Morgunblaðið - 18.07.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1990
17
Sovéskir lögreglumenn leiða 17 ára gamlan flugræningja, Dímítríj
Semenov, út úr þotu Aeroflot-flugfélagsins í Moskvu í gær. Svíar
neituðu Semenov um pólitískt hæli og framseldu hann Sovétmönn-
um. Semenov neyddi flugmenn sovéskrar þotu í innanlandsflugi til
að fljúga til Stokkhólms 9. júní sl.
Viðræður EFTA og EB:
Niðurskurður á fyrir-
vörum EFTA boðaður
Brussel. Frá Knstófer Má Kristmssyni, fréttantara Morgunblaðsins.
AÐILDARRÍKI Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) vinna að því
að fækka mjög fyrirvörum sínum í samningaviðræðunum við fiilltrúa
Evrópubandalagsins (EB). Þetta kom fram í gær hjá Jean Pascal
Delamuraz, ráðherra í Sviss og núverandi forseta EFTA ráðsins á
fúndi með blaðamönnum í Brussel. Ráðherrann ræddi í gær við fúll-
trúa lramkvæmdasljórnar EB um gang samningsviðræðna EFTA
við bandalagið um evrópska efiiahagssvæðið (EES). Svisslendingar
tóku við forsæti i EFTA af Svíum um síðustu mánaðamót.
Stjórnarnefnd EFTA í samninga-
viðræðunum við EB fundar nú í
\ Brussel. Verður m.a. reynt að ná
samkomulagi um að skera niður þá
fyrirvara sem EFTA-ríkin hafa sett
fram í undirbúningsviðræðum
sínum við EB. Delamuraz sagði að
EFTA-ríkin myndu einskorða sig
við fyrirvara sem vörðuðu yfirgnæf-
andi þjóðarhagsmuni. íslendingar
hafa lagt áherslu á fyrirvara vegna
vinnumarkaðarins og fiskveiða og
fiskvinnslu. Fyrirvarar Islendinga
geta þess vegna talist tveir, þótt
þeir snerti fjölda laga og reglugerða
sem gilda eiga um EES. Samkvæmt
heimildum í Brussel er talið senni-
legt að önnur EFTA-ríki setji fyrir-
vara sína fram á svipaðan hátt og
íslendingar. Fram til þessa hafa
verið lagðir fram listar yfir undan-
þágur frá lögum og reglum. Hafa
listarnir vaxið embættismönnum
EB í augum. Delamuraz sagði að
þrátt fyrir fækkun og einföldun
fyrirvaranna væri ljóst að erfitt
yrði að finna viðunandi lausn fyrir
báða aðila í ágreiningsmálum. Dela-
muraz lýsti þeirri ósk sinni að ljúka
mætti samningaviðræðum við EB
fyrir lok þessa árs. Samkvæmt
heimildum innan framkvæmda-
stjórnar EB er þess vænst að samn-
ingur EB og EFTA verði tilbúinn
til undirritunar haustið 1991. í gær
var opnað nýtt aðsetur EFTA í
Brussel, svokallað EFTA-hús
skammt frá höfuðstöðvum EB.
Nýja húsnæðið leysir úr brýnni þörf
EFTA fyrir skrifstofu og fundaað-
stöðu vegna stóraukinna umsvifa
bandalagsins í Brussel.
UTSALA - UTSALA
Alltai % ofslóttur
HAGKAUP