Morgunblaðið - 22.06.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUF. f22. JÚNÍ 1990
7
> *
Alit Lagastoftiunar Háskóla Islands:
Útvarpsráð hefur ekki vald
til að úrskurða firétt ómerka
LAGASTOFNUN Háskóla íslands hefur skilað áliti um deilur útvarpsr-
áðs og fréttamanna á fréttastofú Ríkisútvarpsins, að ósk Félags frétta-
manna. Deilan reis vegna frétta af VT teiknistofunni á Akranesi. Með-
al annars var deilt um hvort útvarpsráð gæti urskurðað frétt ómerka.
I svari Lagastofhunar segir meðal annars: „Utvarpsráð heftir hvorki
samkvæmt útvarpslögum, reglugerð né fréttareglum vald til þess að
úrskurða eftir á, að frétt sem samin er af fréttamanni og lesin hefiir
verið í Ríkisútvarpinu, sé ómerk, þótt ráðið geti að sjálfsögðu látið í
Ijósi álit sitt um það hvort tiltekinn fréttaflutningur hafi brotið i bága
við 15. gr. útvarpslaga." Minnt er ennfremur á að fréttamenn og frétta-
stjóri geti bakað sér ábyrgð lögum samkvæmt vegna birtingar fréttar
og að fréttastofunni sé skylt að leiðrétta ranghermi um staðreyndir i
frétt eða fréttaskýringu.
í áliti Lagastofnunar er rakin þró-
un útvarpslaga, að því leyti sem þau
kveða á um verksvið útvarpsráðs.
Sagt er að útvarpsráð gegni nú fyrst
og fremst fjárhagslegu aðhaldshlut-
verki að því er gerð dagskrárefnis
varðar. Vísað er til ummæla útvarp-
slaganefndar í greinargerð með
frumvarpi til núgildandi útvarpslaga,
að meginatriði sé að útvarpsráð
móti fyrst og fremst dagskrárstefn-
una og um leið aukist hlutur og
ábyrgð dagskrárstjóra útvarpsins.
Þá segir að þrátt fyrir þetta meg-
inhlutverk útvarpsráðs sé gert ráð
fyrir því að ráðið setji reglur eins
og þurfa þykir til gæslu þess að fylgt
sé ákvæðum 15. greinar útvarpslaga,
sem segir meðal annars að Ríkisút-
varpið skuli halda í heiðri lýðræðis-
legar grundvallarreglur, mannrétt-
indi og frelsi til orðs og skoðana, svo
og að gætt sé fyllstu óhlutdrægni í
frásögn, túlkun og dagskrárgerð.
Tekið er fram að útvarpsráð hafí
ekki sett. slíkar almennar reglur,
heldur staðfest reglur um fréttaflutn-
ing sem útyarpsstjóri setti þann 1.
mars 1989. í 23. grein þeirra reglna
sé meðal annars mælt fyrir um
skyldu fréttastofu Ríkisútvarpsins til
þess að leiðrétta ranghermi um stað-
reyndir sem fram kemur í fréttum
eða fréttaskýringum. „Eftir þessum
reglum ber fréttastofum Ríkisút-
varpsins að fara,“ segir í álitinu.
Þá segir í álitinu: „Löggjafinn
hefur á hinn bóginn ekki veitt út-
varpsráði vald til að úrskurða um
það hvort frétt bijóti í bága við 15.
gr. útvarpslaga..." Sagt er að slíkt
úrskurðarvald komi ekki berum orð-
um fram í núgildandi útvarpslögum
og hafi aldrei verið í lögum um
Ríkisútvarpið, en ákvæði í þá átt
hafi verið að finna -í reglugerð frá
1944.
í reglugerð er kveðið á um að leiki
vafi á um hvernig fara skuli með
mál er snerta 15. grein útvarpslaga
skuli vísa þeim til útvarpsráðs. Um
það segir í áliti Lagastofnunar: „Að
sjálfsögðu getur ekki falist í þessu
reglugerðarákvæði víðtækara vald
til handa útvarpsráði en útvarpslögin
sjálf veita. Teljum við að í reglugerð-
arákvæði þessu sé einungis verið að
taka af skarið um, að í vafatilvikum
geti sá sem telur, að brotið hafi ver-
ið gegn ákvæði 15. gr. útvarpslaga
vakið athygli útvarpsráðs á slíku eða
leitað umsagnar ráðsins um það efni.
