Morgunblaðið - 29.07.1990, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.07.1990, Qupperneq 34
34 Karlímynd og uppeldi Karlmenn hafa löngum vafist mikið fyrir mér. í rauninni skil ég þá ekki, svo ég hef tekið þann pól í hæðina að „hafa húmor fyrir þeim“. Læt eins og þeir séu sniðugasta fólk með reynsluheim sinn vel njörvaðan inn í helli steinald- aráranna; alltaf í varnarstöðu. Kvennabaráttan ku ganga illa vegna þess að karlmenn eru ekki tilbúnir að sætta sig við breyttar forsendur, heldur standa í fullum herklæðum, tilbúnir að veija sitt yfirráðasvæði — og halda vöku sinni, jafnt á nóttu sem degi. En þótt ég og vinkonurnar getum orðið sárar og reiðar út i karlmenn og þótt við getum brosað að þeim — allt mjög neikvætt, þá verður maður að reyna að skálda upp nýja „týpu“ handa þeim börnum sem maður elur upp. Og þá þarf að vanda sig. í gær gerði ég mér þó grein fyrir því að öll . jákvæð viðleitni er til einskis. Ég fór með dætur minar tvær til fjölskyldutannlæknisins, sem er yndislegur og hefur haldið stellinu í okkur gangandi við góðan orðstír árum saman. Eldri dóttir mín játaði fyrir mér eftir á að henni hefði ekki þótt meðferðin betri en það, að fram- vegis mundi hún ekki borða sykur- mola. Sú yngri fékk hins vegar mjúka burstun og þegar við vorum staddar á kaffihúsi seinna um dag- inn. óð hún í molakarið og hóf að úða i sig þessu smágerða eitri. Ég fór að leiða henni fyrir sjónir að i molan- um væru Karíus og Baktus, sem Jt væru vondir og gerðu göt i tennurn- ar. Hún, tveggja ára. skildi ekkert h vað ég var að fara — svo eldri systir- in, lifsreynd, fimm ára með þrjár splunkunýjar viðgerðir — sagði henni að það væru litlir karlar sem boruðu gat i tennurnar. Sú stutta fölnaði, spýtti út úr sér hálfu mola- kari og þurrkaði sér vandlega um iúðurinn. Ógleðin fór ekki á milii mála. Við þetta rifjaðist upp fyrir mér svipuð reynsla sem ég gekk í gegn- um. Eftir að mér var sagt frá Karíusi og Baktusi. varð ég hrædd við alla karlmenn, því ég vissi ekki hvernig þessir bijálæðingar litu út. Þetta var sem sagt fyrir daga sjónvarpsins. Auðvitað sá ég seinna að þeir eru dálitið likir Sigríði Hagalin og Borg- ari Garðars. En þá var ég þegar orð- in hrædd við karlmenn. ZJt' Þá var ég líka búin að fara oft til tannlæknis — sem boraði og meiddi — svo ég hélt að Garðar tannlæknir í Keflavík væri annar þeirra. Fyrsta „impressjón" var sem sagt ofbeldi. Þegar ég kom í barnaskóla. var skólastjórínn karlmaður. Ég var fremur masgefin og eirðarlaus nem- andi og var oft hótað að senda mig til stjóra. Það gerði mig svo ótta- slegna að ég þagði, að mestu, fram að næstu frímínútum. Það var ekki fyrr en i lok barnaskólans, að ég komst að þvi að skólastjórinn var engill, sem lét nemendur bara teikna þegar þeir voru sendir til hans. Nú fór heimsmynd min að riðlast og þegar ég kom i gagnfræðaskóla, hló ég bara þegar einhver kennari sagðist ætla að senda mig til skóla- stjórans — jafnvel þótt sögur færu af honum sem kolbrjáluðum í skap- inu. Þar kom að þvi að ég var send til Rögga skröggs, eins og hann var kallaður, en var þá svo heppin að hálfur 4. bekkur C hafði líka verið sendur til hans. Ég stóð upp við vegg- inn. aftast, og ákvað að láta lítið fyr- ir mér fara. Þetta var dimmur vetrar- morgunn — og allt í einu slokknuðu ljósin. Það varð mikið uppnám á skrifstofu stjóra og hann einn hélt að rafmagnið hefði farið — enda sat hann úti í glugga og sá ekki að allur skólinn var uppljómaður. Þegar hann hafði fátað eftir kertisstubb í dágóðan tíma, aumkaði einn úr C-bekknum sig yfír hann og sagði honum að það væri bara Ijóslaust í þessu herbergi. Stjóri sá strax i gegn- um þvöguna að ég hafði slökkt ljósið. Og þótt ég hefði gert það óvart með bakinu, varð hann óður; reif mig upp á öxlinni, hristi mig alla til og rak mig út af sinu yfirráðasvæði. Hann staðfesti ofbeldishugmyndir minar um karlmenn svo um mun- aði. Samt reyni ég að ala dætur minar upp i jákvæðri afstöðu til karl- i- manna. Kenni þeim bara eitt; alls ekki slökkva Ijós í návist karlmanna — ólikt leðurblökum verða þeir að sjá það sem þeir óttast. eftir Súsönnu Svavarsdóttur MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ SJOSLYS Vitjar votrar grafar bróður síns Sjórinn tók drjúgan toll af íbú- um hafnarborgarinnar Hull í Bret landi í byijun ársins 1968. Á mánaðartíma fóru þrjú skip í haf- ið og 58 skipveijar drukknuðu. Fyrsta slysið varð snemma í jan- úarmánuði