Morgunblaðið - 22.06.1990, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990
Atskák í stað nautaats
___________Skák______________
Margeir Pétursson
ATSKÁK hefur ekki notið vin-
$ælda hér á landi, en á Spáni er
hún að verða vinsælt keppnis-
form og í Murcia fór fram í
síðustu viku mjög öflugt atskák-
mót með góðum verðlaunum.
Eini munurinn á atskák og venju-
legri skák er umhugsunartíminn,
í atskákinni hefiir hvor keppandi
aðeins hálftíma á alla skákina,
en eins og alkunna er geta skák-
.v ír á venjulegum mótum dregist
rpjög á langinn, oft er teflt í sex
tíma samfleytt og síðan jafhvel
sett í bið. Atskákin er eins konar
millistig yfir í hraðskákina, þar
sem tíminn er aðeins fimm mínút-
ur.
Reynslan hefur þegar sýnt að
itskákin höfðar mjög til áhorfenda,
fremur en hraðskákirnar, þar sem
nlutirnir gerast hreinlega of hratt
til að áhorfandinn geti nokkra inn-
sýn fengið. Hinar hefðbundu löngu
skákir eru oft og tíðum svo lang-
dregnar og djúphugsaðar að aðeins
hinir áhugasömustu og öflugustu
íhorfendur hafa gaman af. Atskák-
imar fara hins vegar oft nokkuð
■ -ólega af stað, en í endataflinu verð-
ir síðan oft handagangur í öskj-
inni. Jafnvel öflugustu meistarar
iiga erfitt með að sleppa við grófa
ifleiki á köflum, en áhorfendum
jykir ávallt fengur þegar frægum
.tórmeisturum verður á í messunni.
Það eru sérstaklega Spánveijar
sem hafa gaman af að etja meistur-
unum út á atskákarforaðið og óneit-
anlega verður oft gaman af hama-
gangnum í lokin. í einni skák í
Murcia varð atgangurinn svo mikill
ið dómarinn varð hvað eftir annað
að grípa inn í, því báðir keppendur
höguðu sér fremur óíþróttamanns-
lega í tímahrakinu. Þar áttust við
sovézki stórmeistarinn Gufeld og
kollegi hans Klaric frá Júgóslavíu.
Þótt hvorugur væri í toppbaráttunni
var öllum brögðum beitt, báðir
tefldu nokkuð subbulega, oft ekki
ljóst á hvaða reitum mennimir
stæðu og klukkunni haldið niðri til
að hafa tíma af andstæðingnum.
Svo fór að Gufeld fékk stöðu með
kóng, biskup og riddara gegn ber-
um kóngi andstæðingsins og átti
þar að auki betri tíma. Þá kom hins
vegar í ljós að hann kunni ekki að
máta með þessu liði, þótt aðferðin
sé í öllum kennslubókum fyrir byij-
endur. Þæfði hann taflið fram og
aftur um borðið án þess að geta
króað kóng Júgóslavans af. Áhorf-
endum fjölgaði jafnt og þétt, sér-
staklega eftir að Gufeld gafst alveg
upp á að reyna að máta, en beið
eftir að andstæðingurinn félli á
tíma. Hlógu áhorfendur dátt að
þessum aðfömm stórmeistarans og
Klaric krafðist hvað eftir annað
jafnteflis, á þeim forsendum að
andstæðingur hans væri ekki að
gera tilraun til að vinna skákina á
borðinu. Það lá við handalögmálum
og varð skákstjórinn hreinlega að
vera með hendumar inni á borðinu.
Svo fór að Klaric féll á tíma, en
það dugði Gufeld þó ekki til sigurs,
því þegar litið var á borðið var
Klaric skyndilega orðinn patt og
það gildir fram yfir klukkuna.
Skákin var því dæmd jafntefli, þrátt
fyrir hávær mótmæli Gufelds. Þetta
var að mati Spánveija skemmtun á
við bezta nautaat.
Leiguflugvél frá Aeroflot flutti
fjölda stórmeistara beint frá úr-
tökumótinu í MoskVu til Murcia, svo
það var geysilega sterkt og hátt í
helmingur þátttakendanna 120
vom Sovétmenn. Þeir Jóhann
Hjartarson og Jón L. Ámason komu
beint frá Moskvu en við Helgi Ólafs-
son komum beint héðan, enda flug-
samgöngur til Spánar sérstaklega
þægilegar á sumrin.
Þetta var svo gott sem frumraun
okkar í atskák, nema hvað Jóhann
hefur gripið nokkuð í þetta, var t.d.
með í heimsliðinu gegn Sovétmönn-
um í atskák í Madrid fyrir einu og
hálfu ári. Við máttum því vel við
árangur okkar una, margir stigahá-
ir kappar máttu t.d. sætta sig við
að lenda í miðjum hópi þátttak-
enda, en við vomm allir vel yfir 50%
vinninga.
í Sovétríkjunum og Júgóslavíu
era komnir fram stórmeistarar sem
má segja að sérhæfi sig í atskák.
