Morgunblaðið - 13.07.1990, Page 40

Morgunblaðið - 13.07.1990, Page 40
Þjófhað- ar-ogárás- - arkærum Q ölgar KÆRUM til lögreglunnar í Reykjavík vegna þjófiiaðar, hnupls úr verslunum og líkams- meiðinga hefur farið flölgandi frá fyrra ári en færri innbrot voru kærð fyrstu sex mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. 134 ökutækjum hefúr verið stol- ið en slíkar kærur voru 104 fyrstu sex mánuði ársins 1989. 176 kærur vegna stoiinna reið- hjóla hafa borist lögreglunni í ár, 10 fleiri en á sama tíma í fyrra. Lögreglunni í Reykjavík bárust á fyrri helmingi ársins 197 kærur vegna líkamsmeiðinga, en 189 slíkar kærur árið áður. Kærum vegna hnupls úr verslunum íjölg- aði úr 50 í 84. 458 þjófnaðir hafa verið kærðir á fyrri helmingi árs- ins en þeir voru 325 í fyrra. Kær- um vegna innbrota hefur fækkað J á sama tíma úr 608 í 553. 382 rúðubrot hafa verið kærð til lögreglunnar en þau voru 270 á fyrra helmingi síðasta árs. Lög- reglan hefur 357 sinnum verið kvödd til vegna annars konar eignaspjalla en í fyrra bárust 329 slíkar kærur. Vinnuslys í Grundarfirði Grundarfirði. VINNUSLYS varð á býlinu Kverná í Grundarfirði um klukkan 20 í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var fengin til að flytja hinn slasaða á sjúkrahús en við lendingu á túninu við Kverná fuku nærliggjandi hlut- ir í spaða þyrlunnar, þannig að ekki þótti ráðlegt að fljúga henni til baka. Var þá kallað á þyrlu Varnarliðsins til að fiytja sjúkling- inn, sem ekki er talinn í lífshættu. Hallgrímur Sumarbúskapurinn íbjarginu Sumarbúskapurinn hjá bjargfuglunum er hinn lífleg- asti um þessar mundir, en myndina tók Sigurgeir í Eyjum af Kórunum austan í Ystakletti en þar fylla ritan og langvían allar syllur og tær og kögra berg- ið með driti sínu. Undir bjarginu dólar bjargfuglinn á sjónum. Undirbúningur virkjana vegna álvers: ■ Alþýðuflokkur og Framsókn- arflokkur heimila fimnkvæmdir IÐNAÐARRÁÐHERRA gerir ráð fyrir að geta á þriðjudag gefið stjórn Landsvirkjunar formlegt svar við því hvort ríkisstjórnin heiniili að Landsvirkjun hefji undirbúning að virkjanaframkvæmduni og taki til þess erlend lán. Landsvirkjun áætlar að til að geta framleitt nægilega raforku fyrír nýtt 200 þúsund tonna álver, þegar árið 1994, þurfí að verja 100 milljónum króna á næstu tveimur mánuðum til undirbúnings. Stjórn Landsvirkjunar hefur bréf- lega óskað eftir að ríkisstjórnin lýsi afstöðu sinni til málsins. Jón Sig- urðsson iðnaðarráðherra kynnti stöðu málsins á ríkisstjórnarfundi í gær og greindi frá samþykktum stjórnar Landsvirkjunar. „Eg mun svara Landsvirkjun eftir að þing- flokkum stjórnarinnar hafa verið kynntir málavextir, og geri ráð fyrir að það verði á þriðjudag," sagði Jón við Morgunblaðið. Þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti í gær að heimila Lands- virkjun að taka 100 milljónir króná að láni vegna framkvæmda næstu tveggja mánaða, en skoða málið aft- ur í haust með tilliti til framvindu samninga við Atlantsálshópinn. Þá lýsti Aiþýðuflokkurinn yfír fullum stuðningi við stefnu iðnaðarráðherra í málinu. Borgarafiokkurinn mun halda fund í dag, en ekki er ljóst hvenær Alþýðubandalagið mun fjalla um erindi Landsvirkjunar. Stjórn Landsvirkjunar var boðuð til fundar í gær eftir ríkisstjórnar- fundinn, en þeim fundi var aflýst. Halldór