Morgunblaðið - 18.07.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1990
5
Iðnaðar-
ráðherra
í Kanada
JÓN Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, fór í gær til
Kanada til þess að ræða við þar-
lend stjórnvöld í Ottawa og ráð-
herra orku- og iðnaðarmála í
Quebec-fylki um sameiginleg
hagsmunamál m.a. varðandi við-
skipti orkuríkra landa við fjöl-
þjóðafyrirtæki sem kaupendur
að orku til stóriðju að því er seg-
ir í frétt lrá iðnaðarráðuneytinu.
Með ráðherra í för verða Halldór
J. Kristjánsson, skrifstofustjóri í
iðnaðarráðuneytinu og Jóhann Már
Maríusson, aðstoðarforstjóri Lands-
virkjunar. Pundirnir verða í Ottawa
á miðvikudajg og í Montreal á
fimmtudag. A föstudag mun iðnað-
arráðherra þiggja boð Quebec-
manna um að skoða eitt fullkomn-
asta álver í Kanada að Becancour
í Quebec-fylki og ræða þar við
stjórnendur og starfsmenn. Álverið
framleiðir um 200.000 tonn af áli
árlega og er að mörgu leyti sam-
bærilegt álverinu sem Atlantsálaðil-
arnir hyggjast reisa og reka hér á
landi.
MorgrinblaðifVEyjólfur M. Guðmundsson
Jóhanna Reynisdóttir sveitar-
stjóri í Vogum.
Vogar:
Jóhanna
Reynisdótt-
ir ráðin sveit-
arstjóri
Vogum.
VIÐ fyrstu kynni af starfinu virð-
ist það mjög fjölbreytt og áhuga-
vert,“ sagði Jóhanna Reynisdótt-
ir, sem hefur verið ráðin sveitar-
stjóri í Vogum, „annars er lítið
um það að segja eftir aðeins einn
dag í starfi.“
Jóhanna er 32 ára, gift Ólafí E.
Ólasyni, en er barnlaus. Hún starf-
aði í Verslunarbankanum í
Keflavík, sem síðar varð Islands-
banki, í níu ár, þar af útibússtjóri
í tvö og hálft ár.
• Hún segir Vatnsleysustrandar-
hrepp í örum vexti og að sínu mati
sé staðsetning hreppsins góð. Á
síðasta ári var 5% íbúafjölgun sem
er yfir landsmeðaltali.
Áðaiverkefnin framundan segir
hún vera leikskólann, höfnina og
vatnsveituna. Jóhanna segir að
stefnt verði að lýmri opnunartíma
á skrifstofu en verið hefur og seg-
ist munu þjóna hreppsbúum eftir
bestu getu.
Sumarbú-
staður
brennur í
Borgarfirði
SUMARBÚSTAÐUR við Gufuá
í Borgarfírði brann fyrir
skömmu.. Fólk sem hafði verið
í bústaðnum hafði brugðið sér
frá og stóð bústaðurinn í björtu
báli þegar það kom til baka.
Slökkviliðið frá Borgarnesi kom
fljótleg á vettvang, og slökkti í
rústunum. Eldsupptök eru ókunn.
Þú getur stólað
á sparísjóðina
Frelsi og sjálfstæði - lipurð og sveigjanleiki eru
fjögur lýsandi orð yfir starfsemi og þjónustu
sparisjóðanna í landinu. Hver og einn þeirra
starfar sem frjáls og öháð eining í þágu ein-
staklingsins og byggðarlagsins, trúr þeirri
stefnu að stuðla að eflingu mannlífs og at-
vinnuvega á sínu starfssvæði.
Sparisjóðirnir, allir sem einn, leggja áherslu á
persónulega þjónustu þar sem lipurð og sveigj-
anleiki ráða ferðinni enda eru hagsmunir
byggðarlagsins hagsmunir sparisjóðsins. Þann-
ig kemur hver króna geymd í sparisjóðnum við-
komandi byggðarlagi til góða.
SPARISJÓÐIRNIR
fyrir þig og þína
- EG.
AUK/SiA