Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JUNI 1990
37
Minniiiff:
Freyr S.
Fæddur 2. nóvember 1912
Dáinn 12. júní 1990
í dag er borinn til hinstu hvíldar
frændi minn, Freyr S. Geirdal, frá
Grímsey. Freyr fæddist í Grímsey
2. nóvember 1912, sonur hjónanna
Steinólfs E. Geirdal, skólastjóra og
kaupmanns, og Hólmfríðar Sigur-
geirsdóttur, ljósmóður.
Freyr ólst upp í foreldrahúsum
í stórum systkinahópi en alls voru
börnin átta er á legg komust. Auk
þess ólust tvö barnabörn upp á
heimilinu og er undirritaður annað
þeirra.
Þarna var því oft líf og fjör.
Faðirinn glaður og reifur, söngvinn,
hagmæltur og driffjöður í félagslífi
í Eyjunni, eigi hvað síst í leiklist-
inni. Sett voru upp stykki eins og
Skugga Sveinn og hefur þáð verið
mikið átak og mikil bjartsýni þar
sem allir eyjarskeggjar voru aðeins
rúmlega 100 að tölu.
Eins og venja var á þeim árum
til sjávar og sveita voru börnin lát-
in taka til hendi strax og tök voru
á og vandist Freyr vinnusemi í sín-
um uppvexti. Er hann hafði aldur
til fór hann á vertíðir suður, bæði
til Vestmannaeyja og til Akraness
og þar sem hann var snemma
hneigður fyrir vélar þá sótti hann
mótoristanámskeið og aflaði sér
réttinda á því sviði.
Þann 18. desember 1954 kvænt-
ist Freyr Signýju Óladóttur Hjálm-
arssonar, útvegsbónda í Garði í
Grímsey, og konu hans, Ingu Jó-
hannesdóttur. Þess má geta að
Inga náði háum aldri, varð nærri
102 ára gömul og vakti mikla at-
hygli og varð mörgum minnisstæð,
er tekið var viðtal við hana fyrir
sjónvarpið, þá um 100 ára, hversu
fróð hún var og stálminnug, söng
sálma og kvæði.
Freyr gerðist nú útvegsbóndi í
Grímsey og var vel virtur af öllum,
enda oft leitað til hans ef vanda
bar að höndum því tillögu- og úr-
ræðagóður þótti hann í betra lagi.
Eins tók hann nokkurn þátt í fé-
lagslífi, var m.a. einn af stofnend-
um Ungmennafélagsins á staðnum.
Árið 1954 urðu þáttaskil í lífi
Freys en þá fer hann suður á Akra-
nes og hefur þar nám í vélvirkjun,
þá orðinn 42 ára gamall, og lauk
námi sínu með ágætiseinkunn og
hefur mér verið tjáð að sérstaka
athygli hafi vakið hversu vel hann
skrifaði og hve allur frágangur
hafi verið snyrtilegur og vandaður.
Fjölskyldan bjó fyrst í leiguhús-
næði en svo var keypt gamalt hús,
er þau standsettu og breyttu yst
sem innst og ber í dag þeim hjónum
fagurt vitni um hagleik og smekk-
vísi og hversu samtaka þau voru í
uppbyggingu síns fallega heimilis.
Freyr vann fyrst í Vélsmiðjunni
Loga og svo í mörg ár í Vélsmiðju
Síldar og fiskimjölsverksmiðju Akr-
aness og seinustu árin eða allt þar
til hann lét af störfum, 71 árs,
vann hann hjá Akranesbæ sem við-
gerða- og viðhaldsmaður í Áhalda-
húsi bæjarins.
Þó að Freyr þyrfti að hætta
störfum fyrir aldurs sakir, væri
kominn á þann aldur að mönnum
er fyrirmunað að vinna lengur,
hvað sem heilsu og lífsþrótti líður,
ákvæði sem eru umdeilanleg væg-
ast sagt, allavega í vissum tilvikum,
þá sat hann ekki auðum höndum.
Hann kom sér upp aðstöðu í bílsk-
úrnum til ýmissa hluta. Skerpti
eggjárn af ýmsum gerðum, steypti
sökkur og ýmislegt fleira fékkst
hann við allt þar'til heilsa hans fór
að bila.
Freyr og Signý eignuðust tvö
mannvænleg börn: Hólmfríði,
hennar eiginmaður er Þorsteinn
Marelsson, rithöfundur. Þau eru
búsett í Reykjavík og eiga 3 börn
og Ingólf, vélvirki að mennt,
kvæntur Guðrúnu Erlu Guðlaugs-
dóttur frá Vestmannaeyjum. Þau
eru búsett á Akranesi og starfar
Geirdal
Ingólfur hjá íslenska járnblendifé-
laginu. Þau eiga 2 börn.
