Morgunblaðið - 29.07.1990, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 29.07.1990, Qupperneq 24
fn*r$tmWtaMfe ATVINNURAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR Tollverðir Tollstjórinn í Reykjavík auglýsir eftir nokkrum tollvörðum til starfa hjá tollgæzlunni. Umsækjendur eiga að vera á aldrinum 20-30 ára og hafa stúdentspróf eða sambæri- lega menntun. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst nk. Sölu- og mark- aðsfulltrúar Skrifstofuvélar Sund hf. auglýsa eftir að ráða fólk til starfa í söludeild við sölu- og markaðssetningu á ljósritun- arvélum, hugbúnaði og rekstrai’vörum. Tekið er fram, að um sjálfstæð og kreíjandi störf er að ræða. Óskað er eftir duglegu og áreiðanlegu fólki með reynslu og þekkingu á sölustörfum. Forstöðumaður lögfræðideildar íslandsbanki auglýsir lausa stöðu forstöðumanns lög- fræðideildar bankans. Hlutverk deildarinnar er m. a. að vera stjómendum bankans til ráðuneytis varðandi lög- fræðileg málefni og hafa umsjón með innheimtu vanskila við bankann. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst nk. Framtí ðar starf hj á Byggingaþj ónustunni Byggingaþjónustan, sem er upplýsingaþjónusta á sviði húsnæðis- og byggingamála, auglýsir eftir starfsmanni til framtíðarstarfa. Um er að ræða fjölbreytt skrifstofu- og afgreiðslustarf. Oskað er eftir traustri manneskju með vélritunarkunnáttu, gott vald á íslenzku máli og góða almenna þekkingu. Hjúkrunarforsljóri á Dalvík Heilsugæzlustöðin á Dalvík óskar eftir hjúkrunarfor- stjóra. Til Dalvíkurlæknishéraðs heyra Hrísey, Svarfaðar- dalshreppur og Arskógsströnd. Ibúar eru 2.400 (1.430 á Dalvík). Æskilegt er, að umsækjandi hafi sérnám í stjórn- un eða heilsuvernd. Myndmenntakennari við Vopnaflarðarskóla Auglýst er eftir myndmenntakennara við Vopnafjarðar- skóla næsta skólaár. í boði fyrir réttindakennara er flutn- ingsstyrkur og húsnæðisfríðindi Hluthafafundur íslenzka útvarpsfélagið og íslenzka sjónvarpsfélagið boða til hluthafafundar þriðjudaginn 31. júlí nk. kl. 16.00 vegna sameiningar félaganna. A dagskrá fundarins er tillaga um breyttar samþykktir, kjör tveggja viðbótarmanna í stjórn, kosning endurskoðenda og önnur mál. Fundarstað- ur er Holiday Inn. Félagar í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur eru fjölmennastir á atvinnuleysisskrá á höfuðborgarsvæðinu. Myndin er tekin lrá fundi VR um kjaramál í apríl 1988. Höfuðborgarsvæðið: Rúmlega 1000 manns skráðir atvinnulausir í Bessastaðahreppi er ekkert atvinnuleysi Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU öllu eru nú í kringum eitt þúsund manns á atvinnuleysisskrá, en þetta er sá árstími þar sem minnst ber á at- vinnuleysi. Kvenfólk er í meirihluta samkvæmt veiy’u, en um það bil 150 fleiri konur eru skráð- ar atvinnulausar en karlmenn. Ekki var hægt að fá uppgefnar nýjar tölur í öllum sveitarfélög- um, en tölurnar hér að neðan gefa þó nokkra mynd af ástandinu. Mest virðist atvinnuleysið vera hjá verslunarfólki og sjómönnum. Hjá Ráðningarskrifstofu Reykjavíkurborgar fengust þær upplýsingár sl. föstudag, að 767 manns væru skráðir atvinnu- lausir í Reykjavík, þar af 435 konur og 332 karlar. Og að mest bæri á fólki úr Verslunarmannafélagi Reykjavíkur og sjómönnum. í Mos- fellsbæ voru um mánaðamótin júní/júlí 26 einstakiingar á skrá, þar af 12 karlar og 14 konur. Má búast við því að fækkun hafi orðið einhver. Hjá Sigríði Baldursdóttur starfs- manni Félagsmálaskrifstofu Kópa- vogs fengust þær upplýsingar, að í lok júní hefðu 165 manns verið á skrá, þar af 90 konur og 75 karl- ar, en líklega væru nú í kringum 135 manns á skrá og þar af flest verslunarfólk. Sagði hún