Morgunblaðið - 15.05.1990, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1990
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
SOLARDAGUR
Setið, legið og lært undir sólinni
Ií.rakkarnir í Gagnfræðaskólanum á Selfossi fögn tið, legið og lært um leið og mannskapurinn naut
uðu kærkomnum sólardegi mánudaginn 7. maí með sólarinnar og drakk í sig sumarbyijunina.
því að drífa sig út undir bert loft með skólabækurn- — Sig. Jóns.
ar. A þurrum blettum á skólalóðinni var síðan se-
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
Sérstök fræðsla var fyrir þá, sem voru nýir í trúnni, og er fyrirlesar-
inn Jón Sigurðsson að klóra sér í höfðinu yfir einhverri spurningu
frá viðstöddum.
HVANNEYRI
Kristilegt mót á bænadögum
Hvanneyri
Samtrúarsöfnuðurinn Vegurinn
var með mót yfir bænadagana
á Hanneyri í Borgarfirði. 200
manns sóttu allt mótið sem stóð frá
miðvikudegi fyrir skírdag og fram
á laugardag fyrir páska.
Að sögn Stefáns Ágústssonar,
eins af forsvarsmönnum mótsins,
var lögð áherzla á bænina, fræðslu-
stundir hafðar um bænina, en jafn-
framt á einingu og kærleika kris-
tinna manna. Hefur Vegurinn verið
með mót í Bændaskólanum á Hann-
eyri undanfarin ár um bænadagana
og einnig um verzlunarmannahelg-
ina.
Forstöðumaður Vegarins er
Björn I. Stefánsson.
- pþ
19. leikvika -12. maí 1990
Vinningsröðin: XX1 -XX2-121 -222
HVER VANN ?
1.279.185- kr.
0 voru meö 12 rétta - og fær hver:
0 voru meö 11 rétta - og fær hver:
12 voru meö 10 rétta - og fær hver:
0 - kr. á röð.
0 - kr. á röö.
18.934-kr.áröö.
Þrefaldursprengipottur
->i
VÁKORTAUSH
Dags. 15.05.1990 Nr.2
Kort nr. 5414830008003112
5414830015671141
54148300 2179 4101
5414830023224107
5414830026385103
Ofangreind kort eru vákort sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUNKR. 5.000,-
fyrir þann sem nær korti og sendir sundurklippt
til Eurocards.
Úttektarleyfissími Eurocards er 687899.
Þjónusta allan sólarhringinn.
Klippið augiýsinguna út og geymið.
K
SAMSÆRI
Var brezka leyniþjónustan
að baki för Hess?
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunbiaðsins.
Sovéska leyniþjónustan, KGB,
hefur í fyrsta sinn birt skjöl,
sem eiga að sýna, að flugferð Ru-
dolfs Hess, eins nánasta aðstoðar-
manns Hitlers, var farin að undir-
lagi Breta, að því er segir í frétt
The Sunday Times.
Eitt sérkennilegasta atvik seinni
heimsstyijaldarinnar var þegar
Rudolf Hess flaug einn og að eigin
frumkvæði, að því er talið hefur
verið, til Bretlands og lenti á túninu
hjá hertoganum af Hamilton í
Skotlandi þann 11. maí 1941.
Hess sagði sjálfur, að ferðin
væri farin til að koma á friði á
milli Bretlands og Þýzkalands. Op-
inbera skýring Breta á för Hess
hefur alltaf verið, að Hess hafi ekki
verið heill á geði og förin hafi kom-
ið brezkum stjórnvöldum algerlega
í opna skjöldu. Fram til ársins 2017
verður allur aðgangur að brezkum
skjölum um þessa för óheimill.
Skjölin, sem KGB hefur birt,
benda til, að brezka leyniþjónustan
hafi verið í bréfasambandi við Hess
og hún hafi stungið upp á ferðinni
til Skotlands. Að baki þessu býr sú
hugmynd, að Bretar hafi verið
reiðubúnir að semja frið við Hitler
á þessum tíma. Von um slíka friðar-
samninga hafi gefið Hitler tilefni
til að ráðast inn í Sovétríkin ekki
löngu síðar.
Douglas Hamilton, iávarður, son-
ur hertogans af Hamilton, vísar
þessum hugmyndum á bug, en hann
hefur rannsakað bréfasafn föður
síns og ritað bók um flugför Hess.
Hann segir engin gögn, sem bendi
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
til þess, að leyniþjónustan hafi
skrifað Hess. Hann segir vera bréf
frá brezku leyniþjónustunni, dag-
sett 3. maí 1941, til föður síns, þar
sem beinlínis segir, að slíkár áætl-
anir hafi verið lagðar á hilluna.
Rúmri viku síðar hafi Hess lent
flugyél sinni á túninu.
Þetta sýni hins vegar, að Sovét-
menn hafi trúað því, að Bretar
væru tilbúnir að gera slíka samn-
inga, rétt áður en Hitler réðst inn
í Sovétríkin.
Brezkir leyniþjónustumenn segja
birtingu þessara skjala vera skýrt
dæmi um blekkingarherferð KGB,
sem sé ætlað að grafa undan vest-
rænum leyniþjónustum og sá fræj-
um óeiningar á Vesturlöndum.
í skjölunum kemur fram, að þau
hafa verið frá Kim Philby, njósnara
KGB í brezku leyniþjónustunni, og
tékkneskum njósnara KGB i Lund-
únum.
COSPER
...og svo drap ég prinsessuna og giftist drekanum.