Morgunblaðið - 18.07.1990, Page 32

Morgunblaðið - 18.07.1990, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1990 „mama“. Með morgunkaffinu Gefstu ekki upp fyrir hin- um tigna riddara? Slysatölur lækka ef ökukennslan er bætt Lífsspegill fær mann til að staldra við Til Velvakanda. Ég get ekki orða bundist eftir að hafa lesið ævisögu Ingólfs Guð- brandssonar, Lífsspegil. Mér finnst hún ein besta bók, sem ég hef lesið og lagði hana frá mér með söknuði að lestri loknum. Stemmningin og hughrifin í þessari bók fá mann til að staldra við og lesa sumt aftur og aftur. Þetta er óvenjuleg bók, sem vekur til umhugsunar og leyn- ir á sér, enda er hún full af tákn- um, og meðferð máls og stíls er með því móti, að fæstir ævisögurit- arar komast með tærnar, þar sem Ingólfur hefur hælana. Mig langar að þakka fyrir þessa bók og vildi eiga þess kost að lesa fleiri frá hendi höfundar. Mér varð hugsað til þeirra, sem útdeila bókmennta- verðlaunum, hvort þessi bók hafi farið framhjá þeim? Svo að fleiri gætu notið hennar, datt mér í hug að hér væri ágæt útvarpssaga til að lesa á einhverri útvarpsrásinni, sérstaklega ef Ingólfur læsi sjálfur, því að ég hef heyrt þægilega rödd hans í ágætum útvarpsþáttum á Aðalstöðinni. Bókmenntanemi Þakkir til kon- unnar sem skil- aði plötunni Til Velvakanda. Ég keypti hljómplötu fyrir bróður minn fimmtudaginn 12. júlí. Ég fór í síma í skiptistöðinni í Mjódd og lagði plötuna frá mér við símann. Svo stökk ég upp í strætó. Þegar ég var komin heim, áttaði ég mig á því að ég hafði gleymt plötunni. Ég fór þá aftur í skiptistöðina en bjóst ekki við að ég fyndi plötuna aftur. Ég spurðist fyrir í sjoppunni og hjá verðinum, en það kannaðist enginn við hana. A leiðinni út datt mér í hug að labba inn á pósthúsið og spyija um plötuna. Mér til mikill- ar undrunar var mér afhent platan þar. Einhver kona hafði komið með hana inn á pósthúsið. Nú langar mig til að þakka þess- ari góðu konu fyrir skilvísina. 15 ára stúlka úr Reykjavík Til Velvakanda. Ég vil láta í mér heyra vegna þess að ég tel að ökukennslu sé ábótavant hér á landi. Ungt fólk sem tekur bílpróf á sumrin hefur enga reynslu í hálku og snjóakstri. Ungu ökumennirnir koma út í um- ferðina á björtum sumardögum og hafa enga hugmynd um hvernig ber að aka í hálku og snjó og vita ekki hvernig á að bregðast við í umferð- inni þegar hálka er. Einnig hafa ökunemar litla sem enga reynslu af akstri á malarvegum og vita ekki hvernig á að keyra á þeim, t.d. í sambandi við lausamöl. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að komið sé upp æfingasvæði fyrir ökunema. Klúbbur 17 (klúbbur ungra öku- manna) berst fyrir því að komið sé á fót allsherjar æfíngasvæði fyrir ökunema. A því svæði yrði meðal annars hálkubraut, malarbraut og ökugerði. Sem yrði þá notað til þess að beygja og bakka fyrir horn. Eins og ég hef áður minnst á þá er ökukennslu ábótavant því að á síðasta ári slösuðust 175 á aldrinum 17-20 ára. Ungt fólk á þessum aldri er í langmestri hættu í umferðinni. Ég tel að ef ökukennsla yrði bætt og tímum fjölgað þá yrðu ekki eins mörg slys. Og vona ég að svo verði. En víkjum nú að öðru í sambandi við ökukennslu. Eftir að bílasímarn- ir komu til landsins hafa flestir ökukennarar sem aðrir fengið sér bílasíma. Bílasímar eru oft mjög nauðsynlegir og í sjálfu sér alveg sjálfsagt að hafa þá svo