Morgunblaðið - 21.06.1990, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
Morgunblaöið/Rúnar Þór.
Félagar í leikklúbbnum Sögu, sem fara til Síberíu um mánaðamót-
in með leikritið Fenris í Síberíu. Margrét Pétursdóttir leikstjóri
er lengst til hægri.
Sögufélagar til Síberíu
Félagar í Leikklúbbnum Sögu halda til Síberíu eftir helgina og
hafa æfingar staðið yfir síðustu vikur. Ferðinni er heitið til Baikal-
vatns og Ulan Ude þar sem unglingaleikhópar frá öllum Norðurl-
öndum og sovéski leikhópurinn Studia ætla að æfa og setja upp
sýninguna Fenris í Síberíu.
Verkefni þetta er hugsað sem
framlag æskunnar til friðarmála
í heiminum og er einnig framhald
af samvinnu unglingaleikhópa á
Norðurlöndum síðasta sumar þeg-
ar Fenris varð til.
Leikritið fjallar um sjö systkin
og er einu þeirra rænt, en hin
leggja upp í ævintýraför til leitar.
Hvert land leggur til einn eða
fleiri þætti í verkið og tengjast
þeir saman í ferð systkinanna.
Ferðalagið er fjármagnað með
styrkjum og hefur m.a. Akur-
eyrarbær veitt myndarlega styrki
til fararinnar, en félagar í Sögu
hafa einnig lagt á sig ómælda
vinnu til fjáröflunar.
Fenris verkið byggir á leiklist
án orða og er tónlist stór þáttur
í sýningunni.
Ræktunarfélag Norðurlands:
Rannsóknarstofan
tuttugn og fimm ára
Rannsóknarstofa Ræktunarfélags Norðurlands er 25 ára um þessar
mundir, en félagið sjálft var stofnað 11. júní 1903. Tilgangur þess er
að vinna að rannsóknum, Ieiðbeiningum, fræðslu og öðru sem lýtur
að framforum í landbúnaði á Norðurlandi. Búnaðarsamböndin á Norður-
landi standa að Ræktunarfélaginu og vinnur það að ýmsum verkefhum
sem búnaðarsamböndin telja best að þau leysi sameiginlega.
Vör og Ljósgjafínn annast breytingar hjá Islandsbanka:
Útibú bankans hefla starfsemi
undir sama þaki í september
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Framkvæmdir eru hafnar við breytingar á húsnæði kjarnaútibús
Islandsbanka á Akureyri, en það verður í um 600 fermetra húsakynn-
um á fyrstu hæð Alþýðuhússins við Skipagötu. Á myndinni eru
Bjarni Jónasson, Aðalsteinn V. Júlíusson, Sverrir Jónsson, sem sér
um framkvæmdir fyrir hönd íslandsbanka, Guðjón Steindórsson,
útibússtjóri, Birgir Ágústsson, Hallgrímur Skaptason og Randver
Karlsson.
BREYTINGAR á húsnæði íslands-
banka, Kjarnaútibúi við Skipagötu
14 eru hafhar og er áætlað að
þrjú af fjórum útibúum bankans á
Akureyri verði komin undir eitt
þak 24. september í hausL Jafh-
framt því sem verið er að laga
húsnæðið að þörfum bankans er
nú unnið að nýju skipulagi hváð
varðar yfirstjórn útibúsins á Akur-
eyri og er auglýst eftir starfsfólki
í átta stöður við bankann. Guðjón
Steindórsson hefúr þegar verið
ráðinn útibússtjóri, næst útibús-
stjóra verða annars vegar þjón-
ustustjóri og hins vegar rekstrar-
stjóri. Kristín Jónsdóttir, sem
gegndi stöðu útibússtjóra Alþýðu-
bankans á Akureyri hefur verið
ráðin þjónustustjóri Islandsbanka,
en staða rekstrarstjóra er laus til
umsóknar.
Kjarnaútibú Islandsbanka, sem
verður á fyrstu hæð Alþýðuhússins
við Skipagötu, verður alls um 600
fermetrar að stærð og var hafist
handa um breytingar á húsnæðinu
seinni part síðustu viku. í lokuðu
útboði, sem var tvíþætt, annars veg-
ar hvað varðar byggingafram-
kvæmdir og hins vegar á milli raf-
verktaka, tóku níu aðilar þátt. Vör
hf. bauð lægst og mun annast bygg-
ingaframkvæmdir, en auk þess buðu
fyrirtækin SJS-verktakar, Aðalgeir
Finnsson hf. og Slippstöðin í breyt-
ingar á húsnæðinu. Tilboð Ljósgjaf-
ans í raflagnaþáttinn var lægst og
var því tekið, en aðrir sem buðu voru
Rafmar hf., Glói, hf. Rofi hf. og Vil-
helm Guðmundsson.
Um er að ræða taisvert verk, þar
sem m.a. á að breyta inngangi í
bankann, þar sem anddyri verður
gert í horni hússins að sunnanverðu.
