Morgunblaðið - 18.07.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JULI 1990
21
Engar uppsagnir vegna
sameiningar Granda o g
Hraðfiystistöðvarinnar
EIGENDUR Granda hf og Hrað-
frystistöðvarinnar hafa um nokk-
urt skeið rætt möguleikana á sam-
einingu þeirra, en i raun hafi hún
verið ákveðin í viðræðum á síðast-
liðnum 11 dögum. Markmið sam-
einingarinnar er að sögn þeirra
fyrst og ft'emst sú að auka ha-
græðingu og nýtingu tækja og
húsnæðis til að gera fyrirtækið
betur í stakk búið til að mæta
aukinni samkeppni. Þar rísi með-
al annars hæst sameining Ervópu-
bandalagsins í eitt markaðssvæði,
en samþykkt kvótafirumvarpsins í
vor gefi einnig tækifæri til stefiiu-
mörkunar lengra fram í tímann
en verið hafi. Framkvæmd sam-
einingarinnar er ekki endanlega
ljós, en líklega verða seldar fast-
eignir og lausaQármunir svo sem
ýmis tæki og búnaður til vinnsl-
unnar.
Brynjólfur Bjarnason, núverandi
framkvæmdastjóri Granda hf, verð-
ur áfram við stjqrnvölinn eftir sam-
eininguna og mun fyrirtækið bera
sama nafn: „Við erum að þessu til
að geta betur staðið af okkur sam-
keppni, ekki bara heima fyrir held-
ur einnig gagnvart erlendum stór-
fyrirtækjum. Með sameiningu Evr-
ópubandalagsins í eitt markaðs-
svæði, verður samkeppnisstaða
okkar erfiðari en ella. Svarið við
því er sameining fyrirtækja í stærri
og öflugri kjarna en verið hefur,
en slík sameining þarf ekki alls
staðar að vera skynsamleg, þó hún
sé það í þessu sambandi og vafa-
laust fleirum. Vannýtt afkastageta
eykur kostnaðinn við framleiðsluna
og þann kostnað er erfitt að flytja
utan. Meðal annars þess vegna er-
um við að sameina þessi fyrirtæki,
til að auka nýtingu tækja og fasta-
fjármuna" segir Brynjólfur Bjarna-
son.
Ágúst Einarsson, aðaleigandi
Hraðfrystistöðvarinnar og fyrrum
framkvæmdastjóri hennar, gegnir
nú prófessorsembætti við Háskóla
Islands. Hann segir, að nú samein-
ist tvö sterk fyrirtæki til stærri
átaka en verið hafi og verði þannig
betur í stakk búin til að takast á
við ný og aukin verkefni. Hagræð-
ing í stærri einingum en áður, sé
rökrétt svar við núverandi aðstæð-
um og þeim, sem framundan séu.
Sameining og skipulagning af þessu
tagi sé nú auðveldari en áður eftir
samþykkt kvótafrumvarpsins í vor,
en vegna þess sé nú hægt að horfa
lengra fram í tímann.
Eins og áður sagði reka fyrirtæk-
in tvö nú þtjú frystihús og eiga 8
togara. Hraðfrystistöðin á togarana
Viðey og Engey, en þeir hafa báðir
landað afla sínum á innlendum og
runa ísbjarnarins og Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, rekur nú tvö frystihús
og á 6 togara. Snorri Sturluson er
frystitogari, Hjörleifur hefur verið
í leigu án kvóta, en á ísfiskveiðum
Morgunblaðið/Þorkell.
Grandi hf. á nú þrjú frystihús. Lengst til hægri á myndinni, merkt 1, er hús Hraðfrystistöðvarinnar,
þá kemur hús nr. 2, sem er hús það, sem BÚR lagði til Granda og fjærst er hús nr. 3, sem ísbjörninn Iagði
til Granda á sínum tíma. Auk þess á Grandi 75% í Faxamjöli, hús nr. 4 og handan götunnar er frysti-
geymsla fyrirtækisins. Einnig leigir Grandi skemmu Reykjavíkurhafnar, sem merkt er nr. 5 á myndinni.
A myndinni eru þrjú skip Granda, framan við skemmuna liggja Ottó N Þorláksson og Asgeir og hægra
megin við þá er Ásbjörn.
Ágúst Einarsson og Brynjólfur;
Bjarnason kynna sameiningu
Hraðfrystistöðvarinnar og
Granda í gær.
liafa verið togararnir Ottó N. Þor-
láksson, Jón Baldvinsson, Ásgeir
og Ásbjörn. Hafa þessi skip fiskað
kvóta Hjörleifs. Grandi framleiddi
á síðasta ári úr um 17.000 tonnum
af ísfiski, en auk þess lönduðu skip
fyrirtækisins í einhverjum mæli á
fiskmörkuðum. Fyrirtækið var rekið
með hagnaði á síðasta ári og það,
sem af er þessu.
