Morgunblaðið - 18.07.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1990
15
samningurinn kveður á um. Síðan
kemur til samdráttar í mannahaldi
vegna áðurnefndra fjárfestinga. Við
vonum að niðurstaðan verði sú að
nokkrum árum liðnum að ísal stand-
ist samanburð við álver í Mið-Evr-
ópu hvað framleiðni snertir." Að
sögn Roths hafa starfsmenn álvers-
ins verið reiðubúnir að taka þátt í
þeim breytingum á mannahaldi sem
samningurinn í vor fól í sér og seg-
ir hann að fullyrðing sín frá því í
mars um að sumir vinni ekki meira
en 2-3 stundir á dag eigi ekki leng-
ur við.
Roth er spurður nánar út það
hvað hann eigi við með samdrætti
í mannahaldi. „Þar kemur tvennt
til. Við fækkum yfirvinnustundum
en yfirvinna hefur veriðAnjög mikil
hjá ísal og við fækkum starfsfólki.
Fækkun á starfsfólki verður fyrst
og fremst þannig að ekki verður
ráðið í störf sem losna. Þess má
geta að hjá ísal eru 129 starfsmenn
sem eru eldri en 61. Þegar þeir láta
af störfum þá ætlum við að reyna
að komast hjá því að ráða í þeirra
störf. Yfírvinnustundum hefur nú
þegar fækkað miðað við það sem
áður var og við það hefur vinnuslys-
um fækkað hjá okkur.“
Það kemur fram í máli Binkerts
að stjórn Alusuisse treysti því þegar
hún ákveði auknar fjárfestingar í
ísal að verkalýðsfélög standi við
gerða samninga um fækkun starfs-
manna og þar af leiðandi aukna
framleiðni. Hann segir þó að sam-
skipti við verkalýðsfélög séu alfarið
á herðum stjórnenda á hverjum stað.
Roth bætir því við að hann vonist
til þess að eftir þijú verkföll á
skömmum tíma muni nú líða a.m.k.
eitt ár án þess að til verkfalla komi
hjá ísal!
Stækkun kemur ekki til greina
Eins og kunnugt er ákvað Alu-
suisse í lok síðasta árs að draga sig
út úr Atlantalhópnum svokallaða
sem unnið hefur að undirbúningi
nýs álvers hér á landi. Binkert er
spurður hvers vegna Alusuisse hafi
tekið þessa afstöðu.
„Sú ákvörðun var mjög erfið,“
segir Binkert. „í tvö ár hafði verið
unnið að umfangsmikilli hag-
kvæmnisathugun. Við'gerðum okk-
ur jafnframt grein fyrir óskum ríkis-
stjórnar íslands. En við komumst
að þeirri niðurstöðu að miðað við
álverð og þá verðþróun sem við
sáum fyrir væri þetta verkefni ekki
fjárhagslega veijandi. Hins vegar
lögðum við á það áherslu að þessi
afstaða kæmi starfsemi ísals ekkert
við. Við ætlum okkur að gera ísal
samkeppnisfært við keppinautana á
meginlandinu." Roth bætir því við
að hér hafi eingöngu ráðið efna-
hagsleg viðhorf. „Við reiknuðum út
að ef við tækjum þátt í að reisa
álver með Atlantalhópnum myndi
framleiðslan kosta okkur það mikið
að við gætum ekki fengið viðunandi
verð fyrir hana. Við þurfum heldur
ekki á hrááli að halda því við höfum
náð því að framleiða 70% af því
hrááli sem við notum. Komist
Atlantalhópurinn engu að síður að
þeirri niðurstöðu að þetta borgi sig
bjóðum við þá velkomna og við erum
reiðubúnir að bjóða þeim afnot af
þeirri uppbyggingu sem við höfum
staðið að hér á landi,“ segir Roth.