I sumar verður einnig ráðist í stækk-
un húsnæðis útibús bankans við
Hrísalund og þar verður bætt við
einum starfsmanni.
Auk þess sem verið er að breyta
húsnæði útibúsins er einnig verið að
ganga frá nýju skipulagi varðandi
stjórnun þess. Næst útibússtjóra,
Guðjóni Steindórssyni verða þjón-
ustu- og rekstrarstjórar. Kristín
Jónsdóttir, sem áður var útibústjóri
Alþýðubankans á Akureyri hefur
verið ráðin þjónustustjóri, en um-
sóknarfrestur um stöðu rekstrar-
stjóra rennur út í júlímánuði. Þá
hefur einnig verið auglýst eftir
starfsfólki í sex stöður fulltrúa í kjar-
naútibúi og umsjónarmanni með af-
greiðslu bankans við Hrísalund.
Ymir hf. á Akureyri smíðar gjald-
kerastúkur og helstu innréttingar,
en hluti húsganga er keyptur frá
Kristjáni Siggeirssyni hf. í
Reykjavík. Gunnar Magnússon inn-
anhússarkitekt gerði teikningar og
Birgir Ágústsson sá um verkfræði-
þáttinn, Aðalsteinn V. Júlíusson
byggingatæknifræðingur hafði um-
sjón með ytra útliti og Jóhannes
Áxelsson hjá Raftákni sá um raf-
hönnun.
Landgræðsluátak 1990:
Bæjarbúum gefst kostur á að
gróðursetja á Miðhúsaklöppum
Vorið 1965 kom Ræktunarfélagið
á fót rannsóknarstofu, sem á nú 25
ára afmæli. Meginverkefni rann-
sóknarstofunnar hefur verið að efna-
greina jarðveg og hey frá norðlensk-
um bændum og á seinni árum hefur
stofan einnig efnagreint loðdýra- og
fiskafóður, en einnig hefur stofan
selt aðilum úr öðrum landshlutum
þjónustu sína.
Á síðustu árum hafa verið efna-
* greind árlega um 1.500 heysýni,
1.000 jarðsýni, 600 fiskafóðursýni
og 200 loðdýrasýni. Auk þessa ber-
ast rannsóknarstofunni ýmsar beiðn-
ir um mælingar.
Á þessu ári er Ræktunarfélagið
að bæta við þá þjónustu sem það
áður hefur veitt. Verið er að taka í
notkun tölvubúnað tii teikninga á
EINOKUN og fákeppni er mjög
aigeng í sveitarfélögum landsins
og er svokölluð fákeppni meiri í
Reykjavík í 24 atvinnugreinum
en sem nemur meðaltali í sveitar-
félögum. Þetta er m.a. ein af nið-
urstöðum rannsóknar sem ívar
Jónsson félagshagfræðingur á
_> Akureyri hefur unnið, en Félags-
og hagvísindastofnun íslands
hefur gefið út skýrslu um svæðis-
bundna markaði og fákeppni á
Islandi.
í skýrslunni kemur fram að ís-
Iand einkennist af mörgum afar
einangruðum mörkuðum fremur en
“að vera einn markaður og einnig
að athugun á tölfræðilegu sam-
kortum af túnum og öðrum land-
svæðum eftir loftmyndum. Þessa
þjónustu gætu ýmsir aðrir en bænd-
ur hugsanlega nýtt sér.
Rannsóknarstofan var fyrst í
húsakynnum Sjafnar við Kaupvangs-
stræti, síðar í Glerárgötu 36 og nú
í Búgarði við Óseyri 2 á Akureyri.
Að jafnaði hafa starfsmenn verið
þrír og hefur starfsmannahaldið tek-
ið litlum breytingum. Rannsóknar-
stofan hefur lagt megináherslu á
nákvæmni í mælingum og skjót við-
brögð, þannig að efnagreiningar
komi sem fyrst og best að notum
og verður áfram lögð á það áhersla
samhliða því að fjölbreytni þjón-
ustunnar verður aukin.
bandi samkeppnisstigs og verðlags
í sveitarfélögum bendir til þess að
aukin fákeppni skýri aðeins að litlu
leyti - hækkandi verðlag auk þess
sem vegalengd frá Reykjavík skýri
aðeins að óverulegu leyti mishátt
verðlag í sveitarfélögum.
