Morgunblaðið - 22.06.1990, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990
ODYRASTA
SLÁTTUVÉUN
á markaönum meö 3,5 hp.
BRIGGS & STRATTON
fjórgengisvél
• Kostaraöeins Kr. 17.700 stgr.
MTD 052
Þrælsterk amerísk sláttuvél meö öryggi í
handfanginu fyrir hnífinn.
Vildarkjör Visa eöa Eurokredit:
• Engin útborgun og jafnar mánaöarlegar
greiöslur allt upp í 6 mánuöi.
Viöurkennd viðhalds- og varahlutaþjónusta.
Geriö verö- og gæðasamanburö!
Rafeindakveikja
• Grassafnari (auka)
• Hæðarstilling
íjMí& í > % D i Opið laugardaga
Stærsti %zihr ) frákl. 10-16.
framleiðandi
sláttuvéla í heiminum. G.Á. Pétursson hf LMJ , _ m _ _ m _ Raðgreiðslur
markdðurinn
Nútíöinni Faxafeni .14, sími 68 55 80
Metsölublaó á hverjum degi!
Ingibjörg Jóhanns
dóttir - Minning
Fædd 2. desember 1913
Dáin 13. júní 1990
Fyrstu kynni mín af Ingibjörgu
voru, er hún giftist föður mínum,
Bergsveini Guðmundssyni. Það sem
ég fann strax í fari hennar, var
hversu hlýrri og heiðarlegri konu
ég hafði kynnst, enda einkenndist
framkoma hennar af því að vilja
hafa allt gott í kringum sig og gera
alla hluti þannig að allir væru
ánægðir.
Ingibjörg hafði til margra ára
verið heiisuveil, en þó kom andlát
hennar mjög á óvart. Þó ég hafi
ekki haft tækifæri til að hitta hana
um alllangt skeið höfðum við þó
alltaf símasamband og þá sérstak-
lega oft undanfarið og bar hún sig
alltaf mjög vel, þó eflaust hafi heils-
an oft á tíðum ekki verið góð. Á
síðustu æviárum föður míns átti
hann við þó nokkur veikindi að
stríða, en hann lést fyrir rúmum 2
árum, þá sýndi Ingibjörg vel hvað
í henni bjó. Þrátt fyrir sína erfið-
leika stóð hún alltaf við hlið hans
trygg og traust þar til yfir lauk.
Okkur systkinunum hefur hún alltaf
verið hinn besti vinur, til hennar
gátum við alltaf leitað ef eitthvað
bjátaði á. Þá reyndi hún að greiða
götu okkar allra fyrst. Já, þannig
var hún, gera hlutina strax, ekki
að bíða með það til morguns, enda
ætlaðist hún til þess líka af öðrum.
Þó kynni mín af Ingibjörgu hafi
ekki verið mikil fyrstu árin, þá urðu
þau nánari eftir að ég stofnaði mitt
eigið heimili. Ég minnist þess
hversu þakklát hún var þegar henni
og pabba var boðið í mat um helg-
ar eða á hátíðum, því miður gat
það ekki verið sl. 8 ár vegna fjar-
lægðar á milli okkar. Þá flutti ég
til Akureyrar. Fyrirtæpum 13 árum
vorum við hjónin ásamt 2 börnum
okkar stödd vestur á Patreksfirði
og þar eignuðumst við yngsta barn-
ið okkar. Þegar átti að fara að skíra
barnið hringdi ég í Ingibjörgu og
sagði henni að telpari ætti að heita
í höfuðið á henni. í fyrstu ætlaði
hún ekki að trúa þessu en síðan
brást hún mjög glöð við. Já, það
sýndi sig að það þurfti ekki mikið
til að gleðja þessa konu. Nú er hún
búin að fá hvíldina en það var hún
farin að þrá.
Að lokum viljum við, ég og konan
mín, Ásgerður, og börn okkar
þakka Ingibjörgu fyrir þau vináttu-
tengsl sem aldrei bragðust. Systur
hennar, Ragnheiði Jóhannsdóttur,
og sonum hennar votta ég mina
dýpstu samúð.
Guðmundur J. Bergsveinsson
Sigurrós Finnboga
dóttir - Minning
Fædd 22. október 1918
Dáin 15. júní 1990
Þegar ég með mínum fátæklegu
orðum sest niður til að minnast
Sigurrósar Finnbogadóttur, Rósu,
sem við á Ástjörn kölluðum ávallt
Rósu ráðskonu, þá kemur fyrst í
huga minn að það var í Lækjargötu
3 sem ég fyrst kynntist Rósu og
Halldóri þar sem foreldrar mínir
keyptu efri hæð hússins en Halldór
og Rósa neðri hæðina. Það er ekki
vandalaust að búa svona í stóru
timburhúsi. En í dag hugsa ég um
það að ég á aðeins góðar minningar
um þá sambúð.