PÞ
Svíar segjast
ekki losa kjarn-
orkuúrgang
í Eystrasalt
„ÞAÐ er ekki rétt að Svíar losi
sig við geislavirkan úrgang frá
kjarnorkuverum í Eystrasalt,"
sagði Manne Wangborg, sendi-
ráðsritari í sænska sendiráðinu, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Það eru til alþjóðlegar samþykkt-
ir gegn því að geislavirkur úrgangur
sé losaður í sjó og Svíar hafa haldið
sig við þær.“ Júlíus Sólnes hefur
sagt í fjölmiðlum að orðrómur sé á
kreiki um að Svíar losi sig við kjarn-
orkuúrgang með ólögmætum hætti
og þess vegna kunni þeir að hafa
slæma samvisku.
Deila Bíró-Steinars og Sess hf.:
Lögbannskrafan tekin til greina
Ekki endanleg mðurstaða, segir Guðm Jonsson
BORGARFÓGETI hefur tekið til greina, gegn 3 milljóna króna trygg-
ingu, kröfú Bíró-Steinars hf. um að lagt verði lögbann við því að
Guðni Jónsson taki þátt í rekstri eða veiti forstöðu fyrirtækinu Sess
hf. fram til 1. desember 1992 meðan það fyrirtæki sé í beinni sam-
keppni við þann rekstur sem Bíró hf. keypti af Guðna og öðrum
fyrri eigendum Stálhúsgagnagerðar Steinars þann 1. desember
síðastliðinn.
Þá er lagt lögbann við því að
Guðni falist eftir, hagnýti eða haldi
áfram að hagnýta sér persónulega
eða í þágu annarra tit'sama tíma
ákveðin erlend viðskiptasambönd,
sem innifalin_ hafi verið í sölu á
fyrirtækinu. I kaupsamningi aðil-
anna skuldbundu fyrri eigendur sig
til að falast ekki eftir erlendum við-
skiptasamböndum fyrirtæksiins í 3
ár og að veita kaupendum aðstoð
við að tryggja fyrirliggjandi við-
skiptatengsl og óbreyttan rekstur.
Lögbannskrafan var lögð fram þeg-
ar Guðni hafði tekið við starfi fram-
kvæmdastjóra Sess hf. og það fyrir-
tæki hafði öðlast umboð fyrir tvö
þeirra erlendu fyrirtækja sem áður
höfðu verið í viðskiptum við Stál-
húsgagnagerð Steinars.
Borgarfógeti, Valtýr Sigurðsson,
hafnaði kröfu um að lögbann yrði
einnig lagt við því að Guðni veiti
forstöðu eða taki þátt í rekstri ann-
arra sambærilegra fyrirtækja.
í yfirlýsingu serri Guðni Jónsson
hefur sent frá sér segir að ekki sé
fengin endanleg niðurstaða í málið.
Lögbann sé bráðabirgðaaðgerð sem
ekki kreíjist þess að fram sé færð
lögfull sönnun. Guðni segist furðu
lostinn vegna þeirrar ákvörðunar
fógeta að banna sér að taka þátt í
rekstri Sess þar sem hann sé starfs-
maður en ekki eigandi. Hann segir
málið þannig til komið að í höridum
nýrra eigenda hafi Steinars hafi
glatast tvo umboð til annarra sam-
keppnisaðila en Sess og þau umboð
sem nú séu á höndum Sess en hafi
áður verið hjá Steinari hafi flust á
milli að frumkvæði hinna erlendu
framleiðenda, sem ekki hafi séð
hagsmuni sína tryggða með áfram-
haldandi viðskiptum við hina nýju
eigendur.
Hvaðer
Armaflex
Það er heimsviðurkennd
pípueinangrun i hólkum,
plötum og límrúllum frá
(A)-mstrong
& Ávallt tilá lager.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Múlatorgi - Sími 38640
mm
ni.ixLdA HF
Laugavegi 170-174 Sími 695500
iMáiI
..ER FUIEMI Iflll
Yfirbyggingin er teiknuð af hinum ítalska
snillingi Giugiario.
..IR SIIICKLEGA
llÍlÉTTáÍll BÍUl
Öll innri hönnun er verk þýska meistarans
Karmann.
..El Tmuu «El
lÍINN lilll
Hreyfill, gírkassi og drifbúnaður kemur frá hinum
rómuðu Porsche verksmiðjum í Þýskalandi.
..ER iltl ifUI
Enda kostar hann aðeins frá