Morgunblaðið - 21.06.1990, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
250 starfsmönnum Scandinavia Bank sagt upp störfiim:
Mun harðari aðgerðir en
fyrirfram var reiknað með
- segir Erlendur Magnússon sem var í hópi þeirra sem sagt var upp
EINN íslendingur, Erlendur Magnússon, var meðal tæplega 250
starfsmanna Scandinavian Bank í London, sem sagt var upp störfúm
á mánudag. Þeim starfsmanni bankans, sem sá um viðskipti við
Island, var einnig sagt upp. Alls vinna um 400 manns í bankanum
í London.
Uppsagnirnar koma í kjölfar
kaupa sænska Skandinaviska En-
skilda Banken á öllum hlutabréfum
í Scandinavian Bank fyrir hálfum
mánuði. Fjórir aðrir bankar áttu
hlut í Scandinavian Bank, þar á
meðal Landsbanki íslands. Erlend-
ur Magnússon sagði við Morgun-
blaðið að reiknað hefði verið með
að fólki yrði fækkað, þegar bankinn
var seldur, en þetta væru mun
fleiri uppsagnir en búist var við.
Erlendur starfaði í þeirri deild
bankans sem sá um viðskipti við
Finnland. Öllum starfsmönnum
þeirrar deildar, og yfirmanninum
þar á meðal, var sagt upp á mánu-
dag, og hættu þeir störfum þegar
í stað, eins og venja er í Bret-
landi, en fengu greiddan samnings-
bundinn uppsagnarfrest. Erlendur
sagði að með þessu hefðu ýmis við-
skiptamál verið skilin eftir { lausu
lofti og sagðist hann vita til þess
að viðskiptavinir bankans væru
mjög órólegir þar sem með þessu
væru rofin við þá öll tengsl án fyrir-
vara.
Erlendur Magnússon sagðist
ekki vita hvað nú tæki við hjá sér.
„Það er eins með mig og aðra sem
lentu í þessum uppsögnum, að við
þurfum að fara að líta í kringum
okkur hér í London.“
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Eykyndilskonur með hluta þeirra Björgvinsbelta sem þær gáfú á
sjómannadaginn.
V estmannaexjar:
Eykyndilskonur gefa Björg-
vinsbelti í allan Eyjaflotann
Vestmannaeyjum.
KONUR í slysavarnadeildinni Eykyndli gáfú í vor hin nýju Björgvins-
belti í alla Eyjabáta, sem eru yfír 100 tonna að stærð. Á sjómannadag-
inn bættu konurnar svo um betur og gáfú Björgvinsbelti í alla báta
undir 100 tonnum, sem hafa fleiri en einn mann í áhöfú.
Októvía Andersen, formaður Ey- beltið væri merk nýung í björgunar-
kyndiis, sagði í ávarpi við afhend- tækjum fyrir sjómenn sem skapaði
inguna að á almennum fundi hjá
Eykyndli 27. mars sl. hefði verið
ákveðið að gefa Björgvinsbelti í all-
an Eyjaflotann. Hún sagði það álit
allra sem til þekktu að Björgvins-
Frá setningu þingsins í Háskólabíói.
650 meltingafæralæknar á þingi
ÁRLEGT þing norrænna melt-
ingafæralækna fór fram í Há-
skólabíói dagana 14.- 16. júní.
Þingið sóttu 650 læknar frá
Norðurlöndunum.
í samtali við Einar Oddsson,
meltingafæralækni, kom fram að
mest hefði verið rætt um lifra-
flutninga, bólgusjúkdóma í þörm-
um, maga- og skeifugamasár,
blæðingar frá meltingarvegi,
skaðleg áhrif lyfja á magann og
meltingarvegi, og aðferðir til að
bijóta niður gallsteina með hljóð-
bylgjum. Mesta athygli sagði Ein-
ar að hefði vakið góður árangur
við lifraflutninga. Fram kom að
níu af hveiju tíu lifrarþegum eru
á lífi ári eftir aðgerðina en átta
af hveijum tíu fimm árum eftir
aðgerðina.
Að sögn Einars eru þing sem
þessi afar mikilvæg því miklar
framfarir eru nú á sviði meltingar-
lækninga. Að auki væru þau grun-
völlur að samstarfi íslenskra
lækna og lækna á hinum Norður-
löndunum.
Næsta þing meltingafæralækna
verður haldið í Álaborg að ári.
aukið öryggi og með gjöf þessari
vildu Eykyndilskonur leggja sitt af
mörkum til að koma þessari merku
nýjung á framfæri.
