Morgunblaðið - 21.06.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JUNI 1990
17
Um mótmæli við atvinnu-
leyfi til pólskra verkamanna
eftir Grétar
Þorleifsson
Þann 27. máí síðastliðinn sá
Meistarafélag iðnaðarmanna í
Hafnarfirði ástæðu til að mótmæla
því, að Félag byggingariðnaðar-
manna í Hafnarfirði og Verka-
mannafélagið Hlíf hyggðust veita
pólskum verkamönnum atvinnuleyfi
til sandblásturs og málningar á
löndunarbúnaði í Straumsvík. Þar
sem greinin er morandi í villum og
rangfærslum þá sé ég mig knúinn
til að birta leiðréttingu á röngum
fullyrðingum Meistarafélagsins og
formanns þess.
í greininni talar Meistarafélagið
um „verslun“ með atvinnuleyfi,
slæmt atvinnuástand, óheyrilega
lág laun pólskra verkamanna ofl. í
þeim dúr.
Hið rétta í málinu er eftirfarandi:
1. Verkið var boðið út af íslenska
álfélaginu og buðu nokkur fyrirtæki
í verkið og einstakir málarameistar-
ar.
Skipalyftan í Vestmannaeyjum
bauð í verkið ásamt pólsku fyrir-
tæki, sem hefur sérhæft sig í við-
haldi á löndunarbúnaði. Skipalyftan
ásamt hinu pólska fyrirtæki b uðu
langlægsta tölu eða 59 milljónir í
allt verkið. Sá aðili sem var næstur
bauð rúmar 90 milljónir í heildar-
verkið. Það er því ljóst, að enginn
annar íslenskur aðili var nærri því
að koma til greina.
2. Tilboð Skipalyftunnar var skil-
yrt þannig, að pólskir verkamenn
ynnu verkið.
Eftir að hafa kynnt sér forgangs-
rétt íslendinga til allra starfa á Is-
landi þá auglýsti fyrirtækið tvisvar
sinnum í Morgunblaðinu eftir
mönnum, án árangurs.
Þegar það lá fyrir að enginn Is-
Skagaströnd:
Niðurstaða
„í greininni talar Meist-
arafélagið um „versl-
un“ með atvinnuleyfi,
slæmt atvinnuástand,
óheyrilega lág laun pól-
skra verkamanna ofl. í
þeim dúr.“
lendingur sótti um starf þá óskaði
Skipalyftan eftir viðræðum um at-
vinnuleyfi fyrir pólska verkamenn
til að vinna umrætt verk.
Þær viðræður leiddu til þess, að
Félag byggingariðnaðarmanna í
Hafnarfirði ákvað að mæla með
atvinnuleyfum með venjulegum fyr-
ii-vörum, svo sem um menntun að-
búnað og kjör viðkomandi verka-
manna.
3. Meistarafélagið fullyrðir að
Félag byggingariðnaðarmanna hafi
„verslað" með atvinnuleyfin. Þetta
er auðvitað hin mesta fjarstæða og
furðulegt að sjá slíkt á prenti, þar
sem stjórn Meistarafélagsins veit
betur.
Hið rétta er, að þegar atvinnu-
leyfin eru gefin út, eru þau skilyrt
við það að viðkomandi fari eftir
viðkomandi kjarasamningum. Það
sem gerðist var það, að Skipalyftan
í Vestmannaeyjum lýsti því yfir að
hún myndi greiða félagsgjöld,
sjúkrasjóðs og orlofssjóðsiðgjöld,
ásamt samningsbundnum mælinga-
gjöldum af verkinu, með fyrirvara
um samþykki pólska meðbjóðand-
ans. Enginn samningur hefur verið
undirritaður um annað.
4. Meistarafélagið vísar til at-
vinnuástand og atvinnuleysisbóta
sem þeir (meistarnir) greiði. Hér
er einnig um rangfærslu að ræða.
Enginn hafnfirskur málari hefur
verið atvinnulaus mörg undanfarin
ár og reyndar var enginn bygginga-
maður í Hafnarfirði á atvinnuleysis-
bótum á þessum tíma.
