Morgunblaðið - 18.07.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.07.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JULI 1990 4 t Ástkær eiginmaður minn, ÞORSTEINN GUNNARSSON frá Fornusöndum, Tunguseli 1, lést í Landspítalanum 16. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Bergþóra Haraldsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VILHELMÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Háteigsvegi 15, Reykjavík, er látin. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún María Egilsdóttir, Eli'n Kristin Egilsdóttir, Anna Þóra Sigurþórsdóttir, Hilmar Þór Sigurþórsson, Steinar Bragi Norðfjörð, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, ÖRN ARNDAL EÐVARÐSSON, Silfurgötu 46, Stykkishólmi, sem lést 14. júlí sl., verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 19. júlí kl. 14.00. Eðvarð Lárus Arnason, Anna Lára Eðvarðsdóttir, Guðni Eðvarðsson, Eyþór Eðvarðsson, Kristján Arndal Eðvarðsson, Þórdís Ásgerður Arnfinnsdóttir, og fjölskyldur. Anna Olöf Kristjánsdóttir, Ivar Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Rannveig Harðardóttir, Kristín F. Jónsdóttir, Gylfi Jónsson t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JARÞRÚÐUR SIGURRÓS GUÐMUNDSDÓTTIR frá Flateyri, Jökulgrunni 1, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, 16. júlí. Hjálmar Jónsson, Svandís Jónsdóttir, Valborg Jónsdóttir, Salóme Jónsdóttir, Guðrún R. Jónsdóttir, Birna Jónsdóttir, Magnfríður Jónsdóttir, Ólafur Jónsson, Björn Ágúst Jónsson, Jón S. Jónsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Guðbjartur Guðbjartsson, Grétar Arnbergsson, Kristinn Þórhallsson, Garðar Sigurgeirsson, Hendrik Tausen, Sólveig Jónsdóttir, Anna María Sigurðardóttir, Eiginkona mín, HELLA NETTKE JÓNSSON, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimrhtudaginn 19. júlíkl. 13.30. Bjarni Jónsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG SIGVALDADÓTTIR kaupmaður, Reynihvammi 6, Kópavogi verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 19. júlíkl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Einar Þorvarðarson, Guðlaug Einarsdóttir, Magnús Agnarsson, Herdís Einarsdóttir, Oddur B. Grímsson, Þorvarður Einarsson, Guðbjörg Halldóra Ólafsdóttir, Sigvaldi Einarsson, Guðlaug Birgisdóttir og barnabörn. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför HANS ÓLAFSSONAR, Flatahrauni 16a, Hafnarfirði. Guð blessi ykkur öll. Aðstandendur. Guðrún Odds- dóttir - Minning’ Fædd 19. júní 1909 Dáin 9. júlí 1990 Látin er eftir langvarandi veikindi Guðrún Oddsdóttir, sómakona mik- il. Einkennilegt er hvað dauðinn kemur okkur alltaf jafnmikið á óvart. Það eina sem við göngum að vísu í þessu lífi er að einhvern tíma deyjum við öll. Þannig varð mér innanbijósts þann 10. júlí þegar Sólveig vinkona mín hringdi í mig og tjáði mér lát móður sinnar. Ég átti ekki von á þessum frétt- um, hvorki þennan dag né öll hin skiptin, er Sólveig hringdi eða vitj- aði mín, það var hún svo oft búin að gera, þar sem ég hef átt við veikindi að stríða síðustu mánuði. Ég settist niður og minningarnar hrönnuðust upp. Við vorum búnar að vera vinkonur við Solla frá því við vorum krakkar. Ég var alltaf eins og heimagangur á Miklubraut- inni og Guðrún nafna mín var ekki allra, en mér, þessu trippi sem ég var á þessum árum, tók hún mjög vel og var ég nánast eins og ein af börnum hennar. Til marks um góðmennsku Guðrúnar sem leyndist sumum undir hijúfu yfirborði, tóku hún og Guðmundur mig að sér og þótti ekkert sjálfsagðara, þegar móðir mín lenti í húsnæðishraki um tíma með þtjár dætur. Lengst af bjuggu þau á Miklu- braut 78 og síðan Hjallalandi 1 í Reykjavík. Þegar ég bjó hjá þeim vann ég í sjoppu á kvöldin fram til miðnættis og það brást ekki, að þegar ég kom heim á kvöldin, þá var Guðrún í eldhúsinu að baka, smyija ofan í kallana sína fyrir næsta dag, sauma fötin á fjölskyld- una, stoppa eða bæta. Henni féll aldrei verk úr hendi meðan hún hafði heilsu til. Og fá heimili og afkomenda hennar skarta öðrum eins hannyrðum og útsaum sem hún afkastaði. Þessa hæfileika hefur Solla vinkona mín erft í ríkum mæli frá móður sinni. Alltaf var ég velkomin á þetta góða heimili öil árin sem á eftir fóru og gátum við nafna mín spjallað saman um allt milii himins og