Ákvæðið felur hins vegar ekki í sér
úrskurðarvald til handa útvarpsráði
um það hvort frétt bijóti í bága við
ákvæði 15. gr. útvarpslaga, enda
heyrir það undir útvarpsstjóra að
síðustu að gæta þess að ákvæðum
fréttareglnanna sé framfylgt sem
áður segir.“
Þá er bent á að fréttamenn
Ríkisútvarpsins geti eins og aðrir
opinberir starfsmenn sætt stjórn-
sýsluviðurlögum fyrir brot í opinberu
starfi og viðurlögum samkvæmt öðr-
um lögum eftir því sem á stendur
hverju sinni. Slík viðurlög gætu til
dæmis komið til vegna brots á
ákvæðum 23. greinar fréttaregln-
anna sem útvarpsstjóri setti 1. mars
1989. Þá segir: „Rétt er að taka fram
að beiting stjórnsýsluviðurlága í
þessu tilviki heyrir undir útvarps-
stjóra og eftir atvikum menntamála-
ráðherra."
Loks segir í áliti Lagastofnunar:
„Hvorki útvarpsráð né útvarpsstjóri
hafa vald til þess að banna birtingu
fréttar. Hins vegar geta fréttastjóri
og fréttamenn bakað sér ábyrgð lög-
um samkvæmt vegna birtingar frétt-
ar. Þá er fréttastofunni skylt, sbr.
18. gr. útvarpslaga og 23. gr. frétta-
reglnanna, að leiðrétta ranghermi
um staðreyndir í frétt eða fréttaskýr-
ingu. Sá sem telur sig ekki hafa feng-
ið slíka leiðréttingu hjá fréttastofu
Ríkisútvarpsins, getur leitað liðsinnis
útvarpsstjóra til þess að fá leiðrétt-
ingu birta.“
Inga Jóna Þórðardóttir formaður
útvarpsráðs kvaðst í gærkvöldi ekki
hafa haft tækifæri til að kynna sér
álit Lagastofnunar, og vildi því ekki
tjá sig um það.
Markús Á. Einarsson varaformað-
ur útvarpsráðs taldi í gærkvöldi
líklegt að á fundi útvarpsráðs í dag
yrði fjallað um þessi mál. Hann
kvaðst ekki reiðubúinn til að tjá sig
um álit Lagastofnunar, þar sem hann
hefði ekki séð það.
Álitsgerð Lagastofnunar sömdu
Bjöm Þ. Guðmundsson og Þorgeir
Örlygsson.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Starfsmenn Bergsyeins ’90
bera ísbjörninn inn í Fjöl-
brautaskólann þar sem sýn-
ingin er til húsa.
Selfoss:
Isbjörn á
Bergsveini
MEÐAL þess sem boðið er
uppá á sýningunni Bergsveini
á Selfossi er ísbjörninn sem
skotinn var í Fljótavík í maí
1974.
ísbjörninn vó 150 kíló þegar
hann var skotinn og var þá
tveggja ára gamall. Hann er
meðal þeirra gripa sem eruá
Dýrasafninu á Selfossi en það
kynnir starfsemi sína og ann-
arra safna á Árborgarsvæðinu
á atvinnusýningunni sem stend-
ur yfir 23. júní til 1. júlí.
VW POLO — Pýskur sendibíll
í minni stærdarflokki sér-
staklega gerður fyrir
hverskonar
atvinnu-
rekstur
¥WW
Kjörið tækifæri til aukinnar hagkvæmni
Þessir adilar m.a. völdu VW POLO til aö þjóna siuu fyrirtaelci:
♦:♦
♦;♦
♦;*
❖
A. KARLSSON
AJLHLIÐA PÍPULAGNIR HF
AMATÖR UÓSMYNDAVÖRUR HF
BÍLANAUST HF
BÆJARSJÓÐUR GARÐABÆJAR
FAXAMJÖL HF
GRÓCO HF
HANS PETERSEN HF
HEBRON HF
K.S. RAFMAGNSVERKSTÆÐI
❖ KAUPSEL HF
♦:♦ KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ HF
❖ KURANT HF
❖ MAGNÚS KJARAN HF
❖ MALARNÁM NJARÐVÍKUR HF
❖ MÁLNINGARÞJÓNUSTAN SF
❖ NATHAN fr OLSEN HF
❖ NONNI OG BUBBl, KEFLAVÍK
❖ Ó. JOHNSON & KAABER HF
❖ ORKA HF
❖ PRENTSMIÐJA SUÐURLANDS
❖ SKELJUNGUR HF
❖ SKIPARAJOfÓ
❖ SKÓVERSLUN KÓPAVOGS
❖ TÆKNIVAL HF
❖ VÍFILFELL HF
HVERS VEGNA?
Spameytmn - Lipur í akstrí
Lág bilanatídni
Krafltmikill - Auðveld hleðsla
Örugg þjónusta
HEKLA HF
Laugavegi 170-174 Sími 695500