Morgunblaðið - 29.07.1990, Page 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JULI
EFNI
Leitað að þýsk-
ri seglskútu
ÁHÖFN þýskrar seglskútu, sem
lét úr höfii á Neskaupstað á
fostudag, hafði samband við
Tilkynningaskylduna um níu-
leytið á laugardagsmorgun og
bað um aðstoð við að komast
til hafnar.
Var skútan þá með bilaða vél
og staðarákvörðunartæki og
taldi áhöfnin sig vera um fimm til
átta mílur út af Dalatanga.
Skömmu upp úr hádegi fann
vélbáturinn Hafrún skútuna fyrir
utan Borgarfjörð eystra. Björgun-
arbátur Slysavarnarfélagsins á
Borgarfirði eystra, Elding, var þá
sendur til að aðstoðaða skútuna
við að komast til hafnar á ný.
Blíðuveður var á þessum slóðum
í gærmorgun en þoka og ekki
nema tvö til þrjú hundruð metra
skyggni.
Almenna bókafélagið:
Óskað heim-
ildar til hluta-
Qáraukningar
STJÓRN Almenna bókafélagsins
hf. hefúr boðað til aukaaðalfúndar
fimmtudaginn 9. ágúst. Fyrir
fundinum liggja tillögur um að
stjórn félagsins verði veitt heimild
til að auka hlutafé og selja fast-
eign félagsins í Austurstræti 18.
Oli Bjöm Kárason, framkvæmda-
stjóri Almenna bókafélagsins,
segir að endurskipulagning standi
yfir hjá fyrirtækinu. Á hluthafafundi
1. desember hafi verið samþykkt að
veita stjóm félagsins heimild til að
auka hlutafé þess um 90 milljónir
króna og nú liggi fyrir tillaga um
að aukið verði við þessa heimild, án
þess þó að ákveðið hafi verið að
nota hana.
Fyrir aðalfundinum liggur lika til-
laga um að stjóm verði heimilað að
selja fasteignina í Austurstræti 18,
eða hluta hennar. Segir Óli Bjöm
að með því sé fyrst og fremst verið
að tryggja stjóm félagsins svigrúm
til að grípa til slíkra aðgerða, telji
hún það nauðsynlegt, en í 21. grein
samþykkta félagsins komi fram, að
stjórnin þurfi samþykki hluthafa fyr-
ir sölu fasteignarinnar.
Frá slysstaðnum á Kjalarnesi.
Banaslys á Vesturlandsvegi
BANASLYS varð á Vesturlandsvegi rétt austan við Tíðaskarð aðfara-
nótt laugardagsins. Bifreið sem ekið var úr Reykjavík lenti út af
veginum, fór margar veltur, og staðnæmdist ekki fyrr en eftir tugi
metra.
• •
Okumaðurinn, tæplega þrítugur
karlmaður, var einn í bifreið-
inni og kastaðist hann út úr bílnum
í veltunum og lenti undir honum.
Er talið víst 'að hann hafí ekki verið
í öryggisbelti. Haft var samband
við lögreglu rétt rúmlega hálf fjög-
ur um nóttina en maðurinn var lát-
inn, er hana bar að.
Að sögn lögreglunnar voru engir
sjónvarvottar að slysinu og því ekki
vitað með fullu hver tildrög þess
voru. Ekki er hægt að greina frá
nafni hins látna að svo stöddu.
Reykjavík tvö prófastsdæmi
Reykjavíkurprófastsdæmi verður skipt í tvö sérstök prófastsdæmi
um næstu áramót, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og vestra. Þessi
breyting er samkvæmt nýjum lögum um skipan prestakalla, sem sam-
þykkt voru á siðasta Alþingi. Af hinni nýju skipan leiðir að kjósa
þarf nýjan prófast í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra fyrir áramótin,
en sr. Guðmundur Þorsteinsson verður áfram dómprófastur og prófast-
ur í eystra prófastsdæminu.
Reykjavíkurprófastsdæmi nær í
núverandi mynd yfír Reykjavík,
Seltjarnames og Kópavog. íbúar
svæðisins em um 45% landsmanna,
nærri 117.000. Um áramót verður
prófastsdæminu skipt um Fossvogs-
dal og Elliðaárdal þannig að Bú-
staðaprestakall, Langholtsprestakall
og prestaköllin þar vestur af munu
tilheyra vestra prófastsdæminu, sem
samtals mun hafa um 64.000 íbúa.
