Morgunblaðið - 18.07.1990, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 18.07.1990, Qupperneq 36
Skattskrá lögð fram í mánað- arlokin SKATTSKRÁ í Reykjavík verður lögð fram í lok mánaðarins, að líkindum þriðjudaginn 31. júlí. Að sögn Ingvars Rögnvaldssonar vara- skattstjóra hefur skattskráin að jafnaði verið lögð fram á tímabilinu 25.-31. júlí. Golfsamband íslands: Reglurum hámarks- upphæð verðlauna GOLFSAMBAND íslands hefur gefíð út reglur um hve háa verð- launaupphæð golfleikarar mega þiggja í mótum án þess að missa áhugamannaréttindi sín. Regl- urnar eru þær sömu og áhuga- mannanefhd Golfsambands Evr- ópu setur. Frímann Gunnlaugsson, for- maður Golfsambands Islands, seg- ir að fyrir keppni á 36 holu velli megi keppendur mest þiggja 40 þúsund kr. í verðlaun, fyrir keppni á 18-36 holu velli mest 30 þúsund kr. og á unglingamótum mest.20 þúsund kr. Ferðavinningar eru þó undanþegnir þessum ákvæðum. Á golfmótum hefur nokkuð tíðkast að veita vegleg verðlaun fyrir að leika holu í höggi og er þess skemmst að minnast að Jón A. Baldvinsson, prestur í London, vann bifreið á golfmóti á Akureyri nýlega. Frímann sagði að mál Jóns kæmi ekki til kasta Golfsambands íslands þar sem Jón væri ekki fé- lagi í golfklúbbi á íslandi. Kvaðst hann telja að enska golfsambandið myndi svipta Jón áhugamanna- réttindum sínum. Frímann sagði, að í fyrra hefði ungur maður fengið bíl fyrir að leika holú í höggi. Hann skilaði bílnum til baka til að missa ekki áhugamannaréttindi sín. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra var einn þeirra, sem lentu í vandræðum vegna vatna- vaxta á hálendinmsíðastliðna helgi. Vélin í jeppa hans drap á sér þegar hann lagði í Ásgarðsá í Kerlingarfjöllum, og sat bíllinn fastur í ánni en vatnið rann upp að gluggum. Menn úr Hjálpar- sveit skáta í Reykjavík, sem voru í skíðaferð, komu ráðherranum til hjálpar og drógu bíl hans úr ánni, en hún hafði vaxið talsvert. Mikið í ám á hálendinu MIKIÐ vatn er nú í ám og lækj- um á hálendinu vegna hlýinda og rigninga undanfarna daga. Eitthvað hefur verið um að ferðamenn hafi þurft aðstoð vegna þess að ár hafa verið ógreiðfærar, en umferð uin hálendið hefúr þó gengið stór- slysalaust. Síðan um helgina hefur rignt talsvert á fjöllum uppi og- eru vatnsföll því víða í vexti. Land- vörðum á hálendinu, sem Morgun- blaðið hafði tal af, kom saman um að mikið væri í vötnunum, þó ekki svo að af bæri. í Landmanna- laugum lentu nokkrir ferðamenn í vandræðum um helgina, og í Þórsmörk er Krossá erfið yfirferð- ar. Meðal annars urðu tveir ein- drifsbílar að hverfa frá því að fara yfir ána. Á Kili eru ár einnig vatnsmiklar, en Ferðafélagsmenn á Hveravöllum sögðust ekki hafa frétt af neinum óhöppum af þeim sökum. V estmannaeyj ar: Eimskip kaupir Skipaaf- greiðsluna EIMSKIPAFÉLAGIÐ hefúr keypt Skipaafgreiðslu Vest- mannaeyja hf. af Sigurði G. Þór- arinssyni og Braga Júlíussyni. og var kaupverðið samkvæmt heimildum Morgunblaðsins um 30 milljónir króna. Þórður Sverr- isson, framkvæmdastjóri flutn- ingssviðs Eimskips, segist gera ráð fyrir að Ríkisskip og SIS skipti áfram við Skipaafgreiðsl- una. Stærri lyfltari verði keyptur og þjónusta aukin. „Skipaumferð er mikil um Vest- mannaeyjahöfn og þjónusta við flutningaskip íjárfrek,“ segir Þórð- ur. „Þar sem mikið er um gáma þarf kraftmikinn lyftibúnað og ætl- unin er að festa kaup á stærri lyft- ara. Við teljum að hagræða megi í rekstri og þjónustu Skipaafgreiðsl- unnar, viljum bæta þjónustuna og auka hana.