Morgunblaðið - 22.06.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 22.06.1990, Síða 1
56 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 139. tbl. 78. árg. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Geysiöflugir jarðskjálftar með upptök í Kaspíahafí: Tugþúsundir farast í Iran N> j Skjálttamiöia ‘ Kl. 21 aö isl. tíma ‘/'•i' 20. júní. 7,3 stig á ■l \ '...,m. Richter-kvaröa \’. • r'' ' ' 4-w». vw.».v.wi / ■ ; Reuter Mynd þessi sem tekin er af sjónvarpsskjá sýnir ® Rudbar Teheran. Reuter. dpa. GÍFURLEGT tjón varð í öflugum jarðskjálftum, sem riðu yiír írönsku Kaspíahafshéruðin í fyrrakvöld og í gærmorgun. Að sögn íranskra stjórnvalda er talið að 25.000 manns hafi látið lífið og að minnsta kosti 20.000 slasast. Tók heilu bæina og þorpin af í skriðuföllum en vegna þess hve fylkin Zanjan og Gilan, þar sem skjálftarnir voru harðastir, eru afskekkt og fjalllend, voru tölur um manntjónið mjög á reiki. Upptök skjálftanna voru í Kaspíahafi, um 200 km norðvestur af Teheran, og mældist sá fyrri, sem stóð í eina mínútu, 7,3 á Richter- kvarða en sá seinni, í gærmorgun, 6,5. Fyrri skjálftinn varð laust eftir klukkan 21 í fyrrakvöld en sá síðari um það bil tólf stundum síðar. Ollu skjálftarnir strax miklu tjóni en mestar urðu hörmungarnar af skriðuföllum, sem þeir komu af stað. Var næstum ógjörningur fyrir björgunarmenn að komast landveg til jarðskjálftasvæðanna enda sögðu þeir, að sums staðar hefðu fjalls- hlíðarnar horfið með öllu ofan í dalina og vegirnir með. Einnig hamlaði slæmt veður björgunarað- gerðum. Ali Akbar Rafsanjani, for- seti írans, lýsti í gær yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna atburðanna og hét á alla landsmenn að leggja hjálparstarfinu lið. íranska sjónvarpið sagði í gær, að tjón hefði orðið mest í nágrenni Ráðlagði Gorbatsjov afsögn - segirJeltsín Moskvu. París. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands og helsti leiðtogi rót- tækra umbótasinna í Sov- étríkjunum, sagði á fundi með blaðamönnum í gær að hann teldi að Míkhail S. Gorbatsjov íhugaði það af alvöru að segja af sér embætti aðalritara sov- éska kommúnistaflokksins. Sagðist Jeltsín hafa ráðlagt Gorbatsjov að fara þessa leið. Ummæli Gorbatsjovs á fundi rússneskra kommúnista á mið- vikudag þar sem hann gaf til kynna að hann ætti ekki nema örfáa daga eftir í embætti flokksleiðtoga hafa vakið mikla athygli og eru Sovétsérfræðing- ar ekki á einu máli um hvernig túlka beri þau. Gorbatsjov er ekki einungis aðalritari flokksins heldur er hann einnig forseti Sovétríkjanna og hefur í krafti þess embættis nánast óskorað framkvæmdavald. Borís Jeltsín sagði í spjalli við blaðamenn í Moskvu í gær að hann teldi að Sovétleiðtoganum væri alvara. Gat Jeltsín þess að hann hefði á fundi með Gorbatsj- ov nýverið hvatt hann til að segja af sér aðalritaraemhættinu. Jeltsín nefndi í framhjáhlaupi að sjálfur ynni hann 20 klukku- stundir á sólarhring og sagðist telja að enginn gæti annað því að sinna tveimur mikilvægum embættum. Kvað hann Gorb- atsjov ekki öfundsverðan af því hlutskipti og sagðist ekki vilja vera í hans sporum. borgarinnar Zanjan í samnefndu fylki. í bænum Rudbar t.d. hefðu 5.000 manns látist eða slasast og ekkert hús væri lengur uppistand- andi. Sömu sögu er raunar að segja af nágrannabæjunum Tarom-e Oleya, Manjil og Loushan og óvíst er, að nokkur hafi komist lífs af í þorpunum Ab-bor og Bouin. Skorað hefur verið á hjálpar- stofnanir víða um heim