Um málara í Reykjavík er okkur
ekki kunnugt, enda hefur Málarafé-
lag Reykjavíkur kosið að eiga ekk-
ert samstarf við Félög byggingar-
iðnaðarmanna í Hafnarfirði um slík
mál. Viðbrögð manna við auglýs-
ingu Skipalyftunnar benda hins
vegar ekki til að atvinnuástandið
sé slæmt í Reykjavík.
5. Formaður Meistarafélagsins
lætur hafa eftir sér í sömu grein
að Skipalyftan ætlaði að greiða
Pólveijunum 7-8.000 krónur á mán-
uði í laun. Þetta er mikil fjarstaða
og veit formaðurinn miklu betur.
Staðaruppbótin ein sér, serm hver
maður fær, eru um 1.000 banda-
ríkjadalir á mánuði eða rúmar
60.000 krónur. Launaliður í tilboði
Skipalyftunnar var það hár, við
skoðun, en fulltrúi Félags bygg-
ingariðnaðarmanna fékk að fara
yfir allt tilboðið að hann jafngilti
ákvæðisvinnulaunum samkvæmt
samningum hérlendis.
Auk þess fá Pólveijarnir frítt
húsnæði og fæði og bifreið til um-
ráða.
Að lokum vil ég lýsa furðu minni
á slíkum skrifum, sérstaklega þar
sem Meistarafélagið var og er
sennilega enn reiðubúið til að taka
jákvætt á þessari beiðni, gegn
greiðslu. Reyndar þarf ekki að fara
lengra en yfir Reykjanesbrautina
til að finna hliðstæðu, en þar reistu
ungverskir verkamenn stálbræðslu,
með atvinnuleyfi. Greiðsla til Meist-
arafélagsins vegna starfa Ungveij-
anna nam 180.000 kr.
Hver er munurinn á þessu
tvennu. Jú, hann er sá einn, að
stjórnarformaður í Meistarafélag-
inu er forsvarsmaður stálfélagsins,
en Skipalyftan er úr Vestmannaeyj-
um eins og kunnugt er.
Höfundur er formnður Félags
byggingariðnaðarmanna í
Ilafnarfirði.
kjörstjórn-
ar standi
óhögguð
KJÖRNEFND hefur úrskurðað
að niðurstaða kjörstjórnar í
sveitarstjórnarkosningunum á
Skagaströnd, um ógildingu utan- ,
kjörstaðaatkvæðis sem á vantaði i
- undirskrift votta, skuli standa ;
óhögguð. Að sögn Kristins Jó- I
hannssonar umboðsmanns G-list- t
ans á Skagaströnd verður úr- ;
skurðurinn kærður til félags- t
málaráðuneytisins. 3
NÝR O G STÆRRI
SUZUKISWIFT SEDAN er sérlega glæsilegur
og rúmgóður fjölskyldubíll, þar sem vel fer um
farþegana og nægt rými er fyrir farangur.
VERÐ:
1,31GL eindrif....... 783.000,- kr. stgr.
1,6 I GLX eindrif..... 878.000,- kr. stgr.
Umrætt utankjörstaðaatkvæði
hefði hugsanlega getað haft úrslita-
áhrif á kosninguna á Skagaströnd,
því ef það hefði verið dæmt gilt og
ef það hefði lent hjá G-listanum,
þá hefði þurft að varpa hlutkesti
milli efsta manns G-listans og ann-
ars manns á D-lista.
Kristinn Jóhannsson sagði að í
kæru G-listans hefði verið óskað
eftir því að atkvæðið yrði dæmt
gilt og ný talning færi fram, en í
úrskurði kjörnefndar hefði engin
afstaða verið tekin til talningarinn-
ar. „Það er engin önnur leið til að
fá fram endurtalningu atkvæðanna
en áð kæra úrskurð kjörnefndar til
ráðuneytisins og það mun ég gera.“
Philips sér um lýsinguna
SUZUKISWIFT SEDAN býðst með aflmiklum 1,61GLX sítengt aldrif. 1.031.000,- kr. stgr.
1,3 I og 1,6 I vélum, 5 gíra handskiptingu eða
sjálfskiptingu. Einnig er hann fáanlegur með
KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ
sítengdu aldrifi.
$ SUZUKI
---.......
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 • SÍMI 685100