Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 19

Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 19 texti og myndir Árni Matthíosson, fyrirsögn Tóti L. að kostar sitt að leggja í annað eins ævintýri og tónleika- ferð um Bandaríkin, og þann kostnað varð sveitin að greiða úr eigin vasa að miklu leyti, þó Smekkleysa, sem ekki er stöndugt fyrirtæki, hafi lagt sitt af mörkum, en allir opinberir sjóðir virtust þurrir þegar til þeirra var leitað. Kostnaður sveitarmeð- lima, þeirra Halldóru Geirharðs- dóttur (Dóru wonder), Margrétar Kristínar Blöndal (Möggu Stínu), Þórarins Kristjánssonar (Tóta), Sig- urðar Guðmundssonar (Sigga), og Ivars Ragnarssonar (Ivars bongó), var víst á aðra milljón, en sá ferða- máti sem reynst hefur hvað best hér á landi í sveitaballharkinu, að fara um í sendiferðabíl með hljóð- færin afturí, reyndist ódýrastur og varð því fyrir valinu. Ekki var mik- ið fé afgangs fyrir gistingu og var því einatt treyst á vini og vanda- menn. Með í för var Pétur Gíslason hljóðmaður, bílstjóri og þúsund- þjalasmiður, en skipuleggjandi var Jo Cavanagh, starfsmaður Smekk- leysu í Bandaríkjunum. Bandaríkjaförin hófst í World International Café í New Haven í Connecticut 11. júlí sl. og henni lauk í CBGB’s í New York sl. föstu- dag. Á þeim rúmum tveimur vikum sem ferðin stóð lék sveitin í Wash- ington, Boston, New York, Philad- elphia, Albany og fleiri borgum. Hápunktur ferðarinnar var tónleik- ar i New York á tónlistarráðstefn- unni New Music Seminar, enda á staðnum útsendarar útgáfufýrir- tækja og blaðamenn. Prjónaverksmiðjan Knitting Factory þykir með merkari tónleikaklúbbum New York, en líklega er staðurinn þekkt- astur fyrir að vera ljóðskáldastaður og var þar víst helsta afdrep bítnikkskálda sjöunda áratugarins. Af Knitting Factory fer það orð að ekki fái nema góðar sveitir þar inni og staðarhaldari sýndi okkur stæð- ur af hundruðum hljómsnælda sem hann sagðist fá sendar frá sveitum sem vildu fá .að spila. Sveitarmeðlimir léku á als oddi þegar uppstilling hljóðfæra fór fram, sögðu tónleikaferðina hafa gengið frábærlega og treyst vin- áttubönd innan sveitarinnar. Þau sögðu sölu á plötu sveitarinnar Fame and Fossils hafa tekið kipp í öllum borgum sem þau höfðu spil- að í, en myndband með laginu Hope var tekið til sýninga í MTV-sjón- varpsstöðinni sama dag og sveitin átti að leika í New York og þau áttu að fara í viðtal í stöðinni seinna um daginn. Smekkleysa auglýsti íslenskt tónlistar-, kvikmynda- og ljóða- kvöld. Tónlistina sá Risaeðlan um, kvikmyndin var hin snjalla stutt- mynd Óskars Jónassonar Sérsveitin Laugarásvegi 25 og ljóðin voru flutt af Einari Erni Benediktssyni af seg- ulbandi. Einar Örn var fyrstur á dagskrá og grun hef ég um að flutn- ingur hans hafí farið fyrir ofan garð og neðan hjá áheyrendum; þarf enda nákvæma hlustun. Kvik- mynd Óskars kom næst. Þeim sem ekki þekkja til má segja að myndin SSL25 dregur ofbeldisdýrkun og víkingasveitir sundur og saman i háði, en það tók áhorfendur nokk- urn tíma að átta sig á séríslenskri kímninni. íslendingar á staðnum skemmtu sér konunglega og hrifu hina erlendu gesti með og myndinni var vel fagnað í lokin. Risaeðlan hefur tekið stórstígum' framförum frá því hún lék í New York fyrir réttu ári. Þá var hún efnileg, en er nú hæf til hvers sem vera skal, geysiþétt og lífleg tón- leikasveit. Magga og Dóra voru glæsilega klæddar á sviðinu, búnar að æfa upp fullt af nýjum sporum og greinilega lagt mikla vinnu í að fella sviðsframkomu að lögum. Lög- in voru öll af plötunni