Morgunblaðið - 18.07.1990, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JULl 1990
ATVINNII
•o
Blaðberar
Blaðberi óskast í Bauganes.
Upplýsingar í síma 691253.
„Au pair“
óskast til Kaliforníu (Carmel Valley) frá 12.
ágúst í 6 mánuði eða lengur til læknishjóna
með 3 börn. Góð aðstaða og fallegt umhverfi.
Upplýsingar gefur Guðný í síma 901 408 659
4619 fimmtudag og föstudag milli kl. 15.00
og 18.00.
Járnamaður
Vanur járnamaður óskast til starfa hjá verk-
takafyrirtæki er starfar á höfuðborgarsvæðinu.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti starfað
sjálfstætt.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merkt-
ar: „J-4788" fyrir 20. júlí.
Kennarar
Kennara vantar til starfa við Seyðisfjarðar-
skóla næsta vetur. Um er að ræða kennslu
yngri barna.
Boðið er upp á ódýrt húsnæði og greiddur
flutningsstyrkur.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-21365 og yfirkennari í síma 97-21351.
Vinna við
Blönduvirkjun
Júgóslavneska fyrirtækið INGRA/METALNA
óskar eftir að ráða tvo menn til starfa við
uppsetningarvinnu á Blönduvirkjun með eftir-
farandi reynslu og hæfni:
1. Járniðnaðarmann með a.m.k. 5 ára
reynslu á vökvadrifkerfum fyrir lokubúnað
og þekkingu á ensku.
2. Járniðnaðarmann með sveinspróf,
reynslu á vökvadrifbúnaði og hæfnisvottorð
samkvæmt DIN 8560 eða AWI. 5 ára reynsla
og skilningur á ensku áskilin.
Starfstími ca 6-8 vikur.
Upplýsingar í síma 95-30240.
Ráðskona
28-33ja ára ráðskona óskast í sveit. Þarf
að hafa áhuga á sveitastörfum, s.s. sauðfé.
Upplýsingar gefur Jón í síma 95-12953.
Kennarar
Kennara vantar að Ketilsstaðaskóla í Mýr-
dal. Spennandi starf fyrir þá, sem vilja nýta
sér sérstöðu kennslu í dreifbýli.
Nánari upplýsingar hjá skólastjóra, Kolbrúnu
Hjörleífsdóttur, í símum 98-71286 og 91-
656252 og hjá skólanefndarformanni, Guð-
mundi Elíassyni, í síma 98-71230.
Trésmiðir
Viljum ráða strax samhentan flokk trésmiða
til vinnu við „hefðbundin" mótauppslátt.
Mikil vinna framundan.
Upplýsingar á skrifstofunni.
BYGGÐAVERK HF.
sími 54644.
Kennarar - kennarar
Kennara vantar í fjölbreytta kennslu yngri
og eldri barna við Húsabakkaskóla, Svarfað-
ardal, sem er heimavistarskóli fyrir 1.-8.
bekk. Ódýrt húsnæði í boði.
Upplýsingar veita formaður skólanefndar í
síma 96-61524 og skólastjóri í síma
96-61554 eða 96-22927.
LANDSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingur
óskast sem fyrst á næturvaktir á öldrunar-
lækningadeild í Hátúni. Unnar eru tvær nætur-
vaktir í viku, sem er 50% vinna. Viðkomandi
fær laun sem hjúkrunarstjóri.
Upplýsingar gefur Matthildur Valfells, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 602266 eða
602251.
Umsóknir sendist hjúkrunarframkvæmdastjóra.
Heimilishjálp
Norsk stúlka (19 ára), sem stödd er á
íslandi, óskar eftir vist á íslensku heimili í tíu
mánuði. Ervön börnum og heimilisstörfum.
Upplýsingar í síma 79477 eftir kl. 16.00.
Starfskraftur óskast
Óskum að ráða unga hressa manneskju á
skrifstofu okkar. Starfið felst meðal annars
í símavörslu, móttöku, tölvuskráningu og rit-
vinnslu.
Viðkomandi þarf að hafa góða framkomu,
ráða yfir tölvukunnáttu, hafa gott vald á
íslensku í rituðu og mæltu máli auk góðrar
enskukunnáttu. Æskilegt er að viðkomandi
hafi einnig vald á einu Norðurlandamáli.
Hér er um líflegt og áhugavert starf að ræða.
Sendið skriflegar umsóknir á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 21. júlí, merktar: „K - 13659“
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
- starfsstúlkur
Okkur vantar áhugasama hjúkrunarfræð-
inga til framtíðarstarfa í ágúst/sept. aðallega
á kvöldavaktir (kl. 16.00-24.00, 17.00-23.00)
og á helgarvaktir á heilsugæslu og hjúkrunar-
deildir.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga til sér-
stakra verkefna. Vinnutími samkomulag.
Sjúkraliðar óskast til framtíðarstarfa í
ágúst/sept. á hjúkrunardeildir. Vinnuhlutfall
100% eða minna. Ýmsar vaktir koma til
greina.
Starfsstúlkur vanar aðhlynningu og ræst-
ingu vantar nú þegar til sumarafleysinga
fram í september og í fastar stöður í haust.
Möguleiki er á barnaheimili.
Upplýsingar veitir ída Atladóttir, hjúkrunar-
forstjóri, í síma 35262 og Jónína Níelsen,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 689500.
T Oll \ILs7/-\K
TILKYNNINGAR
Lögmannsstofan
Síðumúla 1, Reykjavík,
sími688444
verður lokuð vegna sumarleyfa frá 30. júlí
til og með 10. ágúst 1990.
Hafsteinn Hafsteinsson, hrl.,
Guðný Björnsdóttir, hdi.
BÁTAR — SKIP
Rækjukvótí óskast
Óska eftir rækjukvóta í skiptum fyrir þrosk-
kvóta.
Upplýsingar í síma 94-4586 á kvöldin.
Kvóti óskast
Óskum eftir karfa- eða þorskkvóta.
Hraðfrystistöðin í Reykjavík hf.,
sími 21400.
NA UÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
Fyrri nauðungarsala á veitinga- og gistihúsi á Norðurbraut 1,
Hvammstanga, eign þrotabús t/ertshússins hf., ásamt öllum búnaði
er fylgir til hótel- og veitingarekstrar, þ.á m. tæki i eldhús og búnaður
í borðsal auk lagers, fer fram á skrifstofu embættisins, Hnjúkabyggð
33, Blönduósi, fimmtudaginn 19. júlí 1990, kl. 11.00
Uppboðsbeiðandi er Ferðamálasjóður vegna kröfu að fjárhæð kr.
1.250.000-, auk vaxta og kostnaðar.
Blönduósi, 13. júlí 1990.
Sýslumaður Húnavatnssýslu.
. HÚSNÆÐI íBOÐI
Einbýlishús
Aðalhæð í einbýlishúsi í Seláshverfi til leigu
frá 1. september í 2-3 ár. 4 svefnherbergi,
samliggjandi stofur, tvöfaldur bílskúr og stór
lóð. Stutt í þjónustu s.s. skóla, gæsluvelli
o.fl. Verðhugmynd 65-70 þús.
Upplýsingar í síma 75155 frá kl. 17.00.
ATVJNNUHÚSNÆÐI
Til leigu
húsnæði í 50 m2, 120 m2og 190 m2einingum
í Ármúla 38. Hentugt fyrir teiknistofur, tölvu-
þjónustu, umboðs- og heildverslanir, útgáfu-
starfsemi o.þ.h.
Upplýsingar í síma 617045 á skrifstofutíma.