Morgunblaðið - 13.07.1990, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990
34
SIMI 18936
LAUGAVEGI 94
FJÖLSKYLDUMÁL
„Of ur viðkvaem mál um að geta börn og
geta ekki eignast börn, tekin vaemnislaus-
um tökum þar sem f er saman öndvegisleik-
ur, afbragðs handrit og snjöll leikstjórn.
★ ★ ★ SV. Mbl. - ★ ★ ★ SV. Mbl.
(IMMEDIATE FAMILY)
AÐALHLUTVERK: GLENN CLOSE, JAMES WOODS,
MARY STUART MASTERSON OG KEVIN DILLON í
leikstjórn JONATHANS KAPLAN
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
POTTORMUR í PABBALEIT
Sýnd kl. 5 og 11.05.
STÁLBLÓM
★ ★★ SV.MBL.
Sýnd kl. 7 og 9.
FRUMSÝNUM STÓRMYNDINA:
LEITIN AÐ RAUÐA OKTÓBER
EFTIRFORIN
ER HAFIN
Leikstjóri „Die Hard" leiðir
okkur á vit hættu og magn-
þrunginnar spennu í þessari stór
kostlegu spennumynd sem gerð
er eftir metsölubókinni
„SEAN CONNERY veldur ekki aðdáendum sínum von-
brigðum frekar en fyrri daginn. Leitin að RAUÐA
OKTÓBER er hin besta afþreying, spennandi og tækni-
atriði vel gerð. Það spillir svo ekki ánægjunni að atburð-,
irnir gerast nánast í íslenskri landhelgi."
★ ★ ★ H.K. DV.
„...stórmyndartilfinning jafnan fyrir hendi, notaleg og
oft heillandi."
★ ★★ SV. Mbl.
Myndin er gerö eftir skáldsögu Tom Clanzy (Rauður stormur).
Leikstjóri: Jolm McTiernan (Die Hard).
Sýnd kl. 5,7.30 og 10. — Bönnuö innan 12 ára.
HORFTUMÖXL
SIÐANEFND
LÖGREGLUNNAR
Sýnd kl. 5,9 og 11.
Sýnd kl.7,9,11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
RAUNIR WILTS
Sýnd kl. 7.10 og 11.10.
Bönnuðinnan 12ára.
SHIRLEY
VALENTINE
★ ★★ AI.MBL.
Sýnd kl. 5.
Síðustu sýningar!
PARADÍSAR-
BÍÓIÐ
★ ★★ SV.MBL.
Sýnd kl. 9.
VINSTRI
FOTURINN
★ ★★★ HK.DV.
Sýndkl.7.
Síðustu sýningar!
HRAFNINN FLÝGUR - WHEN THE RAVEN FLIES
„With english subtitle". — Sýnd kl. 5.
Handverksdagar á Ar-
bæjarsafiii um helgina
Hildigunnur Sigvaldadóttir bakar lummur.
UM HELGINA verður
haldin fjölskylduhátíð í
Árbæjarsafni. Mikið verð-
ur um að vera og fortíðin
gædd nýju lifi með starfs-
háttum og handverki fyrri
tfma.
Tún verður slegið með
orfi og Ijá og smíðað úr jámi
í smiðjunni. Unnið verður
við tóvinnu, netagerð og
útskurð aska. Bakaðar
verða grautarlummur og
boðið upp á spenvolga mjólk
í Árbænum. Elsti bíll lands-
ins verður til sýnis við hlið
þarfasta þjónsins og í alda-
mótaprentsmiðjunni verður
starfsemin í fullum gangi,
krambúðin opin og gullbor-
inn settur í gang. í Dillons-
húsi verða veitingar og heitt
kaffí og súkkulaði á boðstól-
um við harmonikutónlist. Á
sunnudag messar sr. Krist-
inn Ágúst Friðfinnsson í
safnkirkjunni.
Sláttur byrjaði miss-
nemma en löngum var talið
sjálfsagt að hann hæfist
með bifukollunum. Til slátt-
arins þurfti amboð, bæði
orf, ljái og hrífur. Dengja
þurfti ljáina hvem dag og
var því smiðjunefna á hverj-
um bæ. í smiðjunni í Árbæ
verða smíðaðar járnskeifur
og í túninu verða slegnar
nokkrar brýnur með orfi og
ljá. Skurðhagir voru margir
með afbrigðum og bera þess
vitni margirgamlirtrémunir
m.a. kassar, rúmfjalir og
askar. Slíkir hlutir eru til
sýnis í Árbæjarsafni og í
einu safnhúsanna verður
unnið við útskurð um helg-
ina.
Á Árbæ verður sýnt
handverk fyrri kynslóða í
tóvinnu. Þar mun ullin
kembd og þráður spunninn
við rokkinn. Til sveita var
korn malað í handkvörnum
og mjölið haft í grauta, kök-
ur og lummur. í eldhúsinu
í Árbæ fá gestir að gæða
sér á nýbökuðum grautarl-
ummum að hætti ömmu
með rúsínum og miklum
sykri og spenvolgri mjólk.