nýju í spræk- um útsetningum, en eitt nýtt lag flaut með, Te Caro. Greina mátti á viðstöddum að þeir áttu ekki von á sveitinni þetta frísklegri og sagði við mig blaðamaður Rolling Stone, David Fricke, að eftir að hafa séð Risaeðluna á sviði þætti honum platan nánast dauf; þessir tónleikar væru með þeim bestu sem hann hefði séð. Lokalag Eðlunnar á þess- um tónleikum var Boys Will be Boys í einkar kraftmikilli útsetn- ingu sem vakti rnikla hrifningu við- staddra. Á eftir Eðlunni kom á svið bandarísk hermirokksveit, og fjöldi gesta færði sig á neðri hæð staðar- ins þar sem barinn var til að bíða seinni tónleika Risaeðlunnar þenn- an dag, því framundan voru lokaðir tónleikar fyrir gesti sem hefjast áttu um eittleytið. Stuttu áður en sveitin átti að fara á svið kom á staðinn David Byrne, forsprakki Talking Heads. Hann ætlaði greini- lega að staldra stutt við og þegar hann var að fara áður en Eðlan hóf leik sinn sveif Magga Stína á hann með lítraflösku af íslensku Brennivíni í annarri hendinni og áritaða Risaeðluplötu í hinni. Byrne brá greinilega nokkuð þegar hún bauð honum að súpa á en þáði og fékk sér vænan sopa. Byrne tók plötunni vel og lýsti ánægju sinni. Villtar eðlur Hafi hljómsveitin verið lífleg fyrr um kvöldið þá var hún villt seinni tónleikana. Dóra og Magga Stína voru hamaðar á sviðinu og ekki síður piltarnir, Tóti, ívar og Siggi. í stað þess að fiðla og saxófónn léku saman laglínur kepptust þau um að ná athyglinni og Dóra og Magga fléttuðu á köflum sérlega skemmtilega saman stefjum. Loka- lagið var sem fyrr Boys Will be Boys, en nú í þungarokkútsetningu, nánast Metallica-keyrslu. I því lagi og mörgum öðrum, fékk maður á tilfinninguna að hljómsveitin vissi vart af áheyrendum; sveitarmeðlim- ir væru að leika fyrir sjálfa sig ekki síður og jafnvel frekar en fyr- ir þá sem á horfðu. Ekki fór á milli mála að þau skemmtu sér hið besta á sviðinu sem skilaði sér beint til áheyrenda. Alls lék sveitin í um klukkustund seinna skiptið, en hefði vel mátt leika í annan eins tíma. Baksviðs lá vel á þeim Risaeðlum, sem sögðu þessa tónleika eina af þeirra bestu. Þar var líka staddur blökkumaður, sem mærði Tóta fyr- ir snjallan trommuleik og sagði hann með betri trymblum sem hann hefði séð. Blökkumaðurinn, sem var víst tannlæknir, sagði Eðlum að faðir hans ætti frægan veitingastað í Harlem og bauð hljómsveitinni út að borða. Eftir mat sagðist hann mundu sýna þeim Harlem, eða í það minnsta þeim hluta hverfisins sém föðurbróðir hans „stjórnaði“. Ekki fór sögum af því hvað sá gerði. Bretland næst Daginn eftir kom ég að máli við talsmann Rough Trade-útgáfunnar, Gerald Helm, sem dreifir plötu Eðl- unnar í Bandaríkjunum. Hann sagði Eðluna fyrirtaks hljómsveit að sínu mati og eiga góða möguleika á að ná langt í Bandaríkjunum, en frammámenn innan fyrirtækisins hafa mikinn hug á að gera við hljómsveitina beinan útgáfusamn- ing. Hann skýrði og frá því að til- boð hefði borist frá breskri bókun- arskrifstofu, sem lýsti áhuga sínum á að bóka hljómsveitina á tónleika- ferð um Bretland síðar á árinu og eru því allar líkur á að Risaeðlan leggi land undir fót og haldi til Bretlands í október. Reyndar er verið að vinna að því að gefa út með hljómsveitinni aðra plötu, tólf- tommu, sem á yrðu tvö ný lög og eldra efni, til að fylgja eftir góðum viðtökum Fame and Fossils. Risa- eðlan á því góða möguleika á að ná langt, en það fer víst allt eftir því hvað þau hyggjast gera sjálf og, ekki síst, á hveiju þau hafa efni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.