Morgunblaðið - 13.07.1990, Síða 13

Morgunblaðið - 13.07.1990, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990 13 og meiriháttar tap í huglægum verðmætum eins og efnahagslegu sjálfstæði, fullveldisafsals, sem leitt gæti til þess að við yrðum vanþróað- ur útkjálki Evrópusvæðisins, dæmdur til þess að vera láglauna- svæði fámennisþjóðar, sem sér- greindi sig í sjávarfangi og raforku- framleiðslu eftir því sem erlendu fjölþjóðafyrirtækjunum hentaði. Eg trúi því ekki, að það séu margir íslendingar, sem vildu að athuguðu máli skapa íslandi þessa framtíð á grundvelli hins nýja efna- hags- og utanríkisviðskiptakerfis EES. Enda eigum við ýmsa betri val- kosti. Betri valkostir Eyjólfur Konráð Jónsson, Kristín Einarsdóttir og Ragnhildur Helga- dóttir bentu réttilega á, að sjálfsagt væri að taka upp tvíhliða viðræður við EB um endurskoðun á bókun 6 við fríverslunarsamning okkar vegna breyttra aðstæðna, þar sem að Grikkland, Spánn og Portúgal hefðu gengið í EB eftir að bókun 6 var gerð. Þetta er í alla staði sjáif- sagt og eðlilegt. Markmið slíkrar endurskoðunar yrði að ná saltfiski, saltsíld og skreið inn í fríverslunar- ákvæðin án þess að veita nokkur fiskveiðiréttindi í staðinn. Starfað yrði svo áfram á grundvelli gildandi milliríkjaviðskiptakerfis án frekari breytinga. Ekkert fullveldisafsal færi fram. Annar valkostur er að fylgja inn- an EFTA eftir hugmyndum efna- hags- og viðskiptaráðstefnu RÖSE í Bonn í apríl/maí sl. Þar ræddu fulltrúar 35 ríkjanna um meira efnahagssamstarf og aukin við- skipti allra ríkjanna vegna breyting- anna, sem orðið hafa í Astur-Evr- ópu. Er ástæðulaust að láta EB leiða þá umræðu, enda líklegast að fríverslunarstefna EFTA væri auð- veldari til framkvæmda fyrir A-Evrópuríkin en tollmúrastefna EB. Auk þess mundu Bandaríkin og Kanada ekki láta múra sig inn í Evróputollmúr. ísland gæti leitt þessa umræðu innan EFTA og unn- ið að því að hugmyndin kæmist í framkvæmd. Þriðji valkosturinn er Leifslínan, þ.e. að vinna að fríverslunarsamn- ingnum við Bandaríkin og Kanada, sem kæmi til frekari útvíkkunar, ef hugmyndir Bush, Bandaríkjafor- seta, frá 27. júní um að stofnað yrði fríverslunarsvæði Norður- og Suður-Ameríku. Að öðru leyti störf- uðum við áfram á grundvelli gild- andi kerfis. Enn víðfeðmari valkostur er einn- ig til, ef menn þora að hugsa stórt. A árunum 1947-1948 var á dag- skrá að stofna Alþjóðaviðskipta- stofnun SÞ. Hennar meginhlutverk átti að vera að koma á sem víðtæk- astri fríverslun í öllum heiminum, enda fríverslunarkenningin alþjóð- leg fremur en svæðisbundin.'Upp- kastið að Havana-sáttmálanum er enn til. Andstaða kommúnistaríkja kom í veg fyrir samþykki hans. Þá trúðu þeir enn á ríkisrekstur, mið- stýrt efnahagskerfi, víðtækan áætl- unarbúskap, miðstýrða milliríkja- verslun. Nú er öldin önnur. Hvert kommúnistaríkið af öðru hefur lýst sig fylgjandi markaðsbúskap með tilheyrandi fríverslun. Því þá að hugsa svo smátt og þröngt að láta múra sig inn í þröngan tollmúr 18 Evrópuríkja? Því ekki að hugsa stærra, um heiminn allan sem eitt fríverslunarsvæði, endui’vekja hug- myndir Havana-sáttmálans um Al- þjóðlega viðskiptastofnun SÞ? Lokaorð Staða samninganna um Efna- hagssvæði Evrópu bendir til þess, að hið nýja kerfi gæti aðeins haft í för með sér meiriháttar'tap fyrir okkur bæði í hlutlægum og óhlut- lægum verðmætum. Þess yegna er tímabært að við beinum athygli okkar að ómengaðri fríverslun í langtum víðara samhengi, sem gerði okkur kleift að njóta fríversl- unar í Norður- og Suður-Ameríku, Asíu og Afríku ekki síður en Aust- ur- og Vestur-Evrópu. Valkostirnir eru margir í málinu. Við búum við gott utanríkisvið- skiptakerfi eins og er, þurfum ekki að láta EB lokka okkur inn í sinn Evróputollmúr og fullveldisafsal, getum stefnt í áföngum að hnatt- rænni fríverslun á vegum SÞ án þess að hverfa frá því góða kerfi, sem við búum nú við í milliríkjavið- skiptum. Höfunáur er fyrrverandi sendiherra. EINDAGI STAÐGREÐSLUFJÁR ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar. Munið að gera skil tímanlega! RSK RÍKfSSKATTSTJÓRI SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI FOSTUDAGUR TIL FJAR KÆLIBOX s I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.