Ekki er endanlega ákveðið með
hvaða hætti rekstri fyrirtækisins
verðui- háttað að lokinni samein--
ingu. Ráðstöfun afla verður að
minnsta kosti fyrst í stað lítt breytt,
en með núverandi afkastagetu
Granda hf er hægt að færa vinnslu
Hraðfrystistöðvarinnar inn í húsa-
kynni Granda án þess að til vakta-
vinnu þurfi að koma. Líklegast er
talið að til sölu húsnæðis Hrað-
frystistöðvarinnar við Mýrargötu
komi í kjölfar sameiningarinnar, en
óvíst er hvort einhverjum af togur-
unum verði lagt eða útgerð þeirra
breytt. 4
erlendum fiskmörkuðum. Vinnslu í
frystihúsi fyrirtækisins var hætt um
tíma fyrir nokkrum misserum
vegna rekstrarerfiðleika og hús-
næðið auglýst til sölu. Nokkru síðar
var þó farið út í sérhæfða ufsa-
vinnslu í fremur smáum stíl og skil-
aði rekstur vinnslu og útgerðar
hagnaði á síðasta ári og gerir hann
svo enn.
Grandi hf, sem til varð við sam-
Aldrei
gjaldþrota
Ranghermt var í Mannsmynd
sunnudagsblaðsins af Óla Kr. Sig-
urðssyni að hann hefði orðið gjald-
þrota með fyrsta rekstur sinn. Óli
Kr. hefur aldrei orðið gjaldþrota og
er hann beðinn velvirðingar á þess-
um mistökum.
FISKVERÐ IAUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
17. júlí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur (st.) 90,00 90,00 90,00 0,105 9.450
Þorskur (smár) 63,00 63,00 63,00 0,369 23.247
Ýsa 130,00 130,00 130,00 0,657 85.410
Karfi 45,00 45,00 45,00 0,056 2.520
Ufsi (smár) 40,00 40,00 40,00 1.753 70.120
Steinbítur 72,00 72,00 72,00 0,206 14.832
Lýsa 10,00 10,00 10,00 0,005 50
Þorskur 90,00 90,00 90,00 4,569 411.210
Samtals 79,90 7,720 616.839
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 94,00 85,00 88168 25,191 2.233.952
Ýsa 150,00 91,00 136,52 1,558 212.702
Karfi 30,00 16,00 29,08 87,863 2.555.481
Ufsi 51,00 34,00 50,43 54,072 2.727.070
Steinbítur 70,00 60,00 65,35 1,825 119.261
Grálúða 60,00 60,00 60,00 3,660 212.780
Langa 60,00 60,00 60,00 0,769 46.140
Lúða 350,00 75,00 170,27 0,477 81.220
Skarkoli 49,00 49,00 49,00 0,326 15.974
Sólkoli 76,00 76,00 76,00 0,314 23.864
Keila 31,00 31,00 31,00 0,094 2.914
Rauðmagi 10,00 10,00 10,00 0,023 230
Lýsa 35,00 35,00 35,00 0,027 945
Gellur 360,00 360,00 360,00 0,108 38.880
Undirmál 70,00 31,00 55,12 2,106 116.083
Samtals 360,00 10,00 47,05 178,417 8.394.498
LOFT
MINNA RYK
BETRI HEILSA
E I G IJ M Á L A G E R LOFTVIFTURNAR V I N S Æ L II ,
li v í t a r, s v a r t a r , in e s s i n g l i t a r o g k r ó m a ð a r .
§1 Þvermál: 132 sm. ^ Þrjár hraðastilliiigar H Val um lilástur erta
sog ♦ Aí])iirrkiin miiuikar til iuuiia ■ La*kkun á liitakostuaAi
• Heiiuili
HENTAR FTRIR:
Laufskála • Skrifstofur • Suuiarliús • VeitiugastuiTi
E
■ á uietlan hirgðir emlast.
Staðgreiðsluv<*rð aðeins
kr. 19.800,-
Afborgunarverð
kr. 21.800,-
Eugin úthorgun
til allt að 12 nián
ií» 9 i
Eftirsi- j
Breska verslunarfélagið
Faxafeni 10 Húsi Framtiðar ■ 108 Reykjavik
Pöntunarsími: 91 -82265