Morgunblaðið - 22.06.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.06.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FÓSTUDAGUR 22. JUNI 1990 39 KNATTSPYRNA / HM A ITALIU Englendingar bnitu vamar- múr Egypta BOBBY Robson, þjálfari enska landsliðsins, óskaði hinum egypska kollega sínum, El— Gohari, til hamingju með góða frammistöðu í riðlakeppninni, en Egyptar áttu mikinn þátt í því hve keppnin í F-riðli var jöfn. England tryggði sér efsta sætið með 1:0 sigri á Egypta- landi og var það Mark Wright sem skoraði hið mikilvæga mark fyrir Englendinga. * Eg samhryggist Egyptum," sagði Robson eftir leikinn, en Egyptaland er úr leik eftir tapið. „Þeir stóðu sig vel og sköpuðu spennu í riðlinum. Leikurinn var í jámum allan tímann og við hefðum í raun þurft að skora annað mark til að létta pressunni af,“ sagði Robson. Strax frá byrjun sást að Egyptar ætluðu að leika stífan varnarleik og freista þess þannig að ná öðru stiginu. Þeir gerðu allt til þess að tefja leikinn og lágu eftir á vellinum í hvert sinn sem þeir lentu í sam- stuði. Svo langt gekk þetta að tveir leikmanna liðsins fengu áminningu fyrir að tefja. Með þessari leikað- ferð tókst Egyptum að halda jöfnu í 58 mínútur og var ekki laust við að örvæntingar væri farið að gæta í leik Englendinga. Það var síðan Mark Wright sem opnaði markareikning sinn fyrir enska liðið með skalla eftir auka- spyrnu frá Paul Gascoigne. Eftir markið opnaðist leikurinn nokkuð því nú urðu Egyptar að sækja. Sóknarlotur þeirra sköpuðu þó ekki nokkum usla í ömggri vörn Eng- lendinga. El—Gohari, þjálfari Egypta, sagðist eftir leikinn vera stoltur af liði sínu en vonsvikinn yfir tapinu. „Leikmennimir lögðu hart að sér og hafa komið Egyptalandi aftur á landakort knattspyrnunnar," sagði El—Gohari. KNATTSPYRNA / 1. DEILD Sigurjón úr leik Ökklabrotnaði og verður líklega frá keppni í tvo mánuði SIGURJÓN Kristjánsson, framherjinn marksækni íliði Vals, missir líklega af meiri- hluta íslandsmótsins í knatt- spyrnu. Sigurjón, sem er næstmarkahæstur í 1. deild eftirfimm umferðir, meiddist illa á ökkla í leik Vals gegn Þór á þriðjudaginn og telja læknar að hann verði frá í allt að tíu vikur. að er meiriháttar áfall að lenda í þessu. Það vora ekki nema tvær mínútur eftir af leikn- um gegn Þór þegar mér var hrint. Ég snerist í loftinu og lenti svona illa á hælnum. Það kom sprunga í ökklann utanverðan og möguleiki er á að liðbönd hafi skaddast,“ sagði Sigurjón í sam- tali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „Ég er hinsvegar alltaf bjartsýnn þegar um meiðsli er að ræða og vonast til að ná mér á skemmri tíma en læknarnir spá.“ Morgunblaöið/Einar Falur Sigurjón Kristjánsson leikur ekki knattspyrnu með Val á næst- unni. Hann ökklabrotnaði í leik gegn Þór á þriðjudag og verður frá næstu vikumar. Siguijón hefur leikið vel í sum- ar og er næstmarkahæstur í deildinni, á eftir Guðmundi Steinssyni Fram, með 5 mörk í jafnmörgum leikjum. „Þetta er slæmt fyrir Val, en þar hafa margir leikmenn átt í meiðslum undanfarið. Það kemur þó alltaf maður í manns stað og enginn ástæða til annars en að vera bjartsýnn. Strákarnir þjarga þessu,“ sagði Siguijón. Siguijón missir að öllum líkindum af bikarleik Vals og Fram í 16 liða úrslitum, en sá leikur fer fram 6. júlí næstkom- andi. „Það er auðvitað mjög svekkjandi, en mér líst vel á leik- inn. Viðureignir þessara liða era alltaf skemmtilegar." Halldór Áskelsson leikur ekki heldur með Val næstu vikumar. Hann byijaði inná gegn Þór á þriðjudaginn en varð að fara útaf vegna meiðsla á hásin. Hann fór í uppskurð í gær og missir af leikjum Vals að minnsta kosti næsta mánuðinn. Dómarar spjalda- gladir RAUÐU og gulu spjöldin hafa verið mikið í sviðsljósinu á HM. 105 sinnum hafa dómarar þurft að grípa til gula spjaldsins og átta sinnum það rauða. Til samanburðar má geta þess að aðeins voru átta reknir út af í allri heimsmeistarakeppninni í Mexíkó. Austurríska liðið, sem lék í A- riðli, fékk flestar áminningar allra liða í riðlakeppninni. Tíu sinn- um