Morgunblaðið - 18.07.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JULI 1990
Reuter
Ungversk kona situr hrygg yfir syni sínum, sem slasaðisí þegar Hyatt-hótelið í Baguio hrundi í jarð-
skjálftanum sem reið yfir Filippseyjar á mánudag.
Jarðskjálftinn á Filippseyjum:
Rúmlega 300 manns hafa
lífið og 600
Baguio. Reutcr.
JARÐSKJÁLFTINN, sem reið yfir norðurhluta Filippseyja á
mánudag og var 7,7 stig á Richters-kvarða, hefur kostað yfir
300 mannslíf og meira en 600 manns hafa slasast. Enn er fólk
lokað inni í byggingum sem hrundu í borgunum Baguio og
Cabanatuan og minnka líkurnar sífellt á að það finnist á Hfi.
Kúba:
Andófsmenn
setjastaðí
sendiráði Itala
Havana. Reuter.
FJÓRIR ungir Kúbverjar klifr-
uðu í gær upp á þak bústaðar
ítalska sendiherrans í Havana
á Kúbu og báðu um pólitískt
hæli. Lögregla umkringdi þeg-
ar bústaðinn; sendiherrann var
erlendis og fátt manna á staðn-
um. Á mánudagskvöld gáfúst
12 Kúbveijar, sem sest höfðu
að í sendiráði Tékkóslóvakíu,
upp skilyrðislaust en þeir höfðu
krafist ferðafrelsis.
Kúbversk stjórnvöld hétu mönn-
unum tólf því að þeir slyppu við
refsingu ef þeir gæfust upp.
Nokkrir þeirra höfðu hótað að
sprengja sendiráðið í loft upp yrði
ekki gengið að kröfum þeirra.
Þrír Kúbverjar halda til í
spænska sendiráðinu og enn halda
fimm manns fyrsta sendiráðsritara
tékkneska sendiráðsins í gíslingu
í bústað hans. Ekki er ljóst hvort
gripið verður til aðgerða gegn
þeim. Stjórnvöld kommúnista
sögðu andófsmennina vera
„síbrotamenn“ og „flækinga."
■ KÖLN. Verkamönnum, sem
viðhalda þaki St. Péturskirkjunnar
í Köln, létti mjög þegar þeir fengu
loksins salernisaðstöðu á vinnustað
sínum fyrir skemmstu. Blaðið Bild
kallaði náðhúsið „dýrasta klósett
Þýskalands" en því er komið fyrir
undir þaki kirkjunnar, er með upp-
hituðu gólfi og heitu rennandi vatni
og kostaði rúmar níu milljónir ISK.
Fyrir utan salernið fá verkamenn-
imir á þakinu og hinum 160 metra
háu turnum kirkjunnar einnig mat-
sal undir þakinu. Erwin Woyke
verkstjóri, sem unnið hefur í 37 ár
að viðhaldi kirkjunnar sagði að
hingað til hefðu hann og vinnufé-
lagar hans eytt mörgum dögum
samtals á ári hverju í að komast á
salerni niðri í skrúðhúsinu eða á
vinnusvæðinu.
■ BONN. Bandarískir hermenn í
Vestur-Þýskalandi mega nú
ganga með eymalokka, en aðeins
þegar þeir eru ekki á vakt. Banda-
ríski flugherinn hefur, að sögn hins
óopinbera málgagns ameríska hers-
ins, Stars and Stripes, breytt regl-
um sem settar vom 1985 og bönn-
uðu karlmönnum í hemum að
ganga með eyrnalokka í frítíma
sínum. Hermönnum er enn bannað
að ganga með eymalokka þegar
þeir em klæddir einkennisbúning-
um, þrátt fyrir að konur í þjónustu
flughersins megi ganga með skart-
gripi hvort sem þær eru á vakt eða
ekki.
■ FLÓRENS. Hundruð ítala á
leið í sumarfrí óku framhjá grát-
andi sex ára gamalli stúlku Va-
nessu, sem var að leita hjálpar fyr-
ir deyjandi föður sinn. Faðir stúlk-
unnar, Marco Moretti, fékk
hjartaáfall á sunnudag, þar sem
hann sat undir stýri á leið á strönd-
ina í Toscana-héraði. Honurn tókst
að stýra bílnum út í kant. Lögreglu-
menn sögðu að þótt Vanessa hefði
hvað eftir annað fokið um koll í
vindhviðum frá hraðfara bílum
hefði hún gengið tvo kfiómetra að
vegatollstöð eftir hjálp. Tollheimtu-
menn sendu sjúkrabíl að bíl föður
hennar, sem fannst látinn við stýrið.
