Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1990 t Móðir min, STEINUNN G. ÁRNADÓTTIR, áður til heimilis á Brávallagötu 42, Reykjavík, vistmaður á Elliheimilinu Grund, lést 11. maí síðastliðinn. Marteinn Guðjónsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, VILBERG ÞORLÁKSSON, Hávegi 15, Siglufirði, varð bráðkvaddur að morgni 14. maí. Rósa Eyjólfsdóttir, Þóra Vilbergsdóttir, Jóhann Vilbergsson. t Föðursystir okkar, STEINUNN JÓNASDÓTTIR frá Njarðvík, lést á dvalarheimilinu Garðvangi 14. maí. Hulda Einarsdóttir, Sigrún Einarsdóttir, Helga Egilsdóttir, Ólafur H. Egilsson. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BALDVIN L. SIGURÐSSON frá Hælavík, Bergstaðastræti 43a, Reykjavík, lést laugardaginn 12. maí á Vífilsstaðaspítala. Halldóra Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Bróðir okkar, RÖGNVALDUR JÓNSSON, frá Norðfirði, fyrrverandi prestur og kennari, lést í Borgarspítalanum föstudaginn 11. maí. Sveinbjörg Jónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Ragnar Jónsson. t Ástkær móðir mín, dóttir okkar, systir og mágkona, ANNA FRIÐBJÖRNSDÓTTIR, Strandaseli 5, lést í Borgarspítalanum þann 12. maí. Anna Kristín Magnúsdóttir, Kristín Ósk Óskarsdóttir, Friðbjörn Kristjánsson, Kristjana Friðbjörnsdóttir, Páll G. Andrésson, Óskar Friðbjörnsson, Sigurbára Sigurðardóttir, Hrafn Friðbjörnsson. t Útför bróður míns, KRISTJÁNS SIGMARS INGÓLFSSONAR, Eínibergi 19, Hafnarfirði, fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, þriðjudaginn 15. maí, kl. 13.30, en ekki kl. 14.30 eins og auglýst var í Mbl. á sunnu- daginn. Fyrir hönd foreldra og barna hins látna, Sigurður Ingólfsson. t Frænka mín, KATRÍN GÍSLADÓTTIR, Urðargötu 5, Patreksfirði, sem andaðist 6. maí sl., verður jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju í dag, þriðjudaginn 15. maí, kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti líknarstofnanir njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Kristinn Friðþjófsson. * Helgi Arnason vélstjóri- Minning Fæddur 16. febrúar 1926 Dáinn 6. maí 1990 Skyndilega er Helgi frændi fall- inn frá. Það var kallað á hann fyrr en nokkurn grunaði. Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd að þessi ljúfi ágætismaður sé horfinn af sjónarsviðinu, og erfitt að þurfa að skrifa þessi orð. Því miður hitti ég hann alltof sjaldan síðustu árin. I barnsminni mínu tengist Helgi alltaf góðum minningum. Sérstak- lega man ég þegar ég kom sem smástrákur _í heimsókn þar sem hann bjó í Árbænum, áður en þar var farið að byggja af alvöru. Víðáttan og umhverfið þar var ekki ósvipað því sem Helgi ólst sjálfur upp við í Sogamýrinni. Helgi Árnason vélstjóri fæddist 16. febrúar 1926 í Reykjavík. For- eldrar hans voru þau Árni Árnason verkamaður, frá Hurðarbaki í Flóa og Ólafía Guðrún Helgadóttir frá Vatneyri við Patreksfjörð. Þau bjuggu í fyrstu í leiguhúsnæði í Vesturbænum og víðar, en um 1930 gerðust þau frumbýlingar í Soga- mýrinni og átfu þar heima upp frá því. í Sogamýrinni var þá aðeins byggð við tvær götur, Sogaveg og Rauðagerði (sem nú eru). Helgi var næstelstur í systkina- hópi sem fór stöðugt stækkandi, uns þau voru orðin átta, þrír bræð- ur og fimm systur. Árni afí var góður smiður og húsið í Sogamýr- inni stækkaði eftir því sem fjöl- skyldan stækkaði, þótt efnin væru ekki mikil. Lóðin var stór, þar mátti rækta kartöflur og grænmeti, halda hænur og afla heyja. Börnin nutu þess hversu fijáls- legt var í þessu umhverfi. Þau höfðu stórt athafnasvæði, gátu farið í beijamó í holtinu fyrir ofan Soga- veg og inn að Elliðaám að veiða silung. Þar sem Miklabrautin liggur r.