Rannsókn ívars Jónssonar beind-
ist að 37 sveitarfélögum í lar.dinu
með um eða yfir 1.000 íbúa og er
um að ræða þríþætta rannsókn. í
fyrsta lagi voru innkaup heimila á
33 flokkum smásöluvöru og þjón-
ustu könnuð, í öðru lagi var sam-
keppnisstig eða fákeppni í sveitar-
félögunum rannsökuð og loks var
í þriðja lagi athugað hvort tengsl
væru á milli annars vegar sam-
keppnisstigs og verðlags í einstök-
í TILEFNI af Landgræðsluátaki
1990 mun Umhverfisdeild Akur-
eyrarbæjar bjóða bæjarbúum að
taka þátt í gróðursetningu í landi
við Miðhúsaklappir á laugardag-
inn kemur, 23. júní. Skógræktarfé-
lag Eyfirðinga leggur til plönt-
urnar. sem bæjarbúar geta keypt
á 50 krónur stykkið. Þegar hafa
nokkur starfsmannafélög í bænum
um sveitarfélögum og hins vegar á
milli vegalengda frá Reykjavik og
verðlags. Rannsóknina vann Ivar í
tengslum við doktorsritgerð sem
hann vinnur að, en sambærileg
rannsókn um svæðisbundna mark-
aði hefur ekki áður verið gerð hér
á landi.
I niðurstöðum rannsóknarinnar
kemur m.a. fram að ísland einkenn-
ist af mörgum afar einangruðum
mörkuðum fremur en að vera einn
markaður þegar litið er til þeirra
flokka vöru og þjónustu sem rann-
sóknin náði til. Jafnframt kemur
fram að heimili á landsbyggðinni
versla lítið í Reykjavík og má sem
dæmi taka að 98,5% allrar verslun-
ar Akureyringa fer fram í heima-
tilkynnt um þátttöku í þessu verk-
efhi. r
Sérfróðir menn verða á staðnum
frá kl. 10 um morgunin og fram til
kl. 18 um kvöldið og getur fólk kom-
ið og gróðursett á þeim tíma. Starfs-
mannafélög, fjölskyldur eða einstakl-
ingar geta með þessu móti eignað
sér ákveðna reiti á svæðinu, en gróð-
byggð og einungis 2,2% í Reykjavík.
Við athugun á tölfræðilegu sam-
bandi samkeppni og verðlags í
sveitarfélögunum kom fram að auk-
in fákeppni skýri aðeins að litlu
leyti hækkandi verðlag og sömu
sögu var að segja af sambandi
vegalengda frá Reykjavík til við-
komandi sveitarfélags sem mæli-
kvarði á flutningskostnað. Vega-
lengd frá Reykjavík skýrði aðeins
að óverulegu leyti mishátt verðlag.
ívar hefur sett fram tvær vinnutil-
lögur þessu til skýringar, annars
vegar gæti skýringin falist í því að
fákeppni sé svo almenn að ekki
gæti munar þegar skýra á verð-
myndun og hins vegar gæti skýr-
ingin verið sú að heildsalar þrýsti
á um svipað verð yfir landið á vör-
um sínum.
ursetning þess er liður í langtíma-
verkefni sem felst í því að girða svæði
umhverfis allan bæinn frá norðri til
suðurs ttjágróðri. „Við höfum kallað
þetta trefilinn okkar, sem við erum
smám saman að pijóna utan um
bæinn,“ sagði Ámi Steinar Jóhanns-
son forstöðumaður Umhverfisdeildar
bæjarins.
Hið eiginlega Landgræðsluátak,
sem nú stendur yfir, beinist einkum
að þremur stöðum í Eyjafirði, Ólafs-
firði, Hrísey og Melgerðismelum, en
sú gróðursetning sem fyrirhuguð er
á Miðhúsaklöppum á laugardaginn
er hugsuð sem einhvers konar auka-
framlag í tilefni átaksins. Ámi Stein-
ar sagði að með því að bjóða bæj-
arbúum sjálfum að taka þátt í „að
pijóna trefilinn" væri þess vænst að
betri árangur næðist.
„Við vonumst til að bæjarbúar
taki þessu vel, það yrði mikið átak
ef við gætum plantað út aukalega
um 14 þúsund plöntum á ári, ejnni
fyrir hvern bæjarbúa," sagði Árni
Steinar, en reiknað er með að nú í
sumar verði plantað út í bæjarlandið
og á útivistarsvæði um 120-150 þús-
und plöntum. Þær plöntur sem gróð-
ursettar verða á Miðhúsaklöppum
koma því til viðbótar.
Frá kl. 21. um kvöldið verður'
kveikt upp í grilli í Kjarnaskógi þar
sem útplöntunarfólk á Miðhúsa-
klöppum getur fagnað góðu dags-
verki, komið í skóginn með matar-
bita á grillið og átt þar kvöldstund.
í Kjarnaskógi verða um 250 skátar
í æfingaútilegu fyrir Landsmót skáta
og munu þeir sjá um kvöldvöku í
skóginu auk þess að skjóta upp flug-
eldum. Um miðnættið munu skátarn-
ir fara í miðnæturgöngu og þeir sem
þess óska geta farið með.
(Fréttatilkynning)
Rannsókn um svæðisbundna markaði á Islandi:
Eínokun og fákeppní mjög al-
geng í sveitarfélögum landsins
ísland ekki einn markaður heldur margir og einangraðir