■ SOFÍU. Sovésk hjón hafa í
fyrsta skipti í sögu Sovétríkjanna
beðist hælis sem pólitískir flótta-
menn í Búlgaríu, en Búlgarir eru
einir traustustu bandamenn Sovét-
manna. Frá þessu var skýrt í búlg-
arska flokksblaðinu Douna á mánu-
dag. German Djulaev og Julia Tan-
ashtuk frá Krasnodar við Svarta
hafið vom í hópferð um Búlgaríu.
Þau reyndu fyrst að korrlast inn í
sendiráð Grikklands en var mein-
aður aðgangur vegna þess að þau
höfðu ekki tilskilin skjöl meðferðis.
Hjónin sögðust vonast til að eins
árs barn þeirra kæmi á eftir þeim
frá Sovétríkjunum ef þeim yrði veitt
pólitískt hæli í Búlgaríu.
A.m.k. 95 manns létust í Bagu-
io, einum vinsælasta ferðamanna-
stað Filippseyja, sem er u.þ.b. 200
km fyrir norðan Manila, þegar 4
hótel, háskólabygging og fata-
verksmiðja hrundu. 30 starfsmenn
létust einnig í gullnámu fyrir sunn-
an borgina. Snarpir eftirskjálftar
hafa fundist og hefur fólk haldið
sig utandyra í Baguio af hræðslu
við afleiðingar þeirra. Stórar
sprungur mynduðust í flugbrautir
við Baguio og hafa engar flugvél-
ar getað lent þar. Flytja þarf því
hjálpargögn með þyrlum til borg-
arinnar. Vatnsskortur var í gær
orðinn tilfinnanlegur og átti að
reyna að opna vatnsbíium leið til
borgarinnar en vegir lokuðust víða
í skjálftanum.
í Cabantuan krömdust 39 börn
til bana þegar skólabygging
hmndi. Rúmlega 100 nemendum
hefur verið bjargað úr rústum
menntaskóla í borginni sem hrundi
en 50 til 100 nemendur em enn
grafnir undir þeim. Sumum hefur
tekist að koma bréfmiðum með
nöfnum sínum út til björgunar-
manna, aðstandendum til mikillar
gleði.
Bandarískar björgunarsveitir
komu með þefhunda og björgunar-
tæki til Filippseyja í gær, Japanir
sendu tæknibúnað og einnig
bauðst hjálp frá mörgum öðrum
löndum. Hjálparstarf er erfitt
vegna hættu á frekara hruni þeg-
ar hreyft er við rústunum og skort-
ur á tjökkum og tækjum til að
lyfta steypubrotum og málmbút-
um hefur einnig hamlað því mjög.
Víetnam:
Ódýrt vimiii-
afl til Sovét-
ríkjanna
Bangkok. Reuter.
VÍETNAMAR hafa gert nýjan
samning við Sovétmenn, nánustu
bandamenn sína, um útflutning á
ódýru vinnuafli, að sögn opin-
beru fréttastofunnar í Víetnam.
Fréttastofan segir einnig að Víet-
namar og Sovétmenn hafi undirrit-
að uppkast að samningi um að
lífskjör víetnámskra verkamanna í
Sovétríkjunum verði bætt á næstu
fimm árum.
„Sovésk yfirvöld skýrðu nýlega
víetnömsku samninganefndinni frá
því að engar breytingar yrðu á
næstu fimm árum á þörfinni fyrir
víetnamska starfsmenn í léttum
iðnaði, vefnaðarverksmiðjum og
byggingarfyrirtækjum I suður- og
norðurhluta landsins," segir frétta-
stofan.
Ráðamenn í löndunum tveimur
hafa reynt að koma nýrri skipan á.
tengsl ríkjanna eftir að stjórnin í
Hanoi hafnaði þeim stjórnmálaum-
bótum sem orðið hafa í Sovétríkjun-
um og Austur-Evrópu. Hún hefur
einnig sagt að viðskipti ríkjanna
verði í framtíðinni aðeins byggð á
hagnaðarsjónarmiðum.
Meira en 80.000 Víetnamar
starfa í Sovétríkjunum.
