Morgunblaðið - 22.06.1990, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.06.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990 21 dinn. Morgunblaðið/Sverrir i sanm- oðunar aga BHMR afhentu Steingrími J. *rra, mótmæli við ákvörðun ríkis- grein samningsins um næstu mán- aðamót, verður málinu stefnt fyrir félagsdóm mánudaginn 2. júlí,“ sagði Páll. I lok fundarins gengu forsvars- menn 23 aðildarfélaga BHMR upp í Stjórnarráð og afhentu þar Steingrími J. Sigfússyni, starfandi fjármálaráðherra, mótmæli við ákvörðun ríkisstjórnarinnar og kröfu um að hún verði þegar felld úr gildi. Þurfiim tryggingn fyrir að ríkið taki ekki ávinningiim með einu pennastriki - segir Halldóra Ásgeirsdóttir BHMR-félagar hittust á fimdi í Templarahöllinni klukkan níu í gærmorgun og sátu þar fram til klukkan hálftólf, er gengið var niður á Lækjart- org. Hiti var i mörgum og voru þeir, sem Morgun- blaðið ræddi við, sannfærðir um að BHMR þyrflti að fara út i aðgerðir til að ná fram hækkun á launum sínum. Ólafur Ólafsson. „Tilbúinn í harðar aðgerðir" „Mér finnst þessar aðgerðir sjálf- sagðar. Það er gróflega verið að bijóta á okkur samninga,“ sagði Þór Steinarsson, kennari í Tækni- skólanum. Hann sagðist vera tilbú- inn í harðar aðgerðir. „Ég er alveg til í að fara í verkfall. Ef ríkið vill ekki viðurkenna samningsréttinn, þá verðum við að gera það.“ Þór var spurður um þau rök ríkis- stjórnarinnar að hækkanir til BHMR myndu hleypa af stað skriðu kauphækkana og kynda verð- bólgubálið á ný. „Það eru svo margvísleg viðmið á vinnumarkaðn- um. Við miðum okkur við hinn svo- kallaða fijálsa vinnumarkað, og ef hann getur greitt þau laun, sem við erum að sækjast eftir, þá held ég ætti ekki að vera hætta á verð- bólguhækkun," sagði Þór. Hann sagði að samningur BHMR hefði verið gerður til allt að flmm ára, og háskólamenn vildu fá viðmiðun- ina við fijálsa markaðinn skýrt skil- greinda. „í kjölfarið þurfum við að fara að leiðrétta þennan mismun. Það er ekkert í samningnum sem segir að sá mismunur ætti að koma 1. júlí, heldur að hann ætti að koma á næstu árum. Hér er ríkið að bijóta á okkur fyrsta þrepið.“ „Gróft brot á samningsrétti" „Maður er náttúrulejga öskureið- ur yfir þessu," sagði Olafur Ólafs- son, en hann starfar á Námsgagna- stofnun. „Þetta er gróft brot á okk- ar samningsrétti." Hann sagðist vel tilbúinn í langt og erfitt verkfall til að knýja fram hækkanir handa BHMR-félögum. Aðspurður hvort hann vildi að BHMR tæki ábyrgð á hugsanlegri skriðu kauphækkana og verðbólgu, sagði hann: „Ég held að það geti ekkert verkalýðsfélag samið um að annað megi ekki fá hækkanir. Al- þýðusambandið samdi um að aðrir fengju ekki meiri hækkanir en þeir, en við verðum að verja okkar samn- ingsrétt.“ . „Er með skítalaun" Helga Hallgrímsdóttir, hjúkr- unarfræðingur, sagðist vera fegin því að forysta BHMR færi í aðgerð- ir gegn ríkisstjórninni. „Maður er með skítalaun. Ég er með 60 þús- und krónur í grunnlaun. Þegar við svo horfum á viðskiptafræðinga á almennum markaði, sem hafa fjög- Alþýðubandalagið í Reykjavík: Aðgerðum ríkisstjórn- ar harðlega mótmælt Á félagsfúndi í Alþýðubandalaginu í Reykjavík 20. júní var samþykkt tillaga um að mótmæla harðlega þcim aðgerðum ríkisstjórnarinnar að fresta einhliða ákvæðum kjarasamnings Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og rýra með því samningsrétt stéttarfélaga. Tillagan var borin fram af Guð- rúnu Kr. Óladóttur, Sigurbjörgu