Morgunblaðið - 21.06.1990, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Jirútur
(21. mars - 19. apríl) fpft
Þ6. að hugsun þín sé skýr um
þessar mundir og þú eigir auð-
velt með að tjá þig, láta sum
þeirra svara, sem þú leitar að,
bíða eftir sér í dag. Aðrir reyna
að fara í kringum hlutina eins
og köttur í kringum heitan graut.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ferðast mikið um næsta ná-
grenni þitt á næstunni. Samband
þitt við náinn ættingja eða vin
versnar vegna ástæðna sem þú
jjeður ekki við. I kvöld er tilvalið
uyrir þig að taka ákvarðanir í fjár-
málum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Valdabarátta á vinnustað þínum
kemur upp á yfirborðið i dag.
Einhver sem ætlar að klekkja á
þér fellur á eigin bragði og þú
stendur sterkari eftir en áður. í
kvöld verður þú hvers manns
hugljúfi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur ratað inn á rétta braut
og fmnur að sjálfstraust þitt fer
vaxandi næstu vikur. I dag verð-
ur þú á bóiakafi í rannsóknum
andlegum störfum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þessi dagur fer njeira og minna
í félagsmálavafstur og á komandi
vikum áttu eftir að óska þess að
hafa meiri tíma til fijálsrar ráð-
stöfunar og til að ljúka ýmsum
verkefnum sem þú hefur ýtt á
undan þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
jSumar viðræður geta reynst við-
sjárverðar, en þér miðar engu að
síður vel áfram í starfi. Þú átt
eftir að sjá meira af vinum þínum
á næstu vikum en oft áður.
v^g
(23. sept. — 22. október)
Ræddu við ráðgjafa þína i dag.
Þú átt auðvelt með að koma þér
og hugmyndum þínum á fram-
færi. Umsvif þín fara vaxandi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Sum viðskiptamál verða ekki
leyst í dag, en þú heldur þinu
striki eins og ekkert hafi í skor-
ist. Ferðalag verður brátt á dag-
skrá hjá þér.
----------------------------
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú tekur mikilvæga ákvörðun í
fjármálum innan skamms. Sinntu
málum sem varða ykkur hjónin
og ræddu af einlægni við maka
þinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vandamálin verða vatn á myllu
þína í dag og allt mun snúast þér
í hag. Láttu samveru með maka
og fjölskyldu ganga fyrir öllu
öðru.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
«j>í Sumir taka það ekki gott og gilt
'núna að þeim sé svarað neitandi.
Þessi þrákeikni hans eða hennar
getur farið í taugarnar á þér.
Kvöldið verður ánægjulegra.
Haltu það hátíðlegt einhvers
staðar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) TaP
Heimilið er miðpunktur tilveru
þinnar í dag, en á næstu vikum
leitar þú meira út fyrir veggi
þess í leit að afþreyingu.
AFMÆLISBARNIÐ er gefið fyr-
ir andlegar pæiingar og fúst að
***mæla fyrir hugðarefnum sínum.
Það á auðvelt með að bregðast
við erfiðum aðstæðum og er fljótt
að jafna sig eftir áföll. Það hefur
áhuga á bókmenntum sem öðrum
listum. Það er hugvitssamt og
búið ágætum tjáningarhæfileik-
um. Best gengur hjá því þegar
það vinnur að framgangi mál-
staðar sem það trúir á.
----------------------------
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgrodvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda. \ -
DYRAGLENS
GRETTIR
wpW
rAPpiW
(t # 'T'appii'v
" IrAPPirv
> rxPpirV 1
^AA PAVÍf)
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
2 - 26 <£> 1990 Untted Feature Syndlcate, Inc.
r-m-P Þ r-4 —zziiia—a-j
( 0:3 -
\ '—_ ———.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Smáspilunum má líkja við peð
á taflborðinu, enda er einn hund-
ur öðrum líkur í flestum spilum.
Einstaka sinnum veltur þó allt
á litlu spilunum:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ 764
¥842
♦ D72
♦ ÁG65
Vestur Austur
♦ - ♦ G952
¥ KD10963 ¥ G7
♦ ÁK9843 ♦ 1065
♦ 9 ♦ D1042
Suður
♦ ÁKD1083
¥ Á5
♦ G
♦ K873
Vestur Norður Austur Suður
-1 spaði 2 hjörtu
Pass Pass 3 spaðar 4 tíglar
4 spaðar Pass Pass Pass
Útspil: tígulás.
Vestur skiptir yfir í hjarta-
kóng í öðrum slag, sem suður
drepur og leggur niður spaðaás.
Nú er rétti tíminn til að íhuga
sinn gang. Hvernig er best að
halda áfram?
Það er ljóst að vestur á ekki
minna en 11 rauð spil fyrir þess-
um sögnum á hættunni, hugsan-
lega 12 og þá einspil í laufi. Sem
er áhyggjuefni sagnhafa. Hann
þarf að nota innkomu blinds til
að svína fyrir spaðagosa og
komast hjá því að gefa tvo slagi
á lauf.
Fyrsta skrefið er að spila lauf-
áttunni að blindum og „svína“
gosanum þegar vestur lætur
níuna. Austur á slaginn og spilar
ás. Suður trompar næsta hjarta
og spilar laufsjöunni upp á ás.
Nú á hann 65 í borði en K3
heima. Hann getur því svínað
fyrir lauftíuna og um leið tryggt
sér innkomu til að spila trompinu
úr blindum.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á lokaúrtökumóti heimsbikar-
keppninnar í Moskvu var þessi
athyglisverða skák tefld: Hvítt
Nick deFirmian (2.565), Banda-
ríkjunum, svart: Alexander
Chernin (2.600), Sovétríkjunum,
Pirc-vörn, 1. e4 - d6 2. d4 - Rf6
3. Rc3 - g6 4. f4 - Bg7 5. Rf3
- c5 6. dxc5 (Áður á mótinu hafði
Dolmatov leikið tízkuleiknum 6.
Bb5+ gegn Chernin, en fékk að-
eins jafntefli.) 6. - Da5 7. Bd3 -
Dxc5 8. De2 - Bg4 9. Be3 - Da5
10. 0-0 - 0-0 11. Khl (Hér er
11. h3 mun algengara, en sá leik-
ur hefur ekki valdið svarti vand-
ræðum upp á síðkastið.) 11. -
Rc6 12. Del - Bxf3 13. Hxf3 -
Hac8 14. a3 - d5!? 15. e5 - d4
16. exf6 - Bxf6 17. Re4 - dxe3
18. Rxf6+ - exf6 19. Hxe3 -
Db6 20. Hbl - f5 21. c3 - Rd8?
(Hvítur átti ívið betri stöðu, en fær
nú dauðafæri.)
22. Bxf5l! - gxf5 23. Hg3+ -
Kh8 24. De7! - Hg8 25. De5+
- 06 26. Hxg8+ - Kxg8 27.
De8+ og Chernin gafst upp, því
eftir 27. - Kg7 28. Dd7+ fellur
svarti hrókurinn á c8. Vel reiknað
hjá deFirmian. Þetta var mikilvæg
skák í níundu umferð mótsins,
með jafnteflum í tveimur síðustu
umferðunum komst deFirmian
áfram, en tapið gerði út um alla
möguleika Chernins.