Prestaköllin í BreiðhoÍti, Árbæ,
Kópavogi og Grafarvogi verða í
eystra prófastsdæminu og íbúar þar
verða um 53.000. •
Sr. Guðmundur Þorsteinsson,
dómprófastur og prestur í Árbæjar-
prestakalli, verður prófastur í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Nýjan prófast þarf hins vegar að
kjósa í vestra prófastsdæminu. Að
sögn herra Ólafs Skúlasonar, bisk-
ups íslands, munu leikmenn nú sam-
kvæmt nýju lögunum í fyrsta sinn
taka þátt í kjöri prófasts, auk þjón-
andi presta í prófastsdæminu.
Hefð er fyrir því, að prófasturinn
í Reykjavíkurprófastsdæmi beri titil-
inn dómprófastur, enda Dómkirkjan
í prófastsdæminu. Að sögn biskups
mun sr. Guðmundur Þorsteinsson
verða dómprófastur áfram, enda sé
hann skipaður sem slíkur, þótt hann
verði nú prófastur í eystra prófasts-
dæminu. Ólafur sagði að hins vegar
hefði ekki verið tekin ákvörðun um
hvað yrði um titil dómprófasts í
framtíðinni, eftir að sr. Guðmundur
lætur af störfum. Dómkirkjan verður
í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.
Átakið gegn ólæsi
►Sameinuðu þjóðimar gangast
nú fyrir lestrarátaki og af því til-
efni könnuðum við ástandið í þeim
málum hér á landi. /10
Jemen
►Grein um sameiningu ríkjanna
tveggja sem lengi hafa eldað sam-
an gráttsilfur. /14
Er skrifstofan pestar-
bæli?
►Aðbúnaður á vinnustöðum er
ærið misjafn og í sumum tilfellum
heilsuspillandi. í þessari grein er
fjallað um ástandið í þeim efnum
hérálandi./16
Risaeðlan í IMew York
►Risaeðian er sú hljómsveit sem
líklegust er til að feta í fótspor
Sykurmolanna á erlendum mark-
aði. Hér er frásögn af nýafstaðinni
hljómleikaför hljómsveitarinnar á
austurströnd Bandaríkjanna. /18
Bheimili/
FASTEIGNIR
► 1-24
Byggingareftirlit
►Rætt við Stanley Pálsson verk-
fræðing.
12
usar
►Franski sjáandinn oghuglækn-
irinn Marcelus Toe Guor í einkavið-
tali við Morgunblaðið. /1
ÚtflutningTir á sjávarafurðum:
Hálfur milljarður gjaldfall-
inn á Sovétmenn í vikunni
milljónir dala á ári en þeir keyptu
hins vegar fyrir 6 milljónir dala
árið 1988 og 5 milljónir dala 1989.
„Sovétmenn skulda okkur um
90 milljónir króna og þar af eru
30-40 milljónirgjaldfallnar. Sovét-
menn hafa ekki greitt fyrir farm,
sem fór héðan 17. maí síðastliðinn
en þeir eiga að greiða 3-4 vikum
eftir að farmamir fara héðan,“
sagði Garðar. Hann sagði að Sölu-
samtök lagmetis hefðu selt fyrir
84 milljónir króna í þessum mán-
uði, þar af 60 milljónir til Sov-
étríkjanna. „Við höfum samið við
Sovétmenn í Bandaríkjadölum en
dalurinn hefur fallið á þessu ári.
Auk þess vom Sovétmenn ekki
tilbúnir að greiða nema lágmarks-
verð á þessu ári.“
íslendingar seldu Sovétmönnum
150 þúsund tunnur af saltsíld á
síðustu vertíð fyrir 16 þúsund
Bandaríkjadali, eða um 935 millj-
ónir króna á núvirði, en samkvæmt
rammasamningi þjóðanna eiga
Sovétmenn að kaupa 200-250 þús-
und tunnur af sáltsíld héðan á ári.
