Morgunblaðið - 18.07.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JULI 1990
2Sj
Við gróðursetningu fyrstu tijánna hjá Hótel Sögu. Auk brúðhjónanna eru nokkrir aðstandendur þeirra
á myndinni og forsvarsmenn hótelsins.
*
SKATAR
Fá eiginhandaráritanir
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, var viðstödd hátíðarsamkomu
á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni laugardaginn 7. júlí. Á samkomunni
flutti Gunnar Eyjólfsson, skátahöfðingi, ávprp og séra Ólafur Skúla-
son, biskup flutti blessunarorð. Eftir samkomuna gróðursettu forsetinn
og forystumenn skátahreyfingarinnar tré í nágrenni Krossins en móts-
gestir sáu um gróðursetningu í brekkunni. Þá fékk forsetinn það verk-
efni að gefa yngri kynslóðinni áritanir í mótsbækur sínar. Eins og sjá
má styðst hún við bök krakkanna þegar hún áritar bækurnar.
Kókostréð vakti mikla athygli.
HOTELSAGA
Brúðhjónum gefið tré
Sú nýbreytni var tekin upp á Hótel
Sögu síðastliðið haust að afhenda
þeim brúðhjónum sem halda veislu
á hótelinu tré til minningar um
brúðkaupsdaginn. Tré þessi eru
síðan gróðursett í sérstökum reit
fyrir austan hótelið og eru þau
merkt brúðhjónunum og dagsetn-
ingu brúðkaupsdagsins.
Gróðursetning þeirra tijáa sem
afhent hafa verið síðastliðinn vetur
og vor fór fram þann 23. júní. Flest
hjónanna voru viðstödd en nokkur
voru enn í brúðkaupsferðinni.
Haldið verður áfram að afhenda
brúðhjónum tré og á þeim laugar-
degi sem næstur er Jónsmessu verð-
ur hjónunum boðið að aðstoða við
gróðursetningu tijánna og sömu-
leiðis að skoða vöxt tijánna þegar
fram líða stundir.
HARGREIÐSLA
Sýning í Hallarlundi
Veitingastaðurinn Hallarlundur, í
samvinnu við hárgreiðslu og förð-
unarmeistara í Vestmannaeyjum,
efndi fyrir skömmu til stór-
skemmtilegrar sýningar. Sýndar
voru hinar ýmsu greiðslur meist-
aranna og förðunarfólkið lét sitt
ekki eftir liggja til að gera sýning-
una líflega.
Hljómsveitin Stjórnin lék fyrir
matargesti en síðan tók hár-
greiðslusýningin við. Flestir hár-
greiðslumeistarar Eyja sýndu list-
ir sínar við greiðsluna og förðun-
armeistarar máluðu sýningar-
stúlkurnar á eftirmynnilegan hátt.
Sigurgeir var á staðnum og
festi á filmu það sem fram fór.
Grímur
Nokkrir hárgreiðslumeistar-
anna greiða módelum sínum.
Morgunblaðið Sigurgeir Jónasson
Dreifing: MATA, Sundagörðum 10, sími 91-681300
PayDay
með söltuðum
hnetum,
engu öðru
likt.
PayDay
hefur svo
sannarlega
slegið i gegn.
Pað gera söltu
hneturnar.
RENAULT19
STYRKUR OG TILÞRIF. Njóttu þess að aka á einstaklega skemmtilegum fólksbíl: vökva- og
veltistýri, fjarstýrðar samlæsingar, litað gler, rafdrifnar rúður, tvískipt og fellanleg aftursæti
(V3—^/3), 3 eða 5 dyra, öflug og sparneytin 92 hestafla vél, 5 gírar, framdrif og frábær fjöðrun
og aksturseiginleikar. Bíll ársins 1990 í Danmörku, írlandi og Noregi. Hannaður í háborg tísk-
unnar, París. Renault 19 GTS og TXE. Staðgreiðsluverð frá 845.000,- kr. skv. tollgengi í júní
1990. 3ja ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á ryðvörn.
RENAULT
Bílaumboðið hf
Fer á kostum
KRÓKHÁLSI 1, REYKJAVlK.SlMI 686633
*