að þó nokkrir væru búnir að vera á skrá í 52 vikur og væru komnir á bið- tíma, sem eru 16 vikur, þar sem fólk þarf að mæta til skráningar vikulega, áður en atvinnuleysisbæt- ur hefjast að nýju. Bessastaða- hreppur hefur þá sérstöðu, að þar er enginn á atvinnuleysisskrá, en um síðustu mánaðamót var einn karlmaður skráður þar atvinnulaus. í Hafnarfirði voru á skrá um síðustu mánaðamót 131 maður, þar af 78 konur og 53 karlar og á Seltjarnar- nesi voru skráðir 22 atvinnulausir, þar af 18 konur. í þessum síðast- nefndu sveitarfélögum má búast við að einhver fækkun hafi orðið miðað við þróunina annars staðar. Djúpivogur Atvinnu- ástand gott Atvinnuástand hér á Djúpavogi hefur verið gott það sem af er árinu. Atvinnuleysi hefur reyndar verið svo gott sem óþekkt fyrir- bæri hér síðan árið 1981. Stærsti atvinnuveitandinn er hraðfrystistöðin Búlandstindur h/f sem veitir að meðaltali um 90 manns vinnu. Búlandstindur gerir út tvö fiskiskip; togarann Sunnutind og Stjörnutind sem er tæplega 200 tonna skip. I janúar var frystihúsinu lokað um hálfs mánaðar skeið vegna upp- setningar á flæðilínu í snyrtingu og pökkun og síðan var lokað aftur nú í byijun ágúst þar sem togarinn fer í slipp og smábátarnir verða í veiði- banni. Stjörnutindur hefur verið á humarveiðum í sumar og landað í Þorlákshöfn. Smábátaútgerð er töluverð hér og fyrstu fimm mánuði ársins hafa smábátar landað um 700 tonnum. Gæftir voru góðar í vetur en ekki hafa trillukarlarnir verið ánægðir með sumarið, tíð hefur verið mjög leiðinleg hér og lítið gefið á sjó. Sunnutindur landaði fyrstu fimm mánuði ársins 1.153 tonnum fyrir um það bil 75 milljónir króna. Afla- verðmæti Stjörnutinds var um það bil 24,5 milljónir króna. Alltaf er eitthvað um erlenda verkamenn hér í fiski og á þessu ári hafa verið 6—8 manns, Pólveijar og Júgóslavar auk nokkurra inn- lendra farandverkamanna. Hótel Framtíð er nú rekið sem heils árs hótel og nú í sumar hafa sex manns verið þar í fullum stöð- um. Það hefur verið mikið að gera í allt sumar, mikið af erlendu og innlendu ferðafólki og auk þess hef- ur flokkur vegavinnumanna verið þar í fæði meiripart sumarsins. Atvinna hjá iðnaðarmönnum hef- ur verið stopul síðustu ár og hafa þeir nokkuð þurft að sækja í önnur byggðalög eftir verkefnum. Þó hefur verið nokkuð mikið að gera á þessu ári í byggingarvinnu og þess háttar. Fjórar kaupleiguíbúðir verða afhent- ar nú í byijun ágúst. Fyrsta skófl- ustungan að dvalarheimili aldraðra var tekin í sumar og er ætlunin að steypa sökkla og plötu í sumar. Gísli Mest atvinnuleysi hjá versl- unarfólki og sjómönnum Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU mun mest vera um atvinnuleysi hjá verslulnarfólki og því næst hjá sjómönnum. Að sögn Þorgerðar Sigurðardótt- ur hjá VR er um svipaðan fjölda að ræða nú og undangengna mánuði, eða 240 manns og er það fólk sem starfar í Reykjavík, Kópa- vogi, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ. Þorgerður segir að ekk'i sé mikið um að fólki hafi verið sagt upp undanfarið vegna gjaldþrota, en þó sé það inni í myndinni. Jónas Garðarsson hjá Sjómanna- félagi Reykjavíkur sagði að at vinnuleysi meðal háseta og kokka væri með mesta móti nú, en 43 einstaklingar eru á atvinnuleysis- skrá. Hann segir þróunina smám saman hafa verið að færast í þessa átt frá árinu 1988, en í október það ár voru einungis 4 manns skráðir atvinnulausir, í febrúar 1989 hafði þeim fjölgað í 23 og nú væru þeir 43 eins og fyrr getur. Hjá Farmanna- og fiskimanna- sambandi íslands fengust þær upp- lýsingar að sjö menn frá þremur félögum væru á atvinnuleysisskrá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.