Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JULI
7
Endurbætur á Kjalvegi:
Helmings munur á _
hæsta og lægsta boði
FJÖGIJR tilboð bárust í útboði Vegagerðar ríkisins á nýbyggingu
Kjalvegar á 12,3 kílómetra kafla frá Kolkuhóli að Helgufelli. Verkið
á að vinnast fyrir miðjan september. Helmings munur reyndist vera
á hæsta og lægsta tilboðinu, en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúm-
ar 29 milljónir.
Lægsta tilboðið var frá Svavari
J. Árnasyni, Brautarholti, og
var það tæpar 24 milljónir króna,
eða 81,3% af kostnaðaráætlun.
Hæsta tilboðið var hins vegar frá
Hagvirki hf., tæpar 47 milljónir,
sem er um 60% hærra en áætlunin
gerði ráð fyrir.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerð ríkisins hefur ekki enn
verið gengið til samninga við verk-
taka.
Starfsmenn Blönduósbæjar við lagningu á hinum nýju holræsum.
Nýjung í liolræsag’erð
Blönduósi.
STARFSMENN Blönduósbæjar eru um þessar mundir að leggja
holræsi í Hnúkabyggðina. Þessi holræsi eru úr plasti og mun það
vera nýjung hér á landi og eru rörin og niðurföllin flutt inn frá Noregi.
Guðbjartur Ólafsson tæknifræð-
ingur Blönduósbæjar sagði
þessa nýjung í holræsum eitthvað
dýrari í stofnkostnaði en lagning
og viðhald væri mun ódýrara. Sem
dæmi um lagningarvinnuna sagði
Guðbjartur að það hefði tekið
starfsmenn bæjarins um þijá klukk-
utíma að leggja hundrað metra af
rörum með tengingum við niður-
föll. Eins og áður greinir eru hol-
ræsin og niðurföllin úr plasti og er
byrði röranna tvöfalt. Hreinsun nið-
urfalla verður mun einfaldari og
geta starfsmenn bæjarins sjálfir
annast hreinsun þeirra en áður
þurfti að kaupa að vinnu við hreins-
un niðurfalla. Þrátt fyrir að holræs-
in séu úr plasti er burðargeta þeirra
mikil og þau standast íslenska
staðla, sagði Guðbjartur Ólafsson.
Jón Sig.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá afhendingunni á íostudag. F.v. Alan Havsteen-Mikkelsen, synir
hans Harald og Esmund, dóttirin Eva, Line Esbjarn, dæturnar Mat-
hilda og Elienor, eiginkonan Culitte Havsteen-Mikkelsen og Vigdís
Finnbogadóttir forseti.
Forseta Islands afhentar dag-
bækur Martins A. Hansen
FORSETl íslands, Vigdís Finnbogadóttir, veitti á fiistudag viðtöku
dagbókum danska rithöfundarins Martins A. Hansen, sem ferðaðist
um ísland árið 1952 ásamt féiaga sínum, inyndlistarmanninum Sven
Havsteen-Mikkelsen. Afrakstur ferðar þeirra varð bókin „Á ferð um
ísland“, sem Hansen byggði á dagbókunuin sem hann skráði í ferð-
inni. Það var Alan Havsteen-Mikkelsen, sonur Sven Havsteen-Mik-
kelsen, sem afhenti bækurnar.
að er föður mínum. afar mikil-
vægt að dagbækur Hansen frá
ferð þeirra um Island skuli tilheyra
íslandi," sagði Havsteen-Mikkelsen
meðal annars við athöfnina. Hann
sagði, að þrátt fyrir að bækurnar
bæru ekki mikið yfir sér hefði ferð-
in verið Hansen þýðingarmikil, því
hér hafi hann kynnst því íslandi sem
á vissan hátt hafi verið grundvöllur
skáldskapar lians.
Hansen lést árið 1955, aðeins 45
ára að aldri. Bókin „Á ferð um ís-
land“ kom út á dönsku og íslensku,
í þýðingu Hjartar Pálssonar.
Á haustdögum mún Samvinnuferðir-Landsýn gefa l’slendingum færi á að komast í nána snertingu við þaö land
sem oft er kallað vagga vestrænnar menningar. Fyrstu 3 dagana verður dvalið í Kairo við bakka Nílarfljóts þar
sem tignarleg fortíð og nútíðin tengjast saman á heillandi hátt. Gist verður á hinu frábæra 5 stjörnu hóteli Ramses
Hilton. Frá Kairo verður flogið til verslunarborgar-
innar Aswan, sem þekktust er fyrir eina stærstu stíflu
heims. Þaðan verður haldið niður Níl í 7 daga sigl-
ingu á 5 stjörnu lúxusskipi. Komið verður í land á
hverjum degi og skoðaðar fornminjar sem eru þar
við hvert fótmál. - Við lofum ógleymanlegri ferð!
Siglingin endar í Luxor og þaðan ökum við til strand-
bæjarins Hurghada sem stendur við Rauðahafið.
Þar verður strandlíf stundað af miklu kappi í 5 daga
og síðan flogið til Kairo, dvalið þar í 3 daga... og flog-
ið heim.
BROTTFARARDAGAR, VERÐ OG BÓKUN ARSTAÐA
Haustferðin 1. sept. 17dagar.
Verð 121.900 kr. ámann í tvíbýli.
Fyrri aukaferð 23. sept. 16 dagar.
Verð 123.800 kr. á mann í tvíbýli.
Seinni aukaferð 20. okt. 16 dagar.
Verð 134.600 kr. á mann í tvíbýli.
Innifalið í verði er flug og gistlng í Kalro með morgunverði og
2 hádegisverðum, fullt fæði á skipinu og hálft fæði á Hurghada,
skoðunarferðir og íslensk fararstjórn.
FLUGLEIÐIR^ /////£AS
Samvinnuferdir-Landsýn
Reykjavik: Auslurstræti 12. s 91 -691010. Innanlandsleröir. s 91 -691070.
postfax 91 -27796. telex 2241. Hotel Sogu viö Hagatorg. s 91 -622277. postfax 91 -623980
Akureyri: Skipagötu 14. s. 96-27200. postfax 96-27588. telex 2195
Verö miðast viö gengi 20. júni 1990 og er án flugvallarskatts.