framarlega sem þeir séu notaðir í hófi og alls ekki á meðan viðkomandi er að keyra. Og í sambandi við ökukenn- ara þá tel ég það siðlaust að þeir séu að röfla í þá á meðan nemandi er við stýrið. Sjálf hef ég séð og heyrt að ökukennari er að keyra með nemanda sinn og annar öku- kennari keyrir fram hjá með sinn nemanda og fyrrnefndi ökukennar- inn tekur upp tólið og hringir í hinn ökukennarann og spjalla þeir um daginn og veginn, nemandi kemur að gatnamótum og á síðustu stundu bendir ökukennarinn til hægri eða vinstri. Þarna er illa komið fram við þann nemanda sem á í hlut. Því að nemandinn þarf að borga stórfé fyrir þessa ökukennslu. Þess vegna hvet ég ökukennara til að hætta þessu röfli í símana og mega þeir taka þetta til sín sem eiga. Ég ætla svo sannarlega að vona að Klúbbur 17 komi æfingarsvæð- inu á fót sem fyrst því ég tel að slysum í umferðinni myndi fækka stórlega. Ungur ökumaður HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar * Urval kvikmynda er meira í Reykjavík en nokkurri ann arri borg með jafnmarga íbúa. Þetta þorir Víkveiji að fullyrða án þess að hafa vísindalega rannsókn til að styðja stóru orðin. Hann þorir einn- ig að halda því fram að í reykvísku kvikmyndahúsin berist myndir fyrr en í jafnfjölmenna borg annars staðar. Loks vill hann láta þá skoð- un í ljós, að hér standist tæknibún- aður kvikmyndahúsa ströngustu kröfur. Allt þetta vill hann þakka hinni miklu samkeppni sem er hér í þessum rekstri. Kysi hann gjarnan að sami metnaður ríkti hjá þeim sem þýða og setja íslenskan texta inn á kvikmyndir og eigendum hús- anna, er vilja gera þau sem best úr garði og bjóða sem mest af nýj- um myndum. að Rauða október, sem er byggð á bók eftir Tom Clancy. Er þetta fyrsta bók hans og síðan hafa ýms- ar siglt í kjölfarið eins og Rauður stormur, sem hefur komið út á íslensku og gerist að verulegu leyti hér á landi. Bókin um sovéska kafbátinn Rauða október vakti verulega at- hygli, þegar hún kom út og þótti með ólíkindum, hve mikla þekkingu Clancy hafði á öllu er snertir kaf- bátahernað. Yfir þeirri grein hern- aðar hvílir mikil leynd og hafa flota- foringjar gjarnan svarað erfiðum spurningum blaðamanna um kaf- báta, ferðir þeirra og störf með því að benda þeim á bók Clancys um Rauða október. XXX arinnar hafi brugðist á meðan hún var í vinnslu; þíðan í austri geri hana úrelta og sé litið „fram hjá kaldastríðsdraugnum" sitji eftir „stórmynd" af gamla skólanum. Víkveiji er ekki sammála þessu. Hann telur einmitt meiri líkur á því að atburðir eins og lýst er í þessari kvikmynd kunni að gerast á upp- lausnartímum í Sovétríkjunum heldur en þegar allt er njörvað nið- ur undir alræði kommúnistaflokks- ins. Hvar er „kaldastríðsdraugur" í þessari kvikmynd? Ástæðulaust er fyrir okkur ís- lendinga sem búum hér á miðri leið kafbátanna um Norður-Atlantshaf að láta eins og þeir séu allir að hverfa eða draga sig í hlé. Margt bendir því miður til þess að Sovét- menn ætli að styrkja norðurflota sinn um leið og dregið er úr vígbún- aði í Mið-Evrópu. Kafbátarnir verða mikilvægari eftir því sem hermönnum og vígtól- um fækkar á landi. x Igrein um myndina Leitin að Rauða október segir kvik Meðal þeirra kvikmynda sem myndagagnrýnandi Morgunblaðs- nú eru sýndar hér er Leitin ins, að mikilvægar forsendur mynd-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.