Morgunblaðið - 22.06.1990, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 22. JUNI 1990
Sigurður S. Þorbcrgsson básúnuleikaei heldur tónleika í sal Tón-
listarskólans á Akureyri ásamt Judith Pamelu Þorbergsson píanó-
leikara.
Básúnutónleikar 1
Tónlistarskólanum
SIGURÐUR S. Þorbergsson básúnuleikari og Judith Pamela
Þorbergsson píanóleikari halda tónleika í sal Tónlistarskólans
á Akureyri á morgun, laugardaginn 23. júní, kl. 17.00.
Á efnisskránni verða m.a. verk
eftir Cesare, Telemann, Bach,
Saint-Saens, Faure og Pryor.
Sigurður og Judith námu bæði
við Guildhall-tónlistarskólann í
London.
Sigurður er fæddur Norðfirð-
ingur en starfar nú í Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Hann hélt
einleikstónleika í Reykjavík og
London sl. vetur við góðar undir-
tektir gagnrýnenda í Morgun-
blaðinu, The Times og The Inde-
pendent.
Judith starfar sem undirleikari
í Söngskólanum í Reykjavík og
hefur komið víða fram á tónleik-
um, m.a. með Sinfóníuhljómsveit
íslands.
Sigurður og Judith koma einn-
ig fram á tónleikum í Neskaup-
stað þriðjudaginn 3. júlí kl.
20.30.
G. Ben á Árskógssandi:
Engin skreiðarverkun í ár þýð-
ir helmingsfækkun starfsfólks
HELMINGI færra starfsfólk vinnur nú hjá fiskverkun G. Ben á
Árskógssandi, en starfaði hjá fyrirtækinu í vetur og síðasta sum-
ar. Fækkunin kemur fyrst og fremst til af því að skreiðarverkun
hjá fyrirtækinu er engin nú í sumar en var umtalsverð í fyrra.
Flestir skreiðarverkendur í Eyjafirði eiga nokkrar birgðir af
skreið frá í fyrra, þannig að lítið hefur verið verkað nú í sumar.
Utlitið fyrir haustið er dökkt þar sem vinna við að taka niður og
pakka skreið hefur enst jafnvel fram í nóvember, en því verður
ekki til að dreifa þetta haustið.
Rafn Gunnarsson, verkstjóri hjá
fiskverkun G. Ben á Árskógss-
andi, sagði að fremur dauft væri
yfir atvinnulífinu á staðnum. Allir
bátar væru hættir á þorskveiðum
og hefðu snúið sér að rækjunni.
Aflinn hefur verið þokkalegur, en
bátarnir hafa verið að veiðum við
Grímsey undanfarið. Arnþór EA,
annar af tveimur bátum G. Ben,
verður stopp í mánuð, en verið er
að endurnýja allt rafkerfí hans.
Sæþór EA er á rækjuveiðum og
leggur upp í Ólafsfirði og fær í
staðinn rækjukvóta. Arnþór og
Sæþór eiga samtals eftir um 100
tonn af þorskkvóta, sem síðar-
nefndi báturinn mun að líkindum
veiða í haust, en Arnþór veiðir
síldarkvóta beggja bátanna. Þá
eiga bátarnir einnig eftir nokkuð
af ufsakvóta.
„Það er ansi dauft yfir þessu
W>td
Hljómsveitin
Styrming
frá Sauðárkróki
leikur fyrir dansi
laugardagskvöld.
Hótel KEA
••
Nauðlending á Oxnadalsheiði;
Flugvélin flutt ónýt suður
FLUGVÉLIN sem nauðlenti skammt frá Sesseljubúð á Öxnadals-
heiði í fyrradag var flutt suður til Reykjavíkur á vörubíl í gær, en
vélin er stórskemmd og jafhvel talin ónýt.
Þrír ungir menn voru í vélinni
og sluppu þeir allir ómeiddir. Til-
kynnt var um nauðlendinguna til
rannsóknarlögreglu á Akureyri
laust fyrir kl. 15 í fyrradag. Rann-
sóknarlögreglumenn fóru á vett-
vang bæði þá um kvöldið og síðan
aftur í gær og gerðu vettvangs-
könnun og tóku ljósmyndir.
Flugvélin var af gerðinni PA-23
og hefur einkennisstafina TF-REF,
hún er sex sæta. Vélin er mikið
skemmd eftir nauðlendinguna á
heiðinni og að mati rannsóknarlög-
reglu á Akureyri talinn ónýt.
Um aðdraganda nauðlendingar-
innar er ekki að fullu vitað, en
vélin var á leið frá Reykjavík til
Akureyrar og var mikil þoka í
Öxnadalnum er atburðurinn átt sér
stað. Talið er að annar vængendi
vélarinnar hafi rekist í jörðina er
henni var snúið við aftur suður á
bóginn.
hjá okkur núna, það er rétt að
menn ná átta tímunum og það lif-
ir enginn á þeim,“ sagði Rafn.
Síðasta sumar og vetur voru um
20 manns í vinnu hjá fyrirtækinu,
en eru nú 10. Rafn sagði að fækk-
unina mætti fyrst og fremst rekja
til þess að engin skreiðarverkun
fer nú fram hjá fyrirtækinu, en
hún var umtalsverð í fyrra, fram-
leidd var um 90 tonn af þurri
skreið hjá fyrirtækinu. Enn á eftir
að selja um 500 pakka, en Rafn
kvaðst fullviss um að fyrirtækið
losnaði við skreiðina.