SOVÉTMENN byijuðu að draga greiðslur fyrir frystan fisk, saltsíld
og lagmeti héðan í vor og berist engar greiðslur frá þeim í fyrri
hluta þessarar viku verður um hálfur milljarður króna gjaldfallinn
á þá fyrir frystan fisk og lagmeti um mánaðamótin. Sovétmenn
skulda Sambandinu 118,3 miHjónir króna en Sölusamtökum lag-
metis 90 milljónir. Sovétmenn eiga samkvæmt samningum að
kaupa frystan fisk, saltsíld og lagmeti héðan fyrir samtals 42,2
milljónir Bandaríkjadala í ár, eða um 2,5 milljarða króna á núvirði.
Samið var við Sovétmenn um
að þeir keyptu héðan 6 þúsund
tonn af frystum físki fyrri hluta
þessa árs og 3 þúsund tonn síðari
hluta ársins fyrir samtals 22,2
milljónir Bandaríkjadala, eða um
1,3 milljarða króna á núvirði. Sölu-
miðstöð hrað-
frystihúsanna
er með tvo
þriðju hluta
þessa útflutn-
ings en sjávar-
afurðadeild
Sambandsins þriðjung.
Benedikt Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar
Sambandsins, sagði að greiðslur
Sovétmanna fyrir frystan fisk og
síld hefðu dregist í vor en allt
hefði þó komist til skila án telj-
andi vandræða. „Við erum í dag-
legu sambandi við Sovrybflot, sov-
éska kaupandann, og íslenska
sendiráðið í Moskvu vegna þessa
greiðsludráttar hjá Sovétmönnum
núna. Það er
hins vegar eng-
in skelfing
vegna þessa
máls, enda
verðum við að
skoða það í ljósi
þess að við veltum 10-11 milljörð-
um króna og SH 15-16 milljörð-
um,“ sagði Benedikt.
Gylfí Þór Magnússon, fram-
kvæmdastjóri hjá SH, og Benedikt
Sveinsson fara til Sovétríkjanna í
fyrri hluta næsta mánaðar. „Við
förum til að ræða við Sovétmenn
um framkvæmdina á þeim samn-
ingum, sem nú eru í gildi, og
hvernig við munum standa að við-
skiptum á næsta ári. Ef enginn
árangur verður af þessum viðræð-
um hljótum við að velta því fyrir
okkur hvernig það verður með
áframhaldandi afhendingar. Opin-
berar viðskiptaviðræður milli ís-
lendinga og Sovétmanna verða að
öllum líkindum í september og þá
verður að sjálfsögðu farið mikið
ofan í þessi mál.“
Garðar Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri Sölusamtaka lag-
metis, sagði að samið hefði verið
við Sovétmenn um að þeir keyptu
lagmeti fyrir 4 milljónir Banda-
ríkjadala (um 234 milljónir króna
á núvirði) á þessu ári og eftir væri
að afgreiða vörur fyrir 1,3 milljón-
ir dala af þeim samningi. Ramma-
samningur íslands og Sovétríkj-
anna kveður á um að Sovétmenn
kaupi lagmeti héðan fyrir 4-4,5
BAKSVID
Þorsteinn Briem
Útaf með dómarann
►Það er ekki alltaf tekið út með
sældinni að dæma knattspymu-
leik, eins og berlega kemur fram
í þessari grein, sem fjallar um sam-
skipti dómara, leikmanna og
áhorfenda. /6
Á ferð um Af ríku
►Hér segir frá ævintýraferð ungs
íslendings um frumskóga Afríku.
/12
Erlend hringsjá
►Giap hershöfðingi, leiðtogi norð-
anmanna í Víetnamstríðinu, segir
sögusína. /14
Djassað á Héraði
►Frásögn af þriðju djasshátíð
Djassklúbbs Egilsstaða. /16
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Karlar 34
Dagbðk 8 Útvarp/sjónvarp 36
Hugvekja 9 Gárur 39
Leiðari 20 Mannlífsstr. 12c
Helgispjall 20 íjölmiðlar 18c
Reykjavíkurbréf 20 Kvikmyndir 20c
Myndasögur 22 Dægurtónlist 21c
Brids 22 Menningarstr. 22c
Stjörnuspá 22 Bíó/dans 26c
Skák 22 Velvakandi 28c
Minningar 32 Samsafnið 30c
Fólk í fréttum 34 Bakþankar 40c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4