Auk þess að kynna starfs-
hætti til sveita verður einnig
greint frá handverki og dag-
legu lífi í Reykjavík. Elsti
bíll landsins verður til sýnis
og gangsettur á safnsvæð-
inu. í vélasal Árbæjarsafns
er einnig til sýnis gufuvalt-
arinn Bríet og eimreiðin Pi-
onér. Gullborinn, sem flutt-
ur var til landsins með það
fyrir augum að bora eftir
gulli verður settur í gang
og í fyrsta sinn sýndur safn-
gestum. Gullborinn var þó
ekki notaður til að bora eft-
jr gulli, þegar á reyndi, held-
ur heitu vatni. Elsta iðn-
grein landsins, prentlistin,
er kynnt á prentsýningu
Árbæjarsafns og verður
aldamótaprentsmiðjan
starfandi alla helgina. Þar
verður sýnt handverk alda-
mótakynslóðar prentara og
bókbindara. Við eitt safnhú-
sanna verður unnið við neta-
gerð og handbragð útgerð-
armanna sýnt. I krambúð
Árbæjarsafns er á boðstól-
um kandís, þurrkaðir ávext-
ir og nýmalað kaffi. í kaffi-
húsi Árbæjarsafns, Dillons-
húsi, verða veitingar á boða-
stólum. Á sunnudag verður
messað í safnkirkjunni kl.
14 og 15 og á eftir verður
leikið á harmoniku í Dillons-
húsi. Mannlíf stríðsáranna
er tekið fyrir á sumarsýn-
ingunni,, ... og svo kom
blessað stríðið".
(Fróttatilkynning)
I H H M
SI'MI 11384 - SNORRABRAUT 37
FRUMSÝNIR TOPPMYNDINA:
FULLKOMINN HUGUR
„TOTAL RECALL" MEÐ SCHWARZENEGGER ER
ÞEGAR ORÐIN VINSÆLASTA SUMARMYNDIN í
BANDARÍKJUNUM, ÞÓ SVO HÚN HAFI AÐEINS
VERIÐ SÝND ÞAR í NOKKRAR VIKUR. HÉR ER
VALINN MAÐUR í HVERJU RÚMI; ENDA ER
TOTAL RECALL" EIN BEST GERDA TOPP-
SPENNUM YND SEM FRAMLEIDD HEFUR VERIÐ.
„TOTAL RECALL" TOPPMYND EINS
OG ÞÆR GERAST BESTAR!
Aðalhl.: Arnold Schwarzenegger, Sharon Stone,
Rachel Ticotin, Ronny Cox. Leikstj.: Paul Verhoeven.
Sýnd kl. 4.50, 6.50,9 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
STÓRKOSTLEG STULKA
RICIIARD GERE JCLIA ROBERTS
★ ★★ SV. Mbl. - ★★★ SV. Mbl.
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.05.
VINARGREIÐINN
l £ F OST-E R-
SL*
SIWHOME
Sýnd kl. 7
Bönnuð innan 14 ára.
FANTURINN
Sýnd kl.5,9og11.
Bönnuö innan 16 ára.
Grafarvogssókn;
Utimessa á kirkju-
lóðinni við Fjörgyn
GUÐSÞJÓNUSTA verður haldin sunnudaginn 15. júlí
klukkan II á kirkjulóð Grafarvogssóknar, en þann 21.
febrúar sl. úthlutaði borgarstjórn söfnuðinum áður-
nefndri lóð fyrir kirkjubyuggingu.
Nú þegar ár er liðið síðan
að söfnuðurinn var stofnað-
ur, hafa nokkrir arkitektar
verið valdir til að taka þátt
í lokaðri samkeppni um
kirkjubyggingu Grafarvogs-
sóknar. Ef vel tekst til er
ætlunin að taka fyrstu skófl-
ustunguna að nýrri kirkju á
hausti komanda.
Á sunnudáginn klukkan
11 verður því fyrsta guðs-
þjónustan á kirkjulóðinni.
Kirkjukórinn mun syngja
undir stjórn Sigríðar Jóns-
dóttur organista, trompet-
leikur kemur í stað orgel-
leiks.
Að lokinni guðsþjónustu
mun safnaðarfélagið sem
stofnað var á ársafmæli
safnaðarins, sóknarnefndin
og fleiri bjóða viðstöddum
upp á grillaðar pylsur og
kók. Skátar í sókninni munu
setja upp altari úr frönskum
trönum og ef veður leyfir
verður skírt í guðsþjón-
ustunni.
„Það er von allra þeirra
sem að messunni standa, að
fjölskyldan mæti öll til guðs-
þjónustu og taki þannig þátt
í að byggja upp safnaðar-
starf í yngstu sókn þessa
lands. Undirbúningsnefndin
vill taka það fram að guðs-
þjónustan mun fara fram,
jafnvel þótt veður verði ekki
eins og best væri kosið,“
sagði séra Vigfús Þór Árna-
son sóknarprestur.