Gísladóttur, Siguijóni Péturssyni, Stefaníu Traustadóttur, Garðari Mýrdal og Ragnari Stefánssyni. Æskulýðsfylking Alþýðubandalags- ins í Reykjavík hafði áður samþykkt svipaða ályktun og var þar harmaður hlutur ráðherra Alþýðubandalagsins í ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Á félagsfundi ABR var einnig samþykkt tillaga um að krefjast þess að fulltrúar flokksins á Alþingi og í ríkisstjórn fylgi eftir stefnu flokksins í herstöðvamálinu og fylki sér um tillögur Hjörleifs Guttormssonar í því efni. Minnt er á samþykkt 9. lands- fundar flokksins þar sem lagt er til að ráðherrar flokksins leggi til innan ríkisstjómarinnar að tafarlaust verði hafínn undirbúningur að brottför hersins, afnámi erlendra herstöðva og þar með úrsögn úr NATÓ. urra ára háskólanám að baki, líkt og hjúkrunarfræðingar, þá taka þeir ekki lægri laun en 150 þús- und.“ __„ Helga sagðist samt ekki tilbúin að fara í verkfall aftur, heldur vildi hún sjá til með aðgerðir. „Það er fyrst og fremst verið að tala um að bæta launin. Mér finnst fárán- legt þegar ASÍ heldur því fram að við séum eitthvert hálaunafólk, sem séum að fara fram á hækkanir á meðan þeirra fólk sitji uppi með 50-70.000 króna laun.“ „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar óréttlátar“ Kristín Sigurbjörnsdóttir, starfs- maður á Hagstofunni, sagði að sér þættu aðgerðir ríkisstjórnarinnar mikið óréttlæti. „Við erum aðeins að fara fram á leiðréttingu okkar mála, og þess vegna fínnst mér skrítið að ríkisstjómin skuli fara svona-fram," sagði hún. Hún sagðist vilja reyna aðrar leiðir til þrautar áður en farið yrði út í verkfall, en ef það væri eina leiðin, yrði að fara út í það. Hún sagðist hafa trú á að hægt yrði að ná samkomulagi um að BHMR fengi sína hækkun án þess að aðrir launþegar færu fram á það sama. „Ákveðnir í að fá leiðréttingu" Halldóra Ásgeirsdóttir, forvörður á Þjóðminjasafninu, sagði að BHMR-félagar væru ákveðnir í að fá sína leiðréttingu fram. Hún sagði að langt verkfall virtist tilgangs- laust ef ríkisstjórnin gæti tekið af fólki þær hækkanir, sem hefðu fengizt fram með mjög hörðum aðgerðum í fyrra. „Við þurfum að Helga Hallgrímsdóttir. fá einhveija tryggingu fyrir því að ríkið taki ekki af okkur ávinninginn með einu pennastriki,“ Aðspurð hvort hún héldi ekki að hækkanir til BHMR myndu hafa áhrif á önnur félög á vinnumark- Kristín Sigurbjörnsdóttir. Halldóra Ásgeirsdóttir. aðnum sagði hún að um BHMR væri aðeins að biðja um leiðrétt- ingu, og bandalagið teldi svo lítinn hluta launþega, að hækkanir til þeirra myndu varla hrinda verð- bólgunni af stað. ASÍ hefiir ekki kraf- ist niðurfelling- ar kauphækkana segir Asmundur Stefánsson í bréfi til BHMR ALÞÝÐUSAMBAND íslands hefúr hvergi sett fram kröfu um að samn- ingsbundnar kauphækkanir annara hópa verði felldar niður með vald- boði, og hefiir aldrei tekið undir þá kröfú frá öðrum aðilum, segir í bréfi, sem Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ hefur sent Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna. Bréf Ásmundar er svar við bréfl BHMR þar sem óskað var eftir að ASÍ gerði grein fyrir afstöðu sinni varðandi ákveðin atriði. í bréfinu segir Ásmundur að sú afstaða, sem að ofan greinir, hafi komið skýrt fram á fundi fulltrúa ASÍ og for- ustu BHMR á meðan á samninga- viðræðum ASÍ og Bandalags starfs- manna ríkis og bæja stóð í janúar. Hún hafí einnig komið fram á fund- um með ríkisstjórninni og sögu- sagnir um annað hafi