Auk þess að gefa belti í allan
Eyjaflotann gáfu Eykyndilskonur
einnig belti til lögreglunnar og
Stýrimannaskólans.
Fulltrúar útgerða Eyjabátanna
tóku við gjöf Eykyndilskvennanna
og að afhendingu lokinni þakkaði
Hilmar Rósmundsson, formaður
Útvegsbændafélags Vestmanna-
eyja, konunum fyrir þessa höfðing-
legu gjöf. Hann sagði að Eykyndils-
konur hefðu oft sýnt hug sinn til
slysavarna á sjó og gjöf þessi væri
enn eitt dæmið hug þeirra til örygg-
ismála sjómanna.
Verðmæti gjafar Eykyndils-
kvennanna er á aðra milljón því um
Gjaldþrot Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga hf.:
Upphaflegar kröfur um 710
milljónír króna á núvirði
Kröfumar hafa lækkað í um 250 milljónir vegna samninga skiptaráðanda við kröfuhafa
ENN eru ekki öll kurl komin til grafar í gjaldþrotamáli Endurtrygg-
ingafélags Samvinnutrygginga h.f. sem varð gjaldþrota árið 1984.
Reyndar telur skiptasljórinn að enn muni einhver ár líða áður en
skiptameðferð verður lokið. Samkvæmt skýrslu sem sem Eiríkur
Tómasson skiptastjóri þrotabúsins hefúr samið fyrir Skiptaráðand-
ann í Reykjavík námu upphaflegar kröfúr í þrotabúið, miðað við
27. nóvember 1984 liðlega 236 milljónum króna, en vegna þróunar
íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum næmi sú fjár-
hæð í dag nálægt 710 milljónum króna.
í skýrslu skiptastjórans kemur upprunalegu krónutölunni," sagði
fram að samið hefur verið við
fjölda kröfuhafa, ýmist um að þeir
fái greidd 20% af kröfu sinni, gegn
því að fallið verði frá frekari kröf-
um, eða að þeir fái 10% greidd og
eftirstöðvamar við endanlega út-
hlutun úr búinu.
Því hafi kröfumar lækkað úr
því að vera um 236 milljónir króna
(gengi nóvember 1984) í það að
vera um 84 milljónir króna (gengi
nóvember 1984), sem samsvarar
um 250 milljónum króna á gengi
dagsins í dag. í þeirri tölu hefur
þegar verið tekið tillit til 10%
greiðslna upp í kröfur þeirra sem
ekki samdist við um 20% loka-
greiðslu.
„Kröfumar em strangt til tekið
alltaf að hækka, en við emm bún-
ir að semja um greiðslur á mjög
mörgum kröfum, þannig að heild-
arupphæðin hefur lækkað mjög frá
Eiríkur Tómasson skiptaráðandi
þrotabúsins í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins.
Eiríkur sagði að eignirþrotabús-
ins í júní 1984 hefðu numið um
65 milljónum króna á þáverandi
gengi, en það lætur nærri að vera
um 195 milljónir króna í dag. „Það
vantar, ekki mikið upp á að við
getum greitt allar þessar kröfur
samkvæmt þessu gamla gengi, en
þá stendur eftir gengismunurinn,"
sagði Eiríkur.
Eiríkur sagði jafnframt að
kröfuhafar þeir sem töpuðu mestu
væri erlend endurtryggingafélög.
íslenskri kröfuhafar töpuðu óveru-
legum fjármunum ef nokkrum, en
enn væri þó spurning um gjald-
heimtuna í Reykjavík. „Ég veit þó
ekki hvort hún kemur til með að
tapa nokkru, þegar upp verður
staðið, vegna þess að hennar kröf-
ur eru í íslenskum krónum,“ sagði
Eiríkur.
í skýrslu skiptastjórans til skipt-
aráðanda, sem samin var þann 30.
júní 1989 segir m.a.:„fyrir réttu
ári var haldinn skiptafundur í ofan-
greindu þrotabúi þar sem sam-
þykkt var að bjóða kröfuhöfum tvo
valkosti: Annað hvort að þeir
fengju greidd 20% af kröfu sjnni
þegar í stað gegn því að þeir féllu
frá frekari kröfum á hendur búinu
eða þeir fengju greidd 10% upp í
kröfu sína að svo stöddu, en etir-
stöðvar hennar við endanlega út-
hlutun úr búinu...
