Morgunblaðið - 18.07.1990, Blaðsíða 1
40 SIÐUR B
160. tbl. 78. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1990_________________ Prentsmiðja Morgunblaðsins
Moskvu. Reuter. DPA.
SNJÓFLÓÐ féll á alþjóðlega sveit fjallgöngumanna á Lenín-fjallinu
í Mið-Asíu með þeim afleiðingum að 40 fjallgöngumenn frá fimm
þjóðum biðu bana. Er það mesta slys í fjallgöngum í Sovétríkjunum
og fiklega í heiminum, en fregnir um að 40 manns hafi beðið bana
í snjóflóði í Himalajafjöllum árið 1952 hafa aldrei verið staðfestar.
Slysið á Lenín-fjallinu átti sér stað sl. föstudag, 13. júlí, að sögn
TASS-fréttastofúnnar.
Að sögn TASS er talið að jarð-
skjálfti hafi komið skriðunni af stað.
Féll hún á búðir 140 manna alþjóð-
legs leiðangurs fjallgöngumanna á
klettasyllu í 6.000 metra hæð í
Lenín-fjallinu með þeim afleiðing-
um að 40 leiðangursmenn biðu
bana. Af þeim sem fórust voru 27
Sovétmenn, sex Tékkar, ijórir ísra-
elar, tveir Svisslendingar og einn
Spánverji. Meðal þeirra voru
fremstu fjallgöngumenn Sovétríkj-
anna og er vitað að 23 hinna látnu
voru frá Leníngrað. Leiðangurinn
hélt á Lenín-fjallið í boði sovéskra
verkalýðssamtaka. í fyrstu var talið
að 43 hefðu beðið bana í snjóflóðinu
en samkvæmt óljósum fréttum sem
borist hafa af hinu afskekkta fjalla-
svæði er talið að þrír þeirra er lentu
í flóðinu hafi bjargast úr því.
Fjallið Lenín er 7.134 metra hátt
og er næst hæsta fjall Sovétríkj-
Snjóflóö í Sovétríkjunum
REUTHRS
SOVET-
RÍKIN
LENINFJALL
7.134m
40 fjallgöngu-
menn farast
RAN
KINA
^ afganistan
anna. Aðeins fjallið Kommúnismi
er hærra, en það er 7.495 metra
hátt. Eru bæði fjöllin í hinum svo-
nefndu Pamír-fjöllum á landamær-
um Sovétlýðveldanna Kírgísíu og
Tadsjíkístans.
Tveir íslenskir fjallgöngumenn,
Björn Ólafsson og Einar K. Stefáns-
pon, héldu 5. júlí sl. á eigin vegum
frá Moskvu áleiðis til Pamír-fjalla.
Hugðust þeir vera við æfingar þar
um slóðir fyrstu dagana og kynna
sér aðstæður áður en þeir legðu til
atlögu við fjöllin tvö, Lenín og
Kommúnisma.
Gífurlegt ijón á Filippseyjum
Reuter
Rústir þessa stórhýsis lokuðu götu í fjármálahverfi
Baguio-borgar á Filippseyjum eftir skjálftann í fyrr-
dag. Skjálftinn var mjög harður, mældist 7,7 á Richt-
er. Byggingar skemmdust víða á norðurhluta Filipps-
eyja og urðu borgirnar Baguio og Cabanatuan einna
verst úti þar sem manntjón var einnig mest.
Sjá „Rúmlega 300 manns hafa látið lífið ..“ á
bls. 16.
Samkomnlag' mn landamæri
Póllands og Þýskalands
París. Reuter.
SAMKOMULAG náðist í gær um landamæri Póllands og sameinaðs
Þýskalands í viðræðum utanríkisráðherra íjórveldanna og þýsku
ríkjanna beggja í París, hinum svokölluðu 4+2 viðræðum. Krzysztof
Skubiszewski, utanríkisráðherra Póllands, sem einnig sat fundinn
sagðist mjög ánægður með niðurstöðuna og hlyti það sama að eiga
við um Þjóðverja. Samkvæmt heimildum iíeuíers-fréttastofúnnar
verður tekið á landamæravandanum í lokasamkomulagi 4+2 viðræðn-
anna sem lagt verður fyrir leiðtogafund Ráðstefiiunnar um öryggi
og samvinnu í Evrópu í nóvember næstkomandi. Þjóðverjar og Pól-
verjar munu síðan undirrita samning um landamærin skömmu eftir
sameiningu Þýskalands í byrjun desember.