Það var einmitt á þessum árum
sem Rósa vann mikið á sjúkrahús-
inu og minnist ég þess að hún vakti
mikið og var eftirsótt til að vaka
yfir þeim sem þjáðir voru og ég
veit að þar hafa kærleikshendur
hennar hlúð vel að þeim sem háðu
sína síðustu baráttu. í mínum huga
var Rósa sérstök gæðakona. Það
má því segja að það hafi verið eitt
hið mesta happ sem henti okkur
Ástirninga þegar hún kom til okkar
sem ráðskona. Þau 11 ár sem við
fengum að njóta þess að hafa hana
hér að Ástjörn verða ógleymanleg.
Sá kærleikur sem við öll fengum
að reyna og njóta mun ávallt venna
hug okkar og hjörtu og sú mynd
sem við geymum er dýrmætari en
gull og gersemar.
Rósa var sérlega lagin að hjálpa
þeim drengjum sem áttu við ýmis
vandamál að stríða og margir
drengjanna hugsa með miklu þakk-
læti til hennar fyrir allt bæði smátt
og stórt.
Við hjónin höfum margs að minn-
ast og alltaf var jafn notalegt að
koma til Rósu og Dóra, þessar
stundir eru nú dýrmæt minning.
Síðari árin hafa verið erfið fyrir
Rósu, hún bar allt með hreysti og
þolinmæði uns yfir lauk. Rósa er
horfin sjónum okkar en minningin
um góða konu sem gaf okkur svo
mikið er geymd _og gleymist ekki
þó árin líði. Við Ástirningar minn-
umst hennar með þökk og virðingu
og sendum öllum, sem sárt sakna,
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Sömuleiðis sendum við hjónin okkar
dýpstu samúðarkveðjur og biðjum
Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar.
Bogi Pétursson, Ástjörn
Ferðamálaráð:
Gerður verði lofltferðasamningur við Sovétríkin
FERÐAMÁLARÁÐ hefur sent frá
sér ályktun, þar sem skorað er á
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, að beita sér fyr-
ir gerð loftferðasamnings við
Sovétríkin.
í ályktun ráðsins er sagt, að það
séu miklir hagsmunir ferðaþjón-
ustunnar að umsvif í millilandaflugi
aukist hér á landi, bæði vegna auk-
innar þjónustu á millilandaflugvelli
eða völlum, og einnig vegna mögu-
leika á vaxandi straumi ferðamanna
frá Norður-Ameríku, Austur-Evr-
ópu og Austur-Asíu.
Vikið er að því, að allflest vest-
ræn ríki hafi nú þegar gert loft-
ferðasamninga við Sovétríkin og
meðal annars hafi leiðtogar Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna undirrit-
að slíkan samning fyrir skömmu.
Island sé frá landfræðilegu sjón-
armiði vel í sveit sett með tilliti til
flugsamgangna milli austurhluta
Norður-Ameríku og Austur-Evrópu
og álíti Ferðamálaráð að þá mögu-
leika beri að nýta. Jafnframt mæli
aukinn útlfutningur með sjávaraf-
urðir, meðal annars til Austur-Asíu,
með loftferðasamningi við Sovét-
menn.
Að lokum segir í ályktun Ferða-
málaráðs, að ferðaþjónusta sé vax-
andi atvinnugrein víða um heim og
möguleikar Islendinga til að efla
atvinnulíf og jákvæða þróun byggð-
ar í landinu liggi í ferðaþjónustu.
Kjörvari og Þekjukjörvari
- kjörin viðarvöm utanhuss
Þurfir þú að mála við utanhúss, hvort sem um er að ræða sumarhús, glugga eða
grindverk, þarftu fyrst að ákveða hvers konar áferð þú óskar eftir. Sé ætlunin að halda
viðaráferðinni skalt þú nota Kjörvara sem er gegnsæ viðarvörn og til í mismunandi
litum. Ein til þrjár umferðir nægja, allt eftir ástandi viðar.
Kjósir þú aftur á móti hálfliyljandi áferð, sem gefur viðnum lit án þess að viðarmynstrið
glatist, mælum við með Pekjukjör-
áfeáiÉÍMBgaa----- ------
I „ IMMm
'' I
vara scm cinnig fæst í mörgum litum.
Tvær umferðir eru í flestum tilvikum
Sé viðurinn mjög gljúpur skal
'máAtf Á
nog.
grunna hann fyrst með þynntum glær-
um Kjörvara og mála síðan yfir með
Þekjukjörvara.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
imálningh/f
- það segir sig sjálft -