jarðar þrátt fyrir mikinn aldursmun. Og þegar börnin fóru að tínast í heiminn voru þau jafnvelkomin og ég og fundu það vel því alltaf voru þau að fara í Hjallalandið. Ég á bara góðar minningar um þessa stórbrotnu konu sem alltaf hafði tíma fyrir mig hvernig sem á stóð. Aldrei vitjaði ég hennar sjúkr- ar, ég hreinlega treysti mér ekki til þ ess að horfa upp á hvernig veikind- in léku þessa góðu konu grátt. Nokkrum dögum fyrir andlát henn- ar ók ég niður á Skólavörðustíg og sá hana sitja í hópi sjúklinga og hjúkrunarfólks og ákvað að nú þýddi enginn aumingjaskapur og ætlaði að drífa bílinn í stæði og fara til hennar. Svo flugu þessar afsakanir í gegnum hugann, æ hún þekkir mig ekki, ég fer seinna. En svona fór þetta. Þetta minnir okkur hast- arlega á að bíða ekki til morguns með að vitja sjúkra og aldraðra því oft verður það of seint. Ég þakka Guðrúnu nöfnu minni allt sem hún var mér óhörðnuðum unglingi og síðar fullorðinni konu og það vegar- nesti sem ég fékk með mér út í lífið frá henni. Elsku Guðmundur, Örn, Valur, Sævar og Solla vinkona mín og börn þín, Þröstur sem bjó hjá ömmu fyrstu ár ævi sinnar, Guðrún dóttir þín og tengdabörn og aðrir ættingj- ar, ykkur sendi ég hugheilar samúð- arkveðjur með þökk fyrir allt og vissu um góða heimkomu Guðrúnar. Sem móðir hún býr í bamsins mynd það er hennar ættarmerki. Svo streyma skal áfram lífsins lind, þó lokið só hennar verki. Og víkja skal hel við garðsins grind því guð vor, hann er sá sterki. Af eilífðarijósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson) Guðrún Sólveig (Dollý) Guðrún Nikulás- dóttir — Kveðjuorð Fædd 4. ágúst 1916 Dáin 27. júní 1990 Þegar við bræðurnir fengum þær fréttir að amma Gógó, Guðrún Nik- ulásdóttir, væri dáin fylltumst við mikilli sorg og söknuði. Þessi kona sem maður hafði svo mikið dálæti á tekin í burtu á einu andartaki. Amma hugsaði ávallt svo mikið um okkur börnin og vildi allt fyrir okk- ur gera. Það gladdi hana mikið þeg- ar við komum í heimsókn til hennar í Drápuhlíðina. Þá sagði hún okkur sögur sem hún kunni ógrynni af. Amma hafði þennan eiginleika að geta sagt sögur þannig að maður gjörsamlega hreifst með. Amma gerði aldrei upp á milli manna og þess vegna líkaði öllum þeim sem þekktu til hennar vel við hana. Hún var ætíð svo glaðlynd og kát að við krakkarnir litum frek- ar á hana sem góðan vin en eldri konu. Hún skildi mann alltaf og virtist kunna vel við flest áhugamál okkar krakkanna. Hún gladdist þeg- ar okkur leið vel og leið illa þegar við vorum eitthvað kvíðin eða sorg- mædd. Amma Gógó vissi fátt skemmti- + Astkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Neskaupstað, Suðurgötu 15, Keflavík, sem lést 12. júlí, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardag- inn 21. júlí kl. 14. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjúkrahús Keflavíkur. Friðrik L. Karlsson, Lúðvík K. Friðriksson, GunnarJ. Friðriksson, Bergljót Grímsdóttir, OddurG. Friðriksson, Vigdis Karlsdóttir og barnabörn. + Alúðar þakkir flytjum við öllum þeim, sem á margvíslegan hátt heiðruðu minningu eiginkonu minnar, móður, stjúpmóður og ömmu okkar, PÁLÍNU KRISTJÖNU GUÐJÓNSDÓTTUR, Skipasundi 6, Reykjavík. Sérþakkir til söngfélaga úr karlakórnum Fóstbræðrum fyrir veitta aðstoð. Guðs blessun fylgi ykkur öllum í bráð og lengd. Runólfur Elínusson frá Heydal, Sigurhanna Óladóttir og börn, stjúpbörn og stjúpbarnabörn. legra en að ferðast og skoða sig um. Hún elskaði landið sitt og ferðaðist þess vegna mikið innanlands. Þá fór hún nokkuð oft út fyrir landsteinana og heimsótti ijölda landa. Þessi yndislega kona skilur eftir sig mikia ást og hlýju sem við mun- um aldrei gleyma. Þess vegna lang- ar okkur að kveðja ömmu Gógó með þessu fallega versi: Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Nonni og Grétar Kveðja til systur minnar. Ég veit þú hefur sagt mér að herða huga minn. . Ég hugga mig, sem best til að gera vilja þinn. Ég geymi hvert þitt bros [ minning minni. Ég man og skal ei gleyma návist þinni. •Ég vildi, ég gæti fléttað, þér fagran minniskrans. En fyrir augum skyggja heitu tárin. Svo, vertu sæl mín systir, í faðmi fannklædds lands þú frið nú átt. Við minninguna og sárin. (Hannes Hafstein.) Guð geymi systur mína. Anna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.