Má þar t.d. nefna sovézku stór-
meistarana Gavrikov (sem neitar
reyndar að tefla undir öðm en flaggi
Litháen) og Tukmakov. Hinn fyrr-
nefndi varð annar á eftir Karpov í
óopinberri heimsmeistarakeppni í
atskák í Mexíkó 1988 og Tukmakov
sigraði í Murcia. Hvorugum hefur
hins vegar vegnað vel í hefðbund-
inni skák upp á síðkastið, skákstíll-
inn virðist orðinn nokkuð yfirborðs-
kenndur, dýptina skortir en henti-
stefna ræður ferðinni. Kunnur
íslenskur meistari orðaði þetta ein-
hvem tímann þannig að þeir væru
beztir í hraðskák og atskák sem
græddu minnst á því að hugsa!
Úrslitin í Murcia urðu þessi:
1. Tukmakov, Sovétríkjunum 10'A
v. af 13 mögulegum. 2. Kozul, Júgó-
slavíu 10 v.
3-4. Chernin og Goldin, báðir Sov-
étríkjunum 9‘/z v.
5-6. Jóhann Hjartarson og Kras-
enkov, Sovétríkjunum 9 v.
Margeir Pétursson og Helgi
Ólafsson lentu í 14.-28. sæti með
8 v. og Jón L. Ámason kom þar á
eftir með 7 '/z v. Við tefldum allir
við 9-11 stórmeistara í þessum 13
skákum, svo ekki var róðurinn auð-
veldur. Á meðal þeirra sem lagðir
vora að velli má nefna að Jóhann
náði að koma fram hefndum á
Spassky og Korchnoi var svo vin-
samlegur að leika af sér manni
gegn undirrituðum eftir aðeins 20
leiki.
Aðstæður á mótinu í Murcia vom
frábærar, bæði aðbúnaður, fæði og
keppnisstaðurinn. Það var stór-
meistarasambandið sem skipulagði
það, en það hélt aðalfund sinn á
sama tíma.
Við skulum líta á tvær dæmigerð-
ar atskákir. Jón L. sigrar næst-
sterkasta skákmann Júgóslava,
Predrag Nikolic, sem komst áfram
í Moskvu. Harfh má þó kallast góð-
ur geti hann talist í hópi 10 beztu
júgóslavnesku atskákmannanna.
Jóhann sigrar hinn framlega ísra-
elska stórmeistara Murey mjög
glæsilega:
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Predrag Nikolic
Pirc-vörn
I. e4 - d6 2. d4 - Rf6 3. Rc3 -
g6 4. f4 — Bg7 5. Rf3 - 0-0 6.
Bd3 - Ra6 7. 0-0 - e5 8. fxe5 -
dxe5 9. d5 - Rb4 10. Bc4 - Dd6
II. Khl - a5 12. Be3 - Bd7 13.
Rd2 - Rg4 14. Bgl - Bh6? 15.
Be2! - f5 16. a3 - Ra6 17. Rc4
- De7
18. d6! - cxd6 19. Rd5 - Dh4
20. Rcb6 - Be6
Svartur komst hvort eð var ekki
hjá skiptamunstapi, því 20. — Had8
er svarað með 21. g3 — Dh5 22.
Bxg4 - fxg4 23. Rxd7 - Hxd7
24. Rf6+
21. Rxa8 — Hxa8 22. Bxg4 —
fxg4 23. Rf6+ - Kh8 24. Dxd6 -
Bc4 25. Dxe5 - Bg7 26. Hf4 -
Hf8 27. Bd4 - h6 28. Dd6 - g5
29. Rh5! - Hxf4 30. Dxh6+ og
svartur gafst upp, því hann er mát
í næsta leik.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Yasha Murey
Réti-byrjun
1. Rf3 - d5 2. g3 - c6 3. Bg2 -
Bg4 4. b3 - Rd7 5. Bb2 - Rgf6
6. 0-0 - e6 7. c4 - Bd6 8. d4 -
Bxf3 9. Bxf3 - 0-0 10. Rc3 -
He8 11. e4 — dxe4 12. Rxe4 —
Rxe4 13. Bxe4 — e5 14. Bf5! —
RfB 15. Hel - Da5!? 16. c5 -
exd4 17. Hxe8+ — Hxe8 18. cxd6
- Dxf5 19. Dxd4 - c5? 20. Dd2
- Re4
21. d7! - Hd8 22. Hel! - Kf8
23. De3 - Dxf2+ 24. Dxf2 -
Rxf2 25. He8+ - Hxe8 26.
Bxg7+! - Ke7 27. dxe8=D+ -
Kxe8 28. Kxf2 og Murey tefldi
tæplega 20 leiki með manni minna
í endatafli. í atskákinni eru menn
ekkert að flýta sér að gefast upp,
jafnvel sáust kunnir stórmeistarar
tefla með beran kóng gegn kóng
og drottningu, í þeirri von að and-
stæðingurinn félli á tíma.
Opiðfró kl. 22.00-03.00
20 ára aldurstakmark (skilríki)
LOS LISSABON
með meiriháttar dansatriði
VOGUE
BACK
THE
BLOCK
FRUMSÝNING
22. JÚNÍ
KL. 00.30
V0GUE
SÝNING
SUMARSINS
DANSHÖFUNDUR
OG
AÐALDANSARI:
CORNELIUS
CARTER
DANSARAR
OG MÓDEL
FRÁ
DANSSTÚDÍÓ
SÓLEYJAR
SKAPARINN
OPIÐ KL. 23-03
1
Góðan daginnl \