þegar 20 manna áhöfn breska togarans St. Romanus drukknaði úti fyrir ströndum Norður-Noregs. Aðeins nokkrum dögum seinna varð annað slys. Hull-togarinn Kingston Peridot fórst fyrir Norðurlandi með allri áhöfn, 20 mönnum. Fjórða febrú- ar varð þriðja slysið. Togaranum Ross Cleveland hvolfdi vegna yfirísingar úti fyrir Vestfjörðum og var hann talinn af með 19 manna áhöfn. Daginn eftir fannst stýrimaður togarans á lífi í gúm- íbát sem rak að landi í botni Seyð- isfjarðar. Tveir aðrir höfðu komist í bátinn en látist úr vosbúð. Nú, rúmum tuttugu árum eftir slysaölduna, sem nefnd hefur ver- ið „The unforgetable triple traw- ler tragedy of 1968“, er systir eins skipverjanna, sem fórst með Ross Cleveland, komin til íslands til að kveðja bróður sinn í hinsta sinn. Konan, sem heitir Marianne Tansey, kom til ísafjarðar á mánudaginn þar sem félagar í slysavarnasveitinni tóku á móti henni og fylgdu henni á strand- stað þar sem hún lagði blómsveig á vota gröf bróður síns. Á þriðju- daginn kom Marianne til Reykjavíkur og á miðvikudaginn sat hún kaffisamsæti sem Slysa- varnafélagið í Reykjavík hélt henni til heiðurs. Marianne sagðist lengi hafa velt því fyrir sér að koma til ís- lands og vitja votrar grafar bróð- ur síns sem fórst aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri. „Hann hafði meiðst í öxlinni," segir Mar- ianne, „og varð eftir þegar skipið, sem hann var á, fór til veiða. Hann náði sér áður en það kom að landi aftur og ákvað því að Morgunblaðið/B.B.S. Blómsveigur lagður á vota gröf skipverjanna á Ross Cleveland. nýta tímann og taka Iaust rúm á Ross Cleveland en hann kom ekki aftur úr þeirri ferð.“ Hún tekur fram að hún hafi fengið afar hlýj- ar móttökur hér á landi. „Þegar ég kom hingað með vinkonu minni, Evelyn, á laugardaginn hélt ég að við myndum fara þang- að út einar en annað kom í ljós. Félagar í Slysavarnafélaginu á Isafirði vildu allt fyrir okkur gera og þegar við komum til Reykjavík- ur voru við boðnar innilega vel- komnar af Slysavarnafélaginu í Reykjavík,“ segir hún og bætir við að Rauði krossinn hafi verið svo rausnarlegur að bjóða vinkon- unum ókeypis gistingu á hóteli þann tíma sem þær dveljast í Reykjavík. „Ég er afar þakklát og fegin að ég fór þessa ferð því það að hafa séð þennan fallega stað gerir mér auðveldara að sætta mig við að þar hvíli bróðir minn.“ Marianne afhenti Örlygi Hálf- dánarsyni, forseta SVI, viður- kenningu frá enskum sjómönnum fyrir björgunarstörf íslendinga í upphafi árs 1968 í kaffisamsæti Slysavarnarfélgsins henni til heið- urs á miðvikudaginn. Frá Slysa- varnarfélaginu fékk hún merki félagsins. Marianne og vinkona hennar, Evelyn, héldu til Hull í gær eftir vikudvöl á íslandi. Morgunblaðið/Þorkell Marianne Tansey við Reykjavíkurhöfh á miðvikudaginn. UTSALAN heffst á morgun Opnum kl. 10 líiðuJflid Skólavöröustíg 6 BRUÐHJO^IKUNNAR Á bleiku skýi BRÚÐHJÓN vikunnar eru Díana von Ancken og Grétar Þorgeirs- son sem giftu sig í Grindavíkur- kirkju laugardaginn - 7. júlí. Prestur var séra Hjörtur Magni Jóhannesson. Þrátt fyrir að Grétar og Díana ælust bæði upp í Grindavík kynntust þau ekki af alvöru.fyrr en Díana sneri aftur til Grindavík- ur eftir nokkurra ára dvöl í Eng- landi fyrir rúmum tveimur árum. „Ég fór út í heim til að leysa lífsgátuna þegar ég var nítján ára,“ segir Díana sposk og bætir við að hún hafi ekki komist lengra en til Bretlands þar sem hún giftist og eignaðist tvö börn, Bryndísi Gwenný og John Friðrik Bond. Bretlandsdvölin var ekki löng og snemma árs 1988 hélt Díana heim með börnin tvö, þá eins og þriggja ára. „Ég hafði ekki tekið eftir Grét- ari áður en ég fór út enda er hann dálítið yngri en ég,“ segir Díana.„Á þessum árum fannst manni ekki Bryndís Gwenný og John Friðrik við veisluborðið. þess virði að líta á yngri patta. En þegar ég fluttist aftur til Grindavíkur gat ég ekki hjá því komist að taka eftir honum enda gerði hann sér oft ferð í félags- heimilið þar sem ég vann eftir að ég kom að utan.“ Grétar, sem er sjómaður, viður- kennir aftur á móti að hafa tekið eftir Díönu þegar hann var fjórtán ára og elskað hana í laumi. „Ellefu árum seinna lifði enn í gömlum glæðum,“ segir hann, „en ég þurfti svo sannarlega að leggja mig allan fram. Það tók mig marga mánuði að fá hana út að borða en þar með var málið heldur ekki í höfn. Brúðhjónin, Grétar Þorgeirsson og Díana von Ancken.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.