Morgunblaðið - 21.06.1990, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
13
Ný útgáfa Aðventu Gunnars Gunnarssonar;
Leitin er tílgangurinn
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
GUNNAR Gunnarsson hefur
skýrt frá því að árið 1936 hafi
hann verið beðinn um sögu
handa ákveðnum bókaflokki og
af vissri lengd. Hann hafi þá sa-
mið Aðventu með því móti að
lengja smásögu sem hann hafði
skrifað fyrir danskt jólablað og
kallað Góði hirðirinn.
Aðventa kom fyrst út á dönsku
1937 og var meðal síðustu bóka sem
Gunnar sendi frá sér í Danmörku
fyrir heimförina 1939. Engin bóka
Gunnars mun hafa náð eins mikilli
útbreiðslu og Aðventa, hún hefur
víða komið út í mörgum útgáfum
og stórum upplögum. Á íslensku
birtist hún fyrst 1939 í þýðingu
Magnúsar Ásgeirssonar, en í eigin
þýðingu skáldsins 1976 (í Fimm
fræknisögum). Almenna bókafélag-
ið hefur nýlega látið prenta sérstaka
útgáfu Aðventu með ritgerð eftir
Svein Skorra Höskuldsson sem
hann nefnir Frá Skriðuklaustri til
Viðeyjarklausturs. Nokkrir drættir
í ævi Gunnars Gunnarssonar.
í Aðventu segir frá Benedikt,
hundinum Leó og forystusauðinum
Eitli sem á hverri jólaföstu halda
inn til óbyggða í því skyni að bjarga
eftirlegukindum undan að krókna
eða horfalla á heiðum uppi. Þetta
er tvísýn og erfið barátta, en Bene-
dikt finnur til ábyrgðar gagnvart
kindunum sem eru líka lífverur
gæddar hoidi og blóði. Takmarkið
er að reka þær til byggða og koma
þeim undir þak fyrir jólahátíðina.
Benedikt sögunnar á sér fyrir-
mynd, Fjalla-Bensa, annálaðan fyr-
ir þor og ósérhlífni og styðst Gunn-
ar við frásögn hans.
Aðventa snýst um leitina, leit
mannsins, tilgang. Menn geta í senn
lesið söguna sem ákaflega þjóðlega
frásögn með hnýsilegum fróðleik
um liðna tíð eða skipað henni í al-
þjóðlegra samhengi þar sem tilvist-
arvandinn sjálfur er á ferð og skáld-
ið veitir svör við honum. í leitinni
er tilgangurinn fólginn og með þjón-
ustu sinni við lífið finnur maðurinn
hlutverk sitt og fró.
Þessi stutta skáldsaga býr. yfir
óvenjulegu og áleitnu lífi, heiðríku
andrúmslofti, en vera má að áhrifa-
máttur hennar hafi minnkað, eink-
um við endumýjaðan lestur. Þrátt
fyrir það stendur skáldsagan fyrir
sínu og getur kallast stök varða á
ferli skáldsins. Þessi nýja útgáfa
bókarinnar með æviatriðum Gunn-
ars ætti að höfða til ungs fólks,
nýrra lesenda sem mega ekki missa
af kynnum við eitt af höfuðskáldum
okkar.
Gunnar Gunnarsson
Menn hafa stundum látið að því
liggja að Gunnar sem fmmsamdi
flest verka sinna á dönsku skrifi
nokkuð harðhnjóskulegan stfl á
móðurmáli sínu. Víst getur mál
Gunnars verið „stórskorið" og býr
ekki alltaf yfir dæmigerðri mýkt
eða lipurð. En það er tigið og víða
fagurt eins og til dæmis í eftirfar-
andi broti úr Aðventu sem valið er
af handahófi:
„Og sem væri hún alin af þess-
ari ofurbirtu með hinum dökku
baugum gíganna og einstöku
hraundrangi er gnæfði líkastur
nátttrölli upp úr auðninni hér og
þar, var yfir fjallasveitinni þennan
sunnudag sérstök hátíð, er hneit
manni við hjarta, ómælanleg hvít
helgi umlukti þráðbeinan hvíldar-
dagsreyk strókanna er stigu upp
af hinum dreifðu býlum, lágreistum
eða fenntum af hálfu í kaf, kyrrð
með öllu óskiljanleg og þunguð fyr-
irheitum — aðventa. Aðventa!“
Freistandi er að álykta sem svo
að þegar Gunnar Gunnarsson var
að fást við að raða saman orðum
og setningum í Aðventu, óð sinn
till auðnar og manndóms, hafi hann
að hálfu eða öllu leyti verið kominn
heim. Um þessar mundir tóku „að
blása um hann kaldir vindar úr
ýmsum áttum“ eins og Sveinn
Skorri rify'ar upp: „Hugmyndafræði-
lega átti hann Iitla samleið með
þeirri vinstrisinnuðu og sósíalísku
kynslóð sem setti meginsvip á bók-
menntir fjórða áratugarins á Norð-
urlöndum."
Þarna sérðu Magnús og Dóru ó heimleið eftir 5Vi úrs útivist.
Þau létu drauminn rætast ún þess að ganga ú eigur sínar.
Þau hjónin komu aö landi 2. júní sl. og
höföu þá siglt u.þ.b. 40.000 sjómílur.
Fyrir nokkrum árum ákváðu þau að
selja íbúðina og Iáta drauminn rætast,
- að sigla á skútu til framandi slóða,
laus við áhyggjur hins venjubundna
lífs. Dóra og Magnús hafa nú verið á
ferðinni í 5Vi ár. Spánn, Kanaríeyjar,
Grænhöfðaeyjar, Suður-Ameríka,
Panamaskurðurinn, Kyrrahafseyjar,
Ástralía, Indlandshaf, Súesskurður og
Miðjarðarhaf eru nokkur þeirra
svæða sem þau nutu í félagi við hafið
og skútuna Dóru. Allan tímann var
andvirði íbúðarinnar í vörslu Verð-
bréfamarkaðarFjárfestingarfélagsins.
Vextir umfram verðbætur sem þar
fengust nægðu þeim til framfærslu í
þessari frábæru ferð.
Eftir ógleymanlega hnattferð standa
þau fjárhagslega í sömu sporum og
áður, þvi að uppreiknaður höfuðstóll
stendur óhaggaður. Þau gætu þess
vegna keypt sömu íbúð aftur.
Velkomin heim Dóra og Magnús,
- og til hamingju!
. VERÐBRÉFAMARKAÐU R
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI 689700 • AKUREYRI11100