Jónatansson forstjóri Lands- virkjunar sagði að ekki hefði verið talin ástæða til að ræða um málið meðan niðurstaða hefði ekki fengist í ríkisstjórninni. Jón Sigurðsson sagði að hann teldi mjög brýnt, að þessar ákvarðanir yrðu teknar sem fyrst. „Ég tel mikil- vægt að menn meti það strax hvað er nauðsynlegt að gera nú til að við getum í samningunum yið Atlant- sáishópinn staðið á því að geta út- vegað orkuna árið 1994. Það er grundvöllur okkar samningsstöðu," sagði Jón. Samkvæmt lögum, sem samþykkt voru á Alþingi í vor, er gert ráð fyrir að Landsvirkjun geti varið allt að 300 milljónum króna á þessu ári, til undirbúnings virkjana, en að sú fjárfesting, og lántökuheimildir vegna hennar, sé háð ákvörðunum ríkisstjórnarinnar. Búið var að veija 46 milljónum í virkjanaundii'búning, áður en lögin voru samþykkt. Gert er ráð fyrir að veija þurfi 100 millj- ónum króna tii þessa undirbúnings á næstu tveimur mánuðum, 82 millj- ónum í september og afganginum á síðustu þremur mánuðum ársins. Landverkafólk í ASÍ: Kaupmátt- ur hefiir minnkað um 10% KAUPMÁTTUR landverkafólks í Alþýðusambandi íslandi hefúr minnkað um 10% frá fyrsta árs- ijórðungi 1989 til fyrsta ársflórð- ungs 1990 eða á réttu ári. Á þessu tímabili hækkaði greitt tímakaup um 10% í krónutölu, en hækkun framfærsluvísitölunnar sama tímabil var 22%. Þar sem vinn- utími breyttist ekki milli þessara tímabila hefúr kaupmáttur mán- aðartekna einnig minnkað um 10%. Mánaðartekjur verkakarla á fyrsta ársíjórðungi í ár voru að meðaltali 90.466 krónur en voru sama tímabil árinu áður 83.795 krónur og minnkaði kaupmáttur þeirra um 11,8%. Verkakonur voru með 70.562 krónur í ár en höfðu í fyrra 64.193 og minnkaði kaup- máttur þeirra um 10,2%. Iðnaðar- menn voru að meðaltali með 124.019 krónur (112.308) og minnkaði kaupmáttur þeirra um 9,8%. Afgreiðslukarlar voru með 101.689 (89.680) og minnkaði kaupmáttur þeirra um 7,4%. Af- greiðslukonur voru með 78.309 (69.976) og minnkaði kaupmáttur þeirra um 8,6%. Skrifstofukarlar voru með 123.204 krónur (111.661) og 9,9% minni kaupmátt og skrif- stofukonur 78.083 (77,520) og minnkaði kaupmáttur þeiri'a um 17,7%, en vert er að geta þess að vinnutími þeirra styttist um 1,1 klukkustund milli þessara tímabila. Áhöfiiin á Runólfí: IIiiln gotima og söfnuðu fyrir Portú- galsferð ÁHÖFNIN á Runólfi frá Grund- arfírði, makar og börn, yfir 40 manns, spóka sig nú í sólinni suður í Portúgal. Ekki væri það í frásögur færandi neina vegna þess að fyrir ferðinni unnu sjó- mennirnir síðastliðinn vetur með því að safna gotu, salta hana og selja. Guðmundur Smári Guðmunds- son, frámkvæmdastjóri Sæfangs, sem gerir út Runólf, sagði að það hefði verið að frumkvæði sjómann- anna sem þeir fóru að hirða hrogn- in. Alls söltuðu þeir í á þriðja hundr- uð tunnur og var hver tunna seld á 25.000 krónur. Hluti sjómann- anna af hrognatökunni var nokkuð ríflegur miðað við skiptahlut af venjulegum afla, að sögn Guðmund- ar Smára. Hann sagði að hrognataka hefði aukist mjög á undanförnum árum hjá útgerðinni, aflasóknin hafi breyst og betur fiskast suðvestan- lands þar sem gota er í fiskinum. Auk sumarleyfisferðar áhafnar- innar nægði hagnaðurinn af hrognatökunni til að standa undir árshátíð og veisluhöldum á sjó- mannadaginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.