■ CANBERRA. Slátra þarf millj-
ónum ástralsks fjár vegna minnk-
andi eftirspurnar eftir ull, tapaðra
kjötmarkaðra og þurrka, að sögn
bænda og yfirvalda í landinu. Áætl-
að er að slátra þurfi nokkrum millj-
ónum dýra til að minnka fjölda fjár,
sem opinberlega er áætlaður vera
170 milljónir og óopinberlega 190
milljónir. Bændur segja að slátra
þurfi tíundu hverri sauðkind, en
talsmenn kjötframleiðenda segja
það vera ýkjur. „Það eru ekki til
19 milljón byssukúlur í Ástralíu,"
segja þeir. Verið er að grafa gryfj-
ur til að urða milljón skrokka í fylk-
inu Vestur-Ástralíu, þar sem miklir
þurrkar hafa valdið því að gras-
spretta er ekki næg fyrir allt sauð-
fé fylkisins, sem talið er vera 39
milljónir. Viðbrögð Ástrala við þess-
um erfiðleikum eru þau að þeir
ætla nú að einbeita sér að því að
markaðssetja kjöt af yngri lömbum
en hingað til hefur verið gert.
Ridley-málið og Þjóðveijar:
Kohl kanslan satt-
fús í garð Breta
Bonn. Reuter.
VESTUR-ÞÝSKI kanslarinn,
Helmut Kohl, segir að ummæli
breska ráðherrans Nicholas
Ridleys sem úthúðaði Þjóðverj-
um og Kohl í blaðaviðtali, muni
ekki skaða samskipti þjóðanna.
Kohl segist aldrei hafa trúað
því að Ridley túlkaði álit bresku
stjórnarinnar eða þjóðarinnar.
Á blaðamannafúndi minntist
kanslarinn brosandi á eigin
klaufaskap er hann fyrir fjórum
árum líkti Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétleiðtoga við nasistafor-
ingjann Josef Göbbels.
„Við litum alls ekki á þetta
[ummæli Ridleys] sem alvarlega
móðgun. Mér finnst að maðurinn
hafí hlotið næga refsingu með því
að missa embættið," sagði Kohl.
Hann sagðist ekki gera lítið úr
ótta nágrannaþjóða við samein-
ingu Þýskalands, þær hefðu
þjáðst undir oki nasista. „Ég skil
fullkomlega nágranna okkar, ekki
síst Breta. Þeir settu land sitt að
veði í baráttunni gegn Hitler, tóku
meiri áhættu en nokkur önnur
Teikning breska blaðsins Daily Express sýnir stórreykingamann-
inn NichoIasRidley, sem er snjall frístundamálari, Ijúka við mynd
af Kohl kanslara í Hitlersgervi, með Francois Mitterrand Frakk-
landsforseta í ól. Mitterrand lýsir ást sinni á Kohl. Á skyrtu kansl-
arans hefúr slagorði nasista: „Ein þjóð! Eitt ríkij Einn foringi!“,
verið breytt í: „Eitt ríki! Ein pylsa! Eitt D-mark!“ í texta við teikn-
inguna hvetur Thatcher forsætisráðherra Ridley til að halda sig
framvegis við landslagsmyndir.
Reuter
Nicholas Ridley bíður þess að
ræða við fréttamenn.
vestræn þjóð.“ Kanslarinn sagði
sameiningu Þýskalands aðeins
verða mögulega, þrátt fyrir bitra
reynslu styijaldaráranna, vegna
þess að allir nágrannar Þjóðveija
hefðu samþykkt hana „þótt sumir
þeirra hafi ekki sýnt mikla hrifn-
ingu.“
V-þýska vikuritið Der Spiegel
birti í vikunni nær óstytta fundar-
gerð frá viðræðum Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, og Douglas Hurds utanrík-
isráðherra við nokkra sérfræðinga
þar sem tíundaðar eru lyndisein-
kunnir Þjóðveija og þeim gefnar
einkunnir, oftast harla slæmar.
Auk ráðherranna voru þarna m.a.
sagnfræðingurinn Hugh Trevor-
Roper, er nú ber titilinn Dacre
lávarður, blaðamaðurinn Timothy
Garton Ash og Norman Stone,
allir frá Bretlandi. Einnig voru
Bandaríkjamennirnir Gordon Cra-
ig og Fritz Stem á fundinum sem
var haldinn 24. mars sl. á sveita-
setri embættis breska forsætis-
ráðherrans, Chequers.