ú og þar í kring var heill ævintýra- heimur. Á veturna léku þau sér á skíðasleðum og magasleðum sem Árni afi smíðaði handa þeim, og renndu sér í brekkunni milli Soga- vegs og Rauðagerðis, Borgarbrekk- unni. Á kvöldin söfnuðust börnin úr hverfinu saman til leika, kýlu- bolta, boðhlaups, „fallin spýta“, standandi trölls og margra fleiri. Þau áttu skemmtilega æsku; börnin í Sogamýrinni, foreldrarnir voru samtaka og hamingjusöm og sinntu börnunum vel. Utivera og íþróttir áttu hug systkinanna, þau gengu í Glímufélagið Ármann og fóru að stunda skíðaíþróttina í Jós- epsdal. Helgi gerðist mikill skíða- göngumaður, tók þátt í mótum og var eitt sinn í sigursveit í boðgöngu á Reykjavíkurmóti. Þegar Helgi fór að stálpast fékk hann sumarvinnu sem mjólkurpóst- ur á Bústöðum og seinna á Mela- völlum. Þá voru rekin þarna kúabú og Helgi ók mjólkinni á hestakerru heim til fóiksins. Þetta var fyrir stríð og mjóikurdreifingarmál með talsvert öðrum hætti en nú er. Daginn sem stríðið kom til ís- lands, 10. maí 1940, varð fólkið í Sogamýrinni vart við einhver ókunnugleg umsvif inn við Elliða- ámar. Helgi fór af stað á reiðhjól- inu og hjólaði þangað til að komast að því hvað um var að vera. Jú, Bretinn var kominn og allt breyttist á íslandi. Ekkert varð eins og það var áður. Stríðið hafði auðvitað tals- verð áhrif á unglinginn. Þetta kom meðal annars fram í því að Helgi fékk mikinn áhuga á flugvélum sem notaðar voru í stríðinu. Hann átti stórt safn af flugblöðum frá stríðsárunum og var í Flugsögufé- laginu. t CHARLOTTA STEINÞÓRSDÓTTIR, Þórsgötu 1, sem andaðist 3. maí, verður jarðsungin frá kapellunni í Fossvogi í dag, þriðjudaginn 15. maí, kl. 15.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast látið líknarstofnanir njóta þess. Halla Þorbjörnsdóttir, Einar Oddsson, Steina Þóra Þorbjörnsdóttir, Benný Hrafn Magnússon, Hilmar Þorbjörnsson, Ágústa Guðbjartsdóttir, Þórður Eric Hilmarsson. t Elskulegur sonur okkar, barnabarn, bróðir og ástvinur, HJÁLMAR RÖGNVALDSSON, Tunguseli 8, er lést af slysförum sunnudaginn 6. maí, verður jarðsunginn frá Seljakirkju miðvikudaginn 16. maí kl. 13.30. Guðmunda Hjálmarsdóttir, Birgir Jónsson, Rögnvaldur Ólafsson, Ólafur Eiríksson, Hjálmar Sigurðsson, Ásta Birgisdóttir, Ármann Birgisson, Svava Birgisdóttir, Dagrún Hlöðversdóttir. t Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, HALLDÓR KR. S. ÁSGEIRSSON frá Svarthamri, til heimils á Langholtsvegi 4, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 12. maí. Jarðarförin fer fram miðvikudag- inn 16. maí kl. 10.30 í Áskirkju. Kristjana Halldórsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Steinþór Halldórsson, Erla Króknes, Hinrika