ekki við rök að styðjast. Ásmundur segir síðan að ASÍ hefði talið eðlilegt að BHMR nytj^ góðs af þeirri stefnu sem mörkuð var í samningunum í vetur. Jafn- framt hefði verið tekið fram að yrði launahækkun hjá öðrum hóp- um launafólks umfram það sem fælist í samningum ASÍ og BSRB, yrði gerð krafa um sömu launa- hækkanir til handa félagsmönnum ASÍ. Forusta BHMR hefði ekki gert athugasemd við þessa afstöðu enda augljóst að Sóknarfólk, iðn- verkafólk, afgreiðslufólk og físk- verkafólk þurfí ekki síður á kaup- hækkunum að halda. Umboð EB vegna samninga við EFTA: •i Undanþágur fyrír EFTA-lönd verði fáar og1 tímabundnar Leitað eftir sanngjarnri lausn varðandi fískveiðar UMBOÐIÐ sem utanríkisráðherrar aðildarlanda Evrópubandalags- ins (EB) veittu framkvæmdastjórn bandalagsins á mánudag til við- ræðna við ríki Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) urn að koma á fót evrópsku efhahagssvæði (EES) er í 15 greinum. Þar eru tíun- duð þau atriði sem ráðherrarnir telja að samningamenn EB verði að hafa í heiðri til að gæta liagsmuna bandalagsþjóðanna og koma í veg fyrir að tilvist EES raski því stjórnkerfi, sem EB hefúr komið á fót. Þá vill EB að undanþágur fyrir EFTA-lönd frá fyrirhuguðum EES-samningi verði fáar og tímabundnar í sjöttu grein umboðs EB-samn- inganefndarinnar er rætt um fisk- veiðar. Þar segir að tekið skuli tillit til þess hve viðkvæm samn- ingssvið fiskveiðar séu og leiti bandalagið eftir sanngjarnri lausn sem geti tryggt hagfellda sam- tengingu með tilliti til fiskveiði- hagsmuna aðildarlanda þess, einkum að því er varðar aðgang að auðlindum sjávar á yfirráða- svæði aðildarríkja EFTA og við- skiptahagsmuni EFTA-ríkja. Þegar rætt er um forsendur fyrirhugaðs samnings um evr- ópska efnahagssvæðið í þriðju grein umboðsins er tekið fram að hann skuli gerður á grundvelli lagabálks EB, sem eigi að fella inn í samninginn. Hugsanlegar undanþágur undan samningnum sé ekki unnt að veita nema viður- kennt sé, að þær megi réttlæta á þann veg að með þeim sé verið að gæta grundvallarhagsmuna eða þær raski ekki heildarniður- stöðu samningsins. Markmið bandalagsins sé að takmarka slíkar undanþágur eins og frekast er kostur og almennt eigi þær að hafa tímabundið gildi. Lðgð er áhersla á það í fjórðu grein umboðsins, að EFTA komi á fót stofnun er hafí vald til að koma á samkeppnisskilyrðum, sem jafnist á við slík skilyrði inn- an EB. Eigi stofnunin að hafa sama vald og stofnanir EB til að grípa til ráðstafana til að tryggja sam'keppni, svo sem með því að hafa eftirlit með ríkisstyrkjum og setja þeim skorður. 110. grein umboðsins er ítrek- að, að EB haldi óskoruðu sjálfy- stæði til allra innri ákvarðana. í 11. grein segir, að efnt skuli reglu- lega til ráðherrafunda til að ræða framkvæmd samningsins og veita sameiginlegri EB-EFTA-stofnun, sem annist framkvæmdina, pólitíska leiðsögn í störfum henn- ar. Þess er getið að á þessum vettvangi komi báðir aðilar fram sem ein heild og tali einum rómi. Jafnframt er þess getið í sérs- takri bókun við 11. greinina, að enn eigi eftir að skilgreina verk^ - svið hinnan sameiginlegu EB- EFTA-stofnunar. í 11. greininni er einnig fjallað um það, hvernig skorið skuli í lögfræðilegum ágreiningsefnum. I því efni þurfi að finna sameiginlegan vettvang, svo sem með því að styðjast við dómstól EB í Lúxemborg en dóm- arar frá aðildarríkjum EFTA gætu tekið sæti á vettvangi hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.