Morgunblaðið - 29.07.1990, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ
kennslunemendur fá enga hjálp.
Þetta nær auðvitað ekki nokkurri
átt.“ Þóra sagði að hvað sem kenn-
arar væru áhugasamir væri varla
við því að búast að þeir sem tækju
við nemendum í 7. bekk gætu
byggt ofan á undirstöðu sem ekki
væri fyrir. Hagaskóli hefur þó reynt
eftir megni að aðstoða nemendur
við heimanám eftir að skólatíma
lýkur og nú er komið í gegnum
kerfið að skipa árgangastjóra og
fagstjóra og það ætti að skapa
meiri festu í skólastarfinu svo að
Hefur „jöfnuóur-
inn" í bekkjar-
deildum dregió
úr krufti og dug?
hver vissi hvað næsti maður væri
að gera.
Foreldri nemanda í 8. bekk í
grunnskóia í Kópavogi kannaðist
ekki við að þar væri ekki sett fyrir
og gefinn vitnisburður í tölum og
sama máli gegndi um foreldri bams
sem er að fara í 3. bekk Vesturbæj-
arskólans. Að sönnu væru heima-
verkefni ekki mjög viðamikil en sér
þætti þau miðast við aldur og
þroska barnsins og gengið væri
eftir því að bömin læsu heima og
foreldrar þyrftu að fyigjast með
heimalestri og staðfesta að þeir
hefðu hiustað á barnið með því að
kvitta fyrir á þar til gert eyðublað.
Foreldri barns sem var í 7. bekk í
Réttarholtsskóla sagði að barni sínu
hefði verið sett fyrir heima þó sér
„Stíllinn er aó
fletja nllt út"
þætti að vísu heimalærdómurinn
mjög í hófi, skyndipróf hefðu verið
öðru hverju og einkunnir gefnar í
tölum. Áður var barnið i Fossvogs-
skóla og við lok 6. bekkjar var gef-
in umsögn í hverri grein en ekki
tölur.
Ég hallast að því að ein af ástæð-
um þess hvað sé að gerast í skóla-
kerfinu er að það vanti eindregna
stefnu og kjölfestu. Það er einhver
tilviljanakeimur af námi bama á
grunnskólastigi, hringl og stefnu-
leysi. Ábyrgðina á því að börn með
margnefnda meðalgreind ná ekki
að verða almennilega læs virðist
ekki nokkur maður bera, þar fannst
mér hver vísa á annan og svör loð-
in. Allir voru sammála um nokkur
atriði eins og nauðsyn þess að örva
börnin til lestrar og að það væri
brýnt að efla samvinnu heimila og
skóla. En er það eitthvað nýtt?
Hver ætti að hafa atbeina um það
virtist ekki á hreinu.
Það vom líka allir á einu máli
um að það sé hagstætt að foreldrar
lesi fyrir börn sín, ræði við þau,
leiðbeini þeim. Það er ugglaust gott
og gilt og er ekki gert lítið úr því.
En verði framhaldið þannig að æ
fleiri foreldrar eigi sjálfir í erfiðleik-
um með lestur verður varla mikla
hjálp þar að fá. Hver kemur þá
börnunum til aðstoðar? Það hlýtur
að vera sjálfsögð krafa til skólakerf-
isins að nemendum sé skilað læsum
út í lífið og mætti kenna við mann-
réttindi.
Þóra K. Jónsdóttir, kennari,
sagði aðspurð að hún teldi, að
óbreyttu ástandi, að í framtíðinni
breikkaði bilið milli fólks. „Það
verða alltaf einhvetjir toppar sem
standa sig. En hópur menntunar-
snauðra gæti stækkað geigvæn-
lega. Með stóralvarlegum afleiðing-
um. Mér hrýs hugur við ef svo fer.
En sem stendur er útlitið ekki
bjart. Við fáum æ fleiri illa undir-
búna nemendur í efri bekkina og
Börn sem ekki
eru dæmdir sér-
kennslunem-
endur f ú ekki
hjúlp.
með ótrausta undirstöðu. Við það
koma upp vandamál sem verður
stöðugt erfíðara að sigrast á.“
En hvar er orsakanna að leita?
Hvernig stendur á því að barn
kemst fyrirstöðulítið/laust upp allt
grunnskólakerfíð með undir lág-
markskunnáttu í lestri, skrift og
stafsetningu? Hér er átt við barn
með „eðlilega greind" sem ætti að
hafa möguleika á að ná því „að
stauta texta, skilja hann og geta
sagt frá hvað textinn snerist um“
samkvæmt þriðju skilgreiningu um
hvað er að vera læs. Hvaða framtíð
bíður þess? Hvaða tækifæri?
Topp 20
A 1 O LEAN ON ME
▲ 2 © BACK TO THE FUTURE 2
■ 3 o JOHNNYHANDSOME
A 4 o SEX, LIES AND VIDEOTAPE
▲ 5 © JANUARY MAN
A 6 © SAY ANYTHING...
C3 7 o PINK CADILLAC
8 o FIGHTING JUSTICE
ra 9 © DEAD POETS SOCIETY
V 10 o THE ABYSS
V 11 o CHILD'S PLAY
V 12 o THE PACKAGE
▲ 13 © IT TAKES TWO
A 14 © YOUNG EINSTEIN
A 15 © A SUMMER STORY
A 16 © PINK PANTHER "SAFNIÐ"
V 17 © K 9000
V 18 o DEAD CALM
A 19 © CLEAN AND SOBER
■ 20 © GHOSTBUSTERS2
Popefjölskyldan hefur farið huldu höfði í 15
ár á flótta sínum undan bandarísku
alríkislögreglunni FBI. Stórgóð mynd sem
valin var meöal þeirra tíu bestu f
Bandarfkjunum.
ROAD HOUSE
Patrick Swayze í frábærri mynd sem hefur allt
til að bera, spennu, grfn og topp tónlist.
Framleiðendum “Die Hard” og “Leathal
Weapon” bregst ekki bogalistin frekar en fyrri
daginn. ÚTGÁFA 2. ÁGUST
-Við kappkostum
að eiga myndirnar.
-Ifið viljum veita
góða þjónustu.
-Við bjóðum úrval
titla.
MYNDIR
jtmm
Greinagóöar
merkingar.
4 verðflokkar:
200 kr, 300 kr,
350 kr, 400 kr.
BÓNUSK0RT,
tíunda hver
spóla frí!
SAY ANYTHING... A ^^gjQRY
LEAI\I 0N ME
SKIPH0LTI 9 s: 626171 - ÁLFABAKKA 14 MJÓDD S: 79050
PINK CADILLAC
THRILLKILL
Útgáfa 2. ágúst.
Þarsem
myndirnar fást
M • Y'N-D-I-R
KRINGLAN 4 s: 679015 - REYKJAVÍKURVEGUR 64 651425 |D y I) d b ö I) d ö I e Í Q U f