“ Þórður segir að vikulega komi skip Eimskipafélagsins þrisvar við í Vestmannaeyjum, Ríkisskip hafi tvær viðkomur og skipadeild Sam- bandsins eina til tvær. Hann vænti þess að framhald verði á þjónustu við alla aðilana. Grandi og Hraðfrystistöðin sameinast: Árlegur kvóti togara fyrir- tækisins verður 27.000 tonn SAMEINING Granda hf. og Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík hefur verið ákveðin og kemur hún til framkvæmda þann fyrsta september næstkom- andi. Fyrirtækið mun að lokinni sameiningu bera nafn Granda og ráða yfir mestum bolfiskkvóta íslenzkra sjávarútvegsfyrir- tækja, eða um 27.000 tonnum á næsta ári. Hraðfrystistöðin gerir nú út tvo togara og Grandi sex, en einn þeirra hefúr verið leigður J öftiunargj aldi á iðnaðarvörur breytt út án kvóta. Hraðfrystistöðin rekur frystingu í húsi sínu við Mýrargötu, en Grandi frystir bolfisk í tveimur húsum á Grandagarði og Norðurgarði. Á fjórða hundrað manns starfa nú hjá báðum fyrirtækjunum og segja stjórnendur þeirra að eng- ar uppsagnir fylgi sameining- unni. Sameiningin verður framkvæmd á þann hátt, að eigendur Hrað- frystistöðvarinnar fá útgefin hlut- bréf fyrir hlut sinum, en áætlað er að hann nemi 16 til 19% af heildar- hlutafé eftir sameininguna. Eigið fé Granda vat' um áramót rúmar 800 milljónir króna, en nafnverð útgefinna hlutabréfa er 647 milljón- ir króna. Gangverð þeirra á almenn- um markaði er 1,72 og markaðs- verð því um 1,1 milljarður. Um síðustu áramót var eigið fé Hrað- frystistöðvarinnar um 140 milljónir króna. Líklega verðut' hlutur hennar í sameinaða fyrirtækinu um 200 milljónir, en það verður endanlega ljóst eftir milliuppgjör, sem fram- kvæmt verður í lok ágúst. Áætluð velta fyrirtækjanna á yfirstandandi ári er um þrír millj- arðar króna. Heildarvelta Granda á síðasta ári nam rúmlega 1,9 mill- jöt'ðum, en velta Hraðfrystistöðvar- innar var um 500 milljónir króna. Brynjólfur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Granda, stjórnar fyr- irtækinu áfram eftir sameininguna. Sjá bls. 21: Engar uppsagnir vegna sameiningarinnar RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að fella 5% jöfnunargjald á inn- fluttar iðnaðarvörur niður í nú- verandi mynd á næstu mánuðum, og var fjármálaráðherra, ut- anríkisráðherra, iðnaðarráð- herra og landbúnaðarráðherra falið að vinna að þeirri breytingu. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra sagði að menn vildu í þessu sambandi skoða framtíð jöfnunaraðgerða gagnvart íslensk- um útflutningsgreinum. Jöfnunargjaldið hefur þegar skil- að ríkissjóði 5-600 milljónum króna á þessu ári, eins og fjárlög gerðu ráð fyt'ir. Forsvarsmenn aðila vinnumarkaðarins vildu að jöfnun- árgjaldið yrði lækkað um helming, síðari hluta ársins, sem hluti af aðgerðum í verðlagsmálum. Telja þeit' að með því að halda gjaidinu óbreyttu sé ríkissjóður að auka skattheimtu, umfram áætlanir fját'- laga, þrátt fyrir að verðlagsráðstaf- anirnar kosti ríkissjóð 350 milljónir króna, eins og fjármálaráðuneytið áætlar. Sjá fréttir um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar og viðbrögð aðila vinnumarkaðarins bls. 4. Ljósmynd/Jón Stefánsson Harður árekstur en lítil meiðsl Harður árekstut' varð við Krókháls um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Mazda-bifreið og Lada Samara rákust saman með þeim afleiðingum að Lada-bifreiðin valt og skemmdist mikið. Ekki urðu þó alvarleg meiðsl á fólki. Ríkisstjórnin samþykkir fískeldishús Á ríkisstjórnarfundi í gær var samþykkt tillaga menntamála- ráðherra um byggingu fiskeldis- húss. Húsið verður notað til rannsókna á fisksjúkdómum og lífeðlisfræði- legum þáttum fiskeldis. Samningsdrögin sem fyrir liggja gera ráð fyrir samstarfi sjö aðila um hús þetta og þeir eru: Rann- sóknaráð ríkisins, Reykjavíkurborg, Háskóli íslands, Tilraunastöð Há- skólans í meinafræði að Keldum, sjávarútvegsráðuneyti, landbúnað- arráðuneyti og Landssamband fisk- eldis- og hafbeitarstöðva. Eftir samþykkt ríkisstjórnarinnar í gær verðut' Rannsóknarráði ríkisins falið að vinna að framgangi málsins, en framlög vet'ða endanlega ákveðin í fjárlögum næstu ára.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.