var leikmönnum liðsins sýnt gula spjaldið og einu sinni það rauða. Bandaríkjamenn komu næstir með sex gul og eitt rautt. Margir þjálfarar hafa gagnrýnt dómara keppninnar fyrir slælega framgöngu. Valery Lobanovsky, þjálfari Sovétmanna, gekk harðast fram í því. Hann var ekki sáttur við framgöngu sænska dómarans Eriks Fredriksson eftir leik Sovét- manna og Argentínu er hann sleppti vítaspyrnu á Maradona. Ítalía og Brasilía era einu þjóð- irnar sem ekki töpuðu stigi í riðla- keppninni. Vestur-Þjóðveijar, sem töpuðu aðeins einu stigi, gerðu flest mörk, eða tíu. Tómer á italíu Reuter írar fagna marki Niall Quinn (17). Þetta mark tryggði írum sæti í 16-liða úrslitum þar sem þeir mæta Rúmenum. „Það var ekkert samkomulag". - sagði Hans van Breukelen, markvörður Hollendinga „ÞAÐ var ekki gert neitt samkomu- lag um jafntefli en þegar liðin vissu um stöðuna í leik Englands og Egyptalands þá róaðist leikurinn og liðin sættust á jafntef li,“ sagði Hans van Breukelen, markvörður Hollendinga, eftir jafntefli gegn írum, 1:1. Bæði lið komust áf ram á jafntefli og síðustu mínúturnar gekk boltinn hring eftir hring á miðjunni. Hollendingar byijuðu vel og Ruud Gullit kom þeim yfir á 10. mínútu með laglegu marki. Eftir það sóttu írar í sig veðrið og náðu að jafna á eftir mistök í hollensku vörninni. Niall Quinn skoraði af stuttu færi eftir að Breukelen hafði varið misheppnaða sendingu varn- armanns. Staðan var því jöfn og þær fréttir bárust frá Cagliari að Englendingar væru komnir yfír gegn Egyptum. Eftir það gerðist fátt markvert og liðin sættu sig við jafntefiið. Irar unnu hlutkestið um 2. sætið í riðlinum og mæta Rúmenum í 16-liða úrslitum en Hollendingar mæta Vestur- Þjóðveijum. „Ég er mjög sáttur við leik liðsins og ánægður með að vera kominn áfram. Við vorum heppnir að fá ekki á okkur mark snemma í síðari hálfleik en við fengum einnig góð færi og hefðum getað skorað fyrr,“ sagði Jack Charlton, þjálf- ari írska landsliðsins. Hollendingar mæta Vestur-Þjóðveij- um og Leo Beenhakker, þjálfari hol- lenska landsliðsins, sagðist vera sáttur við það: „Ef við hefðum mætt Rúmenum hefðum við þurft að leika við Itali í fjórð- ungsúrslitum. í keppni sem þessari er ekki hægt að fá auðvelda andstæðinga." ■ KÓRENSKA landsliðið fékk 24 tíma leyfí frá æfíngum fyrir leikinn gegn Uruguay. Leikmennirnir not- uðu tækifærið og fóru í verslunar- leiðangur til Lign- Frá ano, sem er þekktur Bryrju baðstaður nálægt Udine, þar sem liðið dvelur um þessar mundir. Margir voru undrandi á þessu leyfí en Lee þjálfari sagði: „Ég hef alltaf gefíð leikmönnunum sólahringsfrí fyrir leiki.“ ■ ARGENTÍNSKI þjálfarinn Carlos Bilardo mun hætta þjálfun landsliðsins eftir HM. Hann hefur ákveðið að fara til Nígeríu þar sem honum var boðið starf sem kennari í sérstökum knattspyrnuskóla fyrir unglinga. Sextán liða úrslit Bari: Laugardag 23. júní, kl, 19:00 Tékkóslóvakía: Kosta Ríka 2. sæti i A-riðli 2. sæti i C-riðli Atta liða úrslit Mílanó: Sunnudag 24. júni, kl. 19:00 V-Þýskaland : Holland Mílanó: Sunnudag 1. júli, kl. 15:00 1. sæti (D-riðli 3. sæti i B/E/F-riðli Sigurv. i Bari Sigurv. i Milanó Napólí: Laugardag 23. júní, kl. 15:00 Kamerún : Kólumbía 1. sæti i B-riðli 3. sæti i A/C/D-riðl Bologna: Þriðjudag 26. júní, kl. 19:00 England 1. sæti ÍF-riðli 2. sæti í E-riðli Napóli: Sunnudag 1. júlí, kl. 19:00 Sigurv. i Napólí Sigurv. (Bologna Tórinó: Sunnudag 24. júni, kl. 15:00 Brasilía : Argentína ' 1. sæti í C-riðli 3. sæti í A/B/F-riðli Veróna: Þriðjudag 26. júní, kl. 15:00 Spánn : Júgóslavía 1. sæti I E-riðli 2. sæti í D-riðH Flórens: Laugardag 30. júní, kl. 15:00 Sigurv. i Tórinó Sigurv. i Veróna Genúa: Mánudag 25. júnl, kl. 15:00 írland : Rúmenía 2. sæti í F-riðli 2. sæti i B-riðli Róm: Mánudag 25. júni, kl. 19:00 Ítalía : Uruguay —| 1. sæti í A-riðli 3. sæti í C/D/E-riðli Róm: Laugardag 30. júni, kl. 19:00 Sigurv. í Genúa Sigurv. i Róm Í Róm: Sunnudag 8. júli, kl. 18:00 i ] Sigurv. ÍTórinó Sigurv. i Napólí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.