Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 35

Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 35 HJALPRÆÐISHERINN Með slöngur við rúmstokkinn Miriam Óskarsdóttir heitir kona sem undanfarin sex ár hefur starfað fyrir Hjálpræðisherinn í Mið-Ameríku-ríkinu Panama, fyrst á barnaheimili og seinna við safnað- arstarf. Ekki alls fyrir löngu veikt- ist hún í baki og var send til Is- lands til lækninga. Nú er Miriam á fönim til Panama þar sem hún tek- ur við starfi æskulýðsfulltrúa Hjálp- ræðishersins. í ferð með henni eru tvær ungar konur, Ingibjörg Ein- arsdóttir frá Akureyri og sam- starfskona Miriam frá Panama, Karina. Miriam segir það hafa verið mik- il viðbrigði fyrir sig að koma til Panama. „Mér leið illa í öllum þess- um hita og raka,“ segir hún. „Svo var fátæktin gífurleg og allt mor- andi í skordýrum. Auðvitað hafði ég séð myndir af ástandinu í sjón- varpinu en raunveruleikinn er allt annar og átakanlegri. Mér fannst þetta blátt áfram hræðilegt. Smám saman tóku hlutirnir þó að skána. Ég lærði tungumálið, sem er spænska, og fór að vinna. Ég vann á heimili fyrir börn sem ekki gátu búið heima hjá sér annað hvort vegna fátæktar eða vegna þess að foreldrar þeirra voru í óreglu. Flest voru þau á skólaaldri en meðan ég vann þarna komu tvö yngri börn á heimilið. Þau voru fljótlega send til fósturforeldra en eldri börnin bjuggu á heimilinu þangað til þau urðu átján ára eða Nokkrum löngum mánuðum seinna, rétt áður en ég fór á vertíð, gat ég ekki beðið lengur með að vita hvort tilfinningar okkar væru gagnkvæmar og hvernig framhald- ið ætti að vera. Þá loksins gaf hún sig og varð kærastan mín. Ég fór auðvitað alsæll á sjóinn. Tæpu ári seinni, þann sjöunda sjöunda klukkan sjö eftir hádegi, trúlofuðum við okkur úti á sjó. Við völdum þessa tímasetningu því 777 er tala Guðs og þessa staðsetningu því að sjórinn er mitt líf.“ í apríl síðastliðnum bað hann svo Díönu. „Hann bauð mér út að borða,“ segir Díana og ég hélt að það væri í tilefni að afmælinu hans sem var nýliðið en allt í einu kraup hann á hnéð og spurði hvort ég vildi gift- ast sér. Ég flýtti mér auðvitað að segja já til þess að hann stæði upp,“ segir Díana og hlær. „Við ákváðum svo að gifta okkur þann sjöunda sjöunda klukkan sjö,“ bætir hún við. Diana sá um mestan undirbún- ing brúðkaupsins. „Ég hef alltaf haldið að ég væri rólegheitamann- eskja en þegar brúðkaupið nálgað- ist gerði stress vart við sig. Ég var til dæmis farin að leita að fötum inn í ísskáp,“ segir hún. „Og nokkr- um dögum fyrir bníðkaupið gekk ég á rúðu með þeim afleiðingum að það þurfta að sauma fimm spor rétt ofan við annað augað. Þess vegna fórum við ekki i myndatöku á brúðkaupsdaginn. Við geymum það til betri tíma.“ Athöfnin í kirkjunni gekk eins og í sögu. „Maður skalf náttúru- Jega þegar maður gekk inn en eft- ir að við höfðum snúið okkur í átt að altarinu vorum við tvö ein í heiminum, á bleiku skýi,“ segir Díana. Grétar segist alltaf eiga eftir að muna eftir kossinum í kirkjunni. „Og því þegar hún hvíslaði milli samanbitinna var- anna, þú ert allur út í varalit,“ og Díana bætir við að hann hafi í vandræðum sínum reynt að þurka út varalitinn með handarbakinu. Að athöfninni lokinni var boðið til veislu í Sjómannaheimilinu þar sem hundrað veislugestir skemmtu sér fram eftir