Morgunblaðið - 15.05.1990, Side 56
nrgpmfMiilt
SYKURLAUSTW^f/
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Keflavík:
Ellefii ára
ára dreng-
ur hrapaði
til bana
BANASLYS varð í Keflavík um
hálfáttaleytið í gærkvöldi, er 11
ára drengur hrapaði í berginu
við Helguvík.
Ekki er ljóst með hvaða hætti
slysið vildi til, en að sögn lögreglu
er talið að drengurinn hafi verið
ásamt tveimur félögum sínum við
klettabrúnina eða að klifra í berginu
skammt norðan við höfnina í
Helguvík.
‘ "iW)t'engurinn féll niður í stórgrýtta
íjöru undir berginu og er fallið tal-
ið hafa verið fimm til sex metrar.
Grundarkjör:
Skjalabruni
til rannsókn-
ar hjá RLR
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur nú til athugunar skjöl,
merkt versluninni Grundarkjöri,
sem reynt var að brenna í malar-
gryfjum í Þingvallasveit um helg-
ina. Einnig er verið að rannsaka
viðskipti verslunarinnar með
varning, sem seljandi varningsins
hefúr kært og telur að hafi verið
seldur frá Grundarkjöri, en selj-
andinn hefur ekki fengið vörurn-
ar greiddar.
Arnar Guðmundsson deildarstjóri
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins seg-
ir að RLR hafi til rannsóknar skjöl
sem bjargað var af báli um helgina.
Vegfarandi varð þess var að menn
voru á ferð í malargryijum. Skömmu
'SW tók hann eftir reyk og fór til
að kanna hvað væri á seyði. Þá sér
hann að eldur logar í haugi og þeg-
ar hann aðgætir nánar hvað þar er,
sér hann pappíra merkta Grundar-
kjöri. Honum tókst að ná einhverjum
hluta gagnanna af bálinu og kom
þeim til RLR, sem nú rannsakar
hvers eðlis þcssi gögn eru. Arnar
kvaðst ekki geta tjáð sig nánar um
rannsóknina.
Hann segir RLR einnig hafa til
rannsóknar kæru um að Grundar-
kjör hafi komið vörubirgðum undan,
með því að selja þær. Kærandinn
er sá sem seldi Grundarkjöri vörurn-
ar og hann hefur ekki fengið þær
greiddar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Veðurblíða íHrísey
Einmuna veðurblíða hefur verið í Hrísey síðustu daga. Eyjarskeggjar eru komnir í sumarskap jafnvel
þótt enn sé mikill snjór en veturinn var einhver sá snjóþyngsti sem menn muna. Börnin fjögur sem fremst
sitja og borða ísinn eru systkin, frá vinstri Sandra, Eygló, Guðmundur og Mardís. Fyrir aftan sitja móðir
þeirra, Harpa Hreinsdóttir, og fjölskylduvinurinn Sigmund. Fjölskyldan er nýflutt til Hríseyjar. Faðirinn,
Karl Guðmundsson, er vélstjóri á nýju ferjunni Sæfara.
Stóragerðismálið:
Játar líka
að hafa ver-
ið á morð-
staðnum
28 ÁRA maður, Guðmundur
Helgi Svavarsson, hefúr nú játað
við yfirheyrslur að hafa þann
25. apríl verið á morðstaðnum,
bensínstöðinni við Stóragerði,
ásamt 34 ára félaga sínum,
Snorra Snorrasyni. Framburði
þeirra um atburðarás ber hins
vegar ekki saman.
Snorri játaði fyrir nokkrum dög-
um að hafa verið á bensínstöðinni
þegar starfsmaður Olíufélagsins
hf. var myrtur og sagði Guðmund
Helga hafa verið með sér. Guð-
mundur neitaði því, þar til við yfir-
heyrslur um helgina. Þórir Odds-
son, vararannsóknarlögreglustjóri,
sagði að framburður þeirra stang-
aðist á og atburðarás væri því óljós.
Rannsóknarlögreglan fer vænt-
anlega fram á að mönnunum
tveimur verði gert að sæta geð-
rannsókn. Tvær vinkonur mann-
anna, 20 og 24 ára, eru í gæslu-
varðhaldi, en ekki er talið ólíklegt
að þeim verði sleppt úr haldi fljót-
lega.
Steingrímur J. Sigfítsson samgönguráðherra:
Framtíð Arnarflugs ræðst
á næstu tveimur dögum
FRAMTÍÐ Arnarflugs ræðst á næstu tveimur dögum, að sögn
Steingríms Sigfússonar samgönguráðherra. Ráðherra óskaði eftir því
í gær við forsvarsmenn félagsins að þeir gerðu grein fyrir stöðu fyrir-
tækisins í dag, eftir að ljóst var að vél sem félagið hafði tekið á leigu
kom ekki til landsins. Að sögn Kristins Sigtryggssonar, framkvæmda-
stjóra Arnarflugs, verður seinkun á flugi félagsins til Amsterdam í
dag, en samið var við Flugleiðir um að flytja farþegana kl. 17. Upphaf-
leg áætlun var klukkan 8.
