Morgunblaðið - 18.07.1990, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JULI 1990
7
Morgunblaðið/Árni Helgason
Flug-vélin sem lenti á flugvellinum í Stykkishólmi, eftir að hafa
hreppt mótvind og hrakist af leið, á ferð sinni frá Kanada til
Reykjavíkur.
Feijuflugvél
hraktíst af leið
Stykkishólmi.
EINS hreyfils flugvél af gerðinni Cessna 180, DH-OHC lenti á Stykk-
ishólmsflugvelli laugardagskvöldið 14. júlí sl. eftir að hafa hreppt
mótvind og hrakist af leið á ferð sinni frá Kanada til Reykjavíkur.
Flugmaðurinn John W. Stewart,
var að ferja flugvélina frá Banda-
ríkjunum til Finnlands. Þegar hon-
um varð ljóst að ferðin tæki lengri
tíma enn hann hugði og eldsneyti
var af skornum skammti, bað hann
um aðstoð.
Flugvél Flugmálastjórnar fór þá
til móts við vélina og leiðbeindi
henni til lendingar. Þór Sigurðsson
sem nú gegnir um stundarsakir
flugvallarstjórn í Stykkishólmi var
alltaf í viðbragðsstöðu og leiðbeindi
á flugvöllinn hér.
Flugmaðurinn fór til Reykjavíkur
með þeim á flugvél Flugmálastjórn-
ar að ná í bensín.
Áður hafði lögreglunni í Stykkis-
hólmi og björgunarsveitinni verið
gert viðvart og voru báðir aðilar í
viðbragðsstöðu.
Að sögn flugmannsins átti vélin
eftir eldsneyti sem svaraði til 10
mínútna flugs, þegar lent var.
Upphaflega var ætlað að lenda
á flugvellinum í Rifi, en vegna veð-
urs var það ekki hægt.
Eftir að eldsneyti hafði verið út-
vegað gat flugmaðurinn haldið
áfram för sinni. - Árni
Skattaleg meðferð aflakvóta:
Svör ríkisskattstj óra
í ósamræmi við lög
- segir Björgúlfiir Jóhannsson endurskoðandi
BJÖRGÚLFUR Jóhannsson, endurskoðandi hjá Endurskoðun Ak-
ureyrar hf. telur að í svari ríkisskattstjóra við fyrirspurnum um
skattalega meðferð aflakvóta felist ósamræmi við lög um stjórnun
fiskveiða.
„Ég er sammála því að það
þarf að setja einhveijar reglur um
þetta atriði. Hins vegar finnst mér
svör ríkisskattstjóra í ósamræmi
við kvótalöggjöfina sjálfa. í fyrstu
grein þeirrar löggjafar segir að
fiskimiðin séu sameign íslensku
þjóðarinnar. Ennfremur kemur
fram í lögunum að úthlutuð veiði-
réttindi samkvæmt lögum þessum
mynda ekki eignarrétt eða óaftur-
kallanlegt forræði einstakra aðila
yfir veiðiheimildum. Ég átta mig
því ekki á því hvemig skattayfir-
völd geta fyrirskipað aðila að eign-
færa eitthvað^ sem er sameign
þjóðarinnar. Á híinn bóginn er
heimild í kvótalögunum fyrir aðila
sem hefur fengið úthlutað réttind-
um að selja þau. Þá kemur að því
vandamáli að ef útgerðaraðili
kaupir þessi réttindi hefur þá ríkið
heimild til að skerða þau eins og
hefur gerst?“ sagði Björgúlfur.
Björgúlfur sagðist telja eðlilegt
að kaup á slíkum réttindum af-
skrifuðust á gildistíma laganna.
Hann benti á að þeir aðilar sem
kaupa aflakvóta vita ekki hvort
kvótalögin gildi lengur en til 1992.
Þá gætu verið komnar allt aðrar
reglur.
„Stefnt er að því í síauknum
mæli að koma á auðlindaskatti.
Með nýju kvótalögunum og til-
Tómas Guðjónsson segir að starf-
semi Húsdýragarðsins hafi gengið
mjög vel. Áðsóknin hafi verið góð
og ekki hafi komið upp nein telj-
andi vandamál í sambandi við dýr-
in. Jafnframt bendi reynslan til
þess að vel hafi tekist til við hönn-
un garðsins.
Að meðaltali komi um 100 manns
í garðinn á hverri klukkustund á
virkum dögum og fleiri um helgar.
komu Hagræðingarsjóðs er búið
að taka 12.000 þorskígildi sem á
að selja. Þau eru tekin frá þeim
mönnum sem hafa verið að kaupa
aflaréttindi að hluta til. Mér finnst
ríkisskattstjóri einfalda málið
mjög mikið,“ sagði Björgúlfur.
Mikið sé um að hópar skoði garðinn
og að jafnaði komi 5 til 6 hópar
yfir daginn.
Tómas segir, að dýrategundum
í garðinum hafi íjölgað nokkuð frá
opnun hans, einkum hafi bæst við
tegundir smádýra. Búast megi við
að eftir eitt eða tvö ár verði reynsl-
an af starfseininni skoðuð og metið
hvort garðurinn verði stækkaður.
Húsdýragarðurinn í Laugardal:
40 þúsund gestir
frá opnun í maí
ALLS hafa 40 þúsund gestir skoðað Húsdýragarðinn í Laugardal frá
opnun hans 19. maí í vor, en að sögn Tómasar Guðjónssonar forstöðu-
manns garðsins var gert ráð fyrir að aðsóknin yrði milli 40 og 80
þúsund manns á ári.
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
k
<0
h
o
Vlv^SUIVl OÐRUM V
/VUKUG4RÐUR
MARKAÐURVIÐSUND
UTSALA UTSALA-UTSALA UTSALA UTSALA -UTSALA- UTSALA