Það eru sigurvegarar heimsstyij- I Bandaríkjamenn, Bretar og Frakk-
aldarinnar síðari, Sovétmenn, | ar, sem átt hafa í viðræðum við
Útrýmingarbúðir nasista í Auschwitz:
Áætlaður fjöldi fórnarlamb-
anna minnkar um þrjá flórðu
Varsjá, Tel Aviv. Daily Telegraph.
NÝ rannsókn pólskra sagnfræðinga hefur leitt í ljós að fórnarlömh
nasista í útrýmingarbúðunum í Auschwitz voru mun færri en fyrrum
valdhafar Póllands höfðu haldið fram, eða 1,1 milljón en ekki fjórar
milljónir eins og kommúnistar sögðu. Sannað þykir að langflest
fórnarlambanna hafi verið gyðingar en samkvæmt fyrri valdhöfum
landsins voru jafti margir Pólverjar drepnir í búðunum.
Dr. Franciszek Piper, formaður
sagnfræðinefndar Auschwitz-Birk-
enau-safnsins, sagði á mánudag
að samkvæmt nýrri rannsókn hefðu
að minnsta kosti 1,3 milljónir
manna verið fluttar í útrýmingar-
búðirnar og um 223.000 þeirra
hefðu lifað af. Af þeim sem voru
drepnir voru 960.000 gyðingar,
70-75.000 Pólvetjar, 23.000
sígaunar og 15.000 , sovéskir
stríðsfangar. Piper leggur áherslu
á að fjöldi fórnarlambanna sé hér
varlega áætlaður en ólíklegt sé að
þau hafi verið fleiri en ein og hálf
milljón.
Rannsóknin rennir stoðum undir
staðhæfingar ísraelskra sagnfræð-
inga um að fyrrum valdhafar Pól-
lands hafi ýkt fjölda þeirra fórnár-
lamba sem ekki voru gyðingar. Dr.
Sahntuel Krakowsky, sem stjórnar
rannsóknum ísraela á.tilraun nas-
ista til að gereyða gyðingum, segir
að nýju tölurnar séu réttar. Hann
sakar pólska kommúnista um að
hafa reynt að gera lítið úr ofsókn-
unum á hendur gyðingum.
Krakowsky segir að nasistar
hafi drepið 5.860.000 gyðinga, að-
allega í Auschwitz og fimm öðrum
útrýmingarbúðum í Póllandi. Slíkar
búðir voru einnig í öðrurn hernumd-
um löndum nasista, svo sem Tékkó-
slóvakíu og Sovétríkjunum. Pólsku
sagnfræðingarnir segja að ekki sé
hægt að áætla fjölda fórnarlamb-
anna nákvæmlega nema með rann-
sókn á þýskum skjölum sem Sovét-
menn náðu. Sovésk stjórnvöld hafa
hins vegar neitað að skila skjölun-
um.
fulltrúa þýsku ríkjanna beggja und-
anfarið. Fjallað hefur verið um
ýmis vandamál sem tengjast sam-
einingu Þýskalands. Pólverjar
kröfðust þess að vera viðstaddir
þegar talið bærist að vesturlanda-
mærum landsins, Oder-Neisse-
línunni svokölluðu. Þau mæri voru
dregin eftir heimsstyrjöldina og
leiddu til þess að stór landsvæði sem
áður tilheyrðu Þjóðveijum féllu
Pólverjum í skaut. James Baker,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að samkomulagið sem
náðst hefði tæki á þeim ótta Pól-
veija að Þjéðverjar drægju úr hömlu
að viðurkenna vesturlandamæri
Póllands. „Þjóðveijar hafa skuld-
bundið sig til að gera samning um
landamærin svo skjótt sem auðið
er eftir sameininguna,“ sagði Baker
í gær.
Samkomulagi Helmuts Kohls,
kanslara Vestur-Þýskalands, og
Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta Sov-
étríkjanna, um aðild sameinaðs
Þýskalands að Atlantshafsbanda-
laginu (NATO) hefur víðast hvar
verið fagnað. George Bush Banda-
ríkjaforseti lét svo ummælt í gær
að báðir hefðu sýnt „afburða for-
ystuhæfileika“. Það var einungis í
austur-þýska dagblaðinu Neues
Deutschland sem kvað við annan
tón. Þar var spurt hvort ekki hefði
verið við hæfi að hafa Austur-Þjóð-
veija með í ráðum þegar samið var
um NATO-aðild landsins.
Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands og
James Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna stungu saman nefjum
í gær.
Sovétríkin:
40 mennbiðu _
bana í snjóflóði
á Lenín-flalli