Á að giska helmingur þeirra
kröfuhafa sem lýst hafa kröfum í
búið (kröfuhafar eru 162 talsins -
innskot blm.) og fengið þær viður-
kenndar, ákvað að ganga að fyrri
kostinum, þ.e. að fá 20% upp í
kröfus sínar eins og þær stóðu á
miðju síðasta ári, gegn því að falla
frá frekari kröfum á hendur búinu.
Af þessu sökum lækkaði ljárhæð
þeirra krafna sem teknar hafa
verið til greina á hendur búinu,
verulega eða úr kr. 236.036.782 í
kr. 92.970.651....Nú hafa nýlega
verið greidd 10% af þessum kröfum
til einstakra kröfuhafa þannig að
ofangreind fjárhæð hefur lækkað
sem því nernur." Samkvæmt þessu
eru eftirstandandi kröfur á gengi
ársins 1984 um 84 vmilljónir
króna, eða liðlega 250 milljónir
króna að núvirði.
Við framreikning ofangreindra
upphæða frá 27. nóvember 1984,
þegar í fyrsta sinn birtist opinber
innköllun til kröfuhafa hafa tölurn-
ar einfaldlega verið þrefaldaðar
hér. Uppreiknað miðað við láns-
kjaravísitölu frá 1984 til dagsins
í dag, nema því 236 milljónirnar
frá því þá, um 710 milljónum í dag
og sé miðað við þróun íslensku
krónunnar gagnvart breska pund-
inu fæst svipuð niðurstaða.
Undir lok skýrslu skiptastjóra
segir: „Mér virðist að það muni
taka nokkur ár að ljúka skiptameð-
ferðinni að fullu og öllu, meðal
annars þarf að útkljá ágreinings-
efni sem sí og æ skjóta upp kollin-
um við meðferð þessa bús. með-
ferð á þrotabúum endurtrygginga-
félaga er, eins og áður hefur kom-
ið fram, um margt sérstök, ekki
aðeins vegna þess að hún tekur
mun lengri tíma en meðferð á
venjulegum þrotabúum, heldur og
vegna þess að upp koma erfið úr-
lausnarefni vegna eðlis endur-
tryggingaviðskipta."
70 bátar eru í Eyjaflotanum og
kostar hvert belti um 18.000 krónur
auk virðisaukaskatts.
Að lokinni afhendingu gjafarinn-
ar sýndi Björgvin Siguijónsson,
hönnuður beltisins, viðstöddum
notkunarmöguleika þessa nýja
björgunartækis.
Grímur
Norræna húsið:
Kórsöngur
og fyrirlestur
um handritin
DR. JÓNAS Kristjánsson, for-
stöðumaður Stolúunar Árna
Magnússonar, heldur fyrirlestur
um islensku handritin í Opnu húsi
í Norræna húsinu í kvöld, fimmtu-
daginn 21. júní, kl. 21.00.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
dönsku, en dagskráin miðast eink-
um við ferðamenn frá Norðurlönd-
um, en allir eru að sjálfsögðu vel-
komnir.
Að fyrirlestrinum loknum er
gestum boðið að skoða handritin í
Árnagarði undir leiðsögn Jónasar.
Á undan fyrirlestrinum, eða kl.
20.00, syngur Braschamba-kórínn
frá Bengtsfors \ Svíþjóð. í kórinn
eru 11 manns. Á efnisskránni eru
ýmis kóriög, þjóðlög, negrasálmar
og sígild tónlist. Kórinn hefur sung-
ið saman síðan 1979. Kórfélagar
eru á ferðalagi um ísland og hafa
m.a. heimsótt Akureyri.
Keflavík:
Hraðfrysti-
húsið aug-
lýst til sölu
HR AÐFR Y STIHÚS Keflavíkur
hefúr verið auglýst til sölu ásamt
öllum tækjum og búnaði og togar-
anum Aðalvík KE. Hraðfrystiliú-
sið er í greiðslustöðvun til 20 júlí,
og að sögn Símonar Ólasonar
hdl, sem veitir fyrirtækinu aðstoð
á meðan á greiðslustöðvuninni
stendur, hafa nokkrir aðilar sýnt
áhuga á kaupum, en ekkert tilboð
hefúr þó borist.
Símon sagði að með því að aug-
lýsa hraðfrystihúsið til sölu væri
verið að reyna einn möguleika af
mörgum til að létta á rekstrarfjár-
stöðu fyrirtækisins. „Þetta er að-
eins einn liður sem til greina kemur
í stöðunni. Það er ennþá verið að
reyna ýmsa aðra möguleika, en í
dag er þó engin borðleggjandi lausn
á vanda fyrirtækisins í augsún."