Þegar ég nú kveð Frey frænda
minn með þessum fátæklegu orð-
um, þá er mér efst í huga hversu
vandaður maður og heill hann var.
Hógvær, hlýr og traustur og um-
fram allt drengur góður. Hann
reyndi aldrei að troðast fram í
sviðsljósið, sem mörgum virðist
vera svo mikið metnaðarmál,
reyndi aldrei að sýnast eða láta á
sér bera þótt hann hefði tvímæla-
/aust haft til þess alla greind.
Hann lærði verkin að vanda
og verða engum til meins.
Þá væri þjóðinni borgið
ef þúsundir gerðu eins.
(Davíð Stefánsson)
Hinir samviskusömu og iðnu,
þeir sem eru sjálfum sér nógir í
hvívetna, þeir eru hetjur hversdags-
iífsins, hinir sönnu hornsteinar
þjóðfélagsins.
Ég vil að lokum, nú er leiðir
skilja, þakka frænda mínum alla
þá góðvild og þann hlýhug er hann
sýndi mér á mínum uppvaxtará-
rum.
Eftirlifandi eiginkonu hans,
Signýju, börnum þeirra, systkinum
hans og öllum öðrum aðstandend-
um sendi ég minar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning Freys Geir-
dals frá Grímsey.
Svanur Geirdal
Mig langar að minnast tengda-
föður míns, Freys St. Geirdals, með
örfáum orðum.
Það er rúmlega aldarfjórðungur
síðan kynni okkar hófust. Ég man
vel þegar ég sá hann fyrst, hæglátt
fas hans og festa í allri framgöngu
gerði það að verkum að ég fann
að þarna fór maður sem hægt var
að treysta.
Nú síðari árin hafa samveru-
stundirnar verið fleiri en áður. Ör-
lögin höguðu því svo til að við áttum
margar stundir saman nú í vetur.
Þá ræddum við margt og hann
sagði mér frá liðinni tíð, frá Gríms-
ey og fyrstu árunum á Akranesi.
Þessar stundir eru mér nú mikils
virði. Þegar ég hugsa um kynni
mín af tengdapabba, hrannast
minningarnar upp. En það er nú
svo að ég er tregur við að setja þær
á blað. Það er einhvern veginn ekki
í hans anda. Ég heyrði hann aldrei
hrósa sjálfum sér af einu eða
neinu. En öll hans verk voru unnin
af fágætri alúð og vandvirkni.
Nú þegar leiðir skilja er mér efst
í hug þakklæti fyrir að verða þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að fá að kynn-
ast jafn hógværum og traustum
manni og Freyr var. Þessi fátæk-
legu orð eru aðeins dauft bergmál
af þeim hugsunum og tilfinningum
sem bærast með mér á þessari
stundu.
Blessuð sé minning hans.
Þorsteinn Marelsson
Vinsælustu barnasnældur síöasta árs, Barnalelklr 1
og Rokklingarnlr eru nú aftur fáanlegar.
Frábærar barnasnældur frá B.G. útgáfunni fást í
hjómplötuverslunum, bensínstöövum og
stórmörkuöum um allt land.
PÖNTUNARSÍMI: 689440
áBmsm
&yggngafélag twxtncfcsnianaa
gJG/obus?
"Topp 20"
á leikskólanum,
beint í æð í bílinn
M + ★ w
*___
SPENNANDI LAGALISTI
Sex litlar endur
Ég ætla að syngja
Þaö búa lltlir dvergar
Krummi krunkar úti
Ég heiti Keli
Meö sól í hjarta
Ranka
Ein stutt, ein löng
Nú skal syngja um dýrin
Stíllinn sem endaöi aldrei
Fyrst á réttunni
Og nýja iagiö með Rokkling-
unum "Hjálminn á!" auk
fjölda annarra laga.
GLEYMUM EKKI GÓÐA SKAPINU HEIMA!
Umferöarráöi er ánægja aö ganga enn til samstarfs við BG
útgáfuna um efni sem hentar yngstu vegfarendunum.
Á þessari nýju snældu eru leikir og vinsæl barnalög til þess
aö stytta yngstu farþegunum stundir á feröalaginu. Hún er
bæöi skemmtileg og fræöandi fyrir börnin og gagnleg fyrir
fullorðna, því ööru hverju heyrist I Edda frænda með
léttar ábendingar um umferðarmál.
Umferðarráö óskar ungum sem öldnum góðrar
og slysalausrar feröar.
Óli H. Þóröarson
framkvæmdastjóri
UMFERÐAR
RÁÐ
útgefandi og dreifing:
Hjómplötuútgáfa Birgis Gunnlaugssonar