Halldórsdóttir, Sigurður Þórðarson, Halldór Veigar Guðmundss., Sigríður G. Halldórsdóttir, Sigurborg Gísladóttir, Þorvaldur Ásgeirsson, Jóhanna Sumarliðadóttir, Sigfús Sigurðsson, Þorvarður Guðjónsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Helgi hóf iðnnám árið 1942 og lærði vélsmíði. Hann lærði í Vél- smiðjunni Keili, hóf síðan nám í Vélskólanum og brautskráðist það- an 1949. Að loknu námi hóf hann störf hjá Eimskipafélaginu og var vélstjóri á skipum þess til 1953. Á þessum skömmtunar- og haftatím- um var ekki ónýtt að eiga bróður í siglingum, og systkinin segja að oft hafi hann glatt þau með alls kyns gjöfum og varningi frá útlönd- um, og gleymdi aldrei neinum. í febrúar 1952 lá Brúarfoss, skip- ið sem Helgi var á, i Rotterdam. Þá varð örlagaríkur atburður, þegar Helgi lenti í slysi og slasaðist alvar- lega á báðum fótum. Taka varð annan fótinn af, og gekk Helgi upp frá því með gervifót neðan við hné. Helgi tók þessu óláni með miklu jafnaðargeði og kvartaði aldrei. Einn vinnufélagi hans vann með honum í fingn ár áður en hann átt- aði sig á því að Helgi væri eitthvað fatlaður. Þetta lýsir Helga vel. Hann gleymdi yfirleitt að hann gekk ekki heill til skógar og vildi að aðrir gerðu slíkt hið sama. En auðvitað hefur þetta háð honum á ýmsan hátt. Árið 1951 kvæntist Helgi Hjördísi Sævars Garðarsdóttur loft- skeytakonu, en þau skildu ijórum árum síðar. Árið 1954 kom Helgi í land og vann sem vélsmiður hjá ýmsum fyrirtækjum, Rafmagns- veitu Reykjavíkur, Vélsmiðjunni Dynjandi, Olíuverslun íslands, Stál- iðjunni og við Skipaeftirlit Ragnars Bjamasonar. Árið 1958 kvæntist Helgi i annað sinn, um leið og foreldrar mínir, og er til sameiginleg brúðkaupsmynd af þeim Helga og Þorbjörgu og Þuríði og Júlíusi. Þorbjörg Kjart- ansdóttir heitir eftirlifandi kona Helga, ættuð frá Austurey í Laug- ardal í Árnessýslu. Með henni átti Helgi dætur sínar þrjár, fyrst Helgu Björgu, f. 28. september 1958, og síðan tvíburana Lilju og Fjólu 11. janúar 1965. Dætur hans voru alla tíð augasteinar föður síns, líf hans og yndi, og ekki síður barnabörnin, þegar þau fóru að koma. Helgi bjó alla ævi í Reykjavík, síðustu árin í Árbæ og Breiðholti. Hann sneri aftur til sjós árið 1975 og gerðist vélstjóri á skipum Eim- skipafélagsins. Hann var enn í fullu starfi þegar kallið kom og var ný- kominn úr fyrsta túrnum eftir stutta sjúkdómslegu. Helgi hafði annars alltaf eitthvað fyrir stafni, bæði í vinnu og frístundum, var mjög framtakssam- ur, og skipulagði vinnu sína mjög vel. Hann var ákveðinn í lund, en annars einstakt ijúfmenni í um- gengni og skapgóður. Helgi var maður nútíðarinnar og framtíðar- innar, leit ekki mikið til baka yfir farinn veg, heldur horfði fram á við. En við horfum til baka, nú þegar Helgi er genginn á braut, og rifjum upp þær minningar sem við eigum um góðan mann. Söknuðurinn er sár, og ekkju hans og dætrum er missirinn erfiður. Helgi var á þeim aldri þegar menn búa sig undir að njóta lífsins eftir langan starfsdag, stundum kölluð gullnu árin. Eg sendi Þorbjörgu og dætrunum innilegar samúðarkveðjur. Árni Daníel Júlíusson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.