nóttu. Daginn eftir héldu svo brúðhjónin, ásamt börn- unum tveimur, í sumarbústað að Stóruskógum. höfðu lokið námi. Yfirleitt voru sautján til átján unglingar á heimil- inu og tveir starfsmenn, ég og kól- umbísk kona. Við skiptumst á að elda matinn og hjálpa krökkunum að læra. Ég kunni þessu starfi vel en auðvitað kom ýmislegt uppá“, segir Miriam. „Ég viðurkenni til dæmis að ég var ekkert sérlega ánægð þegar tvær slöngur voru komnar inn til mín einn morguninn þegar ég vaknað. Þær höfðu skrið- ið gegnum gluggann í herberginu en í honum er ekki rúða frekar en í öðrum gluggum í húsinu sem stendur út í sveit. Þegar ég hafði unnið í þijú ár á heimilinu var ákveðið að ég færi yfir í safnaðarstarf en það er mjög öflugt í Panama. Við höfum verið með samkomur, fyrir ajmenning og frelsaða, alla vikuna. Á sunnudög- um erum við svo með sunnudaga- skóla fyrir börnin. Einhvern tíma meðan á honum stóð tók foringi eftir því að einhver barnanna voru að gráta. Þegar hann spurðist fyrir um ástæðuna kom í ljós að börnin grétu af hungri. Því var brugðið á það ráð að hafa morgunmat fyrir krakkana áður en sunnudagaskól- inn byijaði. Seinna var ákveðið að Morgunblaðið/Árni Sæberg Miriam Oskarsdóttir. gefa börnunum mat tvisvar sinnum í viku. Við höfum reynt að koma okkur upp aðstöðu til að þau geti borðað matinn á staðnum en sums staðar hefur það ekki verið hægt. í þeim tilvikum reynum við að pakka matarbökkunum þannig inn að þeir komist ekki í hendurnar á öðrum í fjölskyldunni, til dæmis pöbbunum, sem borði matinn frá' börnunum eða selji hann.“ Eins og áður sagði er Miriam nú á förum til Panama þar sem hún mun gegna starfi æskulýðsfulltrúa Hjálpræðsihersins næstu tvö ár. Eftir það er óráðið hvað hún tekur sér fyrir hendur enda er venjan sú að Hjálpræðisherinn skipi fólk til starfa þó hermenn geti að sjálf- sögðu haft einhver áhrif á hvert þeir eru sendir. Þess má að lokum geta að Hjálpræðisherinn starfar í sjálfboðavinnu en þeir sem starfa eingöngu hjá hernum fá frá honum uppihaldskostnað fyrir sig og ijöl- skyldu sína. cöbJTesNAKe •• RISAROKKIREIÐHOLLINNI7. SEPTEMBER Miðaverð kr. 3.500,-. Þeir sem kaupa miða fyrir næstu mánaðamót greiða aðeins kr. 2.950,-. Rokkleikur Allir sem kaupa miða á Risarokkið fyrir mánaðamót verða með í rokkleik. Aðalvinningurinn er ferð fyrir tvo á Donnington rokkhátíðina í Englandi 18. ágúst. Þar leika Whitesnake, Quireboys, Aerosmith, Poison o.fl. 100 aukavinningar verða veittir þeim sem kaupa miða fyrir mánaðamót. Forsala aögöngumióa Reykjavík: Skífan, Kringlunni og Laugavegi 33, Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96, Steinar, Austur- stræti, Álfabakka 14, Glæsibæ, Rauðarárstíg 16 og Eiðistorgi. Hafnarfjörður: Steinar, Strandgötu 37. Akra- nes: Bókaskemman. Borgarnes: Kaupféiag Borgfirðinga. ísafjörður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga. Akureyri: KEA. Neskaupstaður: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Osp. Keflavík: Hljómval. Einnig er hægt að panta aðgöngumiða í síma 91 - 667 556. Þeir sem panta fyrir kl. 12 á miðnætti 1. ágúst verða með í rokkleiknum og eiga þess kost að komast til Donnington. Munið! Flugleiðir veita 35% afslátt afverði flugferða gegn framvísun aðgöngumiða að risarokktónleikunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.