Kristinn sagðist ekki hafa kynnt
sér hvað olli vandræðum þeim sem
farþegar lentu í á leið frá Amsterd-
am til Kaupmannahafnar um helg-
ina. Þá neitaði hollenska flugfélagið
KLM að taka gilda miða útgefna af
Arnarflugi og krafðist staðgreiðslu
af farþegum. Kristinn sagði að hann
vissi ekki betur en að samningar við
KLM stæðu, „þetta á ekki að geta
gerst ef farmiðar eru í lagi.“ Þá
sagðist hann hafa gert ráðherra
grein fyrir stöðu félagsins í gær og
að öllu óbreyttu ættu allar áætlanir
að standa frá og með fimmtudegi
þegar ný leiguvél er væntanleg til
íandsins.
„Við viljum fá upplýsingar um
hvernig þeir hyggjast leysa sín mál,“
sagði Steingrímur. „Það eru tak-
mörk fyrir hversu lengi er hægt að
una við þennan rekstrarvanda fé-
lagsins og að nánast sé verið að
bjarga rekstrinum frá einum degi
til annars. Slíkt getur auðvitað ekki
gengið.“ Ráðuneytið hefur áður við
svipaðar aðstæður óskað eftir því
við félagið að það gerði grein fyrir
hvernig það ætlaði að leysa flutn-
ingamál sín. Þá var sagt að vandinn
T
Hlutabréfasjóðurinn hf.:
Heimild veitt til 1 millj-
arðs hlutafjáraiikmngar
x Á AÐALFUNDI Hlutabréfasjóðsins hf. sem haldinn var í gær
var samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til að hækka
hlutafé um allt að einn milljarð með áskrift nýrra hluta. Gert
er ráð fyrir að þessi heimild til stjórnar dreifist á næstu ár auk
þess sem henni er ætlað að tryggja að allir sem þess óska geti
keypt hlutabréf í sjóðnum. Hluthafar voru alls 1.116 í árslok
og hafði þeim fjölgað úr 402 frá árinu áður.
Að minnsta kosti 45% af ráð- Sá hluti ráðstöfunarfjár sjóðsins
stöfunarfé Hlutabréfasjóðsins sem ekki er notaður til fjárfest-
I hf. er notað til hlutabréfakaupa. ingar í hlutabréfum er notaður
til fjárfestingar í skuldabréfum
atvinnufyrirtækja.Á síðastliðnu
ári var selt hlutafé í Hlutabréfa-
sjóðnum, að nafnverði 75,5 millj-
ónir króna fyrir samtals 125,3
milljónir króna. Sjóðurinn er víða
meðal stærstu hluthafa þeirra
félaga sem hann á hlut í, t.d.
Tollvörugeymslunni, Flugleiðum,
Skagstrendingi, Hampiðjunni og
Skeljungi. Nam hlutafjáreignin
samtals þann 1. apríl sl. tæplega
100 milljónum króna að mark-
aðsverðmæti. Fram kom á aðal-
fundinum að hlutafjáreign sjóðs-
ins hefur aukist um 11,8 milljón-
ir síðan þá vegna gengisbreyt-
inga á hlutabréfamarkaði en
jafnframt hefur verið fjárfest í
hlutabréfum fyrir 14,5 milljónir.
yrði leystur með aðstoð Flugleiða
og erlendri leiguvél tímabundið í einn
mánuð en áður en hún færi átti fé-
lagið að fá vél í varanlega leigu. „Nú
hefur eitthvað brugðist og farþegar
hafa aftur orðið fyrir óþægindum,
þannig að við hljótum að gera þá
kröfu til Arnarflugs að félagið leysi
þau mál og geri okkur jafnframt
grein fyrir hvernig það verður gert,“
sagði Steingrímur. „Það hljóta að
vera takmörk fyrir hvað hægt er að
umbera miklar vanefndir. Þeir verða
að sinna þeirri flutningaþörf sem er
á þessari sérleið, sem þeir hafa.“
Ráðherra sagði, að ekki væri
hægt að tala um vanefndir af hálfu
Arnarflugs ef annað félag annaðist
flutningana fyrir félagið og sæi jafn-
framt til þess að farþegar yrðu ekki
fyrir óþægindum. „Því miður hefur
það ekki lukkast," sagði Steingrím-
ur. „Það má því segja að næstu tveir
dagar ráði úrslitum. Við höfðum
treyst á að það stæðist, sem þeir
sögðu um vélina sem átti að koma
í gærkvöldi og að þeir flyttu farþega
með henni í morgun. Því miður varð
það vonlaust. Nú fullyrða þeir að
hún komi á miðvikudag og nái næstu
áætlun sem er á fimmtudag. Það
sjá það allir að ferðamannatíminn
er að hefjast og þá verður ekki und-
an því vikist að koma þessu í lag.
Ég veit að það mikið annríki er fram-
undan hjá Flugleiðum að féiagið
getur líklega ekki bætt miklu á sig.“
Flugleiðir hafa sagt upp sam-
komulagi við Arnarflug með mánað-
ar fyrirvara um að taka við farseðl-
um frá félaginu. Er þetta gert vegna
vanskila Arnarflugs, að sögn Sigurð-
- ar Helgasonar forstjóra Flugleiða..