að veita írönum aðstoð og í gær ákvað fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins að leggja fram rúmlega 70 milljón- ir ísl. kr. Er mest þörf á hjúkrunar- gögnum hvers konar, ábreiðum og tjöldum enda verða tugþúsundir manna að hafast við á víðavangi. Frakkar ætla að senda 180 manna sérþjálfað lið til írans til að aðstoða við hjálparstarfið. Skjálftarnir í gær og fyrradag fundust í Azerbajdzhan í Sovétríkj- unum en ollu ekki tjóni svo vitað væri. Skjálftarnir eru þeir mestu í íran frá árinu 1978 en þá fórust 25.000 manns í borginni Tabas og nágrenni í skjálfta sem mældist 7,7 á Richter. Jarðskjálftinn í Armeníu sem varð rúmlega 25.000 manns að bana í desember árið 1988 mældist 6.9 á Richter. njaiparstarno í norovesturniuta irans l gær. Erlendir fi-éttamenn hafa ekki fengið að fara til skjálftasvæðanna en íranska sjónvarpið hef- ur sýnt myndir sem bera vott um gífurlega eyðileggingu í kjölfar skjálftanna tveggja. zanjan 0 TEHERAN I RAN Þing þýsku ríkjanna: Rikjasamningfur um eliia- hagssamruna samþykktur Bonn. The Daily Telegraph. Reuter. ÞING beggja þýsku ríkjanna samþykktu í gær sainning sem gerður hefiir verið um efna- hagssamruna og hrint verður í fi'amkvæmd 1. júlí. Samningur- inn var samþykktur með yfir- gnæfandi meirihluta bæði í Bonn og Austur-Berlín. Þýsku þingin samþykktu einnig ályktun í gær þar sem vesturlandamæri Pól- lands eru viðurkennd. Þing Austur-Þýskalands sam- þykkti samninginn um efnahags- samruna með 302 atkvæðum gegn 82 en einn þingmaður sat hjá. í samningnum felst að 1. júlí taka Austur-Þjóðverjar upp vestur- þýska gjaldmiðilinn og lög um efna- hagsmál og félagsleg réttindi. Það voru einkum félagar í kommúnista- flokknum, sem nú kennir sig við lýðræðislegan sósíalisma, sem greiddu atkvæði gegn samningn- um. Gregor Gysi, leiðtogi flokksins, sagði að með samþykkt þingsins væri verið að þröngva ferli upp á Reuter Frá vestur-þýska þinginu í Bonn. Þjóðveija sem nær væri að tæki nokkur ár. Yfirlýsing þar sem vest- urlandamæri Póllands eru viður- kennd var hins vegar samþykkt með einungis sex mótatkvæðum. Umræðumar í vestur-þýska þinginu voru líflegar í gær. Helmut Kohl kanslari fjallaði í ræðu sinni einkum um samskiptin við Pólland. Hann sagði að ákvarðanir sem stæðu fyrir dyrum væru einhverjar þær mikilvægustu í sögu Þýska- lands. „Við eigum tveggja kosta völ. Annaðhvort viðurkennum við núverandi landamæri eða glötum tækifærinu til sameiningar," sagði kanslarinn. Efnahagssamruninn um mánaðamótin er stærsta skrefið í átt til sameiningar til þessa. Er búist við að atburðarásin verði hröð á næstu mánuðum og hefur Kohl lagt til að haldnar verði sameigin- legar þingkosningar í öllu Þýska- landi 9. desember. Seint í gærkvöldi var gengið til atkvæða um ríkjasamninginn í sam- bandsþinginu i Bonn og var hann samþykktur með 445 atkvæðum gegn 60 og sat einn hjá. Sam- bandsráðið, efri deild þingsins, fjall- ar um samninginn í dag. Sjá „Vaxandi óánægja ..“ á bls. 18-19 Checkpoint Charlie burt Berlín. Reuter. FRÆGASTA landamærastöð í Berlín, Checkpoint Charlie, verð- ur Qarlægð í dag við hátíðlega athöfii. Viðstaddir verða utanrik- isráðherrar fjórveldanna og beggja þýsku ríkjanna. I gærkvöld var umferð bægt frá Checkpoint Charlie og hermenn voru þar áberandi. Á dögum kalda stríðsins hefði slíkt táknað aukna spennu í samskiptum austurs og vesturs en nú ber umstangið nýjum tímum vitni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.