Morgunblaðið - 21.06.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
15
Brimborg hf.
Faxafeni 8 • Sími 685870
9-1100 hestðfl
YANMAR vélarnar eru ein-
staklega léttar og fyrir-
ferðarlitlar og þekktar fyrir
vandaða hönnun og mikla
endingu.
Eigumálagerogvæntan-
legar:
Gerð4LH: 110,140 og
170 hö.
Gerð 4JH-.41,52,63 og74 hö.
Hagstættverð.
Sala- Ráðgjöf - Þjónusta
VARNAÐARORÐ
eftirMagnús
Oskarsson
Þegar harðast svarf að verkafólki
í kreppunni miklu, tókst að kreista
út úr bláfátækum íslenzkum barna-
mönnum samskotaaura fyrir trakt-
or, sem sendur var höfðingjanum
Stalín til þess að hjálpa rússneskum
verkalýð. Dapurlegt tilgangsleysi
þessarar fórnar kemur í hugann,
þegar elskulegt mannúðarfólk á
Islandi heldur að það skipti máli til
lausnar vanda þjóðanna í þriðja
heiminum, að flytja hingað brota-
brot þeirra hundruða milljóna sem
þar þjást. Líklega myndu nokkrir
traktorar á réttum stöðum gera
meira gagn.
Heimshomaflutningur fólks til
íslands leysir, ef vel tekst til, vanda
örfárra einstaklinga, en skilur sjálft
vandamálið eftir. Er þá að því að
hyggja, hver hagur er að því að
leysa svo lítinn hluta vagdans, ef
við það skapast önnur og ný vanda-
mál. íslendingar geta sparað sér
þau ósannindi, að þeir séu öðruvísi
og betri en aðrar þjóðir og verði
lausir við vandamál í náinni sambúð
við fólk af framandi kynstofnum.
Varla tala menn að ófyrirsynju
um kynþáttavandamá/ í flestum
nálægum löndum. Skyldi vera
óhætt að velta því fyrir sér hér í
málfrelsinu, án þess að vera sakað-
ur um kynþáttahatur, hvort skyn-
samlegt sé að skipuleggja flutninga
á þessu vandamáli til Islands? í leið-
inni mætti hugleiða, hvort það geti
verið rétt að börn hafi verið keypt
til landsins og hvort mannúð og
hamingja hafi ráðið komu allra eig-
inkvennanna frá Asíu hingað.
Sama sagan hefur gerzt í nær
öllum löndum í kringum okkur. Of
„Sama sagan hefur
gerzt í nær öllum lönd-
um í kringum okkur.
Of seint hafa menn
vaknað upp við þann
vonda draum, að hjá
þeim væri komið upp
alvarlegt kynþátta-
vandamál.“
seint hafa menn vaknað upp við
þann vonda draum, að hjá þeim
væri komið upp alvarlegt kynþátta-
vandamál. Jafnvel sænsku mann-
vinirnir eru farnir að reka óvel-
komna aðkomumenn af höndum
sér.
Fyrst menningarárekstrar eiga
sér stað hjá milljónaþjóðum, þegar
þangað flyzt tiltölulega lítill hópur
fólks frá framandi löndum, er óleyf-
ilegt að banda því frá sér með létt-
úð að þjóðblanda hér í fámenninu
komi íslenzkri menningu við.
Þetta er viðkvæmt mál, sem
nauðsynlegt er að íhuga vel og
kynna sér reynslu annarra þjóða. A
meðan væri ráð að flýta sér hægt
og gera ekkert sem menn iðrast
síðar.
Höfundur er borgarlögmaður.
á bíla og hjólhýsi
frá danska fyrir-
tœkinu Trio.
Vönduð og sterk
fortjöld í mörg-
um stœrðum.
Gísli Jónsson & Co.
Sundaborg 11 Sími 91-686644
■ ÍSLENSKA málfræðifélagið
efnir til fundar í kvöld fimmtudag-
inn 21. júní kl. 16.15 í stofu 422 í
Árnagarði. Fyrirlesari verður Val-
ery Bérkov, prófessor í norrænum
málum við háskólann í Leníngrad.
Fyrirlesturinn nefnist „íslensk
fræði í Sovétríkjunum“ og verður
fluttur á íslensku.
Nýr,
stærrí
°8
kraftmeiri
Daihatsu Charade Sedan er rúmgóður 5 manna fjölskyIdubílI með sérstaklega
p stóra farangursgevmslu (288 lítra) sem mjög auðvelt er
að hlaða. Hann er búinn nýrri kraftmiki11i 4ra
strokka, 1 6 ventla 1.3 lítra, 90 hestafla vél með
beinni innspýtingu. Þessi vél gerir bílinn bæði
auðveldan og skemmtilegan í akstri hvort sem
hann er með beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Sparnevtni og hagkvæmni í
rekstri undirstrika svo kosti Charade Sedan sem hins fullkomna fjölskyIdubíls.
Ótrúlega hagstætt verð
Daihatsu Charade Sedan SG
5 gíra kr. 767.000 stgr. á götuna.
Sjálfskiptur kr. 829.000 stgr. á götuna.
Komið og reynsluakið kraftmiklum Charade Sedan