarhluta.
Síðan hefur verið unnið að því að
ganga frá þeim grænu svæðum í
hverfinu þar sem úrbóta er þörf.
Ekki er unnt að segja nákvæmlega
til um hvenær umrætt svæði verður
tekið fyrir, en það mun ekki drag-
ast lengi.
Óþrifnaður í Öskjuhlíð
Brynjólfúr Magnússon spyr:
„Ég vil kvarta undan slæmri
umgengni og almennum óþrifh-
aði í Oskjuhlíð. Ég var þarna á
göngu fyrir skömmu og er
skemmst frá því að segja að þar
var allt vaðandi í hundaskít. Mér
skiist að þetta sé orðið eitt helsta
hundaútivistarsvæði borgarinn-
ar en þó er bannað að hafa hunda
þarna. Væri ekki nauðsynlegt að
koma upp skiltum þar sem bent
er á að bannað sé að hafa hunda
á þessum stað? Auk þess flóði
draslið út úr öskutunnum sem
þarna hefur verið komið fyrir og
óþrifnaður í alla staði mikill.
Svar:
Á næstu dögum fer fram hin
árlega vorhreinsun í Öskjuhlíðinni.
Vinnuflokkar unglinga starfa síðan
við tiltekt og snyrtingu þar í sum-
ar. Hundeigendum er kunnugt um
hvar þeir mega vera með hunda og
að þeim ber að þrífa upp skít eftir
þá. Því miður er til fólk sem hunds-
ar allar umgengnisreglur og kemur
þannig óorði á þá sem ganga snyrti-
lega um. Vissulega kemur til álita
að setja upp skilti um bann við
umferð hunda í Öskjuhiíð, a.m.k.
við helstu aðkomustaði að svæðinu.
Sundlaug í Árbæ
Hallu Jónsdóttir, Hraunbæ 98,
spyr:
„Gæti borgarstjóri komið
hingað í hverfið og kynnt íbúun-
um frá fyrirhugaðri sundlaugar-
byggingu með líkönum eða teikn-
ingum? Þá leikur mér hugur á
að vita hve miklum fjármunum
hafi verið varið til æskulýðs- og
íþróttamála í Árbæ síðastliðin 10
ár? Gæti borgarstjóri upplýst
íbúa Árbæjarhverfis um bygg-
ingu þjónustuíbúða fyrir aldraða
í hverfinu? Ég mælist til þess að
borgarstjóri haldi fúnd með íbú-
um hverfisins líkt og hann hefúr
þegar gert í Grafarvogi."
Svar:
Ég get því miður ekki lofað að
annast það sjálfur en á vegum
íþrótta- og tómstundaráðs mun
fara fram kynning á teikningum
og líkani af fyrirhugaðri sundlaug
í Arbæ. Kynningin verður í félag-
smiðstöðinni Árseli frá 14.-19. maí
n.k. Varðandi fyrirspurn um hve
miklum fjármunum hafi verið varið
til æskulýðs- og íþróttamála í hverf-
inu s.l. 10 ár er ljóst að þar er um
að ræða verulega fjármuni. íþrótta-
félagið Fylkir hefur m.a. notið
stuðnings hvað varðar uppbyggingu
íþróttasvæðis félagsins og er það
um 20 milljónir kr. á verðlagi dags-
ins í dag. Þá eru um 9 ár síðan
félagsmiðstöðin Ársel var opnuð og
þar fer fram starfsemi á vegum
borgarinnar, skátanna og fleiri fé-
laga og samtaka. Þar fyrir utan er
rekstur á íþróttasvæði félagsins
greiddur úr borgarsjóði og húsa-
leiga félagsins í íþróttasölum styrkt
100%. Rekstur félagsmiðstöðvar-
innar er greiddur af Reykjavíkur-
borg og á þessu ári er gert ráð
fyrir að hann kosti um 14,1 milljón
kr. Þá er á vegum borgarinnar rek-
ið tómstundaheimili í Arseli og sum-
arstarf fyrir börn og unglingá í
hverfinu. Erfitt er að reikna ná-
kvæmlega út hve miklum fjármun-
um hefur verið varið til æskulýðs-
og íþróttamála í Árbæjarhverfi s.l.
10 ár en Ijóst er að þar er um að
ræða á annað hundrað milljónir
króna.
Félag eldri borgara og bygginga-
fyrirtækið Gylfi og Gunnar hafa
fengið úthlutað lóð að Hraunbæ 105
til byggingar söluíbúða fyrir aldr-
aða. Verða byggðar þar u.þ.b. 45
íbúðir en jafnframt er stefnt að
byggingu þjónustukjarna á vegum
Reykjavíkurborgar, u.þ.b. 500 fer-
metrar, sem ætlast er til að gegni
hlutverki þjónustusels fyrir stóran
hluta Árbæjarhverfis, bæði hvað
snertir félagsstarf og heimaþjón-
ustu aldraðra.