Valdimar Kjartansson útgerð-
armaður á Hauganesi sagði at-
vinnulífið þar einnig með daufasta
móti. Aðilar af tveimur bátum
hefðu hengt upp örlítið af skreið,
en aðrir látið það eiga sig þetta
árið. Á síðasta ári kvaðst Valdi-
mar hafa hengt upp um 170-180
tonn, sem gera um 20 tonn af
þurri skreið. „Það má segja að
útlitið í haust sé allt annað en
gott, það er mikil vinna í sam-
bandi við skreiðina, við að taka
hana niður og pakka og sú vinna
hefur enst mönnum fram á haust-
ið og jafnvel fram í nóvember. Það
verður ekki um slíkt að ræða á
þessu hausti,“ sagði Valdimar.
Þá hefðu skólakrakkar einnig
fengið atvinnu í fiski að sumrinu
og þá gjarnan við það að hengja
upp skreið, en nú hefði hreppurinn
í fyrsta sinn komið á fót unglinga-
vinnu þar sem lítil vinna væri í
fiskinum.
Flestir bátanna á Hauganesi eru
langt komnir með kvóta sína, en
þeir er nú að snúa sér að rækju-
veiðum. Valdimar sagði fyrirsjáan-
legt að eina fyrirtækið sem yrði í
gangi af einhverjum krafti í haust
væri rækjuverksmiðjan.
Sæplast aug-
lýsir hjá
UMFS í 3 ár
Ungmennafélag Svarfdæla,
Dalvík hefúr gert þriggja ára
auglýsingasamning við Sæ-
plast hf. á Dalvík, þ.e. fyrir
keppnistímabilin 1990-1992.
UMFS seldi Sæplasti hf. aug-
lýsingar á alla búninga meistar-
flokks í knattspymu, auglýs-
ingar við knattspyrnuvöll og á
öðrum gögnum vegna starfsemi
félagsins.
Samningurinn felur í sér
fastar árlegar greiðslur, ep að
auki koma til greiðslur sem
byggja á árangri meistaraflpkks
í 3. deild íslandsmótsins og í
Bikarkeppni KSÍ, m.a. koma til
fastar greiðslur fyrir unna leiki
og skoruð mörk.
Það er von samningsaðila að
þessi samningur ýti undir árang-
ur knattspyrnuliðs UMFS og
komi jafnframt til með að létta
undir með félaginu í þeirri hörðu
keppni sem framundan er í 3.
deildinni í sumar.
Fréttatilkynning
Véiagslíf H ÚTIVIST Þórsmörk - Goðaland Um hverja helgi. Uppselt þessa helgi, fáein sæti laus 29/6. Pant- ið tímanlega. í Útivistarferð eru allir velkomnir! Sjáumst. Útivist.
GRÓFINNI1 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Flatey 22. -24. júní. Útsýnissigling og landganga í öðrum eyjum. Brott- för frá BSÍ kl. 18.30 föstudags- kvöld. Hjólreiðaferð í Grafning 23. -24. júní. Hjólaður Nesjavalla- vegur í Grafning. Til baka um Hvítasunnukirkjan Keflavík Eppley-sisters tala og syngja á samkomu í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir.
Mosfellsheiði. Göngutjöld. Verð kr. 1.000,- Pantanir og miðar í helgarferðir á skrifstofu. Jónsmessunæturganga Laugardag, 23. júní. Með Akra- borg upp á Akranes. Gengið út með ströndinni og á Akrafjall þaðan sem fylgst verður með sólarlagi. Rútuferö tíl baka eftir TIL SÖLU Erlendar bækur Nýkomin sending af erlendum bókum m.a. Power Healing eftir John Winber. Verið velkomin.
¥
miðnætti. Framhaldsganga í ná- grenni Reykjavíkur. Brottf. kl. 18.30 frá Grófarbryggju. Verð kr. 1.500,- 1/erslunin'lKTfl7 Hcrtun2 l05Revkiavik _ 1 simt 20735/25155 ■
Landsbanka-
kórinn syng-
ur á torginu
Landsbankakórinn syngur fyrir
Akureyringa á morgun, laugar-
dag.
Landsbankakórinn er 40 manna
blandaður kór og kemur hann í
fyrsta sinn til Akureyrar og syng-
ur fyrir bæjarbúa á morgun, laug-
ardag.
Fyrst mun kórinn syngja á Ráð-
hústorgi, fyrir framan Landsban-
kann kl. 11 að morgni, síðan verð-
ur sungið á Fjórðungssjúkrahús-
inu og á Seli kl. 14.30 og á Dvalar-
heimilinu Hlíð kl. 15.30. Stjórn-
andí kórsins er Ólöf Magnúsdóttir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Grill oggaman í Naustaborgum
Konur frá Akureyri og nágrannasveitarfélögum hittust í Naustaborg-
um ofan Akureyrar í fyrradag og minntust þess að 75 ár eru liðin
frá því konur hlutu kosningarétt og kjörgengi á íslandi. Gróðursett-
ar voru 75 plöntur sem var táknrænt fyrir afmælið, en síðan var
kveikt upp í grillinu, sungið og trallað fram á kvöld.
Kokkur óskast strax
__kóteíL,-
STEFANIA
AKUREYRI
Sími 96-26366
Veiðidagur að
Ljósavatni
Á veiðidegi fjölskyldunnar, sem
er á sunnudaginn, 24.júní, verður
Ljósavatn í Ljósavatnsskarði opið
almenningi. Stangveiðifélagið Flúð-
ir á Akureyri hefur fengið leyfi til
veiða í vatninu þennan dag og gefa
þeir Akureyringum og nærsveita-
mönnum kost á að veiða í vatninu
á sunnudaginn.