Morgunblaðið - 21.06.1990, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
SIEMENS
Oflug ryk$ggq!
VS91153
• Stillanlegur sogkraftur
(250-1100 W).
• 4 fylgihlutir í inn-
byggðu hólfi.
• Fjórföld sýklasía í
útblæstri.
• Sjálfinndregin snúra
og hleðsluskynjari.
• SIEMENS ffamleiðsla
tryggir endingu og gæði.
• Verð kr. 16.500,-
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Eftirlýstir fálkaþjófar handteknir:
Fálkaþjófiiaður auð-
veldur á Grænlandi
- en á íslandi er fylgst með hverjum manni
Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞÝSKUR karlmaður og frönsk kona eru nú í haldi hjá ensku Iögregl-
unni en þau voru handtekin þegar þau reyndu að smygla fjórum
grænlenskum fálkaungum til Englands. Hefiir Interpol, Alþjóðalög-
reglan, lengi leitað skötuhjúanna en þau eiga átta ára fangelsi
yfir höfði sér fyrir fálkastuldinn.
Birgit Sloth, starfsmaður
danska náttúruverndarráðsins,
sagði í samtali við grænlenska út-
varpið, að enginn vafi léki á, að
alþjóðlegur smyglhringur stæði að
fálkaþjófnaðinum enda væri hægt
að fá allt að sex milljónir ísl. kr.
fyrir hvítan fálka í arabaríkjunum.
Klæðast smyglararnir meðal ann-
Sri Lanka:
Segja Tígrum
stríð á hendur
Colombo. Reuter.
Sljórnin á Sri Lanka hef-
ur lýst yfir stríði á hendur
Tígrunum, uppreisnar-
hreyfingu tamíla, og segir
þá verða drepna hvar sem
til þeirra næst.
Tígrarnir eru á flótta inn í
frumskóginn undan sókn
stjómarhersins, sem beitir
jafnt stórskotaliði sem fall-
byssuþyrlum. Þeir beijast fyr-
ir sjálfstæði þess hluta Sri
Lanka, sem byggður er tamíl-
um, og hafa að undanfömu
gert grimmilegar árásir á
stjómarhermenn.
ars sérstökum vestum til að geta
haft fálkaunga og egg innan á sér
og haldið á þeim hita.
Sloth sagði einnig, að nýlega
hefði vestur-þýska sjónvarpið haft
viðtal við mann, sem tekinn hafði
verið fyrir fálkaþjófnað á íslandi.
Sagði hann þar, að enn væri auð-
velt að komast til og frá Grænl-
andi með fálkaunga en um ísland
gegndi öðru máli. Þar væri fylgst
vel með þeim, sem kæmu og færu.
Reuter
Dæmd fyrir að
myrða börnin sín
Austur-þýsk hjón voru í gær dæmd í fimmtán ára fangelsi fyrir að
myrða fimm af tíu börnum sínum skömmu eftir fæðingu og brenna
lík þeirra í ofni á vinnustað föðurins. Börnin fæddust á heimili þeirra
á árunum 1984-88 og í þriggja vikna réttarhöldum yfir hjónunum
kom fram að börnin vöru svelt í hel. Myndin var tekin af hjónunum
er dómurinn hafði verið kveðinn upp yfír þeim.
Gerð brúar yfir Eyrar-
sund lokið fyrir aldamót
Kaupmannahöfii. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
Á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í Gautaborg í síðustu viku
urðu þeir Poul Schluter, forsætisráðherra Danmerkur, og hinn
sænski starfsbróðir hans, Ingvar Carlsson, ásáttir um að lokið yrði
við gerð brúar yfir Eyrarsund fyrir árið 2000.
Sumarfundur forsætisráðherr-
anna fór að þessu sinni fram á
Nýju Elfsborg við innsiglinguna inn
til Gautaborgar. Á fundinum stað-
festu þeir Schluter og Carlsson
samkomulagið með handabandi.
Poul Schluter sagði í samtali við
dagblaðið Berlingske Tidende að
samningur um byggingu brúarinn-
ar, sem liggja mun milli Kaup-
mannahafnar og Malmö í Svíþjóð,
yrði undirritaður á næstabári. Hann
bætti við að enginn vafi léki á því
að hugmyndin nyti almenns stuðn-
ings á þjóðþingum beggja land-
anna. Ingvar Carlsson sagði í sam-
tali við Politikken að hann teldi að
skipta bæri verkefni þessu upp í
fjóra áfanga. Þeim fyrsta hefði þeg-
ar verið náð þar sem fyrir lægi að
meirihluti þingmanna væri þessu
hlynntur. Skipuleggja þyrfti sam-
vinnu ríkisstjórna Svíþjóðar og
Danmerkur í þessu skyni einkum
hvaða varðaði hinar tæknilegu hlið-
ar þessa verkefnis, ákvarða fram-
kvæmdahraða og kanna áhrif brú-
arsmíðinnar m.a með tilliti til
umhverfissjónarmiða.
Að sögn dagblaðsins Jyllands-
posten bendir allt til þess að járn-
brautarlestir muni geta farið um
brúna auk bifreiða en um þetta mun
vera deilt innan dönsku ríkisstjórn-
arinnar.
28. júní til 1. júlí
Kveðja frá
s *
forseta I.S.I.
Íþróttahátíð Í.S.Í. gengur senn í garð.
Stærsta og fjölbreyttasta iþróttamót sem haldið hefur
verið hérlendis.
Ég býð alla þátttakendur velkomna um leið og ég hvet foreldra og ættingja þeirra
þúsunda barna, sem nú taka þátt í íþróttamóti í fyrsta sinn, til að vera viðstödd
opnunarhátíðina.
j \J
O /
Sveinn Bjömsson
Forseti íþróttsambands íslands