Morgunblaðið - 13.07.1990, Síða 32

Morgunblaðið - 13.07.1990, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990 Slétt og felld úrhrök Kvikmyndir Amaldur Indriðason Unglingagengið („Cry- Baby“). Sýnd í Laugarás- bíói. Leikstjóri: John Wat- ers. Aðalhlutverk: Johnny Depp, Amy Lorane, Patty Hearst, Willem Dafoe, Iggy Pop. I nýjustu gamanmynd John Waters, Unglingageng- ið, sem gerist eins og síðasta mynd hans, Hársprey, í heimabæ Waters, Baltimore, á sjötta áratugnum, skiptast unglingarnir í tvo hópa, „slétta og fellda“ og „úr- hrök“. Fyrri hópurinn eru fínkembdir pabbadrengirnir með glosspíurnar uppá arm- inn en sá seinni leðurklæddir og druslulegir vandræða- unglingar, sem eru hreyknir af einum hlut í lífinu og það er að vera vandræðaungling- ar. Þarna á milli er stöðug barátta en vendipunkturinn verður þegar ein glosspían stynur á skólalóðinni: Eg er svo þreytt á að vera alltaf góð, og tekur að manga til við vandræðagengið. Eftir það verður ekki aftur snúið. Mynd Waters er auðvitað skopstæling á unglinga- myndum, allt sem maðurinn gerir er sjúklega undið og flest af því sjúklega fyndið, en „úrhrökin" er eitthvert alskemmtilegasta unglinga- gengi sem hægt er að hugsa sér. Hér eru ekki ælur og rottur vibbamyndanna hans en nóg af gamla Waters samt til að hengja á örmjóan sögu- þráðinn og spinna hann í kássu. Megingaurinn, sem heitir „Cry-Baby“ af því hann fellir tár í hvert sinn sem hann verður snortinn af einhveiju, er með rafmagns- stól tattóeraðan á bijóst- kassann því pabbi hans, fjöldamorðinginn sem hann saknar svo sárt, var líflátinn í einum slíkum. Önnur gellan í gengi úrhrakanna heitir Sveðjufés og er gerð svo ótrúlega ljót og svo viðbjóðs- lega fyndin að þú getur ekki haft augun af henni. En viti menn, samt verður myndin aldrei of villt og ljót heldur þvert á móti hin við- kunnanlegasta og skemmti- lega heillandi. Persónurnar eru flestar frábærlega kóm- ískar, sérstaklega í úrhraka- genginu þar sem undir leður- jakkayfirborðinu ríkir sann- ur ungmennafélagsandi, og myndin er stútfull af fjörleg- um rokklögum og dansi sem Waters hefur greinilega un- un af að sviðsetja með til- vísun í „West Side Story“ ef eitthvað. Honum tekst líka mjög vel eins og í síðustu mynd að endurlífga og ýkja DAGSKRA HEFST KL:21:00 TONLEIKAR HLJýMSyplTIN II) 11 » C * z z 0 ostar,vln og ávextii h b íii'Tímm V I P K O R T I N G I L D A AÐGANGSEYRIR 500 KRÓNURl Loðnu rotturnar í kvöld TVEIR VINIR - HEITUR STAÐUR KONUNGUR ROKKSINS BJARNIARA 0 ÍSL ANDSMEIST ARAR í ROKKDANSI JÓIOGMARÍA 0 HAUKUR í DISKÓTEKINU # HINN LJÚFIBYLGJUMAOUR HALLIGÍSLA KEMUR í HEIMSÓKN • FRÍTTINN TIL MIÐNÆTTIS EFTIR MIÐNÆTTI 950,- KR. PÓRsfcAFÉ Brautarholti 20, símar 23333-23335 HUÓMSVEIT ANDRA BACHMAHH KONUNGAR andrúmsloft sjötta áratugar- ins og ungu leikararnir eru allir sérlega vel innstilltir á hans bylgjulengd. Fer þar unglingagoðið Johnny Depp í fararbroddi en að auki hef- ur Waters fengið til liðs við sig fyrrum borgarskæruliða, Patty Hearst, sem leikur hér í sinni fýrstu bíómynd ofur- skilningsríkt foreldri sem unglingar almennt elska að hata, Willem Dafoe er í litlu hlutverki fangavarðar og Iggy Pop er verulega sjúskað foreldri. Það er Ijóst að kímnigáfa Waters er mjög sérstök og Unglingagengið er ekki mynd fyrir alla en ef þú á annað borð diggar hana eða fílar er hún óborganleg skemmtun. Passaðu bara að hafa ekki augun af Sveðju- fésinu. Frábær kroppur. W HÓTEL ESTU jUÐMUNDUF HAUKUR leikur í kvöld Péfur grindvíkingur og heilu 1/1 spila föstu- dags- og laugardags- kvöld frá kl. 22.00. Hólmi, Hólmaseli 4, sími 670650. UPPI: RÓLEG KRÁ ARSTEMMNIN G NIÐRI: DISKÓTEK Matur til kl. 22.00 Opið til kl. 03.00 ÓKEYPIS AÐGAINIGUR DISKÓTEK SVENNIOG ROKKIÐ FRÁBÆRT STUÐ FRÍTT II^JI^I SNYRTILEGUR KLÆDNAÐUR NÍLLÁBAR Jón forseti og félagar halda uppi stuói Munið hádegisbarinn laugardag og sunnudag r Sólstingsdrykkur fyrir alla sem mæta fyrir kl. 24.00. (Sterkurfinnskurgæðadrykkur) Húsiðopnaðkl. 22. Aðgangseyrir kr. 600,- Staður hinna dansglöðu Dagskrá íjúlí: 13. og 14./7. Finnur Eydal og Helena. 20. og 21 ./7. Jón Sigurðsson og Hjördís Geirs. 27. og 28./7. Jón Sigurðsson og Hjördís Geirs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.